Jón Arnór: Eftir svona mót vill maður ekkert hætta Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. september 2015 22:31 Jón Arnór eftir leikinn. Vísir/Valli Jón Arnór Stefánsson stóð fyrir sínu þegar íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með níu stiga mun, 111-102, fyrir Tyrklandi eftir framlengdan leik á Evrópumótinu í Berlín í kvöld. „Þetta var svaka spennandi leikur og þristurinn hjá Loga í lokin var rosalegur. Við fengum gott framlag frá öllum í dag og höfum vaxið með hverjum leiknum í þessu móti. Við erum orðnir helvíti góðir og höfum tekið stór skref fram á við. Það var ótrúlega gaman að taka þátt í þessu,“ sagði Jón Arnór í samtali við Kolbein Tuma Daðason eftir leik. Logi Gunnarsson mun sennilega ekki gleyma þessum leik í bráð en Njarðvíkingurinn setti niður ævintýralegan þrist einni sekúndu fyrir lok venjulegs leiktíma og jafnaði metin í 91-91 og tryggði íslenska liðinu þar með framlengingu. „Ég held alltaf að skotið fari niður þegar hann skýtur,“ sagði Jón Arnór um þristinn ótrúlega hjá Loga. „Það var ekkert öðruvísi þarna, þetta var ekkert nema net,“ bætti Jón Arnór við. Stór kjarni landsliðsins er búinn að spila lengi saman og kominn á fertugsaldurinn. Eru kynslóðaskipti framundan í íslenska liðinu? „Það eru kynslóðaskipti framundan, það vita það allir. Við eigum ekkert mikið eftir í þessu en það væri frábært að komast á annað stórmót. Það væri algjör draumur og ætti að vera markmiðið okkar - að halda okkur á stóra sviðinu. „Við eldri leikmennirnir þurfum að taka slaginn áfram. Það er svo gaman að taka þátt í þessu. Eftir svona mót vill maður ekkert hætta,“ sagði Jón Arnór sem var hrærður yfir stuðningnum sem íslensku strákarnir fengu á mótinu. „Það var ótrúlegt móment,“ sagði Jón Arnór en íslensku stuðningsmennirnir brustu í fjöldasöng eftir að leik lauk. „Það féllu tár hjá nokkrum uppi í stúku og maður var klökkur. Þetta eru miklar tilfinningar, allt fólkið manns er hérna. Maður er búinn að fá jákvæð viðbrögð og það er mikið stolt í gangi,“ sagði Íþróttamaður ársins 2014 að lokum. EM 2015 í Berlín Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Sjá meira
Jón Arnór Stefánsson stóð fyrir sínu þegar íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með níu stiga mun, 111-102, fyrir Tyrklandi eftir framlengdan leik á Evrópumótinu í Berlín í kvöld. „Þetta var svaka spennandi leikur og þristurinn hjá Loga í lokin var rosalegur. Við fengum gott framlag frá öllum í dag og höfum vaxið með hverjum leiknum í þessu móti. Við erum orðnir helvíti góðir og höfum tekið stór skref fram á við. Það var ótrúlega gaman að taka þátt í þessu,“ sagði Jón Arnór í samtali við Kolbein Tuma Daðason eftir leik. Logi Gunnarsson mun sennilega ekki gleyma þessum leik í bráð en Njarðvíkingurinn setti niður ævintýralegan þrist einni sekúndu fyrir lok venjulegs leiktíma og jafnaði metin í 91-91 og tryggði íslenska liðinu þar með framlengingu. „Ég held alltaf að skotið fari niður þegar hann skýtur,“ sagði Jón Arnór um þristinn ótrúlega hjá Loga. „Það var ekkert öðruvísi þarna, þetta var ekkert nema net,“ bætti Jón Arnór við. Stór kjarni landsliðsins er búinn að spila lengi saman og kominn á fertugsaldurinn. Eru kynslóðaskipti framundan í íslenska liðinu? „Það eru kynslóðaskipti framundan, það vita það allir. Við eigum ekkert mikið eftir í þessu en það væri frábært að komast á annað stórmót. Það væri algjör draumur og ætti að vera markmiðið okkar - að halda okkur á stóra sviðinu. „Við eldri leikmennirnir þurfum að taka slaginn áfram. Það er svo gaman að taka þátt í þessu. Eftir svona mót vill maður ekkert hætta,“ sagði Jón Arnór sem var hrærður yfir stuðningnum sem íslensku strákarnir fengu á mótinu. „Það var ótrúlegt móment,“ sagði Jón Arnór en íslensku stuðningsmennirnir brustu í fjöldasöng eftir að leik lauk. „Það féllu tár hjá nokkrum uppi í stúku og maður var klökkur. Þetta eru miklar tilfinningar, allt fólkið manns er hérna. Maður er búinn að fá jákvæð viðbrögð og það er mikið stolt í gangi,“ sagði Íþróttamaður ársins 2014 að lokum.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Sjá meira