Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Bandaríska Alríkislögreglan leitar óþekkts einstaklings sem er grunaður um að kveikja í tveimur kjörkössum, annars vegar í Vancouver í Washington-ríki og hins vegar Portland í Oregon-ríki. Þess má geta að borgirnar tvær eru mjög skammt frá hvorri annarri. Erlent 14.11.2024 22:36
Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að hann ætli að velja Robert F. Kennedy yngri sem heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn hans. Erlent 14.11.2024 21:28
Vill sýna þinginu hver ræður Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur á dögunum opinberað hverja hann ætlar að tilnefna í nokkur mikilvæg embætti í ríkisstjórn sinni. Þrjár af þessum tilnefningum eru umdeildari en aðrar og er Trump sagður mana þingmenn Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni til að standa í vegi sér. Erlent 14.11.2024 13:33
Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseti Bandaríkjanna, heldur áfram að vekja ugg með útnefningum sínum í hin ýmsu embætti en hann tilkynnti í gær að Pete Hegseth, sjónvarpsmaður hjá Fox News, yrði næsti varnarmálaráðherra landsins. Erlent 13. nóvember 2024 06:52
Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, virðist ekki vera að sóa tíma við að skipa menn í ríkisstjórn sína. Á síðustu dögum hefur hann tilkynnt hverja hann vill í þó nokkur embætti og eru þó nokkrir þingmenn úr Repúblikanaflokknum þar á meðal. Erlent 12. nóvember 2024 11:20
Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Kristján Ingi Mikaelsson, stjórnarformaður Rafmyntaráðs og meðstjórnandi Visku digital assets, segir rafmyntir eins og Bitcoin komnar til að vera. Það sé jafnvel jólagjöf ársins í ár. Bitcoin hefur hækkað töluvert síðasta daga og hefur gjaldmiðillinn aldrei verið verðmætari. Viðskipti innlent 12. nóvember 2024 10:05
Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Donald Trump, verðandi og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur valið Elise Stefanik til að verða sendiherra hans gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Stefanik situr í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og hefur lengi verið einn ötulasti stuðningsmaður Trumps þar og kom hún til greina sem varaforsetaefni hans. Erlent 11. nóvember 2024 15:24
Vill losna við tálma úr vegi sínum Eftir að hafa tryggt sér Hvíta húsið og meirihluta í öldungadeildinni er útlit fyrir að Repúblikanar muni einnig enda með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Fari kosningarnar svo er fátt sem staðið getur í vegi Donalds Trump og stefnumálum ríkisstjórnar hans á næsta kjörtímabili en hann er þegar byrjaður að þrýsta á Repúblikana á þingi um að fjarlægja tálma úr vegi hans. Erlent 11. nóvember 2024 11:00
Trump vann öll sveifluríkin Donald Trump, nýkjörinn verðandi Bandaríkjaforseti, hafði betur gegn demókratanum Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, í öllum sjö sveifluríkjunum. Búið er að telja nógu mörg atkvæði í síðasta ríkinu, Arizona, til að telja öruggt að Trump fari þar með sigur. Erlent 10. nóvember 2024 09:44
„Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Demókratar eru þegar farnir að undirbúa næstu lotu þingkosninga í Bandaríkjunum, eftir tvö ár, en útlit er fyrir að Repúblikanar verði í meirihluta í báðum þingdeildum þangað til. Erlent 9. nóvember 2024 14:21
Var búin að gleyma að hafa kallað Trump fordómafullan fábjána Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir löngu hafa gleymt tísti frá 2015 þar sem hún kallaði Donald Trump verðandi forseta Bandaríkjanna þröngsýnan, fáfróðan og fordómafullan fábjána. Innlent 8. nóvember 2024 12:02
Pútín óskar Trump til hamingju Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur óskað Donald Trump til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum vestra á dögunum. Erlent 8. nóvember 2024 08:44
Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Donald Trump, nýkjörinn verðandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í kvöld að hann væri búinn að velja sér starfsmannastjóra fyrir komandi forsetatíð sína. Hún heitir Susie Wiles og verður fyrsta konan til að gegna embættinu síðan það var fyrst stofnað fyrir nærri því áttatíu árum síðan. Erlent 7. nóvember 2024 23:15
Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Enn er óljóst með hvor flokkurinn, Repúblikanar eða Demókratar, muni vera með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Mikil spenna ríkir í síðustu kjördæmunum þar sem úrslit liggja ekki fyrir en gífurlega mikið er í húfi. Erlent 7. nóvember 2024 23:01
Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ „Í rúm tvö hundruð ár hafa Bandaríkin staðið í mikilfenglegustu stjálfstjórnartilraun í alheimssögunni. Það er ekki ýkja það er staðreynd. Þar kýs fólk og velur sér sína eigin leiðtoga á friðsamlegan hátt. Í lýðræði nær vilji fólksins alltaf fram,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði þjóð sína í dag. Erlent 7. nóvember 2024 17:22
Heiðdís Rós fagnaði sigrinum með sjálfum Trump Heiðdís Rós Reynisdóttir, athafnakona og förðunarfræðingur, mætti og studdi Donald Trump, nýkjörsins forseta Bandaríkjanna, á kosningavöku hans í Flórída á þriðjudaginn. Lífið 7. nóvember 2024 13:28
Eignasala fjármagnar taprekstur Kostulegt var að sjá fyrirsagnir miðlanna í kjölfar birtingu uppgjörs og fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. Á einum miðlinum var talað um „Hagnað upp á hálfan milljarð”, og á hinum ýmist um „viðsnúning“ og að „hagræðingaraðgerðir“ væru að bera árangur. Innherji 7. nóvember 2024 09:56
Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders segir enga furðu að verkalýðsstéttin hafi snúið baki við Demókrataflokknum í nýafstöðnum forseta- og þingkosningum í Bandaríkjunum. Slíkt gerist þegar flokkurinn snúi baki við verkalýðsstéttinni. Erlent 7. nóvember 2024 08:48
Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Kamala Harris játaði ósigur í forsetakosningum Bandaríkjunum og þakkaði stuðningsfólki sínu í ávarpi í kvöld. Hún hringdi í Donald Trump næsta Bandaríkjaforseta og tjáði honum að hún muni sjá til þess að valdaskiptin verði friðsamleg. Erlent 6. nóvember 2024 22:29
„Hann kemur margfalt sterkari til leiks núna” Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir sigur Trump í forsetakosningunum ekki koma á óvart en það komi á óvart hversu afgerandi hann er. Hann segir hann koma reyndari til baka í forsetaembættið. Það eigi eftir að koma í ljós hver áhrifin á umheiminn eigi eftir að verða. Innlent 6. nóvember 2024 20:30
Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Kamala Harris forsetaframbjóðandi demókrata, sem laut í lægra haldi gegn Donald Trump frambjóðanda repúblikana, er búin að ræða við þann síðarnefnda og játa ósigur. Hún sleppti því að ávarpa stuðningsmenn sína í nótt en hyggst gera það síðar í kvöld. Erlent 6. nóvember 2024 19:11
Trump áhrifameiri en nokkru sinni fyrr Donald Trump verður á næstu árum áhrifameiri en nokkru sinni fyrr, segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Nú taki við einstaklingur sem er búinn að læra á kerfin, með þingið í vasanum og dómara hliðholla sér við hæstarétt. Innlent 6. nóvember 2024 14:15
„Afskaplega slæmar fréttir fyrir heimshagkerfið“ Ætli Trump að efna margítrekað kosningaloforð sitt um að hækka innflutningstolla verulega mun það hafa slæm áhrif á heimshagkerfið og ýta undir verðbólgu að mati framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Tollahækkanirnar muni hafa sérstaklega neikvæð áhrif á Ísland Innlent 6. nóvember 2024 12:01
Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Prófessor við viðskiptafræðisdeild Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra er hugsi eftir að ljóst er að Donald Trump verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur árin. Bakslag í hnattrænni hlýnun, tangarhald kristinna hægri manna á Hæstarétt og uppgangur Rússlands á kostnað Úkraínu er meðal þess sem tínt er til. Erlent 6. nóvember 2024 10:44