Neytendur

Í á­falli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mikil umræða er í hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi á Facebook. Er að merkja á íslenskum neytendum að verð rjúki víða upp.
Mikil umræða er í hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi á Facebook. Er að merkja á íslenskum neytendum að verð rjúki víða upp.

Ódýrasti Hlöllabáturinn kostar nú 2500 krónur og dekk í Costco hækkuðu um rúm tuttugu prósent á fjórum vikum.

Þetta er meðal þess sem neytendur ræða í Facebook-hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi. Verðlag á Íslandi er heitt umræðuefni yfir kaffibollum landsins og í hópnum eru reglulega birt dæmi um hækkandi vöruverð.

Magnús Óskar Guðnason segist ekki gera mikið af því að kvarta undan verðlagi. Honum hafi hins vegar fallist hendur í gær þegar hann lagði leið sína í Costco í Kauptúni í þeim erindagjörðum að kaupa dekk undir bílinn. Hann snarthætti við eftir að við blasti hækkun upp á 8500 krónur frá því í byrjun mánaðar.

„Það voru engin tilboð í gangi eða nein merki um einhver sér verð. Vill vara fólk við þessu og passa að gera verðsamanburð, mér finnst þetta í besta falli skrýtið í sama mánuði.“

Magnús var að skoða kaup á fjórum dekkjum eins og flestir bílaeigendur. Hann birtir myndir af verðinu sem hækkaði úr 37.999 krónur þann 2. júní í 46.499 krónur þann 30. júní. Það er hækkun upp á 22 prósent.

Kjötsúpa á 4500 krónur

Gestur Valgarðsson vélaverkfræðingur fylgist vel með verðlagi og leggur reglulega sitt til málanna þegar honum finnst tilefni til. Honum blöskrar verðið á Hlöllabátum. Þar kostar stór bátur nú að lágmarki 2495 krónur.

„Jæja, þá er Hlöllabátar orðinn lúxus veitingastaður. 6000 fyrir tvö með gosi og það á sérkjörum,“ segir Gestur. Fleiri taka undir en nokkrir leggja orð í belg og segja verðlagið svipað og hjá öðrum veitingastöðum á borð við KFC, Subway og American Style.

Fleiri kvarta yfir okri á matseðlum. Kolbrúnu Söru Ósk Kristinsdóttur var brugðið við heimsókn í Perluna þar sem skál af kjötsúpu og brauð kostar 4500 krónur.

„Og plokkfiskurinn þarna efst á matseðlinum er á 4.650 kr,“ segir Lára Halla Maack og er ekki skemmt.

Neytendur telja fleira til. 250 gramma poki af Hrís kostar nú 798 krónur í Bónus. Melónan er komin í tæplega þúsund krónur stykkið í Krónunni.


Ert þú með dæmi um hækkandi verðlag? Eða einhverjar aðrar fréttnæmar ábendingar? Ekki hika við að senda okkur línu á [email protected].






Fleiri fréttir

Sjá meira


×