Fréttir „Þetta er einhver leikur sem menn ákváðu að spila“ Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandsins ekki munu hafa áhrif á boðuð verkföll kennara. Innlent 16.10.2024 19:07 Hinsti fundur ríkisstjórnar og uppstokkun hjá Play Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna fundaði í síðasta skipti nú síðdegis, þar sem tilkynnt var að forsætisráðherra og fjármálaráðherra taki við ráðuneytum fráfarandi ráðherra Vinstri grænna. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 16.10.2024 18:26 Skýr skilaboð um að hún vilji verða formaður Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir ákvörðun sína um að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Bjarna Benediktssonar, vera skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að taka við formennsku í Sjálfstæðisflokknum þegar þar að kemur. Innlent 16.10.2024 18:17 Steinunn Þóra gefur ekki kost á sér Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur gefið það út að hún sækist ekki eftir því að taka sæti á lista hreyfingarinnar yfir komandi Alþingiskosningar. Innlent 16.10.2024 17:45 Stemningin „eftir atvikum ágæt“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hyggst leggja skiptingu ráðuneyta Vinstri grænna fyrir forseta á ríkisráðsfundi á morgun, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan 18. Hann segir ráðherra VG samt sem áður verða áfram ráðherrar. Innlent 16.10.2024 17:43 Óli Björn hættir á þingi Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri í komandi kosningum. Hann segir ákvörðunina hafa legið fyrir í nokkurn tíma. Innlent 16.10.2024 16:22 „Ef allir gerðu þetta væri landið stjórnlaust“ Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir með ólíkindum ábyrgðarlaust af Vinstri grænum að starfa ekki í starfsstjórn, sem forseti hefur óskað eftir að sitji þar til ný ríkisstjórn er mynduð. Innlent 16.10.2024 16:16 Teitur Björn vill setjast í laust sæti Þórdísar Teitur Björn Einarsson hefur boðið sig fram til að leiða lista Sjálfstæðiflokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi kosningum. Það tilkynnti hann á nánast sama tíma og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tilkynnti að hún fari fram í Kraganum. Innlent 16.10.2024 15:44 Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu. Erlent 16.10.2024 15:33 Sigurður Ingi fær innviðaráðuneytið og Bjarni hin tvö Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna komu saman til ríkisstjórnarfundar í síðasta sinn síðdegis í dag. Innlent 16.10.2024 15:30 Þórdís vill sæti Jóns í kjördæmi formannsins Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, hyggst gefa kost á sér í Suðvesturkjördæmi. Hún leiddi lista flokks síns í Norðvesturkjördæmi í síðustu þingkosningum. Innlent 16.10.2024 15:20 Hildur leiðir aðgerðahóp forsætisráðherra um að brúa bilið Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn í Reykjavík leiðir aðgerðahóp innan forsætisráðuneytisins sem á að vinna að því að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Innlent 16.10.2024 14:55 Aðstoðarmenn ráðherra þurfa nú að líta í kringum sig Hvað verður um aðstoðarmenn ráðherra nú þegar kosningar eru í vændum? Víst er að aðstoðarmenn ráðherra Vinstri grænna þurfa að hætta snarlega. Sem opinberir starfsmenn njóta þeir hins vegar ekki þess að eiga langan uppsagnarfrest heldur er þar um að ræða þrjá mánuði. Innlent 16.10.2024 14:31 Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni Dómur í máli þrotabús Karl Wernerssonar og Jóns Hilmars Karlssonar, sonar hans, stendur óhaggaður. Landsréttur dæmdi Jón Hilmar til greiðslu alls um fimm milljarða króna en Hæstiréttur telur málið ekki varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans. Innlent 16.10.2024 14:22 Guðmundur Ingi vill fara fram fyrir Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga, ætlar að gefa kost á sér í 3. til 4. sæti hjá Samfylkingunni i í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Þetta staðfestir Guðmundur Ingi í samtali við fréttastofu. Innlent 16.10.2024 13:48 Opna Grindavík öllum eftir helgi Aðgangur að Grindavík verður hindranalaus frá og með mánudagsmorgni samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar um málefni bæjarins sem kynnt var í dag. Lokað verður aftur ef hættu- eða neyðarstigi verður aftur lýst yfir. Innlent 16.10.2024 13:44 Þingflokkarnir funda hver í sínu horni Þingflokkar Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins komu saman til funda hver í sínu horni klukkan 13 í dag. Ráðherrar flokkanna mæta á ríkisstjórnarfund sem boðað hefur verið til klukkan 16 í dag. Innlent 16.10.2024 13:36 Bæjarstjórinn íhugar alvarlega að bjóða fram krafta sína Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, íhugar alvarlega að bjóða fram krafta sína til að taka sæti á lista fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum sem fram fara 30. nóvember. Innlent 16.10.2024 13:25 Bein útsending: Verður Grindavík opnuð fyrir öllum? Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ boðar til upplýsingafundar í Tollhúsinu við Tryggvagötu klukkan 13:30. Þar verður farið yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Beint streymi verður frá fundinum á Vísi. Innlent 16.10.2024 13:11 „Kemur í ljós“ hvort boðaðir ráðherrar mæti Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa verið boðaðið á ríkisstjórnarfund klukkan 16 í dag, þar með talið ráðherrar Vinstri grænna. Aðstoðarmaður matvælaráðherra segir munu koma í ljós hvort ráðherrar VG mæti. Innlent 16.10.2024 12:47 Vill vera oddviti áfram og hlakkar til slagsins Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi, mun sækjast eftir endurkjöri í fyrsta sæti á lista flokksins í kjördæmin. Hann hefur fengið mótframboð og því stefnir í slag um oddvitasætið. Innlent 16.10.2024 12:37 Útilokar ekkert en mundar tuskuna gegn smjörklípunum „Ég bíð við símann og fylgist með í gegnum dyrabjölluna heima,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Bjargs íbúðafélags, í léttum dúr þegar hann er inntur eftir því hvort hann vonist til að lenda á uppstilltum lista fyrir þingkosningarnar. Innlent 16.10.2024 12:30 Sjálfstæðismenn kjósa um efstu sæti á lista á landsbyggðinni Kosið verður um efstu sætin á framboðslistum Sjálfstæðisflokksins í landsbyggðarkjördæmunum á fundum kjördæmaráða sem fara fram á sunnudag. Raðað verður í neðri sætin. Innlent 16.10.2024 12:26 Stefna kennurum fyrir félagsdóm Samband íslenskra sveitarfélaga hefur stefnt Kennarasambandi Íslands fyrir félagsdóm. Sambandið telur boðun verkfalls í fjölda skóla ólögmæta þar sem engin kröfugerð liggi fyrir í kjaradeilunni. Innlent 16.10.2024 12:21 Viðstaddir í Strassbourg fengu smjörþefinn af pólitískri ólgu á Íslandi Stuðla ætti að frekari sameiningu íslenskra sveitarfélaga, veita Reykjavík sérstaka stöðu sem höfuðborg og bæta samskipti sveitarfélaga og ríkis, samkvæmt niðurstöðum nýrrar úttektar Evrópuráðsins. Til stóð að innviðaráðherra ávarpaði sveitarstjórnarþing ráðsins í Strassbourg morgun en viðstaddir fengu í staðinn smjörþefinn af þeirri óvissu sem ríkir í íslenskum stjórnmálum. Innlent 16.10.2024 11:59 „Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Forseti Alþýðusambandsins segir að með stjórnarslitum séu ráðandi öfl að hlaupast undan verkefninu, loks þegar árangur sé að nást í baráttu við háa vexti og verðbólgu. Hann kveðst gáttaður á því Vinstri græn taki ekki þátt í starfsstjórn. Innlent 16.10.2024 11:54 Ríkisstjórnin hittist síðar í dag og forseti ASÍ gáttaður á stöðunni Í hádegisfréttum förum við yfir stöðuna á stjórnarheimilinu nú þegar starfsstjórn er að taka við fram að kosningum. Innlent 16.10.2024 11:40 Guðmundur Árni stefnir á oddvitasætið í Suðvesturkjördæmi „Það er mikill hugur í mér,“ svarar Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og bæjarstjórnarmaður í Hafnarfirði, spurður að því hvort hann verði á lista fyrir Samfylkinguna í komandi þingkosningum. Innlent 16.10.2024 11:29 Jens Garðar vill oddvitasætið Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt framboð sitt til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Hann er aðstoðarforstjóri laxeldisfyrirtæksisins Kaldvíkur. Njáll Trausti Friðbertsson leiddi lista Sjálfstæðismanna í kjördæminu í síðustu kosningum. Innlent 16.10.2024 11:23 Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22 « ‹ 38 39 40 41 42 43 44 45 46 … 334 ›
„Þetta er einhver leikur sem menn ákváðu að spila“ Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandsins ekki munu hafa áhrif á boðuð verkföll kennara. Innlent 16.10.2024 19:07
Hinsti fundur ríkisstjórnar og uppstokkun hjá Play Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna fundaði í síðasta skipti nú síðdegis, þar sem tilkynnt var að forsætisráðherra og fjármálaráðherra taki við ráðuneytum fráfarandi ráðherra Vinstri grænna. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 16.10.2024 18:26
Skýr skilaboð um að hún vilji verða formaður Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir ákvörðun sína um að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Bjarna Benediktssonar, vera skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að taka við formennsku í Sjálfstæðisflokknum þegar þar að kemur. Innlent 16.10.2024 18:17
Steinunn Þóra gefur ekki kost á sér Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur gefið það út að hún sækist ekki eftir því að taka sæti á lista hreyfingarinnar yfir komandi Alþingiskosningar. Innlent 16.10.2024 17:45
Stemningin „eftir atvikum ágæt“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hyggst leggja skiptingu ráðuneyta Vinstri grænna fyrir forseta á ríkisráðsfundi á morgun, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan 18. Hann segir ráðherra VG samt sem áður verða áfram ráðherrar. Innlent 16.10.2024 17:43
Óli Björn hættir á þingi Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri í komandi kosningum. Hann segir ákvörðunina hafa legið fyrir í nokkurn tíma. Innlent 16.10.2024 16:22
„Ef allir gerðu þetta væri landið stjórnlaust“ Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir með ólíkindum ábyrgðarlaust af Vinstri grænum að starfa ekki í starfsstjórn, sem forseti hefur óskað eftir að sitji þar til ný ríkisstjórn er mynduð. Innlent 16.10.2024 16:16
Teitur Björn vill setjast í laust sæti Þórdísar Teitur Björn Einarsson hefur boðið sig fram til að leiða lista Sjálfstæðiflokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi kosningum. Það tilkynnti hann á nánast sama tíma og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tilkynnti að hún fari fram í Kraganum. Innlent 16.10.2024 15:44
Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu. Erlent 16.10.2024 15:33
Sigurður Ingi fær innviðaráðuneytið og Bjarni hin tvö Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna komu saman til ríkisstjórnarfundar í síðasta sinn síðdegis í dag. Innlent 16.10.2024 15:30
Þórdís vill sæti Jóns í kjördæmi formannsins Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, hyggst gefa kost á sér í Suðvesturkjördæmi. Hún leiddi lista flokks síns í Norðvesturkjördæmi í síðustu þingkosningum. Innlent 16.10.2024 15:20
Hildur leiðir aðgerðahóp forsætisráðherra um að brúa bilið Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn í Reykjavík leiðir aðgerðahóp innan forsætisráðuneytisins sem á að vinna að því að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Innlent 16.10.2024 14:55
Aðstoðarmenn ráðherra þurfa nú að líta í kringum sig Hvað verður um aðstoðarmenn ráðherra nú þegar kosningar eru í vændum? Víst er að aðstoðarmenn ráðherra Vinstri grænna þurfa að hætta snarlega. Sem opinberir starfsmenn njóta þeir hins vegar ekki þess að eiga langan uppsagnarfrest heldur er þar um að ræða þrjá mánuði. Innlent 16.10.2024 14:31
Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni Dómur í máli þrotabús Karl Wernerssonar og Jóns Hilmars Karlssonar, sonar hans, stendur óhaggaður. Landsréttur dæmdi Jón Hilmar til greiðslu alls um fimm milljarða króna en Hæstiréttur telur málið ekki varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans. Innlent 16.10.2024 14:22
Guðmundur Ingi vill fara fram fyrir Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga, ætlar að gefa kost á sér í 3. til 4. sæti hjá Samfylkingunni i í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Þetta staðfestir Guðmundur Ingi í samtali við fréttastofu. Innlent 16.10.2024 13:48
Opna Grindavík öllum eftir helgi Aðgangur að Grindavík verður hindranalaus frá og með mánudagsmorgni samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar um málefni bæjarins sem kynnt var í dag. Lokað verður aftur ef hættu- eða neyðarstigi verður aftur lýst yfir. Innlent 16.10.2024 13:44
Þingflokkarnir funda hver í sínu horni Þingflokkar Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins komu saman til funda hver í sínu horni klukkan 13 í dag. Ráðherrar flokkanna mæta á ríkisstjórnarfund sem boðað hefur verið til klukkan 16 í dag. Innlent 16.10.2024 13:36
Bæjarstjórinn íhugar alvarlega að bjóða fram krafta sína Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, íhugar alvarlega að bjóða fram krafta sína til að taka sæti á lista fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum sem fram fara 30. nóvember. Innlent 16.10.2024 13:25
Bein útsending: Verður Grindavík opnuð fyrir öllum? Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ boðar til upplýsingafundar í Tollhúsinu við Tryggvagötu klukkan 13:30. Þar verður farið yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Beint streymi verður frá fundinum á Vísi. Innlent 16.10.2024 13:11
„Kemur í ljós“ hvort boðaðir ráðherrar mæti Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa verið boðaðið á ríkisstjórnarfund klukkan 16 í dag, þar með talið ráðherrar Vinstri grænna. Aðstoðarmaður matvælaráðherra segir munu koma í ljós hvort ráðherrar VG mæti. Innlent 16.10.2024 12:47
Vill vera oddviti áfram og hlakkar til slagsins Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi, mun sækjast eftir endurkjöri í fyrsta sæti á lista flokksins í kjördæmin. Hann hefur fengið mótframboð og því stefnir í slag um oddvitasætið. Innlent 16.10.2024 12:37
Útilokar ekkert en mundar tuskuna gegn smjörklípunum „Ég bíð við símann og fylgist með í gegnum dyrabjölluna heima,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Bjargs íbúðafélags, í léttum dúr þegar hann er inntur eftir því hvort hann vonist til að lenda á uppstilltum lista fyrir þingkosningarnar. Innlent 16.10.2024 12:30
Sjálfstæðismenn kjósa um efstu sæti á lista á landsbyggðinni Kosið verður um efstu sætin á framboðslistum Sjálfstæðisflokksins í landsbyggðarkjördæmunum á fundum kjördæmaráða sem fara fram á sunnudag. Raðað verður í neðri sætin. Innlent 16.10.2024 12:26
Stefna kennurum fyrir félagsdóm Samband íslenskra sveitarfélaga hefur stefnt Kennarasambandi Íslands fyrir félagsdóm. Sambandið telur boðun verkfalls í fjölda skóla ólögmæta þar sem engin kröfugerð liggi fyrir í kjaradeilunni. Innlent 16.10.2024 12:21
Viðstaddir í Strassbourg fengu smjörþefinn af pólitískri ólgu á Íslandi Stuðla ætti að frekari sameiningu íslenskra sveitarfélaga, veita Reykjavík sérstaka stöðu sem höfuðborg og bæta samskipti sveitarfélaga og ríkis, samkvæmt niðurstöðum nýrrar úttektar Evrópuráðsins. Til stóð að innviðaráðherra ávarpaði sveitarstjórnarþing ráðsins í Strassbourg morgun en viðstaddir fengu í staðinn smjörþefinn af þeirri óvissu sem ríkir í íslenskum stjórnmálum. Innlent 16.10.2024 11:59
„Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Forseti Alþýðusambandsins segir að með stjórnarslitum séu ráðandi öfl að hlaupast undan verkefninu, loks þegar árangur sé að nást í baráttu við háa vexti og verðbólgu. Hann kveðst gáttaður á því Vinstri græn taki ekki þátt í starfsstjórn. Innlent 16.10.2024 11:54
Ríkisstjórnin hittist síðar í dag og forseti ASÍ gáttaður á stöðunni Í hádegisfréttum förum við yfir stöðuna á stjórnarheimilinu nú þegar starfsstjórn er að taka við fram að kosningum. Innlent 16.10.2024 11:40
Guðmundur Árni stefnir á oddvitasætið í Suðvesturkjördæmi „Það er mikill hugur í mér,“ svarar Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og bæjarstjórnarmaður í Hafnarfirði, spurður að því hvort hann verði á lista fyrir Samfylkinguna í komandi þingkosningum. Innlent 16.10.2024 11:29
Jens Garðar vill oddvitasætið Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt framboð sitt til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Hann er aðstoðarforstjóri laxeldisfyrirtæksisins Kaldvíkur. Njáll Trausti Friðbertsson leiddi lista Sjálfstæðismanna í kjördæminu í síðustu kosningum. Innlent 16.10.2024 11:23
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22