Golf

Ólafía Þórunn fékk rúmlega 320 þúsund krónur í frumrauninni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía var í góðum gír í dag.
Ólafía var í góðum gír í dag. MYND/GSÍ/[email protected]
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, fékk 2783 dollara í sinn hlut eftir að hafa lent í 69.-72. sæti á Pure Silk Championship mótinu á Bahamaeyjum um helgina en þetta var frumraun hennar á LPGA-mótaröðinni.

Sjá einnig:Ólafía Þórunn lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari



Ólafía fékk keppnisrétt strax á fyrsta móti eftir frábæra frammistöðu á úrtökumótinu í desember en hún komst í gegnum niðurskurðinn í fyrstu tilraun.

Verðlaunaféð á mótinu taldi alls 1,4 milljón dollara og fengu allir kylfingarnir sem komust í gegnum niðurskurðinn sinn hluta af verðlaunafé mótsins.

Sjá einnig:Ólafía Þórunn: Lærði helling af þessu móti | Var með lag Jóns Jónssonar á heilanum í allan dag

Brittany Lincicome stóð uppi sem sigurvegari á 26. höggum undir pari eftir bráðabana gegn Lexi Thompson en Brittany fékk 210.000 dollara fyrir sigurinn, rúmlega 24 milljónir íslenskra króna.

Ólafía fékk eins og áður segir 2783 dollara fyrir árangur sinn á mótinu eða rúmlega 320 þúsund íslenskar krónur strax á fyrsta móti en það gæti reynst henni dýrmætt að lokum.

Sjá einnig:Fjórði hringurinn var mun líkari fyrstu tveimur hjá Ólafíu Þórunni

Peningamálin skipta þó miklu máli þegar uppi er staðið þar sem efstu 125 kylfingarnir á peningalista LPGA-mótaraðarinnar í lok árs endurnýja sjálfkrafa keppnisrétt sinn á mótaröðinni.


Tengdar fréttir

Nýtt vallarmet sett á Bahamaeyjum í gær

Ólafía er í tuttugasta sæti fyrir þriðja hringinn á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á LPGA-mótaröðinni en efstu kylfingarnir hafa leikið hreint út sagt ótrúlegt golf á fyrstu tveimur dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×