Jól

Sörur með kara­mellu pralíni að hætti Lindu Ben

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Linda Ben tók forskot á sæluna og bakaði ljúffengar sörur með karamellu pralíni.
Linda Ben tók forskot á sæluna og bakaði ljúffengar sörur með karamellu pralíni.

Jólabaksturinn er rétt handan við hornið og því er kjörið að taka smáforskot á sæluna. Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir deildi uppskrift á vefsíðunni sinni að sörum í nýrri og ljúffengri karamellu útgáfu.

„Það er um að gera að baka mikið af þessum smákökum, jafnvel nokkrar mismunandi útgáfur og geyma í frysti. Það er ekkert betra en að næla sér svo í sörur í frystinn þegar manni langar í eitthvað gott,“ skrifar Linda við færsluna á Instsagram.


Kararmellu pralín sörur

Hráefni:

Krem

3 eggjarauður

100 g vatn

100 g sykur

300 g Síríus pralín súkkulaði með saltkaramellufyllingu

100 g mjúkt smjör

Botnar

3 eggjahvítur

1/3 tsk. salt

1/3 tsk. cream of tartar

50 g sykur

200 g flórsykur

200 g möndlumjöl

Hjúpur

400 g Síríus suðusúkkulaði


Aðferð:

  • Byrjið á því að útbúa kremið.
  • Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.
  • Bræðið Síríus pralín súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman. Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.
  • Geymið kremið inni í ísskáp í um klukkutíma eða á meðan verið er að útbúa botnana.
  • Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
  • Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti og cream of tartar, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í. Þeytið þar til stífir toppar myndast.
  • Blandið saman flórsykri og möndlumjöli. Bætið út í eggjahvítublönduna og veltið varlega saman við með sleikju þar til samlagað.
  • Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút.
  • Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál, passið að hafa u.þ.b. 2-3 cm bil á milli þeirra svo að þær klessist ekki saman í ofninum. Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna.
  • Smyrjið kremi á hverja köku svo það sé kúpt í miðjunni en þynnist út að köntunum. Kælið kökurnar í stutta stund.
  • Bræðið loks súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið hverja köku með því að dýfa kreminu ofan í súkkulaðið. Leggið kökurnar á grind á meðan súkkulaðið storknar.

Fleiri uppskriftir má nálgast á vefsíðu Lindu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×