Erlent

Musk sagður hafa átt fund með sendi­herra Íran

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Musk er sagður einn helsti ráðgjafi Trump um þessar mundir en síðarnefndi hefur verið iðinn við tilnefningar í embætti síðustu daga.
Musk er sagður einn helsti ráðgjafi Trump um þessar mundir en síðarnefndi hefur verið iðinn við tilnefningar í embætti síðustu daga. AP/Alex Brandon

Auðjöfurinn og frumkvöðullinn Elon Musk átti fund á mánudag með sendiherra Íran við Sameinuðu þjóðirnar. Þetta hefur New York Times eftir írönskum embættismönnum.

Musk hefur tekið sér stöðu sem einn helsti ráðgjafi og stuðningsmaður Donald Trump, verðandi og fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Samskiptastjóri Trump sagðist hins vegar ekki vilja tjá sig um einkafund sem hefði eða hefði ekki átt sér stað. 

Musk svaraði ekki fyrirspurnum NY Times um málið.

Samkvæmt heimildarmönnum blaðsins fór fundurinn fram á leynilegum stað en hann snérist um mögulegar leiðir til að draga úr spennu í samskiptum Bandaríkjanna og Íran. Heimildarmennirnir segja fundinn hafa verið „jákvæðan“ og „góðar fréttir“

Musk er sagður hafa óskað eftir fundinum en sendiherrann valið fundarstaðinn.

Trump var nokkuð harður í garð Íran á fyrra kjörtímabili sínu; dró Bandaríkin út úr kjarnorkusamkomulaginu frá 2015, lagði auknar viðskiptaþvinganir á landið og fyrirskipaði morðið á hershöfðingjanum Qassim Suleimani.

Íranir neituðu í kjölfarið að eiga nokkur samskipti við stjórn Trumps og þá kom fram í dómskjölum í síðustu viku að Íranir hefðu haft í hyggju að ráða Trump af dögum í aðdraganda forsetakosninganna.

Stjórnvöld í Íran eru hins vegar sögð skoða þann möguleika að freista þess að miðla málum, þar sem Trump sé þekktur fyrir að vera áhugasamur um að ná góðum samningum. Möguglega gætu þeir samið við forsetann um afléttingu viðskiptaþvingana, svo eitthvað sé nefnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×