Golf

Í beinni: Íslandsmótið í höggleik | Úrslitin ráðast á lokadeginum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Efstu kylfingar.
Efstu kylfingar. Mynd/[email protected]
Fylgstu með öllu því sem gerist á síðasta keppnisdegi Íslandsmótsins í höggleik sem fram fer á Jaðarsvelli á Akureyri.

Fjórði og síðasti keppnisdagurinn á Íslandsmótinu í höggleik hófst klukkan sjö í morgun en það er gríðarlega spenna hjá bæðum körlum og konum þegar 54 holur af 72 eru að baki.

Efstu karlar og konur eru í síðustu tveimur ráshópunum eins og venja er fyrir og fara því ekki af stað fyrr en í hádeginu. Lokahópur karla hefur keppni klukkan 12.00 en lokahópur kvenna klukkan 12.10.

Það stefnir í mikið einvígi á lokahringnum í kvennaflokki þar sem baráttan er á á milli Valdísar Þóru Jónsdóttur úr Leyni og Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur úr GR. Valdís Þóra setti nýtt vallarmet á Jaðarsvelli í gær þegar hún lék á 66 höggum (-5) og er á sjö undir pari eftir fyrstu þrjá dagana. Ólafía Þórunn er einu höggi á eftir á sex höggum undir pari. Þær tvær eru í sérflokki.

Staðan í kvennaflokki fyrir lokadaginn:

1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL (71-69-66) 206 högg  -7

2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,  GR (70-68-69) 207 högg -6

3. Signý Arnórsdóttir, GK (77-68-71) 216 högg +3

4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (72-72-73) 217 högg +4

5. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (75    -75-73)     223 högg +10

6. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (77-76-73) 226 högg +13

7. Berglind Björnsdóttir, GR (75-75-77) 227 högg +14

8. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK (74-79-76) 229 högg +16

Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness lék á -5 í gær og setti vallarmet á Jaðarsvelli og hann deilir efsta sætinu í karlaflokki með Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR. Báðir hafa þeir leikið fyrstu 54 holurnar á sjö höggum undir pari.

Það voru margir aðrir kylfingar sem létu að sér kveða í gær og léku undir pari vallar. Axel Bóasson úr GK, hafði eitt högg í forskot fyrir þriðja hringinn, en hann lék hann á 69 höggum eða -2 og er einu höggi á eftir efstu mönnum.  Alls eru þrettán kylfingar á undir pari fyrir lokadaginn.

Staðan í karlaflokki fyrir lokadaginn:

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (72-68-66) 206 högg  -7

Bjarki Pétursson, GB    (72-69-65) 206 högg -7

Aron Snær Júlíusson, GKG (67-73-67) 207 högg -6

Axel Bóasson, GK (71-67-69) 207 högg -6    

Andri Már Óskarsson, GHR (73-67-66) 208 högg -5

Haraldur Franklín Magnús, GR (71-71-67) 209 högg -4

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (69-70-71) 210 högg -3

Þórður Rafn Gissurarson, GR (71-71-69) 211 högg    -2

Aron Bjarki Bergsson, GKG (70-72-69) 211 högg -2

Gísli Sveinbergsson, GK (72-67-72)    211 högg -2

Rúnar Arnórsson, GK (72-67-72) 211 högg-2

Andri Þór Björnsson, GR (72-73-67) 212 högg -1

Andri Þór Björnsson, GR (72-73-67) 212 högg -1

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG (71-72-70) 213 par

Golfsamband Íslands er með beina lýsingu frá mótinu á Twitter-síðu sinni en hægt er að fylgjast með öllu sem gerist á Jaðarsvelli í Twitter-boxinu hér að neðan. Hér má svo finna beina lýsingu holu fyrir holu og hér er hefðbundin staða þar sem hægt er að fletta á milli flokka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×