Umfjöllun: Snæfell - Skallagrímur 67-80 | Borgnesingar upp fyrir meistarana Arnór Óskarsson í Stykkishólmi skrifar 11. janúar 2017 22:30 Tavelyn Tillmann var stigahæst í liði Skallagríms. Vísir/Ernir Skallagrímur vann Snæfell 67-80 í baráttunni um Vesturlandið í Íþróttamiðstöð Stykkishólms í kvöld. Með sigrinum jöfnuðu Borgnesingar Keflavík, topplið deildarinnar, að stigum en Snæfell færðist niður um eitt sæti og er nú í þriðja sæti Domino's-deildarinnar. Leikurinn hófst af krafti af hálfu beggja liða. Eftir skamma stund tóku gestirnir þó völdin á vellinum og byrjuðu að byggja upp forskot sem átti eftir að endast meiri eða minna út allan leikinn. Heimastúlkum gekk afar illa að koma boltanum í körfuna og nýttu Skallagrímskonur sér það ásamt því að halda áfram að skapa sér góð færi. Borgnesingar lögðu grunnin að sigrinum því í upphafi leiks og sýndu á heildina litið töluvert skilvirkari frammistöðu en Snæfell. Þrátt fyrir stakar tilraunir Snæfells í seinni leikhlutum virtust þær aldrei geta komið Skallagrími úr jafnvægi. Borgnesingar áttu svör við öllum útspilum Snæfells sem fundu aldrei réttan takt í kvöld. Skallagrímur setti Snæfell í frekar óvenjulega stöðu með því að stjórna leiknum eins og raun bar vitni en heimamenn hafa ekki oft þurft að elta önnur lið með þeim hætti eins og þær þurftu að gera í kvöld. Um er að ræða mikilvægan sigur fyrir Skallagrím sem ætlar sér greinilega að keppa um deildarmeistaratitilinn í ár.Afhverju vann Skallagrímur? Óhætt er að fullyrða að sterkari aðilinn hafi unnið í kvöld. Í stuttu máli skóp liðsheild Skallagríms sigurinn en jafnframt má færa rök fyrir því að slæm skotnýting heimamanna í upphafi leiks hafi hjálpað Skallagrími töluvert. Borgnesingar voru með sjálfstraustið í lagi og skiluðu allir leikmenn sínu hlutverki með sóma. Spilamennskan einkenndist af skynsemi og settu Skallagrímskonur mikilvæg skot á háréttum tíma, þ.e.a.s. í hvert einasta skipti sem Snæfellskonur gerðu sig líklegar til að hrökkva í gang.Bestu menn vallarins: Tavelyn Tillmann átti fínan leik fyrir Skallagrím og endaði með að skora 26 stig, Hún var með 100% skotnýtingu frá vítalínuni og var á heildina litið fagmannleg í öllu því sem hún gerði. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir sýndi og sannaði enn og aftur getu sína en hún steig upp á mikilvægum augnablikum til að stöðva áhlaup Snæfells. Sigrún endaði með að skora 18 stig og 16 fráköst. Hjá Snæfelli var Aaryn Ellenberg-Wiley stiga- og frákastahæst en framlag annara leikmanna var undir meðallagi.Tölfræði sem vakti athygli: Skotnýting Snæfells var óvenju slæm í upphafi leiks en eftir fyrsta leikhlutan voru heimamenn einungis búnir að skora úr u.þ.b. 21% af skotunum sínum. Skallagrímskonur voru aftur á móti með 75% þriggja stiga nýtingu í upphafi leiks. Vítaskotin voru einnig að rata rétta leið hjá Skallagrími en þær enduðu með að skora úr 82% af vítalínuni.Snæfell-Skallagrímur 67-80 (18-24, 10-17, 18-18, 21-21)Snæfell: Aaryn Ellenberg-Wiley 24/11 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 15/7 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 13/6 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 7, Andrea Björt Ólafsdóttir 4/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 2, Sara Diljá Sigurðardóttir 2, Alda Leif Jónsdóttir 0/4 fráköst.Skallagrímur: Tavelyn Tillman 26/4 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 18/16 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 11/6 fráköst, Fanney Lind Tomas 9, Ragnheiður Benónísdóttir 7/9 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 6, Guðrún Ósk Ámundadóttir 3. Dominos-deild kvenna Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Sjá meira
Skallagrímur vann Snæfell 67-80 í baráttunni um Vesturlandið í Íþróttamiðstöð Stykkishólms í kvöld. Með sigrinum jöfnuðu Borgnesingar Keflavík, topplið deildarinnar, að stigum en Snæfell færðist niður um eitt sæti og er nú í þriðja sæti Domino's-deildarinnar. Leikurinn hófst af krafti af hálfu beggja liða. Eftir skamma stund tóku gestirnir þó völdin á vellinum og byrjuðu að byggja upp forskot sem átti eftir að endast meiri eða minna út allan leikinn. Heimastúlkum gekk afar illa að koma boltanum í körfuna og nýttu Skallagrímskonur sér það ásamt því að halda áfram að skapa sér góð færi. Borgnesingar lögðu grunnin að sigrinum því í upphafi leiks og sýndu á heildina litið töluvert skilvirkari frammistöðu en Snæfell. Þrátt fyrir stakar tilraunir Snæfells í seinni leikhlutum virtust þær aldrei geta komið Skallagrími úr jafnvægi. Borgnesingar áttu svör við öllum útspilum Snæfells sem fundu aldrei réttan takt í kvöld. Skallagrímur setti Snæfell í frekar óvenjulega stöðu með því að stjórna leiknum eins og raun bar vitni en heimamenn hafa ekki oft þurft að elta önnur lið með þeim hætti eins og þær þurftu að gera í kvöld. Um er að ræða mikilvægan sigur fyrir Skallagrím sem ætlar sér greinilega að keppa um deildarmeistaratitilinn í ár.Afhverju vann Skallagrímur? Óhætt er að fullyrða að sterkari aðilinn hafi unnið í kvöld. Í stuttu máli skóp liðsheild Skallagríms sigurinn en jafnframt má færa rök fyrir því að slæm skotnýting heimamanna í upphafi leiks hafi hjálpað Skallagrími töluvert. Borgnesingar voru með sjálfstraustið í lagi og skiluðu allir leikmenn sínu hlutverki með sóma. Spilamennskan einkenndist af skynsemi og settu Skallagrímskonur mikilvæg skot á háréttum tíma, þ.e.a.s. í hvert einasta skipti sem Snæfellskonur gerðu sig líklegar til að hrökkva í gang.Bestu menn vallarins: Tavelyn Tillmann átti fínan leik fyrir Skallagrím og endaði með að skora 26 stig, Hún var með 100% skotnýtingu frá vítalínuni og var á heildina litið fagmannleg í öllu því sem hún gerði. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir sýndi og sannaði enn og aftur getu sína en hún steig upp á mikilvægum augnablikum til að stöðva áhlaup Snæfells. Sigrún endaði með að skora 18 stig og 16 fráköst. Hjá Snæfelli var Aaryn Ellenberg-Wiley stiga- og frákastahæst en framlag annara leikmanna var undir meðallagi.Tölfræði sem vakti athygli: Skotnýting Snæfells var óvenju slæm í upphafi leiks en eftir fyrsta leikhlutan voru heimamenn einungis búnir að skora úr u.þ.b. 21% af skotunum sínum. Skallagrímskonur voru aftur á móti með 75% þriggja stiga nýtingu í upphafi leiks. Vítaskotin voru einnig að rata rétta leið hjá Skallagrími en þær enduðu með að skora úr 82% af vítalínuni.Snæfell-Skallagrímur 67-80 (18-24, 10-17, 18-18, 21-21)Snæfell: Aaryn Ellenberg-Wiley 24/11 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 15/7 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 13/6 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 7, Andrea Björt Ólafsdóttir 4/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 2, Sara Diljá Sigurðardóttir 2, Alda Leif Jónsdóttir 0/4 fráköst.Skallagrímur: Tavelyn Tillman 26/4 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 18/16 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 11/6 fráköst, Fanney Lind Tomas 9, Ragnheiður Benónísdóttir 7/9 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 6, Guðrún Ósk Ámundadóttir 3.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Sjá meira