Innlent

Pervertinn sagður hár, grannur og úlpuklæddur í kringum þrítugt

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Seljaskóli, hvar pervertinn virðist hafa athafnað sig í dag og í gær.
Seljaskóli, hvar pervertinn virðist hafa athafnað sig í dag og í gær. Reykjavíkurborg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú karlmanns sem beraði á sér kynfærin fyrir framan nemendur í Seljaskóla í Breiðholti um hádegisbil í gær. Maðurinn er talinn í kringum þrítugt, hár og grannur. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu nú á fimmta tímanum. Þar segir að eftir atvikið í gær hafi önnur tilkynning borist lögreglu í morgun. Í henni hafi einnig verið greint frá „mjög svo óviðeigandi háttsemi karlmanns“ við Seljaskóla. Lögregla telur líklegt að um sama manninn sé að ræða.

Í tilkynningu segir að maðurinn sé sagður hár og grannur og í kringum þrítugt. Hann hafi verið klæddur í svartar gallabuxur, úlpu, með svarta húfu og grímu.

„Þeir sem búa yfir upplýsingum um málið, eða telja sig vita hvaða maður á í hlut, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu. Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Foreldrar í Seljahverfi skelkaðir

Vísir ræddi í dag við Atla Má Gylfason, blaðamann og foreldri barns í Seljaskóla. Hann sagði gersamlega óþolandi að lögregla skuli ekki grípa til aðgerða vegna mannsins. Foreldrar í hverfinu væru skelkaðir, þeim brugðið og börn sem áður hefðu gengið ein í skólann væri ýmist fylgt eða þeim ekið á staðinn.

Stjórnendur Seljaskóla upplýstu forráðamenn barna í skólanum um málið í erindi, þar sem fram kom að breyta ætti fyrirkomulagi við frímínútur og grípa ætti til annarra aðgerða jafnframt til að verja börnin gagnvart þessum ágangi.

Greint var frá sambærilegu athæfi manns við Seljaskóla árið 2015. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að ekki sé vitað hvort um sama mann sé að ræða. Vísir hefur ekki náð í Magnús Þór Jónsson skólastjóra Seljaskóla vegna málsins nú síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×