Meistari Messi afgreiddi Bæjara í 3-0 sigri | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2015 16:52 Lionel Messi fagnar marki í kvöld. Vísir/Getty Lionel Messi gerði enn á ný útslagið fyrir Barcelona liðið í kvöld þegar liðið vann 3-0 sigur á Bayern München í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Messi skoraði tvö fyrstu mörkin með þriggja mínútna millibili í seinni hálfleik og lagði síðan upp þriðja markið fyrir Neymar sem innsiglaði sigurinn í uppbótartíma. Lionel Messi tók um leið markametið af Cristiano Ronaldo en Messi hefur nú aftur skorað mest allra í sögu Meistaradeildarinnar eða 77 mörk. Messi er líka markahæstur á þessu tímabili í Meistaradeildinni með tíu mörk. Mörkin frá Messi, sem komu á 77. og 80. mínútu, voru enn eitt dæmi um hversu góður Argentínumaðurinn er í fótbolta eða hreinlega óstöðvandi þegar hann varnarmenn andstæðinganna missa hann á ferðina. Það er hinsvegar mark Neymar í uppbótartíma sem fór langt með að gera út um einvígið því Bæjarar þurfa nú að vinna upp þriggja marka forskot í seinni leiknum. Pep Guardiola, þjálfari Bayern München, kom mörgum á óvart með því að byrja með þriggja manna vörn en varð síðan að kalla fjórða manninn í vörnina eftir eftir að Bayern-vörnin hafði opnast hvað eftir annað á upphafsmínútunum. Það var mikið fjör í fyrri hálfleiknum og þrátt fyrir markaleysið buðu liðin upp á mjög fínan leik þar sem hraðinn var mikill áhorfendum til mikillar skemmtunar. Manuel Neuer, markvörður Bayern München, sýndi snilli sína í hálfleiknum og þá sérstaklega þegar hann varði frá bæði Luis Suárez og Dani Alves. Suárez fékk sem dæmi algjört dauðafæri á 14. mínútu en Neuer "skildi" aðra löppina eftir og varði frá honum. Robert Lewandowski fékk eitt allra besta færi leiksins á 18. mínútu eftir frábæran undirbúning Thomas Müller en hitti hreinlega ekki boltann fyrir opnu marki. Þetta var algjört dauðafæri og mark þarna hefði breytt miklu fyrir Bæjara. Fjörið hélt áfram í seinni hálfleiknum. Bæjarar byrjuðu seinni hálfleikinn vel en svo tók við góður kafli heimamanna í Barcelona þar sem bæði Lionel Messi og Neymar fengu færi. Lionel Messi tók síðan þrjár mínútur í að afgreiða þýsku meistarana með tveimur snildarmörkum þar sem hann sýndi enn á ný hæfileika sína á stóra sviðinu. Messi braut ísinn á 77. mínútu. Dani Alves vann þá boltann af Juan Bernat, gaf hann á Lionel Messi sem var fljótur að ná frábæru óverjandi skoti fyrir Manuel Neuer. Lionel Messi var síðan aftur á ferðinni þremur mínútum síðar þegar hann labbaði í gegnum vörn Bayern áður en hann lyfti boltanum yfir markvörðinn Manuel Neuer. Messi spilaði síðan Neymar í gegn í uppbótartíma og Brasilíumaðurinn skoraði af yfirvegun og gerði nánast út um þetta undanúrslitaeinvígi. Bæjarar eiga afar erfitt verkefni í seinni leiknum en þeir geta þakkað markverði sínum Manuel Neuer að tapið var ekki enn stærra. Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Fleiri fréttir Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Sjá meira
Lionel Messi gerði enn á ný útslagið fyrir Barcelona liðið í kvöld þegar liðið vann 3-0 sigur á Bayern München í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Messi skoraði tvö fyrstu mörkin með þriggja mínútna millibili í seinni hálfleik og lagði síðan upp þriðja markið fyrir Neymar sem innsiglaði sigurinn í uppbótartíma. Lionel Messi tók um leið markametið af Cristiano Ronaldo en Messi hefur nú aftur skorað mest allra í sögu Meistaradeildarinnar eða 77 mörk. Messi er líka markahæstur á þessu tímabili í Meistaradeildinni með tíu mörk. Mörkin frá Messi, sem komu á 77. og 80. mínútu, voru enn eitt dæmi um hversu góður Argentínumaðurinn er í fótbolta eða hreinlega óstöðvandi þegar hann varnarmenn andstæðinganna missa hann á ferðina. Það er hinsvegar mark Neymar í uppbótartíma sem fór langt með að gera út um einvígið því Bæjarar þurfa nú að vinna upp þriggja marka forskot í seinni leiknum. Pep Guardiola, þjálfari Bayern München, kom mörgum á óvart með því að byrja með þriggja manna vörn en varð síðan að kalla fjórða manninn í vörnina eftir eftir að Bayern-vörnin hafði opnast hvað eftir annað á upphafsmínútunum. Það var mikið fjör í fyrri hálfleiknum og þrátt fyrir markaleysið buðu liðin upp á mjög fínan leik þar sem hraðinn var mikill áhorfendum til mikillar skemmtunar. Manuel Neuer, markvörður Bayern München, sýndi snilli sína í hálfleiknum og þá sérstaklega þegar hann varði frá bæði Luis Suárez og Dani Alves. Suárez fékk sem dæmi algjört dauðafæri á 14. mínútu en Neuer "skildi" aðra löppina eftir og varði frá honum. Robert Lewandowski fékk eitt allra besta færi leiksins á 18. mínútu eftir frábæran undirbúning Thomas Müller en hitti hreinlega ekki boltann fyrir opnu marki. Þetta var algjört dauðafæri og mark þarna hefði breytt miklu fyrir Bæjara. Fjörið hélt áfram í seinni hálfleiknum. Bæjarar byrjuðu seinni hálfleikinn vel en svo tók við góður kafli heimamanna í Barcelona þar sem bæði Lionel Messi og Neymar fengu færi. Lionel Messi tók síðan þrjár mínútur í að afgreiða þýsku meistarana með tveimur snildarmörkum þar sem hann sýndi enn á ný hæfileika sína á stóra sviðinu. Messi braut ísinn á 77. mínútu. Dani Alves vann þá boltann af Juan Bernat, gaf hann á Lionel Messi sem var fljótur að ná frábæru óverjandi skoti fyrir Manuel Neuer. Lionel Messi var síðan aftur á ferðinni þremur mínútum síðar þegar hann labbaði í gegnum vörn Bayern áður en hann lyfti boltanum yfir markvörðinn Manuel Neuer. Messi spilaði síðan Neymar í gegn í uppbótartíma og Brasilíumaðurinn skoraði af yfirvegun og gerði nánast út um þetta undanúrslitaeinvígi. Bæjarar eiga afar erfitt verkefni í seinni leiknum en þeir geta þakkað markverði sínum Manuel Neuer að tapið var ekki enn stærra.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Fleiri fréttir Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Sjá meira