Jólavefur Vísis

Jólavefur Vísis

Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Fréttamynd

Fær stærstu gjöf lífsins

Kjartan Sturluson á alls kyns fallegt skraut á jólatréð sitt. Þessi fagurkeri er líka um það bil að upplifa stórkostlegu jól lífs síns og mestu gjöfina fær hann sennilega rétt fyrir jól.

Jól
Fréttamynd

Jólagleðin við völd - myndir

Jólaball fatlaðara var haldið á Hilton Reykjavík Nordica 9. desember síðastliðinn Eins og meðfylgjandi myndirnar sýna var jólagleðin svo sannarlega við völd þar sem Edda Andrésdóttir og Sigmundur Ernir sáu um að kynna dagskrána. Allir skemmtikraftar gáfu vinnu sína en þeir hafa gert það síðastliðin 26 ár.

Jól
Fréttamynd

Ingibjörg leikkona: Allt húsið ilmar og jólalög sett í græjurnar

„Ég byrja að skreyta í kringum aðventuna og geri sjálf minn aðventukrans," svarar Ingibjörg Reynisdóttir leikkona aðspurð út í undirbýning jólanna. „Ég hef kannski ekki lagt eins mikinn metnað í hann undanfarin ár þar sem tíminn einhvernveginn vinnur ekki með manni með aldrinum og stundarskráin verður líka einhverra hluta fyllri með hverju ári."

Jólin
Fréttamynd

Jóhanna Guðrún: Nauðsynlegt að baka með mömmu

„Ef ég nenni í flutningi Helga Björns kemur mér alltaf í jólastuð. Svo er líka alltaf mikil stemning að fara og kíkja á jólaþorpið í Hafnarfirðinum. Ég mæli með því," svarar Jóhanna Guðrún söngkona aðspurð hvað kemur henni í jólagírinn. „ Í mínum huga er öll jól sem ég hef upplifað hlaðin góðum minningum. Mér finnst mjög erfitt að gera uppá milli." „Í ár verða jólin örugglega sérlega lífleg og skemmtileg. Ég fékk lítinn frænda á árinu og þetta verða fyrstu jólin hans og við erum svo heppin að hann ætlar að vera hjá okkur fyrstu jólin sín," segir Jóhanna Guðrún ánægð. „Mér finnst nauðsynlegt að baka með mömmu, gera jólaísinn og skreyta jólatréð á þorláksmessu. Ég þyki sérlega fastheldin á hefðir fyrir jólin," segir hún að lokum. - [email protected].

Jól
Fréttamynd

Jólahald

Hér má fá upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur jólahaldi.

Jól
Fréttamynd

Ekta amerískur kalkúnn

Kalkúnn er vinsæll réttur um jól og áramót. Fréttablaðið fékk að fylgjast með þegar Arnar Þór Reynisson, matreiðslumaður bandaríska sendiherrans á Íslandi eldaði þakkargjörðarkalkún handa starfsmönnum sendiráðsins.

Jól
Fréttamynd

Heitt súkkulaði

Þeir sem á annað borð velta kaffi eitthvað fyrir sér vita að kaffi er ekki það sama og kaffi. Tinna Jóhannsdóttir í Kaffifélaginu lærði sína kaffilist af Ítölum, en ítalska kaffigerðarhefðin leggur mikið upp úr nákvæmni. Hér gefur hún upskrift að hinum fullkomna súkkulaðibolla, en laumar líka með öðrum uppskriftum að heitum og köldum drykkjum sem gott er að dreypa á á aðventunni.

Jólin
Fréttamynd

Fylltar kalkúnabringur

Sveppir, laukur og selleri er skorið niður og steikt uppúr smjöri. Beikonið er skorið niður og sett saman við og steikt. Þá er restinni blandað saman við og hrært í góðan graut. Setjið allt í matarvinnsluvél og vinnið létt saman (ekki of mikið, eiga að vera smá bitar)

Jólin
Fréttamynd

Skreyttur skór í gluggann

Lilja Dröfn Dagbjartsdóttir er menntaður skóhönnuður úr University of the Arts í London. Hún hefur þó ekki unnið við skóhönnun hér heima, fyrir utan að búa til eitt og eitt víkingapar.

Jólin
Fréttamynd

Kalkúnafylling

Fyllingin er oft vinsælli en fuglinn sjálfur. Hér kemur uppskrift að einni góðri.

Jól
Fréttamynd

Gáttaþefur kom í nótt

Gáttaþefur er ellefti jólasveinninn sem kemur til byggða. Með sitt heljarstóra nef gat hann fundið lykt af nýsteiktu brauði langar leiðir og runnið þannig á sinn uppáhaldsmat, laufabrauð. Í ljóðinu Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum segir:

Jól
Fréttamynd

Sérskreyttar jólaístertur á hátíðaborðið

Það færist í vöxt að fjölskyldur og fyrirtæki panti sérskreytta jólaístertur fyrir jólaboðin og jólahlaðborðin. Persónulegar ístertur henta vel á jólahlaðborðið eða í útskriftarveisluna enda er ljúffengur ís kjörinn eftirréttur eftir góða máltíð.

Jólin
Fréttamynd

Séríslenskt ofurúr

Úrafyrirtækið JS Watch afhenti fyrr á árinu sprengjusérfræðingum, köfurum og áhöfnum loftfara armbandsúrið Sif N.A.R.T. Eru úrin ætluð til prófunar hjá Landhelgisgæslunni sem er lokaliður í þróunar og hönnunarferli sem staðið hefur yfir í tvö ár.

Jólin
Fréttamynd

Mosfellingar gleðjast - myndir

Börn og fullorðnir glöddust yfir því að aðventan er nú gengin í garð og skein gleðin úr hverju andliti á laugardaginn þegar kveikt var á ljósunum á jólatré Mosfellinga á Miðbæjartorgi. Eins og meðfylgjandi myndir sýna var fjöldi saman kominn og voru jólalögin sungin háum rómi og dansað í kring um jólatréð.

Jól
Fréttamynd

Fagrar piparkökur

Stefanía Guðmundsdóttir bakar á hverju ári piparkökur sem eru bæði bragðgóðar og einkar fagrar. Hún deildi leyndarmálinu með lesendum jólablaðs Fréttablaðsins.

Jól
Fréttamynd

Mars smákökur

Hnoðið saman hveiti, möndlur, sykur, smjör og rjóma. Hnoðið deigið vel saman. Búið til kúlur úr deiginu og leggið með góðu millibili á bökunarplötu, klædda bökunarpappír. Bakið neðarlega í ofninum við 170°C í 15 mínútur

Jól
Fréttamynd

Heitt brauð í ofni

Þessi réttur kom frá Huldu D. Lord sem býr í Georgíufylki í Bandaríkjunum. Hún segir þennan ofnrétt algerlega ómissandi í allar veislur, og að hann hafi algerlega slegið í gegn meðal vina sinna í þar.

Jól