Golf

Ólafía Þórunn: Lærði helling af þessu móti | Var með lag Jóns Jónssonar á heilanum í allan dag

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía horfir á eftir upphafshöggi í dag.
Ólafía horfir á eftir upphafshöggi í dag. MYND/GSÍ/[email protected]
„Þetta var venjulegur dagur hjá mér miðað við það sem var í gangi í gær. Mér leið vel þegar ég vaknaði í morgun og ég vissi að þetta yrði allt öðruvísi en á þriðja hringnum,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir við fréttaritara golf.is eftir að hafa lokið leik á fyrsta mótinu á LPGA-mótaröðinni í dag.

Ólafía var þakklát að hafa fengið að spila með vinkonu sinni úr Wake Forrest skólanum.

„Ef ég dreg þetta mót saman þá var geggjað að fá að spila með Cheyenne Woods vinkonu minni fyrstu tvo hringina. Það hjálpaði mér mikið, sjálfstraustið er meira hjá mér eftir þetta mót en fyrir það.“

Sjá einnig:Ólafía Þórunn lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari

Nú tekur við rúmlega hálfs mánaðar pása þar sem Ólafía getur æft áður en næsta mót hefst í Ástralíu þann 16. febrúar næstkomandi.

„Ég hlakka til að takast á við næsta verkefni í Ástralíu og ég lærði helling af þessu móti. Ég fór aðeins að efast um sjálfa mig á þriðja hringnum en það er frábært að leika þrjá hringi af fjórum undir pari – ég tek það með mér í framhaldið.“

Sjá einnig:Fjórði hringurinn var mun líkari fyrstu tveimur hjá Ólafíu Þórunni

Ólafía sagðist hafa hugsað um lag eftir Jón Jónsson allan hringinn en hún sagðist gera það til þess að njóta dagsins. Hugmyndin kom frá kærasta hennar og kylfusveini.

„Ég var með lag á heilanum á öllum hringnum eftir Jón Jónsson, Your Day, og það má þakka Thomas Bojanowski kærastanum mínum og aðstoðarmanni mínum í þessu móti fyrir það lagaval. Gott sálfræðitrix hjá honum,“ sagði Ólafía en nánar verður rætt við hana í Fréttablaðinu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×