Sýknudómur í máli Sjanghæ gegn Sunnu staðfestur Landsréttur hefur staðfest sýknudóm úr héraði í máli veitingastaðarins Sjanghæ á Akureyri á hendur Sunnu Valgerðardóttur fréttamanni, Magnúsi Geir Þórðarsyni fyrrverandi útvarpsstjóra og Ríkisútvarpinu. Dómur var kveðinn upp klukkan 14. Eigandi Sjanghæ krafðist miskabóta upp á þrjár milljónir. Fréttir 26. mars 2021 16:06
Hæstiréttur dæmir Júlíus Vífil í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en mildað refsingu hans úr tíu mánaða fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundna. Innlent 25. mars 2021 15:40
Dæmdir í fangelsi vegna bílstuldar og líkamsárásar í Sælingsdal Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi á föstudag tvo menn í fangelsi fyrir að hafa stolið bifreið í Reykhólasveit á síðasta ári. Annar mannanna, sem hafði verið sviptur ökuréttindum, ók bifreiðinni undir áhrifum áfengis og amfetamíns og valt hún þegar förinni var heitið suður Vestfjarðarveg við Klofningsveg. Innlent 22. mars 2021 23:31
Beitti barnsmóður sína ofbeldi er hún hélt á níu mánaða syni þeirra Landsréttur staðfesti í dag átján mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni sem réðst á barnsmóður sína í október árið 2018. Maðurinn var meðal annars fundinn sekur um brot í nánu sambandi, brot gegn barninu sem og umferðarlagabrot. Innlent 19. mars 2021 17:56
Dómur fyrir árás á öryggisvörð Landsbankans staðfestur Landsréttur staðfesti í dag tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Kristjáni Erni Elíassyni fyrir árás á öryggisvörð í Landsbankanum. Hann þarf að greiða öryggisverðinum hálfa milljón í miskabætur. Dómurinn var kveðinn upp eftir hádegi í dag. Innlent 19. mars 2021 14:50
Ummæli í Hlíðamálinu dæmd ómerk en miskabætur lækkaðar Landsréttur dæmdi í dag Hildi Lilliendahl Viggósdóttur og Oddnýju Arnarsdóttur hvora um sig til að greiða tveimur karlmönnum 100 þúsund krónur í miskabætur ásamt vöxtum og greiðslu málskostnaðar vegna ummæla sem þær létu falla í tengslum við svokallaða Hlíðamál. Ein ummæli Hildar og fjögur ummæli Oddnýjar voru dæmd ómerk. Innlent 19. mars 2021 14:45
Hreiðar og Magnús sakfelldir en Sigurður sýknaður í síðasta hrunmálinu Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson fyrrverandi stjórnendur hjá Kaupþingi voru í Landsrétti í dag sakfelldir fyrir aðild sína að CLN-málinu. Þeim var þó ekki gerði refsing vegna fyrri dóma sem þeir hafa hlotið. Sýknudómur Sigurðar Einarssonar úr héraði var staðfestur. Viðskipti innlent 19. mars 2021 14:21
Kona grunuð um að þræla þremur stjúpbörnum sínum út Landsréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir konu sem grunuð er um fjárdrátt, að hafa þrælað út þremur stjúpbörnum sínum og beitt þau andlegu ofbeldi. Konan var handtekin fyrr í vikunni og úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness konuna í kjölfarið í gæsluvarðhald til 24. mars. Innlent 19. mars 2021 11:33
Milljónabætur vegna frelsissviptingar í alþjóðlegu fjársvikamáli Íslenska ríkið þarf að greiða erlendum karlmanni fjórar og hálfa milljón krónur í miskabætur vegna frelsissviptingar í tengslum við alþjóðlegt fjársvikamál samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á miðvikudag. Manninum var haldið í gæsluvarðhaldi meira en tvöfalt lengur en fangelsisdómur yfir honum hljóðaði upp á. Innlent 19. mars 2021 11:08
Mál ferðafélagans fer aftur fyrir Landsrétt Hæstiréttur hefur ómerkt fimm ára dóm yfir Jerzy Wlodzimierz Lubaszka sem féll í Landsrétti í desember 2019. Innlent 18. mars 2021 15:57
Níu skotáverkar á líkama hins látna Í bráðabirgðaskýrslu réttarmeinafræðings vegna réttarkrufningar á Armando Beqirai, mannsins sem skotinn var til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar, kemur fram að hann hafi hlotið níu skotáverka, meðal annars í höfuð, bol og lífsnauðsynleg líffæri. Þá fundust níu skothylki á vettvangi glæpsins. Innlent 18. mars 2021 08:33
Hinn ákærði metinn ósakhæfur Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg síðasta sumar, er metinn ósakhæfur samkvæmt yfirmati geðlækna. Innlent 17. mars 2021 20:49
Í stórum dráttum sáttur við niðurstöðuna og áfrýjar ekki Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, ætlar ekki að áfrýja niðurstöðu í meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn dóttur sinni Aldísi Schram, fjölmiðlamanninum Sigmari Guðmundssyni og Ríkisútvarpinu til réttargæslu. Innlent 17. mars 2021 13:42
Barn á eftir bolta fær bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest bótaskyldu TM vegna líkamstjóns níu ára drengs sem slasaðist á byggingarsvæði skammt frá grunnskóla í september árið 2016. Innlent 16. mars 2021 17:56
Slasaðist í mótorhjólaslysi en ekki við töskuburð og fær átta milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í byrjun mánaðar Vátryggingafélag Íslands (VÍS) til að greiða karlmanni á sjötugsaldri samtals rúmar átta milljónir í bætur vegna mótorhjólaslyss árið 2017. VÍS taldi hvorki sannað að maðurinn hefði yfir höfuð lent í slysinu né að hann hefði hlotið þar áverka sem ollu honum varanlegri örorku. Innlent 16. mars 2021 15:34
Burðardýrið játaði en meintir skipuleggjendur neita Aðalmeðferð fer fram í dag í máli tveggja Spánverja, karls og konu á fertugsaldri, sem ákærð eru fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þeim er gefið að sök að hafa þann 19. desember síðastliðinn staðið að innflutningi á tæplega fimm kílóum af hassi, um 5100 E-töflum og eitt hundrað stykkjum af LSD. Innlent 16. mars 2021 10:14
Jón Steinar og nýjasta afturköllunarfárið Lögfræðingurinn Jón Steinar Gunnlaugsson er vart óumdeildur maður en ólíkt mörgum öðrum lögfræðingum er Jón hreinskilinn maður. Hann tjáir skoðanir sínar hispurslaust, jafnvel um viðkvæm málefni. Skoðun 15. mars 2021 12:30
Samningur við Jón Steinar „fullalmennur“ Aldrei stóð til að Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, ynni tillögur um meðferð kynferðisbrotamála þrátt fyrir að hann stæði sjálfur í þeirri meiningu, að sögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Samningur um verkefnið hafi aftur á móti verið „fullalmennt orðaður“. Innlent 14. mars 2021 14:28
Landsréttur segir lögreglu heimilt að kalla verjanda í skýrslutöku Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um heimild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að taka skýrslu af verjanda Íslendings sem sætir nú farbanni vegna rannsóknar á hinu svokallaða Rauðagerðismáli. Innlent 13. mars 2021 14:47
Mál Þóru gegn Óperunni fær áfrýjunarleyfi hjá Landsrétti Landsréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni söngkonunnar Þóru Einarsdóttur í máli hennar á hendur Íslensku óperunni vegna meintra vangoldinna launa. Óperan var sýknuð í héraði en málið fær nú að fara fyrir Landsrétt. Innlent 13. mars 2021 11:21
Nauðgunardómur mildaður um ár í Landsrétti Dómur yfir manni, sem hafði samræði og önnur kynferðismök við fyrrverandi kærustu sína án hennar samþykkis, beitti hana ofbeldi og hótunum og svipti konuna frelsi, var í dag mildaður úr fjögurra og hálfs árs fangelsisvist í þriggja og hálfs árs fangelsi í Landsrétti. Innlent 12. mars 2021 18:21
Seljandi bifreiðar kannaðist ekki við að hafa selt bifreiðina Smart bílar voru á mánudag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða kaupanda bifreiðar 861 þúsund krónur auk málskostnaðar vegna galla. Snerist deilan um það hvort fyrirtækið væri seljandi bifreiðarinnar sem flutt var inn frá Bandaríkjunum eða milligönguaðili sem bæri þar með ekki ábyrgð á afhendingarástandi hennar. Viðskipti innlent 12. mars 2021 17:23
„Við erum að undirbúa risaskaðabótamál í Geirfinnsstíl“ „Þetta segir okkur hvað er að gerast í héraðdómi og er auðvitað áfellisdómur á þetta kerfi,“ segir Hjalti Úrsus Árnason. Árni Gils Hjaltason sonur hans var í dag sýknaður í Landsrétti af ákæru um tilraun til manndráps en málið hefur velkst um í dómskerfinu í á fimmta ár. Innlent 12. mars 2021 15:32
Árni Gils sýknaður í Landsrétti Landsréttur sýknaði í dag Árna Gils Hjaltason af ákæru um tilraun til manndráps. Hann hafði áður verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi í héraði. Innlent 12. mars 2021 14:56
Jón Steinar segir sig frá verkefninu Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari óskaði í morgun eftir því að vera leystur frá verkefni sem dómsmálaráðherra fól honum að vinna fyrir ráðuneytið. Jón Steinar segir í yfirlýsingu að í ljósi gagnrýni á ráðninguna telji hann að þátttaka sín hefði spillt framgangi verkefnisins. Innlent 12. mars 2021 14:22
Sigurjón dæmdur í skilorðsbundið fangelsi Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var í dag dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í endurupptöku á svokölluðu Ímon-máli. Elínu Sigfúsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, var ekki gerð sérstök refsing. Innlent 12. mars 2021 13:10
Tvenn ummæli Aldísar ómerkt og Sigmar sýknaður Tvenn ummæli sem Aldís Schram lét falla um Jón Baldvin Hannibalsson föður sinn, í útvarpi annars vegar og á Facebook hins vegar, hafa verið dæmt ómerk. Þá var Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður sýknaður í málinu. Innlent 12. mars 2021 13:04
Bjargar erfðafræðin dæmdum raðmorðingja?: Fékk 30 ára dóm fyrir að myrða börnin sín en vísindamenn segja hana saklausa Níutíu virtir vísindamenn og læknar hafa skrifað undir áskorun til ríkisstjóra Nýju Suður-Wales og skorað á hann að náða Kathleen Folbigg og láta hana umsvifalaust lausa. Erlent 12. mars 2021 12:10
Svarar Tobbu og telur um pólitískt högg á ráðherra að ræða „Það verður lítið hlé á árásum á mig vegna fyrri starfa minna fyrra á tíð sem hæstaréttardómari. Tilgangurinn er að selja almenningi þá hugmynd að ég hafi verið sérstakur verndari kynferðisbrotamanna.“ Innlent 11. mars 2021 20:55
Persónuárásir Það verður lítið hlé á árásum á mig vegna fyrri starfa minna fyrr á tíð sem hæstaréttardómari. Tilgangurinn er að selja almenningi þá hugmynd að ég hafi verið sérstakur verndari kynferðisbrotamanna. Ekkert er fjær sanni. Skoðun 11. mars 2021 20:01