Fréttir Bændum bannað að gera ógerilsneyddan ost Kúabændur furða sig á nýrri reglugerð sem heimilar ferðalöngum að flytja til landsins takmarkað magn af ógerilsneyddum ostum. Samkvæmt reglugerðum er íslenskum kúabændum óheimilt að framleiða ógerilsneyddar mjólkurvörur. Innlent 11.7.2012 21:46 Erfðabreytileiki hefur áhrif á Alzheimer Rannsóknir vísindamanna hjá Íslenskri erfðagreiningu hafa sýnt fram á erfðabreytileika í mönnum sem minnkar mjög líkur á Alzheimer-sjúkdómnum og öðrum elliglöpum. Innlent 11.7.2012 21:46 Boðar niðurskurð og hækkanir Ríkisstjórn Spánar kynnti í gær miklar sparnaðaraðgerðir, á meðan þúsundir mótmæltu í Madríd svo að til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu. Viðskipti erlent 11.7.2012 21:46 Jón Kaldal ritstýrir nýju blaði "Þetta er verkefni sem ég hef lengi haft á bakvið eyrað og talið þörf á að ýta úr höfn. Heimur, útgefandi Iceland Review, var sammála því svo við ákváðum í sameiningu að slá til,“ segir Jón Kaldal ritstjóri Iceland Review Street edition, nýs blaðs sem kemur út í fyrsta skipti 20.júlí næstkomandi. Lífið 10.7.2012 17:32 Segir ráðningar án auglýsinga grafa undan trausti á ríkinu Umboðsmaður Alþingis vill að þeir sem hafa ráðningarvald hjá hinu opinbera gæti betur að því sem býr að baki lögum um auglýsingaskyldu. Hann telur að með því sé hægt að auka traust á stjórnsýslunni. Þá telur hann mikilvægt að þegar auglýst er, sé ráðið í störfin í samræmi við þau sjónarmið sem fram koma í auglýsingu. Innlent 10.7.2012 21:53 Vill dýralögreglu sem sérhæfir sig í eftirliti „Eftirlit með dýravelferð hér á landi er í mjög lágum gæðaflokki,“ segir Árni Stefán Árnason, lögfræðingur í dýrarétti. „Málarekstur tekur langan tíma, valdhafar beita ekki inngripum og hagsmunatengsl eru mjög rík.“ Innlent 10.7.2012 21:53 Lyfjakostnaður lækkar áfram Lyfjakostnaður Sjúkratrygginga, vegna lyfja annarra en sjúkrahúslyfja, lækkaði árið 2011 frá árinu á undan þrátt fyrir að lyfjanotkun hefði aukist. Lækkunin er einkum til komin vegna breytinga stjórnvalda á greiðsluþátttöku í þunglyndis- og flogaveikislyfjum. Innlent 10.7.2012 21:54 Tryggja farsímasamband um allan heim Íslenska fyrirtækið On Waves, sem er að stærstum hluta í eigu Símans, tryggir áhöfn og farþegum á hátt í 600 stórskipum um allan heim farsímasamband. Í þeim hópi er fjöldi skemmtiferðaskipa en eitt þeirra, Celebrity Eclipse, lagðist að bryggju í Reykjavík í gær. Innlent 10.7.2012 21:53 Íþróttir þema ljósmyndakeppni Íþróttir eru þema annarrar ljósmyndakeppni sem Fréttablaðið stendur fyrir í sumar. Vonast er eftir sem fjölbreytilegustu myndum frá þátttakendum en undir íþróttaþema geta fallið myndir frá íþróttamótum barna og fullorðinna, myndir af brennó, badmintonleik úti í garði eða golfi svo fáein dæmi séu tekin. Skilafrestur fyrir íþróttamyndirnar er 18. júlí en myndir skal senda á netfangið [email protected]. Innlent 10.7.2012 21:53 Segir úrbóta þörf eftir laumufarþegaatvik Öryggisferlar flugfélaga á Keflavíkurflugvelli eru óbeint tengdir almennu öryggiskerfi á flugvallarsvæðinu. Úrbóta er þó þörf í ljósi atviks um síðustu helgi þegar tveir menn komust inn á öryggissvæði flugvallarins og upp í flugvél Icelandair þar sem þeir fundust. Þetta segir Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, í samtali við Fréttablaðið, aðspurður um yfirlýsingu Isavia um að öryggiskerfi á flugvellinum „hafi virkað“ þrátt fyrir uppákomuna. Innlent 10.7.2012 21:53 Frjókorn fleiri í þurrki og hita Mikil frjódreifing var í Reykjavík í júní enda mánuðurinn óvenjuþurr. Heildarfjöldi frjókorna í júní reyndist 1.841 frjó á rúmmetra. Aðeins í fyrra mældust þau fleiri. Innlent 10.7.2012 21:54 Fréttablaðið heldur ótvíræðu forskoti Fréttablaðið er sem fyrr langmest lesna blað landsins samkvæmt mælingum Capacent. Nýjasta lestrarkönnunin, fyrir annan ársfjórðung 2012, sýnir að 68,6 prósent höfuðborgarbúa á aldrinum 18 til 49 ára lesa blaðið, sem er lækkun úr 69,3 prósentum frá fyrsta ársfjórðungi. Innlent 10.7.2012 21:54 Koma má með hrátt kjöt ef það er frosið Ferðamenn geta nú komið með hrátt kjöt til landsins sé það frosið og prófað fyrir salmónellu. Ekki þarf að greiða toll af kjötinu sé magnið undir þremur kílóum. Afla þarf þó leyfis hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu fyrir fram. Vottorðakrafa fyrir soðnar vörur hefur verið felld niður, að því er Gísli Sverrir Halldórsson, dýralæknir inn- og útflutningsmála hjá Matvælastofnun (MAST) greinir frá. Innlent 10.7.2012 21:53 Gefa 100 kíló af erlendri mynt Forsvarsmenn Strætó afhentu Dóru Elínu Atladóttur, forstöðumanni Vildarbarna Icelandair, yfir hundrað kíló af erlendri mynt nýverið. Innlent 10.7.2012 21:54 Fleiri geitungar en voru í fyrra Það sem af er sumri hafa meindýraeyðar Reykjavíkurborgar þurft að eyða mun fleiri geitungabúum en síðastliðin ár. Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, segir þó að nú sé geitungatímabilið rétt að hefjast svo að enn sé of snemmt að bera árin saman. "Þetta er þó vísbending um að þeim gæti verið að fjölga,“ segir hann. Innlent 10.7.2012 21:54 Engin sameining syðra að sinni Ekkert verður af viðræðum um sameiningu Reykjanesbæjar, Garðs og Sandgerðis eftir að Sandgerðingar ákváðu að taka ekki þátt. Bæjaryfirvöld í Garði, sem höfðu áður ákveðið að taka þátt í viðræðunum, sjá ekki grundvöll fyrir að halda áfram viðræðum án Sandgerðinga. Innlent 10.7.2012 21:53 Skolp rennur úr yfirfalli fyrir regnvatn Úr yfirfallsröri fyrir regnvatn fellur skolp í Arnarneslæk í Garðabæ. Íbúi í nágrenninu segir lyktina vera eins og á útikamri. Rörið kemur frá einu af elstu hverfunum í Garðabæ, úr Mýrahverfi og Túnahverfi. Í læknum fljóta pappírstægjur og límast við steina og hvít slikja liggur á vatninu. Innlent 10.7.2012 21:53 18.000 íbúinn fær gjafir Íbúar á Akureyri urðu 18 þúsund talsins 29. maí, þegar Elísabetu Þórunni Jónsdóttur og Sveini Arnarsyni fæddist sonur. Af því tilefni ætla Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, að afhenda drengnum og foreldrum hans gjafir í dag. Innlent 10.7.2012 21:54 Icelandair flaug oftast frá Íslandi Icelandair flaug allra flugfélaga mest frá Íslandi í júní. Flugfélagið stóð fyrir tæpum 70 prósentum allra utanlandsfluga frá landinu, eða tæplega tólf hundruð ferðum. Túristi.is hefur tekið saman upplýsingar um ferðir allra flugfélaga sem héðan flugu í júní. Innlent 10.7.2012 21:54 Björgólfur Thor fær ekki að breyta húsinu Húsið við Fríkirkjuveg 11 í Reykjavík hefur nú verið friðað að öllu leyti. Mennta- og menningarmálaráðherra friðaði á mánudag innra byrði hússins að tillögu Húsafriðunarnefndar. Ytra byrðið var friðað 25. apríl 1978. Innlent 10.7.2012 21:53 Þúsundir íbúa búa við hávaða Hávaði frá umferð fer yfir viðmiðunarmörk við húsveggi þúsunda íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta áfanga kortlagningar hávaða frá stórum vegum í þéttbýli er lokið. Innlent 10.7.2012 21:54 Efasemdir um McDonald‘s og Coca-Cola Jacques Rogge, forseti Alþjóðlegu ólympíunefndarinnar, segir í viðtali við Financial Times að nefndin hafi íhugað að hætta við að hafa hamborgararisann McDonald's sem styrktaraðila. Segir hann að gagnrýni samtaka sem berjast fyrir bættri heilsu á tengsl skyndibitakeðja við Ólympíuleikana hafi farið vaxandi. Erlent 10.7.2012 21:54 30 milljarðar til Spánar í júlílok Þrjátíu milljörðum evra verður dælt inn í spænska bankakerfið í lok júlímánaðar. Fjármálaráðherrar evruríkjanna sautján samþykktu þetta á fundi í fyrradag. Erlent 10.7.2012 21:54 Forseti og þing bjóða herforingjum birginn Hæstiréttur Egyptalands ógilti í gær tilskipun Mohammeds Morsi, forseta landsins, um að egypska þingið verði kallað saman á ný. Rétturinn, sem úrskurðaði nýlega að þingkosningarnar í vetur hefðu verið ólöglegar, sagði Morsi ekki hafa vald til að kalla þingið saman á ný. Erlent 10.7.2012 21:53 Þarf að fækka fé ef ekki vöknar í bráð Miklir þurrkar hafa haft veruleg áhrif á bændur víða um land. Gunnar Þórarinsson, bóndi á Þóroddsstöðum í Hrútafirði í Vestur-Húnavatnssýslu, segir að ef fram haldi sem horfir muni hann þurfa að fækka fé. Innlent 9.7.2012 22:14 Norðurlöndin í sérflokki Norðurlöndin eru í sérflokki í Evrópu hvað varðar útbreiðslu háhraðatenginga. Þetta kemur fram á vef Póst- og fjarskiptastofnunar. Innlent 9.7.2012 22:15 Ruslið hleðst upp við Frakkastíg Það er ófögur sjón sem blasir við vegfarendum sem ganga niður Frakkastíginn neðan við Hverfisgötu í Reykjavík. Þar er autt svæði sem ber merki mikils hirðuleysis. Innlent 9.7.2012 22:15 Minna þarf að pissa um nætur Staðfest er að náttúruvaran SagaPro sem unnin er úr íslenskri ætihvönn virki vel við næturþvaglátum. Klínísk rannsókn sem gerð var á vörunni og birt í virtu læknatímariti sýnir fram á að varan eykur blöðrurýmd og dregur úr tíðni næturþvagláta. SagaMedica framleiðir vöruna. Innlent 9.7.2012 22:15 Magn frjókorna í lofti birt daglega Á vef Náttúrufræðistofnunar má nú nálgast upplýsingar um magn frjókorna í lofti á hverjum virkum degi. Birtar eru tölur frá mælingastöð í Urriðaholti í Garðabæ. Innlent 9.7.2012 22:15 Í fyrra entust kjötbirgðirnar fram í janúar Hrafnreyður ehf. hefur uppi áform um að auka enn frekar hrefnuveiðar. Í fyrra voru veiddar um fimmtíu hrefnur en að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar framkvæmdastjóra er stefnt að því að veiða um áttatíu dýr í ár. Markmiðið er að neytendum standi hrefnukjöt til boða allan ársins hring. Innlent 9.7.2012 22:15 « ‹ 9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 334 ›
Bændum bannað að gera ógerilsneyddan ost Kúabændur furða sig á nýrri reglugerð sem heimilar ferðalöngum að flytja til landsins takmarkað magn af ógerilsneyddum ostum. Samkvæmt reglugerðum er íslenskum kúabændum óheimilt að framleiða ógerilsneyddar mjólkurvörur. Innlent 11.7.2012 21:46
Erfðabreytileiki hefur áhrif á Alzheimer Rannsóknir vísindamanna hjá Íslenskri erfðagreiningu hafa sýnt fram á erfðabreytileika í mönnum sem minnkar mjög líkur á Alzheimer-sjúkdómnum og öðrum elliglöpum. Innlent 11.7.2012 21:46
Boðar niðurskurð og hækkanir Ríkisstjórn Spánar kynnti í gær miklar sparnaðaraðgerðir, á meðan þúsundir mótmæltu í Madríd svo að til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu. Viðskipti erlent 11.7.2012 21:46
Jón Kaldal ritstýrir nýju blaði "Þetta er verkefni sem ég hef lengi haft á bakvið eyrað og talið þörf á að ýta úr höfn. Heimur, útgefandi Iceland Review, var sammála því svo við ákváðum í sameiningu að slá til,“ segir Jón Kaldal ritstjóri Iceland Review Street edition, nýs blaðs sem kemur út í fyrsta skipti 20.júlí næstkomandi. Lífið 10.7.2012 17:32
Segir ráðningar án auglýsinga grafa undan trausti á ríkinu Umboðsmaður Alþingis vill að þeir sem hafa ráðningarvald hjá hinu opinbera gæti betur að því sem býr að baki lögum um auglýsingaskyldu. Hann telur að með því sé hægt að auka traust á stjórnsýslunni. Þá telur hann mikilvægt að þegar auglýst er, sé ráðið í störfin í samræmi við þau sjónarmið sem fram koma í auglýsingu. Innlent 10.7.2012 21:53
Vill dýralögreglu sem sérhæfir sig í eftirliti „Eftirlit með dýravelferð hér á landi er í mjög lágum gæðaflokki,“ segir Árni Stefán Árnason, lögfræðingur í dýrarétti. „Málarekstur tekur langan tíma, valdhafar beita ekki inngripum og hagsmunatengsl eru mjög rík.“ Innlent 10.7.2012 21:53
Lyfjakostnaður lækkar áfram Lyfjakostnaður Sjúkratrygginga, vegna lyfja annarra en sjúkrahúslyfja, lækkaði árið 2011 frá árinu á undan þrátt fyrir að lyfjanotkun hefði aukist. Lækkunin er einkum til komin vegna breytinga stjórnvalda á greiðsluþátttöku í þunglyndis- og flogaveikislyfjum. Innlent 10.7.2012 21:54
Tryggja farsímasamband um allan heim Íslenska fyrirtækið On Waves, sem er að stærstum hluta í eigu Símans, tryggir áhöfn og farþegum á hátt í 600 stórskipum um allan heim farsímasamband. Í þeim hópi er fjöldi skemmtiferðaskipa en eitt þeirra, Celebrity Eclipse, lagðist að bryggju í Reykjavík í gær. Innlent 10.7.2012 21:53
Íþróttir þema ljósmyndakeppni Íþróttir eru þema annarrar ljósmyndakeppni sem Fréttablaðið stendur fyrir í sumar. Vonast er eftir sem fjölbreytilegustu myndum frá þátttakendum en undir íþróttaþema geta fallið myndir frá íþróttamótum barna og fullorðinna, myndir af brennó, badmintonleik úti í garði eða golfi svo fáein dæmi séu tekin. Skilafrestur fyrir íþróttamyndirnar er 18. júlí en myndir skal senda á netfangið [email protected]. Innlent 10.7.2012 21:53
Segir úrbóta þörf eftir laumufarþegaatvik Öryggisferlar flugfélaga á Keflavíkurflugvelli eru óbeint tengdir almennu öryggiskerfi á flugvallarsvæðinu. Úrbóta er þó þörf í ljósi atviks um síðustu helgi þegar tveir menn komust inn á öryggissvæði flugvallarins og upp í flugvél Icelandair þar sem þeir fundust. Þetta segir Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, í samtali við Fréttablaðið, aðspurður um yfirlýsingu Isavia um að öryggiskerfi á flugvellinum „hafi virkað“ þrátt fyrir uppákomuna. Innlent 10.7.2012 21:53
Frjókorn fleiri í þurrki og hita Mikil frjódreifing var í Reykjavík í júní enda mánuðurinn óvenjuþurr. Heildarfjöldi frjókorna í júní reyndist 1.841 frjó á rúmmetra. Aðeins í fyrra mældust þau fleiri. Innlent 10.7.2012 21:54
Fréttablaðið heldur ótvíræðu forskoti Fréttablaðið er sem fyrr langmest lesna blað landsins samkvæmt mælingum Capacent. Nýjasta lestrarkönnunin, fyrir annan ársfjórðung 2012, sýnir að 68,6 prósent höfuðborgarbúa á aldrinum 18 til 49 ára lesa blaðið, sem er lækkun úr 69,3 prósentum frá fyrsta ársfjórðungi. Innlent 10.7.2012 21:54
Koma má með hrátt kjöt ef það er frosið Ferðamenn geta nú komið með hrátt kjöt til landsins sé það frosið og prófað fyrir salmónellu. Ekki þarf að greiða toll af kjötinu sé magnið undir þremur kílóum. Afla þarf þó leyfis hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu fyrir fram. Vottorðakrafa fyrir soðnar vörur hefur verið felld niður, að því er Gísli Sverrir Halldórsson, dýralæknir inn- og útflutningsmála hjá Matvælastofnun (MAST) greinir frá. Innlent 10.7.2012 21:53
Gefa 100 kíló af erlendri mynt Forsvarsmenn Strætó afhentu Dóru Elínu Atladóttur, forstöðumanni Vildarbarna Icelandair, yfir hundrað kíló af erlendri mynt nýverið. Innlent 10.7.2012 21:54
Fleiri geitungar en voru í fyrra Það sem af er sumri hafa meindýraeyðar Reykjavíkurborgar þurft að eyða mun fleiri geitungabúum en síðastliðin ár. Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, segir þó að nú sé geitungatímabilið rétt að hefjast svo að enn sé of snemmt að bera árin saman. "Þetta er þó vísbending um að þeim gæti verið að fjölga,“ segir hann. Innlent 10.7.2012 21:54
Engin sameining syðra að sinni Ekkert verður af viðræðum um sameiningu Reykjanesbæjar, Garðs og Sandgerðis eftir að Sandgerðingar ákváðu að taka ekki þátt. Bæjaryfirvöld í Garði, sem höfðu áður ákveðið að taka þátt í viðræðunum, sjá ekki grundvöll fyrir að halda áfram viðræðum án Sandgerðinga. Innlent 10.7.2012 21:53
Skolp rennur úr yfirfalli fyrir regnvatn Úr yfirfallsröri fyrir regnvatn fellur skolp í Arnarneslæk í Garðabæ. Íbúi í nágrenninu segir lyktina vera eins og á útikamri. Rörið kemur frá einu af elstu hverfunum í Garðabæ, úr Mýrahverfi og Túnahverfi. Í læknum fljóta pappírstægjur og límast við steina og hvít slikja liggur á vatninu. Innlent 10.7.2012 21:53
18.000 íbúinn fær gjafir Íbúar á Akureyri urðu 18 þúsund talsins 29. maí, þegar Elísabetu Þórunni Jónsdóttur og Sveini Arnarsyni fæddist sonur. Af því tilefni ætla Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, að afhenda drengnum og foreldrum hans gjafir í dag. Innlent 10.7.2012 21:54
Icelandair flaug oftast frá Íslandi Icelandair flaug allra flugfélaga mest frá Íslandi í júní. Flugfélagið stóð fyrir tæpum 70 prósentum allra utanlandsfluga frá landinu, eða tæplega tólf hundruð ferðum. Túristi.is hefur tekið saman upplýsingar um ferðir allra flugfélaga sem héðan flugu í júní. Innlent 10.7.2012 21:54
Björgólfur Thor fær ekki að breyta húsinu Húsið við Fríkirkjuveg 11 í Reykjavík hefur nú verið friðað að öllu leyti. Mennta- og menningarmálaráðherra friðaði á mánudag innra byrði hússins að tillögu Húsafriðunarnefndar. Ytra byrðið var friðað 25. apríl 1978. Innlent 10.7.2012 21:53
Þúsundir íbúa búa við hávaða Hávaði frá umferð fer yfir viðmiðunarmörk við húsveggi þúsunda íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta áfanga kortlagningar hávaða frá stórum vegum í þéttbýli er lokið. Innlent 10.7.2012 21:54
Efasemdir um McDonald‘s og Coca-Cola Jacques Rogge, forseti Alþjóðlegu ólympíunefndarinnar, segir í viðtali við Financial Times að nefndin hafi íhugað að hætta við að hafa hamborgararisann McDonald's sem styrktaraðila. Segir hann að gagnrýni samtaka sem berjast fyrir bættri heilsu á tengsl skyndibitakeðja við Ólympíuleikana hafi farið vaxandi. Erlent 10.7.2012 21:54
30 milljarðar til Spánar í júlílok Þrjátíu milljörðum evra verður dælt inn í spænska bankakerfið í lok júlímánaðar. Fjármálaráðherrar evruríkjanna sautján samþykktu þetta á fundi í fyrradag. Erlent 10.7.2012 21:54
Forseti og þing bjóða herforingjum birginn Hæstiréttur Egyptalands ógilti í gær tilskipun Mohammeds Morsi, forseta landsins, um að egypska þingið verði kallað saman á ný. Rétturinn, sem úrskurðaði nýlega að þingkosningarnar í vetur hefðu verið ólöglegar, sagði Morsi ekki hafa vald til að kalla þingið saman á ný. Erlent 10.7.2012 21:53
Þarf að fækka fé ef ekki vöknar í bráð Miklir þurrkar hafa haft veruleg áhrif á bændur víða um land. Gunnar Þórarinsson, bóndi á Þóroddsstöðum í Hrútafirði í Vestur-Húnavatnssýslu, segir að ef fram haldi sem horfir muni hann þurfa að fækka fé. Innlent 9.7.2012 22:14
Norðurlöndin í sérflokki Norðurlöndin eru í sérflokki í Evrópu hvað varðar útbreiðslu háhraðatenginga. Þetta kemur fram á vef Póst- og fjarskiptastofnunar. Innlent 9.7.2012 22:15
Ruslið hleðst upp við Frakkastíg Það er ófögur sjón sem blasir við vegfarendum sem ganga niður Frakkastíginn neðan við Hverfisgötu í Reykjavík. Þar er autt svæði sem ber merki mikils hirðuleysis. Innlent 9.7.2012 22:15
Minna þarf að pissa um nætur Staðfest er að náttúruvaran SagaPro sem unnin er úr íslenskri ætihvönn virki vel við næturþvaglátum. Klínísk rannsókn sem gerð var á vörunni og birt í virtu læknatímariti sýnir fram á að varan eykur blöðrurýmd og dregur úr tíðni næturþvagláta. SagaMedica framleiðir vöruna. Innlent 9.7.2012 22:15
Magn frjókorna í lofti birt daglega Á vef Náttúrufræðistofnunar má nú nálgast upplýsingar um magn frjókorna í lofti á hverjum virkum degi. Birtar eru tölur frá mælingastöð í Urriðaholti í Garðabæ. Innlent 9.7.2012 22:15
Í fyrra entust kjötbirgðirnar fram í janúar Hrafnreyður ehf. hefur uppi áform um að auka enn frekar hrefnuveiðar. Í fyrra voru veiddar um fimmtíu hrefnur en að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar framkvæmdastjóra er stefnt að því að veiða um áttatíu dýr í ár. Markmiðið er að neytendum standi hrefnukjöt til boða allan ársins hring. Innlent 9.7.2012 22:15