Ofbeldi gegn börnum Börnin nutu vafans og skólabílstjóri fær engar bætur Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað Dalabyggð af kröfu manns um miska- og skaðabætur fyrir að hafa neitað honum um starf sem skólabílstjóri. Sveitarfélagið sendi verktakafyrirtæki sem annaðist aksturinn bréf þar sem tilkynnt var um þá ákvörðun að hafna því að maðurinn myndi sinna slíkum akstri. Innlent 22.1.2021 15:09 Pervertinn sagður hár, grannur og úlpuklæddur í kringum þrítugt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú karlmanns sem beraði á sér kynfærin fyrir framan nemendur í Seljaskóla í Breiðholti um hádegisbil í gær. Maðurinn er talinn í kringum þrítugt, hár og grannur. Innlent 21.1.2021 16:18 „Mér fannst þetta ljótur heimur og ég var hrædd við að eignast stelpu“ Konur sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfa oft að takast á við áfallið aftur og erfiðar tilfinningar þegar þær ganga í gegnum barneignarferli. Nadía Rut Reynisdóttir varð fyrir kynferðisofbeldi í útilegu með fjölskyldu sinni og vinafólki og sagði hún sína sögu í þættinum Líf dafnar sem sýndur var í gær. Lífið 21.1.2021 13:00 Grunur um fleiri mál þar sem börn fá greitt fyrir nektarmyndir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir þrjú til sex mál fullorðinna einstaklinga sem greiða fyrir nektarmyndir af börnum til rannsóknar hjá embættinu. Grunur sé um fleiri mál af sama toga. Innlent 19.1.2021 18:18 Starfsmanni í Skarðshlíðarskóla sagt upp vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni Starfsmanni við Skarðshlíðarskóla hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Skólastjóri í Skarðshlíðarskóla hefur eftir lögreglu að ekkert bendi til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað innan veggja skólans eða í skólastarfi á vegum skólans. Innlent 15.1.2021 15:55 Níu þúsund börn létust á írskum heimilum fyrir ógiftar mæður Á 19. og 20. öld létust 9.000 börn á átján stofnunum á Írlandi fyrir konur og stúlkur sem urðu þungaðar utan hjónabands. Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var í dag en forsætisráðherra landsins segir um að ræða myrkan, erfiðan og skammarlegan kafla í sögu þjóðarinnar. Erlent 12.1.2021 23:04 Börn fengið greiðslur frá útlöndum fyrir kynferðislegar myndir Tvær tilkynningar bárust ábendingalínu Barnaheilla í desember um að erlendir aðilar hafi greitt íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Framkvæmdastjóri heimilis- og skóla segir að foreldrar verði að vera vakandi fyrir þessari þróun. Innlent 7.1.2021 20:01 Íslenskum börnum greiddar fimm til tíu þúsund krónur fyrir kynferðislegar myndir Hátt í tíu mál voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í desember þar sem karlmenn greiddu allt niður í 13 ára íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Börnin fengu greiddar á bilinu fimm til tíu þúsund krónur fyrir myndina í gegnum forrit í símanum. Innlent 7.1.2021 07:01 Kennari sakaður um kynferðislega áreitni og ruddalegt athæfi gagnvart stúlku Karlmaður á Norðurlandi eystra hefur verið ákærður af Embætti héraðssaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn barni og barnaverndarlagabrot á árunum 2017 og 2018. Í ákærunni á hendur manninum segir að barnið hafi verið nemandi hans. Innlent 5.1.2021 11:06 Sex handteknir í aðgerðum tengdum barnaníði og vændi Sex voru nýverið handteknir í aðgerðum lögreglu gegn barnaníði á netinu og vændi. Fjórir voru handteknir grunaðir um að hafa haft barnaníðsefni í sinni vörslu og tveir handteknir vegna gruns um vændiskaup. Innlent 18.12.2020 15:49 Umdeildur kardínáli: Trump er villimaður kristinna manna Donald Trump er villimaður en hann er „okkar villimaður,“ segir kardinálinn George Pell í bókinni Prison Journal, sem fjallar meðal annars um þá 404 daga sem honum var haldið í einangrun eftir að hann var fundinn sekur um kynferðisofbeldi gegn börnum. Erlent 17.12.2020 12:34 Tilkynningum um barnaníðsefni gæti fækkað um 70% ef ný Evrópulöggjöf tekur gildi Svo kann að fara að internetfyrirtækjum verður ekki lengur heimilt að nota búnað sem ber kennsl á mögulegt barnaníðsefni. Ástæðan eru ný persónuverndarlög í Evrópu en viðræður standa yfir um undanþágur til handa fyrirtækjunum. Erlent 17.12.2020 07:53 Fjörutíu fórnarlömb mansals í mál við Pornhub Fjörutíu konur, sem allar birtust í myndböndum Girls Do Porn, hafa höfðað mál gegn Pornhub. Fullyrða konurnar að Pornhub og móðurfélag þess, MindGeek, hafi vitað að þeim ásökunum sem fram voru komnar um að konunum hefði verið ógnað og þær kúgaðar til þess að taka þátt í myndböndunum. Erlent 16.12.2020 20:22 Hundruð þúsunda beitt misnotkun á opinberum stofnunum á Nýja-Sjálandi Að minnsta kosti 250 þúsund börn, ungmenni og fullorðnir sem dvöldu á stofnunum á vegum nýsjálenska ríkisins á árunum 1950 til 1999 sættu einhvers konar misnotkun, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar. Erlent 16.12.2020 06:39 Mildaðir nauðgunardómar séu afleiðing manneklu Það gerist reglulega að dómar í kynferðisbrotamálum eru mildaðir í Landsrétti vegna dráttar á málsmeðferð. Þingmaður Viðreisnar segir ástæðuna vera aukinn málafjölda og skort á starfsfólki hjá ákæruvaldinu. Innlent 15.12.2020 19:45 Dæmdur fyrir 200 þúsund barnaklámsmyndir eftir brot gegn fötluðum skjólstæðingi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir vörslu á miklu magni barnaníðsefnis. Maðurinn var í júní á þessu ári dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi sínum. Innlent 15.12.2020 16:09 Grunnskólastarfsmaður handtekinn grunaður um brot gegn barnungri dóttur sinni Karlmaður var í þarsíðustu viku handtekinn vegna gruns um að hann hafi beitt barnunga dóttur sína kynferðislegu ofbeldi. Maðurinn er á fertugsaldri og er starfsmaður í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV. Innlent 14.12.2020 19:14 Landsréttur sneri við sjö ára dómi fyrir barnaníð Karlmaður á sextugsaldri sem dæmdur var í sjö ára fangelsi fyrir brot á syni sínum yfir margra ára tímabil hefur verið sýknaður í Landsrétti. Dómur var kveðinn upp í dag og taldi Landsréttur að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á sekt karlmannsins gegn eindreginni neitun hans. Innlent 11.12.2020 16:47 Leynileg upptaka af ólögráða stelpum í Mosfellsbæ Einstaklingur búsettur í Mosfellsbæ hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Er honum gefið að sök að hafa að kvöldi föstudags í maí í fyrra á heimili sínu í Mosfellsbæ stillt farsíma sínum upp inni á baðherbergi. Innlent 11.12.2020 07:01 Mastercard hættir viðskiptum við Pornhub Kortafyrirtækið Mastercard hefur ákveðið að slíta tengslum við klámsíðuna Pornhub eftir að í staðfest fékkst að á síðunni megi finna fjölmörg dæmi um barnaníð. Viðskipti erlent 10.12.2020 23:05 Mastercard með Pornhub til skoðunar vegna ásakana um barnaníð Kortafyrirtækið Mastercard hefur til skoðunar ásakanir á hendur klámsíðunni Pornhub.com í kjölfar fullyrðinga um að á síðunni megi finna fjölmörg dæmi um barnaníð. Viðskipti erlent 6.12.2020 22:42 72 tilkynningar í október þar sem barn var talið í yfirvofandi hættu Hátt í fimmtán hundruð tilkynningar bárust Barnaverndaverndarstofu í október. Forstjórinn segir tölurnar áhyggjuefni en ekki óvæntar. Innlent 5.12.2020 13:21 Sýknaður af brotum gegn dóttur fyrrverandi sambýliskonu Landsréttur staðfesti sýknu karlmanns sem var ákærður fyrir að misnota dóttur fyrrverandi sambýliskonu sinnar kynferðislega þegar hún var níu til ellefu ára gömul í dag. Innlent 4.12.2020 16:46 Lýsti í afmæli sínu hvernig afi léti sig strjúka „upp og niður“ Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta gegn stúlkubarni sem leit á hann sem afa sinn. Þá var hann sömuleiðis dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Innlent 1.12.2020 15:36 Arðsemin af breyttu kerfi um þjónustu við börn á pari við Kárahnjúkavirkjun og Keflavíkurflugvöll Víðtækar breytingar verða gerðar á þjónustu við barnafjölskyldur sem þurfa á stuðningi að halda samkvæmt nýju frumvarpi félags- og barnamálaráðherra. Arðseminni er líkt við stóra innviðafjárfestingu á borð við Kárahnjúkavirkjun. Innlent 30.11.2020 20:11 Þekking, fræðsla og verklag innan skóla varðandi forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum Dagana 19.-26. október 2020 gerðu Barnaheill netathugun innan leik- og grunnskóla landsins á þekkingu og fræðslu fyrir starfsfólk og nemendur og verklag varðandi forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum. Athugunin náði til 404 leik- og grunnskóla, en skólastjórnendum var sendur spurningalisti með sex spurningum. Alls svöruðu 189 skólar listanum eða 46,8%. Skoðun 30.11.2020 16:01 Makaskipti mömmu tíð og verst þegar um ofbeldismenn var að ræða Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir að ekki eigi að svipta börn bernskunni og sakleysi þeirra. Hann sjálfur þekkir það að alast upp við erfiðar aðstæður og segir málefni barna mikið áherslumál hjá honum og vonast hann til að hjálpa öðrum að glíma við sambærilegar aðstæður og hann upplifði. Innlent 28.11.2020 14:04 Nágrannar tilkynna mun meira en áður til barnaverndarnefnda Tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað um 14% milli ára á landsvísu. Nýjar deildir borgarinnar sinna eingöngu börnum af erlendum uppruna og börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Sviðsstjóri velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur miklar áhyggjur af ungmennum í hópnum. Innlent 26.11.2020 12:01 Börnum rænt og þau seld fyrir 55 þúsund krónur Stjórnvöld í Kenía hafa fyrirskipað rannsókn á þjófnaði og sölu barna í kjölfar uppljóstrana BBC. Í umfjöllun BBC kom m.a. fram að börnum væri stolið eftir pöntun á opinberum spítala í Naíróbí. Erlent 17.11.2020 19:59 Grunaður um brot gegn barni yfir tólf ára tímabil Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á Suðurlandi fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum gegn stúlku frá því hún var fjögurra ára og til fimmtán ára aldurs. Innlent 16.11.2020 13:10 « ‹ 16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 27 ›
Börnin nutu vafans og skólabílstjóri fær engar bætur Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað Dalabyggð af kröfu manns um miska- og skaðabætur fyrir að hafa neitað honum um starf sem skólabílstjóri. Sveitarfélagið sendi verktakafyrirtæki sem annaðist aksturinn bréf þar sem tilkynnt var um þá ákvörðun að hafna því að maðurinn myndi sinna slíkum akstri. Innlent 22.1.2021 15:09
Pervertinn sagður hár, grannur og úlpuklæddur í kringum þrítugt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú karlmanns sem beraði á sér kynfærin fyrir framan nemendur í Seljaskóla í Breiðholti um hádegisbil í gær. Maðurinn er talinn í kringum þrítugt, hár og grannur. Innlent 21.1.2021 16:18
„Mér fannst þetta ljótur heimur og ég var hrædd við að eignast stelpu“ Konur sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfa oft að takast á við áfallið aftur og erfiðar tilfinningar þegar þær ganga í gegnum barneignarferli. Nadía Rut Reynisdóttir varð fyrir kynferðisofbeldi í útilegu með fjölskyldu sinni og vinafólki og sagði hún sína sögu í þættinum Líf dafnar sem sýndur var í gær. Lífið 21.1.2021 13:00
Grunur um fleiri mál þar sem börn fá greitt fyrir nektarmyndir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir þrjú til sex mál fullorðinna einstaklinga sem greiða fyrir nektarmyndir af börnum til rannsóknar hjá embættinu. Grunur sé um fleiri mál af sama toga. Innlent 19.1.2021 18:18
Starfsmanni í Skarðshlíðarskóla sagt upp vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni Starfsmanni við Skarðshlíðarskóla hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Skólastjóri í Skarðshlíðarskóla hefur eftir lögreglu að ekkert bendi til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað innan veggja skólans eða í skólastarfi á vegum skólans. Innlent 15.1.2021 15:55
Níu þúsund börn létust á írskum heimilum fyrir ógiftar mæður Á 19. og 20. öld létust 9.000 börn á átján stofnunum á Írlandi fyrir konur og stúlkur sem urðu þungaðar utan hjónabands. Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var í dag en forsætisráðherra landsins segir um að ræða myrkan, erfiðan og skammarlegan kafla í sögu þjóðarinnar. Erlent 12.1.2021 23:04
Börn fengið greiðslur frá útlöndum fyrir kynferðislegar myndir Tvær tilkynningar bárust ábendingalínu Barnaheilla í desember um að erlendir aðilar hafi greitt íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Framkvæmdastjóri heimilis- og skóla segir að foreldrar verði að vera vakandi fyrir þessari þróun. Innlent 7.1.2021 20:01
Íslenskum börnum greiddar fimm til tíu þúsund krónur fyrir kynferðislegar myndir Hátt í tíu mál voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í desember þar sem karlmenn greiddu allt niður í 13 ára íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Börnin fengu greiddar á bilinu fimm til tíu þúsund krónur fyrir myndina í gegnum forrit í símanum. Innlent 7.1.2021 07:01
Kennari sakaður um kynferðislega áreitni og ruddalegt athæfi gagnvart stúlku Karlmaður á Norðurlandi eystra hefur verið ákærður af Embætti héraðssaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn barni og barnaverndarlagabrot á árunum 2017 og 2018. Í ákærunni á hendur manninum segir að barnið hafi verið nemandi hans. Innlent 5.1.2021 11:06
Sex handteknir í aðgerðum tengdum barnaníði og vændi Sex voru nýverið handteknir í aðgerðum lögreglu gegn barnaníði á netinu og vændi. Fjórir voru handteknir grunaðir um að hafa haft barnaníðsefni í sinni vörslu og tveir handteknir vegna gruns um vændiskaup. Innlent 18.12.2020 15:49
Umdeildur kardínáli: Trump er villimaður kristinna manna Donald Trump er villimaður en hann er „okkar villimaður,“ segir kardinálinn George Pell í bókinni Prison Journal, sem fjallar meðal annars um þá 404 daga sem honum var haldið í einangrun eftir að hann var fundinn sekur um kynferðisofbeldi gegn börnum. Erlent 17.12.2020 12:34
Tilkynningum um barnaníðsefni gæti fækkað um 70% ef ný Evrópulöggjöf tekur gildi Svo kann að fara að internetfyrirtækjum verður ekki lengur heimilt að nota búnað sem ber kennsl á mögulegt barnaníðsefni. Ástæðan eru ný persónuverndarlög í Evrópu en viðræður standa yfir um undanþágur til handa fyrirtækjunum. Erlent 17.12.2020 07:53
Fjörutíu fórnarlömb mansals í mál við Pornhub Fjörutíu konur, sem allar birtust í myndböndum Girls Do Porn, hafa höfðað mál gegn Pornhub. Fullyrða konurnar að Pornhub og móðurfélag þess, MindGeek, hafi vitað að þeim ásökunum sem fram voru komnar um að konunum hefði verið ógnað og þær kúgaðar til þess að taka þátt í myndböndunum. Erlent 16.12.2020 20:22
Hundruð þúsunda beitt misnotkun á opinberum stofnunum á Nýja-Sjálandi Að minnsta kosti 250 þúsund börn, ungmenni og fullorðnir sem dvöldu á stofnunum á vegum nýsjálenska ríkisins á árunum 1950 til 1999 sættu einhvers konar misnotkun, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar. Erlent 16.12.2020 06:39
Mildaðir nauðgunardómar séu afleiðing manneklu Það gerist reglulega að dómar í kynferðisbrotamálum eru mildaðir í Landsrétti vegna dráttar á málsmeðferð. Þingmaður Viðreisnar segir ástæðuna vera aukinn málafjölda og skort á starfsfólki hjá ákæruvaldinu. Innlent 15.12.2020 19:45
Dæmdur fyrir 200 þúsund barnaklámsmyndir eftir brot gegn fötluðum skjólstæðingi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir vörslu á miklu magni barnaníðsefnis. Maðurinn var í júní á þessu ári dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi sínum. Innlent 15.12.2020 16:09
Grunnskólastarfsmaður handtekinn grunaður um brot gegn barnungri dóttur sinni Karlmaður var í þarsíðustu viku handtekinn vegna gruns um að hann hafi beitt barnunga dóttur sína kynferðislegu ofbeldi. Maðurinn er á fertugsaldri og er starfsmaður í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV. Innlent 14.12.2020 19:14
Landsréttur sneri við sjö ára dómi fyrir barnaníð Karlmaður á sextugsaldri sem dæmdur var í sjö ára fangelsi fyrir brot á syni sínum yfir margra ára tímabil hefur verið sýknaður í Landsrétti. Dómur var kveðinn upp í dag og taldi Landsréttur að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á sekt karlmannsins gegn eindreginni neitun hans. Innlent 11.12.2020 16:47
Leynileg upptaka af ólögráða stelpum í Mosfellsbæ Einstaklingur búsettur í Mosfellsbæ hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Er honum gefið að sök að hafa að kvöldi föstudags í maí í fyrra á heimili sínu í Mosfellsbæ stillt farsíma sínum upp inni á baðherbergi. Innlent 11.12.2020 07:01
Mastercard hættir viðskiptum við Pornhub Kortafyrirtækið Mastercard hefur ákveðið að slíta tengslum við klámsíðuna Pornhub eftir að í staðfest fékkst að á síðunni megi finna fjölmörg dæmi um barnaníð. Viðskipti erlent 10.12.2020 23:05
Mastercard með Pornhub til skoðunar vegna ásakana um barnaníð Kortafyrirtækið Mastercard hefur til skoðunar ásakanir á hendur klámsíðunni Pornhub.com í kjölfar fullyrðinga um að á síðunni megi finna fjölmörg dæmi um barnaníð. Viðskipti erlent 6.12.2020 22:42
72 tilkynningar í október þar sem barn var talið í yfirvofandi hættu Hátt í fimmtán hundruð tilkynningar bárust Barnaverndaverndarstofu í október. Forstjórinn segir tölurnar áhyggjuefni en ekki óvæntar. Innlent 5.12.2020 13:21
Sýknaður af brotum gegn dóttur fyrrverandi sambýliskonu Landsréttur staðfesti sýknu karlmanns sem var ákærður fyrir að misnota dóttur fyrrverandi sambýliskonu sinnar kynferðislega þegar hún var níu til ellefu ára gömul í dag. Innlent 4.12.2020 16:46
Lýsti í afmæli sínu hvernig afi léti sig strjúka „upp og niður“ Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta gegn stúlkubarni sem leit á hann sem afa sinn. Þá var hann sömuleiðis dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Innlent 1.12.2020 15:36
Arðsemin af breyttu kerfi um þjónustu við börn á pari við Kárahnjúkavirkjun og Keflavíkurflugvöll Víðtækar breytingar verða gerðar á þjónustu við barnafjölskyldur sem þurfa á stuðningi að halda samkvæmt nýju frumvarpi félags- og barnamálaráðherra. Arðseminni er líkt við stóra innviðafjárfestingu á borð við Kárahnjúkavirkjun. Innlent 30.11.2020 20:11
Þekking, fræðsla og verklag innan skóla varðandi forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum Dagana 19.-26. október 2020 gerðu Barnaheill netathugun innan leik- og grunnskóla landsins á þekkingu og fræðslu fyrir starfsfólk og nemendur og verklag varðandi forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum. Athugunin náði til 404 leik- og grunnskóla, en skólastjórnendum var sendur spurningalisti með sex spurningum. Alls svöruðu 189 skólar listanum eða 46,8%. Skoðun 30.11.2020 16:01
Makaskipti mömmu tíð og verst þegar um ofbeldismenn var að ræða Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir að ekki eigi að svipta börn bernskunni og sakleysi þeirra. Hann sjálfur þekkir það að alast upp við erfiðar aðstæður og segir málefni barna mikið áherslumál hjá honum og vonast hann til að hjálpa öðrum að glíma við sambærilegar aðstæður og hann upplifði. Innlent 28.11.2020 14:04
Nágrannar tilkynna mun meira en áður til barnaverndarnefnda Tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað um 14% milli ára á landsvísu. Nýjar deildir borgarinnar sinna eingöngu börnum af erlendum uppruna og börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Sviðsstjóri velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur miklar áhyggjur af ungmennum í hópnum. Innlent 26.11.2020 12:01
Börnum rænt og þau seld fyrir 55 þúsund krónur Stjórnvöld í Kenía hafa fyrirskipað rannsókn á þjófnaði og sölu barna í kjölfar uppljóstrana BBC. Í umfjöllun BBC kom m.a. fram að börnum væri stolið eftir pöntun á opinberum spítala í Naíróbí. Erlent 17.11.2020 19:59
Grunaður um brot gegn barni yfir tólf ára tímabil Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á Suðurlandi fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum gegn stúlku frá því hún var fjögurra ára og til fimmtán ára aldurs. Innlent 16.11.2020 13:10