Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í áttunda sinn | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2015 18:02 Neymar skorar annað mark sitt. vísir/getty Bayern München vann Barcelona 3-2 í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sigurinn skipti þó engu því Börsungar unnu fyrri leikinn 3-0 og viðureignina samanlagt 5-3. Þetta er í áttunda sinn sem Barcelona kemst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en liðið hefur fjórum sinnum orðið Evrópumeistari, síðast árið 2011. Þýsku meistararnir byrjuðu leikinn vel og Mehdi Benatia kom þeim yfir á 7. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Xabi Alonso. Þetta var fyrsta markið sem Barcelona fær á sig síðan í fyrri leiknum gegn Paris Saint-Germain 15. apríl. Forystan entist aðeins í átta mínútur. Á 15. mínútu sendi Lionel Messi Luis Suárez í gegnum vörn heimamanna. Suárez var óeigingjarn og lagði boltann til hliðar á Neymar sem skoraði af stuttu færi. Brasilíumaðurinn var ekki hættur og á 29. mínútu kom hann Börsungum yfir eftir skyndisókn. Messi skallaði boltann inn fyrir galopna vörn Bayern á Suárez sem sendi svo þvert fyrir markið á Neymar sem lagði boltann fyrir sig með bringunni og skoraði svo með góðu skoti á nærstöngina. Þetta var sjöundi leikurinn í röð sem Neymar skorar í.Robert Lewandowski jafnaði metin í 2-2.vísir/gettyNeymar skoraði einnig í fyrri leiknum og varð þar með annar leikmaðurinn sem skorar í báðum leikjunum í átta-liða úrslitunum og báðum undanúrslitaviðureignunum í sögu Meistaradeildarinnar. Hinn er Fernando Morientes sem afrekaði það sama með Monaco tímabilið 2003-04. Eftir mörk Neymars var staða Bayern orðin nánast ómöguleg enda þurfti liðið að skora fimm mörk til að komast áfram. Bæjarar fengu fín tækifæri til að skora en Marc-André ter Stegen átti mjög góðan leik í marki Barcelona. Staðan var 1-2 í hálfleik en Robert Lewandowski jafnaði metin á 59. mínútu eftir sendingu frá Bastian Schweinsteiger. Bæjarar héldu áfram og á 74. mínútu kom Thomas Müller þeim yfir eftir sendingu frá Schweinsteiger. Þetta var sjöunda mark Müllers í Meistaradeildinni í vetur og 28. í heildina. Fleiri urðu mörkin ekki og Bayern fagnaði sigri sem dugði þeim skammt. Þetta er annað árið í röð sem lærisveinar Pep Guardiola falla úr leik í undanúrslitunum. Það kemur svo í ljós á morgun hvort það verður Real Madrid eða Juventus sem mætir Barcelona í úrslitaleiknum á Ólympíuleikvanginum í Berlín 6. júní næstkomandi.Benatia 1-0 Neymar 1-1 Neymar 1-2 Lewandowski 2-2 Müller 3-2 Meistaradeild Evrópu Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Fleiri fréttir Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Sjá meira
Bayern München vann Barcelona 3-2 í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sigurinn skipti þó engu því Börsungar unnu fyrri leikinn 3-0 og viðureignina samanlagt 5-3. Þetta er í áttunda sinn sem Barcelona kemst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en liðið hefur fjórum sinnum orðið Evrópumeistari, síðast árið 2011. Þýsku meistararnir byrjuðu leikinn vel og Mehdi Benatia kom þeim yfir á 7. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Xabi Alonso. Þetta var fyrsta markið sem Barcelona fær á sig síðan í fyrri leiknum gegn Paris Saint-Germain 15. apríl. Forystan entist aðeins í átta mínútur. Á 15. mínútu sendi Lionel Messi Luis Suárez í gegnum vörn heimamanna. Suárez var óeigingjarn og lagði boltann til hliðar á Neymar sem skoraði af stuttu færi. Brasilíumaðurinn var ekki hættur og á 29. mínútu kom hann Börsungum yfir eftir skyndisókn. Messi skallaði boltann inn fyrir galopna vörn Bayern á Suárez sem sendi svo þvert fyrir markið á Neymar sem lagði boltann fyrir sig með bringunni og skoraði svo með góðu skoti á nærstöngina. Þetta var sjöundi leikurinn í röð sem Neymar skorar í.Robert Lewandowski jafnaði metin í 2-2.vísir/gettyNeymar skoraði einnig í fyrri leiknum og varð þar með annar leikmaðurinn sem skorar í báðum leikjunum í átta-liða úrslitunum og báðum undanúrslitaviðureignunum í sögu Meistaradeildarinnar. Hinn er Fernando Morientes sem afrekaði það sama með Monaco tímabilið 2003-04. Eftir mörk Neymars var staða Bayern orðin nánast ómöguleg enda þurfti liðið að skora fimm mörk til að komast áfram. Bæjarar fengu fín tækifæri til að skora en Marc-André ter Stegen átti mjög góðan leik í marki Barcelona. Staðan var 1-2 í hálfleik en Robert Lewandowski jafnaði metin á 59. mínútu eftir sendingu frá Bastian Schweinsteiger. Bæjarar héldu áfram og á 74. mínútu kom Thomas Müller þeim yfir eftir sendingu frá Schweinsteiger. Þetta var sjöunda mark Müllers í Meistaradeildinni í vetur og 28. í heildina. Fleiri urðu mörkin ekki og Bayern fagnaði sigri sem dugði þeim skammt. Þetta er annað árið í röð sem lærisveinar Pep Guardiola falla úr leik í undanúrslitunum. Það kemur svo í ljós á morgun hvort það verður Real Madrid eða Juventus sem mætir Barcelona í úrslitaleiknum á Ólympíuleikvanginum í Berlín 6. júní næstkomandi.Benatia 1-0 Neymar 1-1 Neymar 1-2 Lewandowski 2-2 Müller 3-2
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Fleiri fréttir Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Sjá meira