Búið að opna mál Neymar upp á nýtt Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. september 2016 09:00 Hvenær endar þetta mál eiginlega? vísir/getty
Spænska knattspyrnusambandið hefur staðfest að sátt sem Barcelona náði við spænska ríkið í sumar vegna mála Brasilíumannsins Neymar sé nú til skoðunar hjá sambandinu. Barcelona greiddi 4,3 milljónir punda, eða 650 milljónir króna, sekt vegna þessa máls í júní síðastliðnum. Barcelona var sakað um skattsvindl í tengslum við kaupin á Neymar en því hafnaði félagið. Það ákvað þó að semja um þessa sekt í stað þess að halda áfram með málið. Barcelona sagðist hafa greitt 43 milljónir punda, 6,5 milljarða króna, fyrir leikmanninn á sínum tíma. Foreldrar Neymar fengu 5,2 milljarða króna en afgangurinn fór til félags Neymar á þeim tíma, Santos. Það fannst snemma lykt af málinu og eftir rannsókn á félagaskiptunum var sagt að kaupverðið væri nær 10,7 milljörðum króna. Þeir sem rannsökuðu málið sögðu Barcelona leyna hluta kaupverðsins og með því að komast hjá því að greiða skatta. Barcelona hélt að málinu væri lokið í sumar með greiðslu þessa sektar en spænska sambandið er búið að opna málið aftur og vill skoða betur þetta samkomulag Börsunga við spænska ríkið frá því sumar.
Spænski boltinn Mest lesið Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Fótbolti Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður Fótbolti Tyson eftir tapið gegn Paul: „Ég dó næstum því í júní“ Sport Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Markvörður Bayern með krabbamein Fótbolti Dagskráin í dag: Heimir mætir Englendingum á Wembley Sport „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Fótbolti Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Fótbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Fleiri fréttir Birkir Valur yfirgefur HK Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Markvörður Bayern með krabbamein Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecilía hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Sjá meira