Golf

Allt í vaskinn á 15. braut

Valur Páll Eiríksson skrifar
Guðmundur Ágúst átti góðan dag að undanskilinni einni braut.
Guðmundur Ágúst átti góðan dag að undanskilinni einni braut. mynd/[email protected]

Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson lauk í dag leik á Kaskáda Golf Challenge-mótinu í Tékklandi. Ein einkar slæm hola fór illa með annars góðan hring kylfingsins.

Guðmundur Ágúst hafði leikið feykivel á fyrstu tveimur hringjunum á fimmtudag og föstudag sem hann fór samtals á fimm höggum undir pari. Honum fataðist aðeins flugið á laugardaginn þar sem hann fór hringinn á fimm höggum yfir pari og var því á pari í heildina fyrir daginn í dag.

Hann fór vel af stað, fékk fjóra fugla á fyrstu tíu brautunum, og var á fjórum höggum undir pari eftir einn fugl til viðbótar og einn skolla þegar komið var á 15. braut.

Þar virðist margt hafa farið úrskeiðis. Um er að ræða par 5 braut sem Guðmundur hafði farið á pari á fyrsta hring og fengið fugl bæði föstudag og laugardag. Höggin á holunni í dag voru hins vegar tíu talsins og Guðmundur því kominn á eitt högg yfir parið.

Skolli á 16. braut í kjölfarið þýddi að hann fór hringinn á tveimur yfir pari, sem var jafnframt heildarskor hans í mótinu og lauk hann keppni í 57. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×