First Try Fail Mondays - Viktor Gunnlaugsson
First Try Fail Mondays eru hjólabrettaþættir úr smiðju plötusnúðsins Adda Intro. Addi tekur hús á fremstu hjólabrettamönnum landsins og leggur fyrir þá þrautir sem þeir verða að klára. Að þessu sinni er það Viktor Gunnlaugsson sem sýnir listir sínar en hann er búinn að renna sér í fjölmörg ár. Þátturinn er hluti af annarri þáttaröð First Try Fail Mondays en sú fyrsta, sem telur um 40 þætti, er nú komin út á DVD.