Fótbolti

Kom heim með skjala­tösku fulla af seðlum frá Rúss­landi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnór Smárason kláraði ferilinn með uppeldisfélaginu ÍA í haust.
Arnór Smárason kláraði ferilinn með uppeldisfélaginu ÍA í haust. Vísir/Hulda Margrét

Arnór Smárason átti skammvinnan en áhugaverðan tíma í Rússlandi er hann lék sem lánsmaður hjá liði Torpedo Moskvu fyrir tæpum áratug. Launin skiluðu sér misvel frá félaginu.

„Þetta er náttúrulega allt öðruvísi kúltúr. Bæði úti á götu og líka innan fótboltans. Það var alveg þægilegt síðasta hvers mánaðar að fá launin inn á bókina í Svíþjóð. Það var ekki raunin í Rússlandi,“ segir Arnór í viðtali við Stöð 2 þar sem hann gerir upp ferilinn.

Hann var á láni hjá Torpedo Moskvu vorið 2015, frá Helsingborg í Svíþjóð. Eftir lánssamninginn í Rússlandi fór hans til annars sænks liðs, Hammarby. Gott hafi verið að komast aftur í fjárhagslega öryggið í Stokkhólmi eftir skrautlegan tíma í rússnesku höfuðborginni.

Arnór gerði sér síðar sérstaka ferð til Moskvu til að innheimta þau laun sem hann átti inni.

„Ég fór tveimur árum síðar. Þá gerði ég mér ferð með skjalatöskuna til að ná í einhvern af þessum peningum aftur. Það tókst, ótrúlegt en satt,“

„Ég gerði mér bara ferð, var þarna í tvo daga og markmiðið var bara að sækja seðilinn,“ segir Arnór sem var þá spurður hvort hann hefði ekkert fengið greitt á meðan Rússlandsdvöl hans stóð.

„Ég fékk einhvern einn og hálfan mánuð greiddan og einhverja markabónusa. En það var ekkert mikið meira en það. En þetta kom allt fyrir rest. En ég þurfti að gera mér sér ferð.“

Arnór gerði ferilinn upp í samtali við íþróttadeild en viðtalið má sjá í heild að ofan. Þá má hlusta á það í Besta sætinu á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Þar á meðal hér að neðan.


Tengdar fréttir

Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik

Töluverður rígur var milli jafnaldra Arnórs Smárasonar og Rúriks Gíslasonar á yngri árum. Vítaklúður Arnórs veitti Rúrik og félögum sigurinn á Shell-mótinu í Eyjum á sínum tíma.

Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig

Arnór Smárason hætti nýverið knattspyrnuiðkun eftir langan og farsælan feril. Hann skilur sáttur við og er lítið að stressa sig á framtíðinni, enn sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×