Martin og félagar töpuðu með minnsta mun | Tryggvi og félagar steinlágu gegn toppliðinu Þeir Martin Hermannsson og Tryggvi Snær Hlinason voru báðir í eldlínunni í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Tryggvi og félagar í Zaragoza þurftu að sætta sig við 21 stigs tap gegn toppliði Real Madrid og Martin og félagar í Valencia töpuðu óvænt með einu stigi gegn Fuenlabrada. Körfubolti 4. desember 2021 23:00
Daníel Guðni: Verðum að tengja saman fleiri góðar mínútur „Einstaklingsframtak hjá EC Matthews og svo hélt vörnin þarna í lokin. Ég var virkilega ánægður með það,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Grindavíkur aðspurður hvað hefði skorið úr um það að þeir höfðu sigur gegn Stjörnunni í Subway-deildinni í kvöld. Körfubolti 4. desember 2021 22:22
Umfjöllun: Breiðablik - Þór Ak. 122-94 | Stórsigur í botnslagnum Breiðablik vann öruggan 28 stiga sigur, 122-94, er liðið tók á móti Þórsurum frá Akureyri í uppgjöri neðstu liða Subway-deildarinnar í kvöld. Breiðablik vann, með sigrinum í kvöld, sinn annan sigur í deildinni og eru því með fjögur stig en Þórsarar sitja eftir á botni deildarinnar og eru enn án stiga. Körfubolti 4. desember 2021 21:17
Pétur Ingvarsson: Við skorum 122 stig og það er erfitt fyrir þá að ná því Breiðablik vann 28 stiga sigur á Þór frá Akureyri í Smáranum í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Liðið skoraði 122 stig sem er það mesta sem það hefur skorað í einum leik á tímabilinu. Pétur Ingvarsson, þjálfari Blika, var að vonum ánægður í leikslok. Körfubolti 4. desember 2021 20:34
Sara skoraði tólf stig í naumu tapi gegn toppliðinu Sara Rún Hinriksdóttir og stöllur hennar í Phoenix Constanta töpuðu með minnsta mun er liðið heimsótti FCC ICIM Arad í rúmensku deildinni í körfubolta, 68-67. Körfubolti 4. desember 2021 18:22
Clippers hafði betur í slagnum um Englaborgina | Stríðsmennirnir hefndu sín gegn Sólunum Fjöldi leikja fór fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þar ber helst að nefna borgarslag Los Angeles Lakers og Clippers. Þá náði Golden State Warriors fram hefndum gegn Phoenix Suns í toppslag Vesturdeildarinnar. Körfubolti 4. desember 2021 09:46
LeBron ekki með veiruna og spilar gegn Clippers LeBron James, ein skærasta stjarna NBA-deildarinnar, er ekki með Covid-19 og mun því taka þátt í baráttunni um Los Angeles-borg í nótt er Lakers mætir Clippers. Körfubolti 3. desember 2021 23:30
Allir leikir í þessari deild eru jafn mikilvægir fyrir okkur Valur stöðvaði sigurgöngu Íslandsmeistara Þórs Þorlákshafnar í Subway-deild karla í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Þórsarar unnið sex leiki í röð en Valur sagði hingað og ekki lengað, 11 stiga sigur og Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals var eðlilega sáttur í lok leiks. Körfubolti 3. desember 2021 23:05
Allir stóru strákarnir mínir bara gerðu virkilega vel í dag Keflvíkingar gerðu góða ferð í Vesturbæinn í kvöld þegar þeir unnu KR, 88-108, í Subway-deild karla í körfubolta. Suðurnesjamenn fóru hægt af stað en tóku síðar yfir leikinn. Hjalti Þór, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með sigurinn. Körfubolti 3. desember 2021 22:45
„Þetta er deild sem er mjög skemmtilegt að spila í“ Taiwo Badmus, leikmaður Tindastóls, spilaði vel í kvöld er Tindastóll vann góðan sigur á ÍR í Subway-deild karla í körfubolta, lokatölur 98-77. Hann átti stóran þátt í sigri heimamanna en Badmus skoraði 29 stig og tók 6 fráköst. Körfubolti 3. desember 2021 22:15
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Keflavík 88-108 | Gestirnir á toppinn eftir öruggan sigur í Vesturbænum KR tapaði gegn Keflavík á heimavelli sínum, Meistaravöllum, í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld í fyrsta leik liðanna eftir landsleikjahlé, 88-108. Keflvíkingar komu inn í leikinn á góðri hrinu en KR hafði tapað illa fyrir ÍR í síðasta leik sínum fyrir hlé. Körfubolti 3. desember 2021 22:05
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór Þ. 86 - 75 | Valsarar slökktu í sjóðandi heitum Þórsurum Valur gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Þórs Þorlákshafnar með 11 stiga mun í Subway-deild karla, 86-75. Mikilvægur sigur fyrir heimaliðið en meistararnir voru á góðu skriði fyrir leik kvöldsins og höfðu unnið sex leiki í röð. Körfubolti 3. desember 2021 21:55
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Vestri 98-69 | Öruggur sigur heimamanna í endurkomu Hauks Helga Njarðvík vann öruggan sigur á nýliðum Vestra í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, lokatölur 98-69. Þetta var fyrsti leikur landsliðsmannsins Hauks Helga Pálssonar fyrir Njarðvík á tímabilinu. Körfubolti 3. desember 2021 21:55
„Ég var eins og lítill krakki“ Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, spilaði í kvöld sínar fyrstu mínútur fyrir Njarðvík í endurkomu sinni en Haukur spilaði síðast körfuboltaleik fyrir 257 dögum síðan. Haukur hefur verið að jafna sig á liðbandslitum en hann var afar ánægður að komast aftur inn á völlinn. Körfubolti 3. desember 2021 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - ÍR 98-77 | Gestirnir áttu aldrei möguleika á Króknum Þó ÍR-ingar hafi mætt með tvo nýja erlenda leikmenn á Sauðárkrók í kvöld átti liðið aldrei möguleika er það heimsótti Tindastól í Subway-deild karla, lokatölur 98-77. Körfubolti 3. desember 2021 21:05
Haukur Helgi um fyrsta leikinn í kvöld: Þurfti bara að fara að byrja Haukur Helgi Pálsson spilar sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti Vestra í Ljónagryfjunni. Körfubolti 3. desember 2021 13:15
Ójafnasti leikur NBA sögunnar fór fram í nótt Phoenix Suns liðið hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt með sínum átjánda sigri í röð en stærsta fréttin var kannski stærsti sigur sögunnar sem vannst í Memphis. Átta leikja sigurganga meistaranna endaði líka í nótt. Körfubolti 3. desember 2021 07:30
Giannis með sigurkörfuna á síðustu sekúndunum: Sjáðu hana í draugavélinni NBA meistarar Milwaukee Bucks unnu í nótt sinn áttunda sigur í röð í deildinni eftir að hafa lifað af skotsýningu og frábæra byrjun Geitungana frá Charlotte. Körfubolti 2. desember 2021 07:31
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík 71-54 | Heimakonur halda toppsætinu Njarðvík heldur toppsæti Subway-deildar kvenna í körfubolta þökk sé stórsigri á nágrönnum sínum í Grindavík, lokatölur 71-54 í kvöld. Körfubolti 1. desember 2021 23:10
Collier um hálfleiksræðu Rúnars Inga: „Hann lét okkur heyra það“ Aliyah Collier var enn eina ferðina stigahæst í liði Njarðvíkur, í þetta sinn með 18 stig í sigri á erkifjendunum í Grindavík. Körfubolti 1. desember 2021 23:00
Kaflaskiptur leikur er Fjölnir sótti sigur í Keflavík Keflavík tók á móti Fjölni í hörkuleik í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 95-90 gestunum í vil. Körfubolti 1. desember 2021 21:15
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 72-98 | Valskonur sannfærandi í fjórða leikhluta Valur vann sinn þriðja leik í röð með sigri í Smáranum. Valur átti frábæran 4. leikhluta sem endaði með 26 stiga sigri 72-98. Körfubolti 1. desember 2021 20:35
Ólafur Jónas: Úrslitin gefa ekki rétta mynd af leiknum Valur valtaði yfir Breiðablik í fjórða leikhluta og endaði á að vinna leikinn með 26 stigum 72-98. Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Vals, var afar ánægður með þriðja sigur Vals í röð. Körfubolti 1. desember 2021 20:10
Naumt tap Hauka í lokaleik riðlakeppninnar Haukar töpuðu með sjö stiga mun gegn KP Brno í lokaleik riðlakeppni Evrópubikars kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 60-53. Körfubolti 1. desember 2021 17:56
Suns snöggkældi niður sjóðheitan Steph Curry og vann sautjánda í röð Phoenix Suns hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni og nú með frábærum sigri á Golden State Warriors í topslag deildarinnar. Körfubolti 1. desember 2021 07:30
Sá eldri vann bræðraslag í NBA í nótt og pabbi í „I Told You So“ bol í stúkunni Lonzo Ball ætlaði ekki að tapa aftur fyrir yngri bróður sínum LaMelo þegar þeir mættust í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Chicago Bulls liðið vann líka leikinn á móti Charlotte Hornets. Körfubolti 30. nóvember 2021 07:31
Formaður KKÍ: „Ríkisstjórnin þarf því að stíga upp núna“ Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, ræddi við Vísi eftir leik Íslands og Rússlands í undankeppni HM 2023 í gærkvöldi. Umræðan snerist aðallega um aðstöðuna hér á landi en loks virðist vera að rofa til í þeim málum. Körfubolti 30. nóvember 2021 07:00
Formaður KKÍ segir að mögulegt að FIBA veiti Íslandi undanþágu fyrir næsta heimaleik Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, ræddi við Vísi um stöðu mála í Laugardalshöllinni eftir að íslenska karlalandsliðið tapaði gegn Rússlandi ytra í undankeppni HM 2023. Körfubolti 29. nóvember 2021 23:00
Segir það ekki ganga að Ísland sé að spila heimaleiki sína í Rússlandi Er ný ríkisstjórn var tilkynnt í gær varð ljóst að Ásmundur Einar Daðason er mennta- og barnamálaráðherra Íslands. Hann mun einnig sinna verkefnum tengdum æskulýðs- og íþróttamálum. Þar á meðal er uppbygging á þjóðarleikvöngum Íslands. Sport 29. nóvember 2021 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Rússland - Ísland 89-65 | Rússneski björninn reyndist Íslandi ofviða Íslenska landsliðið í körfubolta mátti þola stórt tap í Pétursborg í Rússlandi í kvöld er það mætti heimamönnum í undankeppni HM. Lokatölur 89-65 heimamönnum í vil. Körfubolti 29. nóvember 2021 20:30