Framherji Juventus varð fyrir kynþáttafordómum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. apríl 2019 08:30 Kean fagnar marki sínu í gær. vísir/getty Hinn efnilegi framherji Juventus, Moise Kean, mátti þola kynþáttaníð úr stúkunni í gær er Juventus spilaði gegn Cagliari. Hinn 19 ára Kean átti þó síðasta orðið því hann skoraði síðara mark Juve á 85. mínútu í 2-0 sigri. Er hann fagnaði markinu þá lyfti hann upp höndunum eins og hann væri að spyrja af hverju fólkið væri að haga sér. Þá fékk hann yfir sig enn meiri skít. „Þetta er besta leiðin til þess að svara fyrir sig,“ skrifaði Kean á Instagram eftir leikinn. Eins einkennilegt og það er þá skammaði þjálfari Juventus, Massimiliano Allegri, strákinn fyrir svara svona og ögra níðingunum í stúkunni. „Hann hefði ekki átt að fagna svona. Hann er ungur og þarf að læra. Auðvitað eiga samt ákveðnir hlutir ekki að heyrast úr stúkunni,“ sagði Allegri sem fannst fagnið greinilega alvarlegra en níðið. Hann bætti þó um betur í viðtali síðar og sagði þessa áhorfendur vera hálfvita sem skemmdu fyrir öllum honum. Svo lét hann knattspyrnusambandið heyra það fyrir að hafa ekki kjark til þess að taka á svona málum í ítalska boltanum. „Við þurfum að nota myndavélarnar og refsa þessu fólki. Þá er ég ekki bara að tala um eins eða tveggja ára bann. Ég er að tala um lífstíðarbann,“ sagði Allegri. Liðsfélagi Kean, Blaise Matuidi, brjálaðist er kynþáttaníðið byrjaði enda lent í slíku áður á sama velli. Hann kvartaði í dómaranum og hótaði að labba af velli. Ítalski boltinn Mest lesið Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Fótbolti Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Handbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Fleiri fréttir Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Sjá meira
Hinn efnilegi framherji Juventus, Moise Kean, mátti þola kynþáttaníð úr stúkunni í gær er Juventus spilaði gegn Cagliari. Hinn 19 ára Kean átti þó síðasta orðið því hann skoraði síðara mark Juve á 85. mínútu í 2-0 sigri. Er hann fagnaði markinu þá lyfti hann upp höndunum eins og hann væri að spyrja af hverju fólkið væri að haga sér. Þá fékk hann yfir sig enn meiri skít. „Þetta er besta leiðin til þess að svara fyrir sig,“ skrifaði Kean á Instagram eftir leikinn. Eins einkennilegt og það er þá skammaði þjálfari Juventus, Massimiliano Allegri, strákinn fyrir svara svona og ögra níðingunum í stúkunni. „Hann hefði ekki átt að fagna svona. Hann er ungur og þarf að læra. Auðvitað eiga samt ákveðnir hlutir ekki að heyrast úr stúkunni,“ sagði Allegri sem fannst fagnið greinilega alvarlegra en níðið. Hann bætti þó um betur í viðtali síðar og sagði þessa áhorfendur vera hálfvita sem skemmdu fyrir öllum honum. Svo lét hann knattspyrnusambandið heyra það fyrir að hafa ekki kjark til þess að taka á svona málum í ítalska boltanum. „Við þurfum að nota myndavélarnar og refsa þessu fólki. Þá er ég ekki bara að tala um eins eða tveggja ára bann. Ég er að tala um lífstíðarbann,“ sagði Allegri. Liðsfélagi Kean, Blaise Matuidi, brjálaðist er kynþáttaníðið byrjaði enda lent í slíku áður á sama velli. Hann kvartaði í dómaranum og hótaði að labba af velli.
Ítalski boltinn Mest lesið Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Fótbolti Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Handbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Fleiri fréttir Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Sjá meira