Allt í vaskinn á 15. braut Valur Páll Eiríksson skrifar 4. júlí 2021 21:01 Guðmundur Ágúst átti góðan dag að undanskilinni einni braut. mynd/[email protected] Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson lauk í dag leik á Kaskáda Golf Challenge-mótinu í Tékklandi. Ein einkar slæm hola fór illa með annars góðan hring kylfingsins.
Guðmundur Ágúst hafði leikið feykivel á fyrstu tveimur hringjunum á fimmtudag og föstudag sem hann fór samtals á fimm höggum undir pari. Honum fataðist aðeins flugið á laugardaginn þar sem hann fór hringinn á fimm höggum yfir pari og var því á pari í heildina fyrir daginn í dag. Hann fór vel af stað, fékk fjóra fugla á fyrstu tíu brautunum, og var á fjórum höggum undir pari eftir einn fugl til viðbótar og einn skolla þegar komið var á 15. braut. Þar virðist margt hafa farið úrskeiðis. Um er að ræða par 5 braut sem Guðmundur hafði farið á pari á fyrsta hring og fengið fugl bæði föstudag og laugardag. Höggin á holunni í dag voru hins vegar tíu talsins og Guðmundur því kominn á eitt högg yfir parið. Skolli á 16. braut í kjölfarið þýddi að hann fór hringinn á tveimur yfir pari, sem var jafnframt heildarskor hans í mótinu og lauk hann keppni í 57. sæti.
Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira