Golf

Ís­lendingur efstur í Arkansas: „Hann er ný­nemi!“

Sindri Sverrisson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson, sem er 18 ára gamall, varð í 5. sæti á Íslandsmótinu á Hólmsvelli í sumar.
Gunnlaugur Árni Sveinsson, sem er 18 ára gamall, varð í 5. sæti á Íslandsmótinu á Hólmsvelli í sumar. [email protected]

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson úr GKG átti frábæran hring í gær og er efstur á einu virtasta háskólamóti Bandaríkjanna í golfi.

Gunnlaugur Árni er á sínu fyrsta ári í Louisiana State háskólanum og því að taka sín fyrstu skref í bandaríska háskólagolfinu.

Það kemur ekki í veg fyrir að hann sé efstur á Blessings Collegiate Invitational, þar sem hundrað kylfingar úr tíu háskólum keppa og þar af margir af bestu kylfingum háskólagolfsins.

„HANN ER NÝNEMI!“ segir Golf Channel á Twitter-síðu sinni og sýnir myndband af fallegu pútti Gunnlaugs Árna fyrir fugli á átjándu flöt.

Gunnlaugur Árni lék á -5 höggum í gær og er samtals á -6 höggum eftir tvo hringi af þremur. Hann er með þriggja högga forskot á næsta mann í einstaklingskeppninni.

Frammistaða Gunnlaugs Árna veldur því einnig að LSU er efstur skólanna tíu í liðakeppni karla, á samtals +6 höggum, með tveggja högga forskot á Mississippi State.

Mjög öruggur allan tímann

Hver skóli er með tíu manna lið; fimm manna lið karla og fimm manna lið kvenna, og eru veitt verðlaun fyrir sigur í liðakeppnunum þremur og einstaklingskeppnum.

Leikið er í Arkansas, þar sem að Arkansas Razorbacks unnu mótið í fyrra í öllum flokkum.

Gunnlaugur Árni fékk sex fugla í gær, þrjá á fyrri níu holunum og þrjá á seinni. Eini skollinn hans kom á 14. holu.

„Þetta var bara mjög öruggt frá fyrsta teighöggi fram að lokapúttinu. Ég man í raun bara eftir einum eða tvennum mistökum, og þetta var bara mjög örugg frammistaða.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×