Sá sem situr í stól Klopp í kvöld er með hæstu þjálfaragráðu UEFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2019 13:00 Neil Critchley hefur unnið fyrir Liverpool í sex ár. Getty/Nick Taylor Það verður enginn Jürgen Klopp á hliðarlínu Liverpool í kvöld þegar liðið mætir Aston Villa í átta liða úrslitum enska deildabikarsins. Þetta verður fyrsti leikur aðalliðs Liverpool í fimmtíu mánuði þar sem einhver annar en Klopp stýrir liðinu. Jürgen Klopp tók við Liverpool í október 2015 og hefur stjórnað öllum leikjum aðalliðsins á þeim fjórum árum og tveimur mánuðum sem hann hefur starfað sem knattspyrnustjóri félagsins. Klopp er hins vegar staddur í allt annarri heimsálfu í kvöld því hann er með aðalliðið í Katar þar sem Liverpool liðið mætir Monterrey frá Mexíkó í undanúrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða. Neil Critchley will throw Anfield’s kids into the most daunting test of their lives with a message from Jurgen Klopp: Play in the Liverpool way. “They need tough challenges and the team that takes to the pitch will take so much from the experience.”https://t.co/j5aVvbavsc— Anfield Watch (@AnfieldWatch) December 16, 2019 Maðurinn sem situr í „stól“ Klopp á Villa Park heitir Neil Critchley og er 41 árs gamall Englendingur sem er þjálfari 23 ára liðs félagsins. Knattspyrnuferill Neil Critchley var ekki upp á marga fiska en hann spilaði einn leik fyrir Crewe Alexandra tímabilið 1999-2000 og þrjá leiki fyrir utandeildarliðið Leigh RMI tímabilið á eftir. Eini byrjunarliðsleikurinn kom í bikarleik með Leigh. Neil Critchley skipti yfir í þjálfun og snéri til baka til Crewe og varð þar yfirmaður knattspyrnumála árið 2007. Hann er einn af sextán þjálfurum í Englandi sem hafa klárað hæstu þjálfaragráðunum hjá UEFA. Critchley kom til Liverpool árið 2013 og tók fyrst við átján ára liði félagsins sem hann þjálfaði í fjögur ár. Neil Critchley varð síðan þjálfari 23 ára liðsins árið 2017. Nú kemur stóra tækifærið og hann fær á sig sviðsljósið í kvöld. "One game like this is worth a million training sessions." Neil Critchley is one of the most qualified coaches in Europe. Tomorrow, the LFC U23 boss is the LFC senior manager for the day. https://t.co/kHIkDjyW5l— Chris Bascombe (@_ChrisBascombe) December 16, 2019 „Þetta er stórt tækifæri fyrir okkur alla, mig meðtalinn. Ég er mjög stoltur yfir því að fá að stýra liðinu en ég þarf líka að fá stolt frá mínum leikmönnum að sýna hvað í þeim býr,“ sagði Neil Critchley á blaðamannafundi fyrir leikinn. Jürgen Klopp sjálfur tók samt ekki ákvörðunina um hver myndi stýra Liverpool liðinu í kvöld. „Það voru augljóslega einhverjir háttsettari en ég sem tóku þá ákvörðun. Félagið þurfti að taka ákvörðun og þeir komust að þessari niðurstöðu. þetta er einstakar kringumstæður og ég held að þetta hafi ekki gerst áður,“ sagði Jürgen Klopp. Forráðamenn Liverpool hafa ekki aðeins mikla trú á Neil Critchley því enska sambandið valdi hann sérstaklega til að vera einn fyrstu Englendingum til að taka hæsta þjálfaraprófið hjá UEFA. Leikur Aston Villa og Liverpool hefst klukkan 19.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. With Liverpool fielding two different playing squads in the League Cup and Club World Cup in the space of 24 hours, the club’s stand-in manager Neil Critchley said that the young side he will field to face Aston Villa will be well-prepared pic.twitter.com/6neGkmOz4S— Reuters (@Reuters) December 16, 2019 Enski boltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Fleiri fréttir Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Scott McTominay sér ekki eftir neinu Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Coote dómari í enn verri málum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Sjá meira
Það verður enginn Jürgen Klopp á hliðarlínu Liverpool í kvöld þegar liðið mætir Aston Villa í átta liða úrslitum enska deildabikarsins. Þetta verður fyrsti leikur aðalliðs Liverpool í fimmtíu mánuði þar sem einhver annar en Klopp stýrir liðinu. Jürgen Klopp tók við Liverpool í október 2015 og hefur stjórnað öllum leikjum aðalliðsins á þeim fjórum árum og tveimur mánuðum sem hann hefur starfað sem knattspyrnustjóri félagsins. Klopp er hins vegar staddur í allt annarri heimsálfu í kvöld því hann er með aðalliðið í Katar þar sem Liverpool liðið mætir Monterrey frá Mexíkó í undanúrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða. Neil Critchley will throw Anfield’s kids into the most daunting test of their lives with a message from Jurgen Klopp: Play in the Liverpool way. “They need tough challenges and the team that takes to the pitch will take so much from the experience.”https://t.co/j5aVvbavsc— Anfield Watch (@AnfieldWatch) December 16, 2019 Maðurinn sem situr í „stól“ Klopp á Villa Park heitir Neil Critchley og er 41 árs gamall Englendingur sem er þjálfari 23 ára liðs félagsins. Knattspyrnuferill Neil Critchley var ekki upp á marga fiska en hann spilaði einn leik fyrir Crewe Alexandra tímabilið 1999-2000 og þrjá leiki fyrir utandeildarliðið Leigh RMI tímabilið á eftir. Eini byrjunarliðsleikurinn kom í bikarleik með Leigh. Neil Critchley skipti yfir í þjálfun og snéri til baka til Crewe og varð þar yfirmaður knattspyrnumála árið 2007. Hann er einn af sextán þjálfurum í Englandi sem hafa klárað hæstu þjálfaragráðunum hjá UEFA. Critchley kom til Liverpool árið 2013 og tók fyrst við átján ára liði félagsins sem hann þjálfaði í fjögur ár. Neil Critchley varð síðan þjálfari 23 ára liðsins árið 2017. Nú kemur stóra tækifærið og hann fær á sig sviðsljósið í kvöld. "One game like this is worth a million training sessions." Neil Critchley is one of the most qualified coaches in Europe. Tomorrow, the LFC U23 boss is the LFC senior manager for the day. https://t.co/kHIkDjyW5l— Chris Bascombe (@_ChrisBascombe) December 16, 2019 „Þetta er stórt tækifæri fyrir okkur alla, mig meðtalinn. Ég er mjög stoltur yfir því að fá að stýra liðinu en ég þarf líka að fá stolt frá mínum leikmönnum að sýna hvað í þeim býr,“ sagði Neil Critchley á blaðamannafundi fyrir leikinn. Jürgen Klopp sjálfur tók samt ekki ákvörðunina um hver myndi stýra Liverpool liðinu í kvöld. „Það voru augljóslega einhverjir háttsettari en ég sem tóku þá ákvörðun. Félagið þurfti að taka ákvörðun og þeir komust að þessari niðurstöðu. þetta er einstakar kringumstæður og ég held að þetta hafi ekki gerst áður,“ sagði Jürgen Klopp. Forráðamenn Liverpool hafa ekki aðeins mikla trú á Neil Critchley því enska sambandið valdi hann sérstaklega til að vera einn fyrstu Englendingum til að taka hæsta þjálfaraprófið hjá UEFA. Leikur Aston Villa og Liverpool hefst klukkan 19.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. With Liverpool fielding two different playing squads in the League Cup and Club World Cup in the space of 24 hours, the club’s stand-in manager Neil Critchley said that the young side he will field to face Aston Villa will be well-prepared pic.twitter.com/6neGkmOz4S— Reuters (@Reuters) December 16, 2019
Enski boltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Fleiri fréttir Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Scott McTominay sér ekki eftir neinu Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Coote dómari í enn verri málum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Sjá meira