Jóhannes Karl: Alltof auðvelt að dæma víti fyrir stóru liðin Guðlaugur Valgeirsson skrifar 28. júlí 2019 21:44 Jóhannes Karl lætur jafnan vel í sér heyra. vísir/daníel Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var svekktur eftir tap sinna manna gegn Íslandsmeisturum Vals í kvöld. Hann sagði Valsmenn hafa fengið tvö gefins mörk í kvöld. „Já algjörlega, þetta var svekkjandi í kvöld. Mér fannst Valsmennirnir fá tvö gefins mörk í dag. Við gáfum þeim fyrsta markið og síðan fengu þeir dæmt víti upp úr einhverju klafsi sem mér fannst aldrei vera víti,“ sagði Jóhannes Karl. „Mér finnst oft á tíðum allt of auðvelt fyrir dómara að dæma víti fyrir svokölluðu stóru liðin í landinu og þetta er farið að fara virkilega í taugarnar á mér.“ Heimamenn byrjuðu vel í kvöld en Arnór Snær Guðmundsson gerði sig síðan sekan um stór mistök þegar hann færði Valsmönnum mark á silfurfati. Jóhannes Karl var ánægður hvernig menn svöruðu því. „Þessi mistök eru eitthvað sem getur skeð en fram að því höfðum við skapað okkur hættulegri færi þar sem við hefðum getað náð forystunni,“ sagði Jóhannes Karl. „En það sem ég er ánægður með er að eftir áfallið við að fá á okkur mark er að við náum að koma til baka og jafna leikinn, verðskuldað að mínu mati og það var kraftur í okkur allan leikinn og ég er bara alls ekki sáttur við þessi úrslit.“ Skagamenn sitja ennþá í 3. sæti eftir tapið í kvöld en Jóhannes Karl vildi ekki gefa það út að evrópusæti væri markmið liðsins. „Við erum ennþá bara að vinna í okkar hlutum og við erum að fara inn í alla leiki eins og þennan í dag til að ná í þessi stig sem eru í boði. Við ætluðum að ná í 3 stig og mér fannst við eiga það skilið í dag,“ sagði Jóhannes Karl. „Við horfum ekkert á töfluna, það er svo mikið eftir af þessu móti og við erum ekkert að spá í því. Við eigum erfiðan leik næst á móti FH úti og við þurfum að jafna okkur á þessum ósigri í dag og koma klárir í erfiðan leik.“ Óttar Bjarni Guðmundsson datt úr byrjunarliðinu eftir upphitun og Arnar Már Guðjónsson fór meiddur af velli undir lok leiksins. Jóhannes Karl var gríðarlega ánægður með innkomu Halls Flosasonar í byrjunarliðið. „Óttar fékk eitthvað í nárann og það var svolítið svekkjandi en það kom maður í manns stað og Hallur kemur inn og leysir þetta verkefni frábærlega í dag,“ sagði þjálfarinn. „Það verður að koma í ljós með Arnar, auðvitað verður maður að vera jákvæður og vonandi er þetta bara eitthvað hnjask en maður veit aldrei og við verðum bara að bíða eftir að hann sé búin í skoðun hvað kemur út úr því,“ sagði Jóhannes Karl að lokum. Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: ÍA - Valur 1-2 │Pedersen tryggði meisturunum sigur á Skaganum Valur vann fjórða sigur sinn í síðustu fimm leikjum í Pepsi Max-deild karla þegar Íslandsmeistararnir lögðu ÍA að velli, 1-2, á Akranesi. 28. júlí 2019 22:00 Mest lesið Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Dagskráin í dag: Heimir mætir Englendingum á Wembley Sport Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Fótbolti Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Fótbolti Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Handbolti Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Sjá meira
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var svekktur eftir tap sinna manna gegn Íslandsmeisturum Vals í kvöld. Hann sagði Valsmenn hafa fengið tvö gefins mörk í kvöld. „Já algjörlega, þetta var svekkjandi í kvöld. Mér fannst Valsmennirnir fá tvö gefins mörk í dag. Við gáfum þeim fyrsta markið og síðan fengu þeir dæmt víti upp úr einhverju klafsi sem mér fannst aldrei vera víti,“ sagði Jóhannes Karl. „Mér finnst oft á tíðum allt of auðvelt fyrir dómara að dæma víti fyrir svokölluðu stóru liðin í landinu og þetta er farið að fara virkilega í taugarnar á mér.“ Heimamenn byrjuðu vel í kvöld en Arnór Snær Guðmundsson gerði sig síðan sekan um stór mistök þegar hann færði Valsmönnum mark á silfurfati. Jóhannes Karl var ánægður hvernig menn svöruðu því. „Þessi mistök eru eitthvað sem getur skeð en fram að því höfðum við skapað okkur hættulegri færi þar sem við hefðum getað náð forystunni,“ sagði Jóhannes Karl. „En það sem ég er ánægður með er að eftir áfallið við að fá á okkur mark er að við náum að koma til baka og jafna leikinn, verðskuldað að mínu mati og það var kraftur í okkur allan leikinn og ég er bara alls ekki sáttur við þessi úrslit.“ Skagamenn sitja ennþá í 3. sæti eftir tapið í kvöld en Jóhannes Karl vildi ekki gefa það út að evrópusæti væri markmið liðsins. „Við erum ennþá bara að vinna í okkar hlutum og við erum að fara inn í alla leiki eins og þennan í dag til að ná í þessi stig sem eru í boði. Við ætluðum að ná í 3 stig og mér fannst við eiga það skilið í dag,“ sagði Jóhannes Karl. „Við horfum ekkert á töfluna, það er svo mikið eftir af þessu móti og við erum ekkert að spá í því. Við eigum erfiðan leik næst á móti FH úti og við þurfum að jafna okkur á þessum ósigri í dag og koma klárir í erfiðan leik.“ Óttar Bjarni Guðmundsson datt úr byrjunarliðinu eftir upphitun og Arnar Már Guðjónsson fór meiddur af velli undir lok leiksins. Jóhannes Karl var gríðarlega ánægður með innkomu Halls Flosasonar í byrjunarliðið. „Óttar fékk eitthvað í nárann og það var svolítið svekkjandi en það kom maður í manns stað og Hallur kemur inn og leysir þetta verkefni frábærlega í dag,“ sagði þjálfarinn. „Það verður að koma í ljós með Arnar, auðvitað verður maður að vera jákvæður og vonandi er þetta bara eitthvað hnjask en maður veit aldrei og við verðum bara að bíða eftir að hann sé búin í skoðun hvað kemur út úr því,“ sagði Jóhannes Karl að lokum.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: ÍA - Valur 1-2 │Pedersen tryggði meisturunum sigur á Skaganum Valur vann fjórða sigur sinn í síðustu fimm leikjum í Pepsi Max-deild karla þegar Íslandsmeistararnir lögðu ÍA að velli, 1-2, á Akranesi. 28. júlí 2019 22:00 Mest lesið Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Dagskráin í dag: Heimir mætir Englendingum á Wembley Sport Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Fótbolti Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Fótbolti Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Handbolti Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Sjá meira
Leik lokið: ÍA - Valur 1-2 │Pedersen tryggði meisturunum sigur á Skaganum Valur vann fjórða sigur sinn í síðustu fimm leikjum í Pepsi Max-deild karla þegar Íslandsmeistararnir lögðu ÍA að velli, 1-2, á Akranesi. 28. júlí 2019 22:00