Sonur Hålands skoraði níu mörk í einum og sama leiknum á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. maí 2019 18:09 Níu marka maðurinn, Erling Braut Håland. vísir/getty Erling Braut Håland skoraði hvorki fleiri né færri en níu mörk þegar Noregur vann stórsigur á Hondúras, 12-0, á HM U-20 ára í Póllandi í dag. Erling þessi er sonur Alf Inge Håland, fyrrverandi leikmanns Leeds United og Manchester City, sem var hvað þekktastur fyrir viðskipti sín við Roy Keane, fyrirliða Manchester United. Strákurinn, sem er 18 ára, þykir gríðarlega mikið efni en Red Bull Salzburg keypti hann frá Molde í fyrra. Håland fór hamförum gegn Hondúras í dag og skoraði níu af tólf mörkum Noregs. Hann skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og bætti fimm við í seinni hálfleik. Ótrúleg frammistaða hjá stráknum. Håland sló þar með met Brasilíumannsins Adaíltons sem skoraði sex mörk í sigri á Brassa á Suður-Kóreumönnum, 10-3, á HM 1997. Sigur Noregs á Hondúras er stærsti sigur liðs í sögu HM U-20 ára. Brasilía átti metið en Adaílton og félagar unnu Belgíu, 10-0, á HM fyrir 22 árum.Two new #U20WC records set: Most goals scored in a match: Erling Haland (9) Biggest win — FIFA.com (@FIFAcom) May 30, 2019 Með sigrinum í dag fékk Noregur sín fyrstu stig á HM. Norðmenn enduðu í 3. sæti C-riðils en eiga enn möguleika á að komast í 16-liða úrslit. Fótbolti Noregur Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Aron Einar miðvörður í Niksic Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Sjá meira
Erling Braut Håland skoraði hvorki fleiri né færri en níu mörk þegar Noregur vann stórsigur á Hondúras, 12-0, á HM U-20 ára í Póllandi í dag. Erling þessi er sonur Alf Inge Håland, fyrrverandi leikmanns Leeds United og Manchester City, sem var hvað þekktastur fyrir viðskipti sín við Roy Keane, fyrirliða Manchester United. Strákurinn, sem er 18 ára, þykir gríðarlega mikið efni en Red Bull Salzburg keypti hann frá Molde í fyrra. Håland fór hamförum gegn Hondúras í dag og skoraði níu af tólf mörkum Noregs. Hann skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og bætti fimm við í seinni hálfleik. Ótrúleg frammistaða hjá stráknum. Håland sló þar með met Brasilíumannsins Adaíltons sem skoraði sex mörk í sigri á Brassa á Suður-Kóreumönnum, 10-3, á HM 1997. Sigur Noregs á Hondúras er stærsti sigur liðs í sögu HM U-20 ára. Brasilía átti metið en Adaílton og félagar unnu Belgíu, 10-0, á HM fyrir 22 árum.Two new #U20WC records set: Most goals scored in a match: Erling Haland (9) Biggest win — FIFA.com (@FIFAcom) May 30, 2019 Með sigrinum í dag fékk Noregur sín fyrstu stig á HM. Norðmenn enduðu í 3. sæti C-riðils en eiga enn möguleika á að komast í 16-liða úrslit.
Fótbolti Noregur Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Aron Einar miðvörður í Niksic Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Sjá meira