Tekjurnar umfram væntingar og gætu nálgast efri mörkin í afkomuspá Alvotech Stjórnendur Alvotech sjá ekki ástæðu til að uppfæra afkomuáætlun sína fyrir þetta ár en eftir niðurstöðu þriðja fjórðungs, sem var nokkuð umfram væntingar greinenda, er útlit fyrir að tekjur félagsins verði í eftir mörkum þess sem áður hefur verið gefið út. Miklar sveiflur voru á hlutabréfaverði Alvotech í dag en félagið greindi meðal annars frá því að FDA hefði í reglubundinni úttekt fyrr í haust gert tvær athugasemdir við framleiðsluaðstöðuna í Reykjavík. Innherji 14.11.2024 22:37
Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21. Innlent 14.11.2024 14:05
Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Icelandair hefur bætt nýjum áfangastað við leiðakerfið sitt, hinni sögufrægu borg Istanbul í Tyrklandi. Flogið verður til borgarinnar fjórum sinnum í viku frá 5. september 2025 og er flugtími um fimm klukkustundir og 30 mínútur. Viðskipti innlent 14.11.2024 13:33
Frægir flugfreyjubúningar í útgáfuhófi Loftleiðabókar Konur klæddar gömlum flugfreyjubúningum Loftleiða tóku á móti gestum útgáfuhófs ljósmyndabókar um Loftleiðasöguna, sem Sigurgeir Orri Sigurgeirsson gefur út í samvinnu við Sögufélag Loftleiða. Útkomu bókarinnar var fagnað síðdegis í gær, sunnudag, og að sjálfsögðu á Loftleiðahótelinu. Lífið 11. nóvember 2024 09:02
Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Guðmundur Tómas Sigurðsson er nýr flugrekstrarstjóri Icelandair. Hann tekur við starfinu af Hauki Reynissyni sem ætlar að snúa aftur í flugstjórnarklefann. Viðskipti innlent 9. nóvember 2024 13:44
Brimgarðar minnka verulega stöðu sína í Reitum og Heimum Brimgarðar, stór einkafjárfestir í öllum skráðu fasteignafélögunum, hefur á undanförnum tveimur mánuðum losað um verulegan hluta af stöðu sinni í Heimum og Reitum samtímis því að fjárfestingafélagið hefur freistað þess að stækka enn frekar við eignarhlut sinn í Eik. Innherji 9. nóvember 2024 12:21
Controlant klárar milljarða fjármögnun með aðkomu lífeyrissjóða og Arion Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur glímt við rekstrarerfiðleika að undanförnu, hefur lokið við samanlagt um 35 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun, einkum með nýju hlutafé frá nokkrum lífeyrissjóðum og láni frá Arion. Stjórnarformaður Controlant segir að þótt kaup- og innleiðingaferli alþjóðlegra lyfjarisa á stafrænni tækni og rauntímavöktun hafi tafist þá sé félagið bjartsýnt á framhaldið enda í „einstakri stöðu“ til að umbylta aðfangakeðju lyfja. Innherji 8. nóvember 2024 13:46
Kvika ætlar að greiða út tuttugu milljarða arð þegar salan á TM klárast Stjórnendur Kviku hafa ákveðið að útgreiðsla til hluthafa bankans vegna sölunnar á TM til Landsbankans fyrir um ríflega þrjátíu milljarða króna verði talsvert hærri en áður hefur verið gefið út. Þrátt fyrir það mun eiginfjárhlutfall Kviku hækka verulega við söluna og bankinn áætlar að á meðal annars grunni þess geti hann í framhaldinu tvöfaldað lánabókina á næstu þremur árum. Innherji 7. nóvember 2024 18:30
Hundrað punkta lækkun vaxta myndi hækka virði eigna Heima um 26 milljarða Stjórnendur Heima munu áfram halda að skoða tækifæri til eignasölu en á árinu hefur félagið selt eignir fyrir um 3,3 milljarða og mun skila þeim fjármunum til hluthafa í gegnum kaup á eigin bréfum. Eftir mikla hækkun á hlutabréfaverði Heima síðustu mánuði er virði hlutafjár núna að nálgast bókfært eigið fé en væntingar um lækkandi vaxtastig ættu að hafa mikil jákvæð áhrif á virðismat fjárfestingareigna og vaxtakostnað fasteignafélaganna. Innherji 7. nóvember 2024 11:43
Sætanýtingin aldrei verið betri í október Flugfélagið Play flutti 138.155 farþega í október 2024, samanborið við 154.479 farþega í október í fyrra. Sætanýting félagsins í mánuðinum var 85,3 prósent, og hefur hún aldrei verið hærri í októbermánuði í sögu félagsins. Sætanýtingin í október á síðasta ári var 83 prósent. Viðskipti innlent 7. nóvember 2024 10:39
Hagnaður Kviku áttfaldast samtímis vexti á öllum tekjusviðum bankans Mikill viðsnúningur var í rekstri Kviku á þriðja ársfjórðungi þegar bankinn hagnaðist um ríflega 1,8 milljarða af áframhaldandi starfsemi, sem jafngildir um 22,4 prósenta arðsemi, og jókst hann um áttfalt á milli ára þar sem allar einingar voru um eða yfir áætlun. Eftir nokkurt tap á starfsemi Kviku í Bretlandi í fyrra hefur reksturinn núna skilað um 900 milljóna hagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins en bankinn áformar að markaðssetja nýjan framtakssjóð í árslok sem á að fjárfesta í Bretlandi. Innherji 6. nóvember 2024 18:16
Hlutabréfaverð Icelandair hækkar með viðsnúningi í farþegafluginu til Íslands Eftir stöðugan samdrátt í ferðum til Íslands undanfarna mánuði varð viðsnúningur í október þegar markaðurinn tók við sér og Icelandair flutti fleiri farþega til landsins en á sama tíma fyrir ári. Hlutabréfaverð Icelandair hefur hækkað skarpt eftir birtingu á nýjum farþegatölum í morgun en samdráttur í farþegaflugi til Íslands á árinu hefur haft neikvæð áhrif á einingatekjur félagsins. Innherji 6. nóvember 2024 11:14
Aukning í ferðalögum til landsins Icelandair flutti 409 þúsund farþega í október, 12 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 35 prósent á leið til Íslands, 17 prósent frá Íslandi, 42 prósent ferðuðust um Ísland og 6 prósent innan Íslands. Eftirspurn eftir ferðum til Íslands hefur aukist á nýjan leik eftir minni eftirspurn mánuðina á undan. Viðskipti innlent 6. nóvember 2024 10:06
Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Skúli Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish, sem ber ábyrgð á vöruþróun, sölu, framleiðslu og þjónustu fyrir viðskiptavini Marel í fiskiðnaði. Viðskipti innlent 5. nóvember 2024 09:23
Telur að aukið vægi tengiflugs muni setja þrýsting á EBIT-hlutfall Icelandair Þótt sumt vinni með flugfélögunum til skamms tíma, eins og meðal annars lækkandi þotueldsneytisverð, er meiri óvissa um langtímahorfurnar vegna launahækkana og lakari samkeppnisstöðu Íslands, að mati greinanda, sem tekur nokkuð niður verðmat sitt á Icelandair. Útlit er fyrir bætta afkomu á komandi árum, einkum með nýjum og sparneytnari þotum, en aukið vægi tengiflugs þýðir að langtímamarkmið flugfélagsins um átta prósenta EBIT-hlutfall er ekki innan seilingar. Innherji 4. nóvember 2024 15:04
Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið í fjórar stöður stjórnenda hjá bankanum. Árdís Björk Jónsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður daglegra bankaviðskipta, Freyr Guðmundsson forstöðumaður stafrænnar þróunar, Guðmundur Böðvar Guðjónsson deildarstjóri vörumerkis og Petra Björk Mogensen forstöðumaður viðskiptaumsjónar. Viðskipti innlent 4. nóvember 2024 13:15
Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar Alvotech og samstarfsaðili þess, alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma tilkynntu í dag að Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hafi samþykkt að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT05, sem er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða Alvotech við Simponi (golimumab), sem notað er til meðferðar við ýmsum þrálátum bólgusjúkdómum. Viðskipti innlent 4. nóvember 2024 12:21
Fólk, fjárfestingar og framfarir Það er vel þekkt að lítil og meðalstór fyrirtæki eru einn helsti drifkraftur atvinnusköpunar, hagvaxtar og umbóta. Það er einnig þekkt að þau eiga gjarnan erfiðara með að fjármagna sig en stærri fyrirtæki. Þetta skapar augljósan vanda sem kallar á margþættar lausnir. Skoðun 4. nóvember 2024 12:00
Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Skandinavíska flugfélagið SAS hefur tilkynnt um að það hefji áætlunarflug milli Danmerkur og Grænlands á ný eftir tveggja áratuga hlé. SAS hyggst fljúga þrisvar í viku yfir sumartímann milli Kaupmannahafnar og Nuuk og verður fyrsta flugið þann 27. júní næstkomandi. Viðskipti erlent 2. nóvember 2024 15:45
Verðtryggingarmisvægi bankanna jókst um nærri hundrað milljarða Verðtryggingarmisvægi stóru viðskiptabankanna jókst um tæplega fimmtung á þriðja ársfjórðungi, langsamlega mest hjá Landsbankanum, samtímis áframhaldandi ásókn heimila í verðtryggð lán. Bankarnir hafa sögulega séð aldrei verið með eins mikla skekkju á verðtryggðum eignum og skuldum en sú staða á meðan verðbólga er að hjaðna hratt gæti sett þrýsting á vaxtatekjur þeirra. Innherji 2. nóvember 2024 12:35
Breytt skipurit og nýir stjórnendur hjá Sýn Nýtt skipurit Sýnar tekur við á morgun og taka tveir nýir stjórnendur sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Guðmundur H. Björnsson mun leiða nýtt svið upplifunar viðskiptavina og Gunnar Sigurjónsson mun taka við sviði upplýsingatækni af Gunnari Guðjónssyni. Viðskipti innlent 31. október 2024 20:11
Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31. október 2024 13:02
Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31. október 2024 10:59
Play – hagsmunamál heimilanna? Ráðgjafanum brá í brún þegar bóka átti skíðafrí fjölskyldunnar þetta árið. Sama flug og í fyrra, bókað á sama árstíma en ríflega tvöfalt dýrara. Ástæðan er einföld – breytingar á leiðarkerfi Play sem valda því að Icelandair situr eitt að mörgum af helstu skíðaleggjum Evrópu. Innherji 31. október 2024 09:07