Lögregla kölluð til á yngri flokka leik í Árbænum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. september 2013 10:35
Leikmaður Fylkis missti stjórn á skapi sínu í viðureign gegn ÍR í 3. flokki Reykjavíkurmótsins í handbolta í gærkvöldi. Fylkisstúlkur voru í sókn þegar umrætt atvik átti sér stað. Leikmaður Fylkis ýtti þá kollega sínum í ÍR-liðinu í gólfið og lét höggin dynja á leikmanninum. Fékk hún að líta rautt spjald hjá dómurum leiksins. Stöðva þurfti leikinn um tíma vegna atviksins og íhuguðu þjálfarar ÍR-inga að hætta leik. Leiknum var þó framhaldið og lauk með sigri Fylkis 26-16. Málið er viðkvæmt enda stúlkan sem ráðist var á undir lögaldri. Foreldri stelpunnar sem varð fyrir árásinni setti sig í samband við lögreglu. Fulltrúar lögreglu mættu á svæðið og ræddu við nærstadda í leikslok. Ekki liggur fyrir hvor lögð verði fram kæra vegna líkamsárásar. Stelpurnar eiga samkvæmt heimildum Vísis að hafa rætt saman í síma í gærkvöldi og leikmaður Fylkis beðist afsökunar. Þjálfarar ÍR og Fylkis vildu ekki láta hafa neitt eftir sér vegna málsins. Róbert Geir Gíslason, mótastjóri HSÍ, staðfesti að kallað yrði eftir skýrslu dómara vegna leiksins. Málið færi inn á borð aganefndar sambandsins líkt og önnur agamál. Næsti fundur aganefndar HSÍ verður á þriðjudaginn.
Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Þorsteinn Leó markahæstur og stórsigur hjá strákunum hans Gumma Frækinn sigur Vals í Kristianstad Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Sjá meira