Golf

Berglind komin í forystu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Berglind lék einkar vel í dag.
Berglind lék einkar vel í dag. MYND/[email protected]
Það er útlit fyrir spennandi keppni á lokahringnum á Egils Gullmótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi í kvennaflokki.

GR-ingarnir Berglind Björnsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru í efstu sætunum og er Berglind með eitt högg í forskot á Ragnhildi.

Berglind lék frábært golf í góða veðrinu á Hólmsvelli í Leiru og kom inn á einu höggi undir pari vallar eða 71 höggi.

Ragnhildur lék á 78 höggum eftir að hafa leikið á 71 höggi í gær á fyrsta keppnisdeginum.

Staða efstu kvenna:

1. Berglind Björnsdóttir, GR (77-71) 148 (+4)    

2. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (71-78) 149 (+5)

3. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK (79-75) 154 (+10)

4.- 5 Saga Traustadóttir, GR (78-77) 155 (+11)

4.- 5. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK (78-77) 155 (+11)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×