Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Blikasigur en titilvonin farin Haraldur Hróðmarsson á Kópavogsvelli skrifar 26. september 2015 13:00 Damir Muminovic fagnar sigurmarki sínu gegn FH um síðustu helgi. vísir/anton Fyrir leikinn var staðan sú að Breiðablik þyrfti sigur og treysta á að FH sigraði ekki Fjölni til að halda í vonina um titilinn. ÍBV þurfti sigur til að gulltryggja veru sína í efstu deild eða treysta á að KR myndi taka stig af Leikni. Mikið undir hjá báðum liðum því augljóslega. Tvær breytingar voru gerðar á hvoru liði. Hjá Blikum var Oliver Sigurjónsson í banni og Jonathan Glenn mátti ekki spila gegn sínum gömlu félögum vegna heiðursmannasamkomulags sem liðin gerðu þegar Blikar fengu Glenn frá Eyjamönnum. Víðir Þorvarðarson og Stefán Ragnar Guðlaugsson duttu út úr liði Eyjamanna frá leiknum við Val og inn komu Mees Junior Seers og Bjarni Gunnarsson. Fyrri hálfleikurinn var afar bragðdaufur. Breiðablik spiluðu sig ágætlega fram völlinn og áttu marga möguleika á fyrirgjöfum en þær voru flestar slakar og þær sem voru góðar voru étnar af miðvörðum ÍBV þeim Hafsteini Briem og Avni Pepa sem voru sterkir í fyrri hálfleiknum. Ellert Hreinsson var hvergi sjáanlegur í fyrri hálfleiknum og Arnþór var ekki næginlega duglegur að koma sér inn í teiginn. Besta færi Breiðabliks kom á 24. mínútu þegar Atli Sigurjónsson átti góða fyrirgjöf á Kristinn Jónsson. Kristinn var mættur á fjærstöngina og hefði átt að gera töluvert betur þegar hann kaus að skalla beint á markið, mögulega hefði hann getað tekið boltann niður. Jose Enrique (Sito) var líflegur í fremstu línu hjá ÍBV, harðduglegur og öflugur en það var félagi hans, Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem átti besta færi Eyjamanna í fyrri hálfleiknum. Gunnar vann boltann af varnarmönnum Blika og brunaði í teiginn þar sem hann lék á Damir og Elfar áður en hann lét vaða á markið en skot hans var beint á Gunnleif sem hélt boltanum vel. Besta færi fyrri hálfleiksins. Áhugavert atvik átti sér stað þegar Junior Seers fékk gult spjald á 17. mínútu. Hann var ekki sammála Garðari dómara og æsti sig ótæpilega við dómarann. Hafsteinn Briem dróg liðsfélaga sinn í burtu en Seers má hrósa happi yfir að hafa ekki fengið annað gult spjald þarna. Síðari hálfleikur hófst fjörlega því Atli Sigurjónsson kom Blikum yfir strax á 51. mínútu. Sóknin var afbragðsgóð. Elfar Freyr sendi góða og langa sendingu á Guðjón Pétur, Kristinn átti gott utan á hlaup og Guðjón kom boltanum á hann. Höskuldur, Arnþór og Ellert komu sér allir í teiginn en Kristinn dróg boltann út í teiginn þar sem Atli var einn og óvaldaður og kláraði færið vel með skoti upp í þaknetið. Frábært mark og sýndi fram á gæðin sem búa í Breiðabliksliðinu. Skömmu eftir markið fengu Eyjamenn aukaspyrnu á stórhættulegum stað en Ian Jeffs skaut hátt yfir markið. Í næstu sókn átti Andri Rafn Yeoman, sem átti góðan leik, flottan sprett fram völlinn og lagði boltann á Arnþór Ara. Arnþór skaut út við stöng en Abel Dhaira gerði vel og varði boltann í horn. Hornspyrnan var einnig hættuleg en Blikar náðu ekki að nýta sér hana.Eftir það fjaraði leikurinn út. Sárafáir möguleikar litu dagsins ljós, ákefðin var lítil og mögulega hafa bæði lið verið meðvituð um stöðuna í öðrum leikjum. Leiknir var undir gegn KR og Fjölnir hafði jafnað gegn FH sem þýddi að 1-0 hentaði báðum liðum prýðilega. Ég ætla ekki leikmönnum eða þjálfurum að hafa sætt sig við úrslitin á 60. mínútu en það voru engir sjensar teknir. Undir lok leiksins hefðu Blikar átt að missa mann af velli þegar Elfar Freyr Helgason togaði Sito niður við vítateigslínuna. Ekki er gott að segja hvort Sito hafi verið innan teigs en hann var sloppinn framhjá Elfari sem rændi hann marktækifæri. Voru þetta einu mistök Garðars Arnar sem dæmdi leikinn mjög vel. Miðað við þessa frammistöðu verðskulda Eyjamenn annað ár í Pepsideildinni. Þeir voru vel skipulagðir og héldu því skipulagi vel allan leikinn. Sito og Gunnar Heiðar eru leikmenn í háum gæðaflokki og einnig Avni Pepa, svo ég taki nokkra út. Ásmundi Arnarsyni tókst ætlunarverk sitt að halda félaginu í efstu deild og verðskuldar hrós fyrir sinn þátt. Breiðablik átti ekki sinn besta dag en unnu samt og það án þess að hleypa hinu liðinu of nálægt markinu sínu. Þeir eru næst besta lið landsins og er það engin tilviljun miðað við agann og hæfileikana sem leikmenn liðsins hafa sýnt í sumar. Ásmundur: Líður mjög vel með að hafa tryggt veru okkar í deildinni Ásmundi Arnarsyni var létt í leikslok eftir Eyjamenn tryggðu veru sína í efstu deild: „Mér líður mjög vel með að hafa tryggt veru okkar í deildinni, þegar ég tók við á miðju sumri var það auðvitað fyrst og fremst markmiðið og að vera búnir að því fyrir lokaumferðina. Það er mjög ánægjulegt og þrátt fyrir að við hefðum ekki fengið stig í dag eru þetta góðar fréttir". Ásmundur var nokkuð ánægður með frammistöðu liðsins þrátt fyrir tapið. „Ég var sáttur með leikinn, skipulagið hélt vel og við lokuðum vel á þá. Við áttum möguleika fram á við en vorum ekki nógu beittir og það skorti herslumuninn til að skora á þá. Þeir fengu lítið en munurinn á liðunum er sá að þeir nýttu það litla sem þeir fengu.“ Ásmundur var ekki á því að viðurkenna að lokaleikurinn hefði enga þýðingu fyrir liðið. „Það er alltaf að einhverju að keppa. Maður vill enda mótið vel og við verðum á heimavelli í lokaumferðinni. Þar af leiðandi er ekkert annað í boði en að ná í þrjú stig þar og svo gerum við okkur glaðan dag um kvöldið," sagði hæstánægður Ásmundur Arnarson, þjálfari ÍBV. Arnar: Þetta er svolítið súrt Arnar Grétarsson var ekki eins kátur og kollegi hans hjá gestaliðinu enda ljóst að Breiðablik endar í 2. sæti. „Þetta er svolítið súrt. Fyrir tímabilið hefðum við eflaust tekið 2. sætinu glaðir en þegar menn eru í sjens og við höfðum heyrt af því þegar skammt lifði leiks að jafnt væri í Hafnarfirði, þá vonast maður til að við færum með smá von inn í síðasta leikinn en ég óska FH-ingum auðvitað til hamingju með titilinn, þeir eru vel að honum komnir. Við getum verið sáttir með sumarið og 22. sætið,"sagði Arnar sem augljóslega var svekktur með niðurstöðuna. Leikurinn í dag var ekki mikið fyrir augað en hvað fannst Arnari um frammistöðu síns liðs? „Þetta var barningur í fyrri hálfleik en veðrið skánaði í seinni hálfleik og þá var hægt að spila fótbolta. Ég var ekki ánægður með frammistöðuna heilt yfir, mér fannst við falla of aftarlega á völlinn eftir markið og við höfum oft spilað betur en þetta. Við hefðum getað misst þetta niður en stigin þrjú voru mikilvæg til að tryggja 2. sætið". Vonin á titli var veik fyrir leikinn og áhorfendur voru fáir í Kópavoginum. Fannst Arnari stuðningsmenn, og hugsanlega leikmenn, hafa misst trúna á að Breiðablik gæti orðið Íslandsmeistari? „Nei, engan veginn. Ég held að veðrið hafi haldið fólkinu heima. Veðurspáin var mjög slæm. Við höfðum trú á því að við gætum orðið meistarar og ætluðum okkur þrjú stig til að tryggja 2. sætið og vonast eftir því að FH myndi misstíga sig En eins og ég hef sagt þá er FH með alltof gott lið til að hægt sé að treysta á að þeir klúðri þremur leikjum í röð. En þetta fór eins og það fór og við verðum að vera sáttir með 2. sætið." Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Sjá meira
Fyrir leikinn var staðan sú að Breiðablik þyrfti sigur og treysta á að FH sigraði ekki Fjölni til að halda í vonina um titilinn. ÍBV þurfti sigur til að gulltryggja veru sína í efstu deild eða treysta á að KR myndi taka stig af Leikni. Mikið undir hjá báðum liðum því augljóslega. Tvær breytingar voru gerðar á hvoru liði. Hjá Blikum var Oliver Sigurjónsson í banni og Jonathan Glenn mátti ekki spila gegn sínum gömlu félögum vegna heiðursmannasamkomulags sem liðin gerðu þegar Blikar fengu Glenn frá Eyjamönnum. Víðir Þorvarðarson og Stefán Ragnar Guðlaugsson duttu út úr liði Eyjamanna frá leiknum við Val og inn komu Mees Junior Seers og Bjarni Gunnarsson. Fyrri hálfleikurinn var afar bragðdaufur. Breiðablik spiluðu sig ágætlega fram völlinn og áttu marga möguleika á fyrirgjöfum en þær voru flestar slakar og þær sem voru góðar voru étnar af miðvörðum ÍBV þeim Hafsteini Briem og Avni Pepa sem voru sterkir í fyrri hálfleiknum. Ellert Hreinsson var hvergi sjáanlegur í fyrri hálfleiknum og Arnþór var ekki næginlega duglegur að koma sér inn í teiginn. Besta færi Breiðabliks kom á 24. mínútu þegar Atli Sigurjónsson átti góða fyrirgjöf á Kristinn Jónsson. Kristinn var mættur á fjærstöngina og hefði átt að gera töluvert betur þegar hann kaus að skalla beint á markið, mögulega hefði hann getað tekið boltann niður. Jose Enrique (Sito) var líflegur í fremstu línu hjá ÍBV, harðduglegur og öflugur en það var félagi hans, Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem átti besta færi Eyjamanna í fyrri hálfleiknum. Gunnar vann boltann af varnarmönnum Blika og brunaði í teiginn þar sem hann lék á Damir og Elfar áður en hann lét vaða á markið en skot hans var beint á Gunnleif sem hélt boltanum vel. Besta færi fyrri hálfleiksins. Áhugavert atvik átti sér stað þegar Junior Seers fékk gult spjald á 17. mínútu. Hann var ekki sammála Garðari dómara og æsti sig ótæpilega við dómarann. Hafsteinn Briem dróg liðsfélaga sinn í burtu en Seers má hrósa happi yfir að hafa ekki fengið annað gult spjald þarna. Síðari hálfleikur hófst fjörlega því Atli Sigurjónsson kom Blikum yfir strax á 51. mínútu. Sóknin var afbragðsgóð. Elfar Freyr sendi góða og langa sendingu á Guðjón Pétur, Kristinn átti gott utan á hlaup og Guðjón kom boltanum á hann. Höskuldur, Arnþór og Ellert komu sér allir í teiginn en Kristinn dróg boltann út í teiginn þar sem Atli var einn og óvaldaður og kláraði færið vel með skoti upp í þaknetið. Frábært mark og sýndi fram á gæðin sem búa í Breiðabliksliðinu. Skömmu eftir markið fengu Eyjamenn aukaspyrnu á stórhættulegum stað en Ian Jeffs skaut hátt yfir markið. Í næstu sókn átti Andri Rafn Yeoman, sem átti góðan leik, flottan sprett fram völlinn og lagði boltann á Arnþór Ara. Arnþór skaut út við stöng en Abel Dhaira gerði vel og varði boltann í horn. Hornspyrnan var einnig hættuleg en Blikar náðu ekki að nýta sér hana.Eftir það fjaraði leikurinn út. Sárafáir möguleikar litu dagsins ljós, ákefðin var lítil og mögulega hafa bæði lið verið meðvituð um stöðuna í öðrum leikjum. Leiknir var undir gegn KR og Fjölnir hafði jafnað gegn FH sem þýddi að 1-0 hentaði báðum liðum prýðilega. Ég ætla ekki leikmönnum eða þjálfurum að hafa sætt sig við úrslitin á 60. mínútu en það voru engir sjensar teknir. Undir lok leiksins hefðu Blikar átt að missa mann af velli þegar Elfar Freyr Helgason togaði Sito niður við vítateigslínuna. Ekki er gott að segja hvort Sito hafi verið innan teigs en hann var sloppinn framhjá Elfari sem rændi hann marktækifæri. Voru þetta einu mistök Garðars Arnar sem dæmdi leikinn mjög vel. Miðað við þessa frammistöðu verðskulda Eyjamenn annað ár í Pepsideildinni. Þeir voru vel skipulagðir og héldu því skipulagi vel allan leikinn. Sito og Gunnar Heiðar eru leikmenn í háum gæðaflokki og einnig Avni Pepa, svo ég taki nokkra út. Ásmundi Arnarsyni tókst ætlunarverk sitt að halda félaginu í efstu deild og verðskuldar hrós fyrir sinn þátt. Breiðablik átti ekki sinn besta dag en unnu samt og það án þess að hleypa hinu liðinu of nálægt markinu sínu. Þeir eru næst besta lið landsins og er það engin tilviljun miðað við agann og hæfileikana sem leikmenn liðsins hafa sýnt í sumar. Ásmundur: Líður mjög vel með að hafa tryggt veru okkar í deildinni Ásmundi Arnarsyni var létt í leikslok eftir Eyjamenn tryggðu veru sína í efstu deild: „Mér líður mjög vel með að hafa tryggt veru okkar í deildinni, þegar ég tók við á miðju sumri var það auðvitað fyrst og fremst markmiðið og að vera búnir að því fyrir lokaumferðina. Það er mjög ánægjulegt og þrátt fyrir að við hefðum ekki fengið stig í dag eru þetta góðar fréttir". Ásmundur var nokkuð ánægður með frammistöðu liðsins þrátt fyrir tapið. „Ég var sáttur með leikinn, skipulagið hélt vel og við lokuðum vel á þá. Við áttum möguleika fram á við en vorum ekki nógu beittir og það skorti herslumuninn til að skora á þá. Þeir fengu lítið en munurinn á liðunum er sá að þeir nýttu það litla sem þeir fengu.“ Ásmundur var ekki á því að viðurkenna að lokaleikurinn hefði enga þýðingu fyrir liðið. „Það er alltaf að einhverju að keppa. Maður vill enda mótið vel og við verðum á heimavelli í lokaumferðinni. Þar af leiðandi er ekkert annað í boði en að ná í þrjú stig þar og svo gerum við okkur glaðan dag um kvöldið," sagði hæstánægður Ásmundur Arnarson, þjálfari ÍBV. Arnar: Þetta er svolítið súrt Arnar Grétarsson var ekki eins kátur og kollegi hans hjá gestaliðinu enda ljóst að Breiðablik endar í 2. sæti. „Þetta er svolítið súrt. Fyrir tímabilið hefðum við eflaust tekið 2. sætinu glaðir en þegar menn eru í sjens og við höfðum heyrt af því þegar skammt lifði leiks að jafnt væri í Hafnarfirði, þá vonast maður til að við færum með smá von inn í síðasta leikinn en ég óska FH-ingum auðvitað til hamingju með titilinn, þeir eru vel að honum komnir. Við getum verið sáttir með sumarið og 22. sætið,"sagði Arnar sem augljóslega var svekktur með niðurstöðuna. Leikurinn í dag var ekki mikið fyrir augað en hvað fannst Arnari um frammistöðu síns liðs? „Þetta var barningur í fyrri hálfleik en veðrið skánaði í seinni hálfleik og þá var hægt að spila fótbolta. Ég var ekki ánægður með frammistöðuna heilt yfir, mér fannst við falla of aftarlega á völlinn eftir markið og við höfum oft spilað betur en þetta. Við hefðum getað misst þetta niður en stigin þrjú voru mikilvæg til að tryggja 2. sætið". Vonin á titli var veik fyrir leikinn og áhorfendur voru fáir í Kópavoginum. Fannst Arnari stuðningsmenn, og hugsanlega leikmenn, hafa misst trúna á að Breiðablik gæti orðið Íslandsmeistari? „Nei, engan veginn. Ég held að veðrið hafi haldið fólkinu heima. Veðurspáin var mjög slæm. Við höfðum trú á því að við gætum orðið meistarar og ætluðum okkur þrjú stig til að tryggja 2. sætið og vonast eftir því að FH myndi misstíga sig En eins og ég hef sagt þá er FH með alltof gott lið til að hægt sé að treysta á að þeir klúðri þremur leikjum í röð. En þetta fór eins og það fór og við verðum að vera sáttir með 2. sætið."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Sjá meira