Innlent Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu Í hádegisfréttum verða bandarísku forsetakosningarnar að sjálfsögðu fyrirferðarmiklar en þær eru nú hafnar og afar mjótt á munum, ef marka má kannanir. Innlent 5.11.2024 11:27 Aukin hætta á skriðuföllum vegna rigningar Veðurstofa Íslands varar við aukinni hættu á skriðuföllum næstu viku vegna mikillar rigningar. Mikilli úrkomu er spáð næstu daga. Innlent 5.11.2024 11:12 Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að aka bíl á 49 ára gamlan mann við Höfðabakka í Reykjavík í desember 2022, en ákvörðun um refsingu ökumannsins er frestað. Maðurinn sem varð fyrir bílnum lést á Landspítalanum skömmu eftir áreksturinn. Innlent 5.11.2024 11:09 Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg hefur boðað til blaðamannafundar til að kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2029. Innlent 5.11.2024 10:32 „Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica sem fluttist á unglingsárum til Íslands frá Palestínu, segist vera dæmi um barn sem tók ekki í höndina á kvenkennara sínum. Sé rétt staðið að málum gæti barn sem ekki taki í höndina á kennara sínum einn daginn náð langt, jafnvel orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 5.11.2024 10:17 Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við „Viðmót flugmálayfirvalda olli okkur verulegum vonbrigðum. Kannski eru þetta mannleg viðbrögð. En þetta sýnir að þetta getur rist djúpt, að einhverjir almennir borgarar geti farið að veita kerfinu aðhald, spyrja spurninga og efast um vinnubrögð þeirra,“ segir Friðrik Þór Guðmundsson. Innlent 5.11.2024 10:01 Umboðsmaður barna segir verkföll kennara mismuna börnum Umboðsmaður barna segir verkfallið mismuna börnum hvað varðar rétt þeirra til menntunar. Verkfallsrétturinn sé óumdeildur en á sama tíma sé skólaskylda og börn eigi stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu. Hún segir embættinu hafa borist fjöldi erinda vegna verkfalls kennara. Innlent 5.11.2024 10:00 Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Foreldrafélag Áslandsskóla telur verkfallsaðgerðir Kennarasambands Íslands brjóta gegn grunngildum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með því að mismuna börnum og skerða nám þeirra barna sem eru í verkfallsskólum. Innlent 5.11.2024 06:42 Gera nú ráð fyrir 43 prósent meiri halla á ríkissjóði Nú er gert ráð fyrir 58,6 milljarða króna halla á heildarafkomu ríkissjóðs árið 2025 en hann var áætlaður 41,0 milljarður þegar fjárlagafrumvarp var fyrst kynnt í september. Nemur aukningin 17,6 milljörðum króna. Innlent 4.11.2024 22:05 Stjórnarliðið freistar þess að rjúfa útboðsstopp í vegagerð Núna er orðið ljóst að samgönguáætlun til næstu fjögurra ára verður ekki lögð fyrir yfirstandandi þing. Við fjárlagagerðina stefnir ríkisstjórnin þó að því að tilgreina nokkur verkefni sem bjóða megi út. Innlent 4.11.2024 21:31 Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að tveir bílar skullu saman á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. Slysið varð á níunda tímanum í kvöld. Innlent 4.11.2024 20:48 Grasrótin að styrkjast eftir samstarf sem mögulega var of dýrkeypt Ákvörðun Vinstri grænna um áframhaldandi samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsókn árið 2021 var afdrifarík og orkar tvímælis. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, í kosningapallborðinu í dag. Innlent 4.11.2024 20:00 Haustið 2008 að einhverju leyti „reyfarakennt“ Ævisaga Geirs H. Haarde, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, kom út í dag. Geir segist hafa talið það hálfgerða skyldu sína að skrifa bók um viðburðaríka ævi sína. Innlent 4.11.2024 19:57 Sex kílómetrar urðu átta í straumhörðum og ísköldum sjónum Maður sem synti milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar með eiginkonu sína í eftirdragi segist hafa þurft að hundsa eigin efasemdir allan tímann. Sundið tók um sex tíma, og sjórinn var aðeins tveggja gráðu heitur þegar verst lét. Innlent 4.11.2024 19:30 „Þetta var hræðilegt slys“ Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir um hræðilegt slys að ræða. Innlent 4.11.2024 18:38 Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem segir að um hræðilegt slys sé að ræða. Innlent 4.11.2024 18:03 Mögulega merki um að lítið magn kviku hafi verið á ferð Kvikusöfnun heldur áfram á Reykjanesskaga en síðdegis í dag höfðu engir skjálftar mælst frá því að smáskjálftahrina varð á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells í nótt. Innlent 4.11.2024 17:38 Læknar boða miklu harðari aðgerðir Læknar boða til vikulegra verkfalla samtímis á öllum vinnustöðvum lækna sem verkfall nær til frá 25. nóvember og fram að páskum. Aðra vikuna eru allir vinnustaðir lækna í verkfalli frá miðnætti til tólf á hádegi frá mánudegi til fimmtudags. Hina vikuna eru verkföll ýmist mánudag og miðvikudag eða þriðjudag og fimmtudag með sama fyrirkomulagi. Innlent 4.11.2024 16:59 Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin Svandís Svavarsdóttir segir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hafi ekki látið í ljósi neinar mótbárur þegar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra talaði fyrir máli sem varðar lokuð búsetuúrræði hælisleitenda. Innlent 4.11.2024 16:02 Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára. Innlent 4.11.2024 14:55 Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna Óvissa leiðsögumanna um hversu margir lentu undir ís þegar banaslys varð í Breiðamerkurjökli í sumar varð til þess að leit var haldið áfram þrátt fyrir að enginn hefði reynst þar undir. Skráningarlisti ferðaþjónustufyrirtækisins reyndist réttur. Innlent 4.11.2024 14:35 Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. Innlent 4.11.2024 14:12 Sjálfstæðismenn vilja taka upp samræmd próf Meðal aðgerða í menntamálum sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti í dag er að taka upp samræmd próf í grunnskólum á ný. Markmiðið með aðgerðunum er einfalt, að allir nemendur eigi að geta lesið og skilið texta við hæfi eftir yngsta stig grunnskólans í stað þess að stór hluti ráði ekki við það. Innlent 4.11.2024 12:40 Sjónum beint til vinstri í kosningapallborðinu Forystukonur hjá Vinstri grænum, Sósíalistum og Pírötum mæta í beina útsendingu í kosningapallborð fréttastofunnar klukkan 14. Innlent 4.11.2024 12:15 Ríkið þrýsti læknum út í harðari verkfallsaðgerðir Formaður Læknafélags Íslands segir ríkið þrýsta læknum út í harðari verkfallsaðgerðir en lagt var upp með, með því að lýsa því yfir að boðaðar aðgerðir séu ólöglegar. Stefnt er að því að hefja nýja atkvæðagreiðslu um verkföll lækna í dag, sem myndu hefjast seint í nóvember. Innlent 4.11.2024 11:44 Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar. Innlent 4.11.2024 11:38 Baráttan í Bandaríkjunum á lokametrunum Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um bandarísku forsetakosningarnar sem haldnar verða á morgun. Innlent 4.11.2024 11:36 Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið Rannsókn lögreglu á falsboði sem þeim barst í sumar, þegar tilkynnt var um að tveir ferðamenn væru fasti í helli, er nú lokið og er málið óupplýst. Lögreglan ræddi við nokkra einstaklinga í Bretlandi í tengslum við rannsókn málsins. Innlent 4.11.2024 10:33 Bergþór hæðist að Bjarna og Sigurði Inga Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins hæðist að Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, formönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, í pistli í Morgunblaðinu í dag. Innlent 4.11.2024 10:08 Enginn stjórnmálamaður á loftslagsráðstefnu Í hátt í fimmtíu manna sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnu í Aserbaídsjan verður enginn kjörinn fulltrúi, hvorki ráðherra, þingmaður né sveitarstjórnarmaður. Ráðstefnunni lýkur átta dögum fyrir alþingiskosningar. Innlent 4.11.2024 09:17 « ‹ 7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 334 ›
Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu Í hádegisfréttum verða bandarísku forsetakosningarnar að sjálfsögðu fyrirferðarmiklar en þær eru nú hafnar og afar mjótt á munum, ef marka má kannanir. Innlent 5.11.2024 11:27
Aukin hætta á skriðuföllum vegna rigningar Veðurstofa Íslands varar við aukinni hættu á skriðuföllum næstu viku vegna mikillar rigningar. Mikilli úrkomu er spáð næstu daga. Innlent 5.11.2024 11:12
Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að aka bíl á 49 ára gamlan mann við Höfðabakka í Reykjavík í desember 2022, en ákvörðun um refsingu ökumannsins er frestað. Maðurinn sem varð fyrir bílnum lést á Landspítalanum skömmu eftir áreksturinn. Innlent 5.11.2024 11:09
Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg hefur boðað til blaðamannafundar til að kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2029. Innlent 5.11.2024 10:32
„Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica sem fluttist á unglingsárum til Íslands frá Palestínu, segist vera dæmi um barn sem tók ekki í höndina á kvenkennara sínum. Sé rétt staðið að málum gæti barn sem ekki taki í höndina á kennara sínum einn daginn náð langt, jafnvel orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 5.11.2024 10:17
Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við „Viðmót flugmálayfirvalda olli okkur verulegum vonbrigðum. Kannski eru þetta mannleg viðbrögð. En þetta sýnir að þetta getur rist djúpt, að einhverjir almennir borgarar geti farið að veita kerfinu aðhald, spyrja spurninga og efast um vinnubrögð þeirra,“ segir Friðrik Þór Guðmundsson. Innlent 5.11.2024 10:01
Umboðsmaður barna segir verkföll kennara mismuna börnum Umboðsmaður barna segir verkfallið mismuna börnum hvað varðar rétt þeirra til menntunar. Verkfallsrétturinn sé óumdeildur en á sama tíma sé skólaskylda og börn eigi stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu. Hún segir embættinu hafa borist fjöldi erinda vegna verkfalls kennara. Innlent 5.11.2024 10:00
Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Foreldrafélag Áslandsskóla telur verkfallsaðgerðir Kennarasambands Íslands brjóta gegn grunngildum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með því að mismuna börnum og skerða nám þeirra barna sem eru í verkfallsskólum. Innlent 5.11.2024 06:42
Gera nú ráð fyrir 43 prósent meiri halla á ríkissjóði Nú er gert ráð fyrir 58,6 milljarða króna halla á heildarafkomu ríkissjóðs árið 2025 en hann var áætlaður 41,0 milljarður þegar fjárlagafrumvarp var fyrst kynnt í september. Nemur aukningin 17,6 milljörðum króna. Innlent 4.11.2024 22:05
Stjórnarliðið freistar þess að rjúfa útboðsstopp í vegagerð Núna er orðið ljóst að samgönguáætlun til næstu fjögurra ára verður ekki lögð fyrir yfirstandandi þing. Við fjárlagagerðina stefnir ríkisstjórnin þó að því að tilgreina nokkur verkefni sem bjóða megi út. Innlent 4.11.2024 21:31
Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að tveir bílar skullu saman á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. Slysið varð á níunda tímanum í kvöld. Innlent 4.11.2024 20:48
Grasrótin að styrkjast eftir samstarf sem mögulega var of dýrkeypt Ákvörðun Vinstri grænna um áframhaldandi samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsókn árið 2021 var afdrifarík og orkar tvímælis. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, í kosningapallborðinu í dag. Innlent 4.11.2024 20:00
Haustið 2008 að einhverju leyti „reyfarakennt“ Ævisaga Geirs H. Haarde, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, kom út í dag. Geir segist hafa talið það hálfgerða skyldu sína að skrifa bók um viðburðaríka ævi sína. Innlent 4.11.2024 19:57
Sex kílómetrar urðu átta í straumhörðum og ísköldum sjónum Maður sem synti milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar með eiginkonu sína í eftirdragi segist hafa þurft að hundsa eigin efasemdir allan tímann. Sundið tók um sex tíma, og sjórinn var aðeins tveggja gráðu heitur þegar verst lét. Innlent 4.11.2024 19:30
„Þetta var hræðilegt slys“ Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir um hræðilegt slys að ræða. Innlent 4.11.2024 18:38
Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem segir að um hræðilegt slys sé að ræða. Innlent 4.11.2024 18:03
Mögulega merki um að lítið magn kviku hafi verið á ferð Kvikusöfnun heldur áfram á Reykjanesskaga en síðdegis í dag höfðu engir skjálftar mælst frá því að smáskjálftahrina varð á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells í nótt. Innlent 4.11.2024 17:38
Læknar boða miklu harðari aðgerðir Læknar boða til vikulegra verkfalla samtímis á öllum vinnustöðvum lækna sem verkfall nær til frá 25. nóvember og fram að páskum. Aðra vikuna eru allir vinnustaðir lækna í verkfalli frá miðnætti til tólf á hádegi frá mánudegi til fimmtudags. Hina vikuna eru verkföll ýmist mánudag og miðvikudag eða þriðjudag og fimmtudag með sama fyrirkomulagi. Innlent 4.11.2024 16:59
Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin Svandís Svavarsdóttir segir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hafi ekki látið í ljósi neinar mótbárur þegar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra talaði fyrir máli sem varðar lokuð búsetuúrræði hælisleitenda. Innlent 4.11.2024 16:02
Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára. Innlent 4.11.2024 14:55
Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna Óvissa leiðsögumanna um hversu margir lentu undir ís þegar banaslys varð í Breiðamerkurjökli í sumar varð til þess að leit var haldið áfram þrátt fyrir að enginn hefði reynst þar undir. Skráningarlisti ferðaþjónustufyrirtækisins reyndist réttur. Innlent 4.11.2024 14:35
Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. Innlent 4.11.2024 14:12
Sjálfstæðismenn vilja taka upp samræmd próf Meðal aðgerða í menntamálum sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti í dag er að taka upp samræmd próf í grunnskólum á ný. Markmiðið með aðgerðunum er einfalt, að allir nemendur eigi að geta lesið og skilið texta við hæfi eftir yngsta stig grunnskólans í stað þess að stór hluti ráði ekki við það. Innlent 4.11.2024 12:40
Sjónum beint til vinstri í kosningapallborðinu Forystukonur hjá Vinstri grænum, Sósíalistum og Pírötum mæta í beina útsendingu í kosningapallborð fréttastofunnar klukkan 14. Innlent 4.11.2024 12:15
Ríkið þrýsti læknum út í harðari verkfallsaðgerðir Formaður Læknafélags Íslands segir ríkið þrýsta læknum út í harðari verkfallsaðgerðir en lagt var upp með, með því að lýsa því yfir að boðaðar aðgerðir séu ólöglegar. Stefnt er að því að hefja nýja atkvæðagreiðslu um verkföll lækna í dag, sem myndu hefjast seint í nóvember. Innlent 4.11.2024 11:44
Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar. Innlent 4.11.2024 11:38
Baráttan í Bandaríkjunum á lokametrunum Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um bandarísku forsetakosningarnar sem haldnar verða á morgun. Innlent 4.11.2024 11:36
Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið Rannsókn lögreglu á falsboði sem þeim barst í sumar, þegar tilkynnt var um að tveir ferðamenn væru fasti í helli, er nú lokið og er málið óupplýst. Lögreglan ræddi við nokkra einstaklinga í Bretlandi í tengslum við rannsókn málsins. Innlent 4.11.2024 10:33
Bergþór hæðist að Bjarna og Sigurði Inga Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins hæðist að Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, formönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, í pistli í Morgunblaðinu í dag. Innlent 4.11.2024 10:08
Enginn stjórnmálamaður á loftslagsráðstefnu Í hátt í fimmtíu manna sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnu í Aserbaídsjan verður enginn kjörinn fulltrúi, hvorki ráðherra, þingmaður né sveitarstjórnarmaður. Ráðstefnunni lýkur átta dögum fyrir alþingiskosningar. Innlent 4.11.2024 09:17