Körfuboltakvöld: Maður leiksins í Þorlákshöfn mætti í settið | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2016 10:45 Kári Jónsson átti frábæran leik þegar Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla með fjögurra stiga sigri, 96-100, á Þór í Þorlákshöfn í gær. Kári byrjaði á bekknum líkt og í þriðja leiknum í einvíginu en kom fljótlega inn á. Þessi 18 ára strákur var með átta stig í hálfleik en í seinni hálfleik var hann sjóðheitur og skoraði 20 stig. Kári lauk leik með 30 stig, átta fráköst og fjórar stoðsendingar og var stigahæstur allra á vellinum. Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi völdu Kára mann leiksins í gær og hann mætti í settið til þeirra eftir leik. „Ég er mjög glaður og sérstaklega yfir karakternum í liðinu. Við erum 14 stigum undir í hálfleik, enginn Kani og þeir að eiga dúndurleik. Það voru ekki margir sem höfðu trú á okkur þarna en við stigum virkilega upp og vörnin okkar var frábær í seinni hálfleik,“ sagði Kári um leikinn í gær sem var rosalegur. Til marks um það skiptust liðin 14 sinnum á forystunni í leiknum og 13 sinnum var staðan jöfn. Lokamínúturnar voru gríðarlega spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu þar sem Haukar reyndust sterkari. Kári meiddist í fyrsta leiknum gegn Þór eftir harða hindrun frá Ragnari Nathanealssyni. Hann missti af þeim sökum af leik tvö en spilaði mikið í tveimur síðustu leikjunum í einvíginu þrátt fyrir að byrja á bekknum í þeim báðum. Kári segist vera búinn að ná sér að mestu leyti af meiðslunum. „Ég er aumur í öxlum og aðeins í baki,“ sagði Kári áður en Fannar Ólafsson stoppaði hann af og sagði honum að hætta að væla. „Nú ég ætla ég að kenna þér eitt. Nú skaltu hætta þessu væli. Þú ert að fara alla leið núna,“ sagði gamli landsliðsmiðherjinn við Kára sem var valinn besti leikmaður seinni hluta Domino's deildarinnar fyrr í mánuðinum.Viðtalið við Kára má sjá í spilaranum hér að ofan. Dominos-deild karla Mest lesið Róbert Orri með sjálfsmark ársins: „Fáránlegt atvik“ Fótbolti Utan vallar: Tilviljanirnar verða vart ótrúlegri | Ég skammaðist mín Fótbolti „Aumkunarvert að tala um það jákvæða eftir 5-0 tap“ Fótbolti Ágúst tekur við af Óskari hjá Val Handbolti Spilar heima á Tenerife í kvöld og bað um 45 miða Fótbolti Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Handbolti „Gaman að vera ekki aumingi“ Körfubolti „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Körfubolti Söguleg frammistaða Júlíu og Manuels skilaði þeim á EM Sport Tóku mynd af sér með Ronaldo eftir stórt tap: „Af hverju er það ekki í lagi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið „Gaman að vera ekki aumingi“ Uppgjörið: Aþena - Valur 70-64 | Leikmenn Aþenu nýttu glósubók Brynjars Karls vel „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Tryggvi öflugur í tapi Bilbao „Leikmennirnir fyllast smá skömm“ Skoraði 109 stig á tveimur dögum Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Sjá meira
Kári Jónsson átti frábæran leik þegar Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla með fjögurra stiga sigri, 96-100, á Þór í Þorlákshöfn í gær. Kári byrjaði á bekknum líkt og í þriðja leiknum í einvíginu en kom fljótlega inn á. Þessi 18 ára strákur var með átta stig í hálfleik en í seinni hálfleik var hann sjóðheitur og skoraði 20 stig. Kári lauk leik með 30 stig, átta fráköst og fjórar stoðsendingar og var stigahæstur allra á vellinum. Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi völdu Kára mann leiksins í gær og hann mætti í settið til þeirra eftir leik. „Ég er mjög glaður og sérstaklega yfir karakternum í liðinu. Við erum 14 stigum undir í hálfleik, enginn Kani og þeir að eiga dúndurleik. Það voru ekki margir sem höfðu trú á okkur þarna en við stigum virkilega upp og vörnin okkar var frábær í seinni hálfleik,“ sagði Kári um leikinn í gær sem var rosalegur. Til marks um það skiptust liðin 14 sinnum á forystunni í leiknum og 13 sinnum var staðan jöfn. Lokamínúturnar voru gríðarlega spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu þar sem Haukar reyndust sterkari. Kári meiddist í fyrsta leiknum gegn Þór eftir harða hindrun frá Ragnari Nathanealssyni. Hann missti af þeim sökum af leik tvö en spilaði mikið í tveimur síðustu leikjunum í einvíginu þrátt fyrir að byrja á bekknum í þeim báðum. Kári segist vera búinn að ná sér að mestu leyti af meiðslunum. „Ég er aumur í öxlum og aðeins í baki,“ sagði Kári áður en Fannar Ólafsson stoppaði hann af og sagði honum að hætta að væla. „Nú ég ætla ég að kenna þér eitt. Nú skaltu hætta þessu væli. Þú ert að fara alla leið núna,“ sagði gamli landsliðsmiðherjinn við Kára sem var valinn besti leikmaður seinni hluta Domino's deildarinnar fyrr í mánuðinum.Viðtalið við Kára má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið Róbert Orri með sjálfsmark ársins: „Fáránlegt atvik“ Fótbolti Utan vallar: Tilviljanirnar verða vart ótrúlegri | Ég skammaðist mín Fótbolti „Aumkunarvert að tala um það jákvæða eftir 5-0 tap“ Fótbolti Ágúst tekur við af Óskari hjá Val Handbolti Spilar heima á Tenerife í kvöld og bað um 45 miða Fótbolti Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Handbolti „Gaman að vera ekki aumingi“ Körfubolti „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Körfubolti Söguleg frammistaða Júlíu og Manuels skilaði þeim á EM Sport Tóku mynd af sér með Ronaldo eftir stórt tap: „Af hverju er það ekki í lagi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið „Gaman að vera ekki aumingi“ Uppgjörið: Aþena - Valur 70-64 | Leikmenn Aþenu nýttu glósubók Brynjars Karls vel „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Tryggvi öflugur í tapi Bilbao „Leikmennirnir fyllast smá skömm“ Skoraði 109 stig á tveimur dögum Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Sjá meira