Nýliðarnir unnu óvæntan sigur gegn bikarmeisturunum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 31. október 2023 20:23 Madison Sutton skoraði 23 stig fyrir Þór og tók 16 fráköst. Vísir/Vilhelm Nýliðar Þórs frá Akureyri gerðu sér lítið fyrir og unnu óvæntan fimm stiga sigur er liðið tóka á móti bikarmeisturum Hauka í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, 74-69.
Gestirnir frá Hafnarfirði byrjuðu leikinn mun betur og leiddu með 14 stigum að loknum fyrsta leikhluta, 23-9. Heimakonur snéru taflinu þó við og unnu alla þrjá leikhlutana sem eftir voru. Það voru því nýliðar Þórs sem unnu óvæntan fimm stiga sigur, 74-69. Madison Sutton átti stórleik fyrir Þórsara í kvöld, en hún skoraði 23 stig og tók 16 fráköst. Lore Devos átti einnig stórgóðan leik og skoraði 21 stig, ásamt því að taka átta fráköst. Tinna Guðrún Alexandersdóttir var atkvæðamest í liði Hauka og skoraði 19 stig. Keira Robinson skoraði 18, tók 16 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Á sama tíma vann Stjarnan öruggan 29 stiga sigur gegn Breiðabliki, 85-56. Stjörnukonur höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda og var sigur þeirra aldrei í hættu. Að lokum vann Valur öruggan tuttugu stiga sigur gegn Snæfellingum, 75-55. Valskonur leiddu með átta stigum í hálfleik og juku forskot sitt jafnt og þétt í síðari hálfleik. Lindsey Pulliam skoraði 32 stig fyrir Val, ásamt því að taka 12 fráköst og Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 13 stig og tók 13 fráköst.
Subway-deild kvenna Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Sjá meira