Handbolti

Lauf­létt hjá Vals­mönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur hjá Valsmönnum í kvöld.
Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur hjá Valsmönnum í kvöld. Vísir/Anton Brink

Valsmenn áttu ekki í miklum vandræðum með HK-inga í Olís deild karla í handbolta í kvöld.

Valsliðið vann leikinn á endanum með tíu marka mun, 33-23 eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 15-9.

Valsliðið byrjaði daginn i fimmta sætinu en þessi tvö stig skiluðu Valsmönnum upp fyrir Fram og Hauka og upp í þriðja sæti deildarinnar.

Valsmenn hafa nú unnið sex af síðustu sjö deildarleikjum og en þeir hafa ekki tapað deildarleik síðan í september.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur með sjö mörk en Ísak Gústafsson skoraði fimm mörk. Magnús Óli Magnússon gaf sjö stoðsendingar auk þess að skora þrjú mörk.

Ágúst Guðmundsson og Andri Þór Helgason voru markahæstir hjá HK með fimm mörk hvor.

Hk-liðið er áfram í næstneðsta sæti með fimm stig í tíu leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×