Helga Einarsdóttir: Vantaði metnaðinn hjá öllum KR-ingum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2015 17:00 Helga Einarsdóttir í leik með KR. Vísir/Vilhelm Helga Einarsdóttir, fráfarandi fyrirliði kvennaliðs KR í körfubolta, var í viðtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni á X-inu í dag en stjórn körfuknattleiksdeildar KR hefur ákveðið að draga kvennaliðið úr keppni í Dominos-deild kvenna á komandi tímabili. Það hefur gengið illa að manna meistaraflokkinn og margir leikmenn höfðu yfirgefið félagið þar á meðal fyrirliðinn Helga Einarsdóttir. Stjórn körfuknattleiksdeildar KR telur það þjóni hagsmunum liðsins betur að þær ungu stelpur sem eftir standa spili í 1. deildinni en ekki í Dominos-deildinni. Hjörtur spurði Helgu fyrstu um ástæðu þess að hún fór frá KR í sumar. „Þetta var í fyrsta lagi hrikalega erfið ákvörðun eins og hjá mörgum því það er erfitt að yfirgefa KR. Ég taldi þetta bara vera orðið gott eftir átta ár," segir Helga. „Það hafa orðið miklar mannabreytingar og þetta hefur verið erfitt síðustu ár. Ég fann það eftir sumarfríið að löngunin var ekki til staðar að vera í körfubolta á þessum forsendum," sagði Helga. En er Helga þá að tala um rótleysi og tíðar manna og þjálfarabreytingar? „Einbeitingin hefur ekki verið nógu mikið á körfubolta. Þetta hefur tekið á andlega. Mér fannst kominn tími á að breyta til," sagði Helga. Var enginn leið til að safna liði enn og aftur? „Ég tók þessa ákvörðun fyrir nokkrum vikum en mér finnst þetta vera sorgleg niðurstaða að draga liðið úr keppni. Vitandi um hvernig ástandið er þarna þá skil ég ákvörðun stjórnarinnar mjög vel," sagði Helga. „Miðað við hvernig staðan er þá er ég sammála þessari ákvörðun en það hefði getað heppnast ágætlega að sameina þetta við Val. Það varð ekki úr því og þá tel ég að þetta hafi verið besta niðurstaðan," sagði Helga. En á hverju strandaði það að Valur og KR yrðu með sameiginlegt lið? „Ég veit það ekki en ég hef heyrt sögur af því. Það er ekki mitt að fara með það sem ég heyrði," segir Helga. Kvennalið KR hefur verið eitt af stóru félögunum í kvennakörfunni og því kemur það mörgum á óvart hvernig komið er fyrir liðinu núna. „Það eru bara tvö ár síðan að kvennalið KR var í úrslitunum á móti Keflavík. Kannski hefur utanumhaldið ekki verið nógu gott eins og staðan sýnir í dag. Ég held að það sé ekkert hægt að fara í felur með það," sagði Helga. „Ég ætla alls ekki að kenna stjórninni um það. Það hefur verið erfitt að fá fólk til að starfa í kringum þetta og þá sérstaklega í kringum okkur stelpurnar. Það vantaði kannski metnaðinn hjá KR-ingum öllum að koma kvennastarfinu á toppinn, bæði í körfunni og í fótboltanum," sagði Helga. Það gengur mjög vel hjá karlaliðum KR í bæði fótbolta og körfubolta sem eru bæði að berjast um gullið í öllum keppnum ár eftir ár. Kvennafótboltinn og kvennakörfuboltinn sitja hinsvegar á hakanum. Er það ekki dæmigert fyrir það sem er að gerast í íþróttum á Íslandi í dag. „Mér finnst þetta bara sorglegt en það þarf að horfa raunsætt á stöðuna. Ég varð Íslandsmeistari í 2. flokki með Stjörnunni í fótbolta 2006 og þar var tekin sú ákvörðun að liðið yrði Íslandsmeistari í meistaraflokki eftir fimm ár. Ég held að það þurfi bara einhver slík vinna að fara gang í Vesturbænum, að byggja liðið upp og gera það markvisst," sagði Helga. Það er hægt að hlusta á allt viðtalið hér fyrir ofan. Dominos-deild kvenna Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Sjá meira
Helga Einarsdóttir, fráfarandi fyrirliði kvennaliðs KR í körfubolta, var í viðtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni á X-inu í dag en stjórn körfuknattleiksdeildar KR hefur ákveðið að draga kvennaliðið úr keppni í Dominos-deild kvenna á komandi tímabili. Það hefur gengið illa að manna meistaraflokkinn og margir leikmenn höfðu yfirgefið félagið þar á meðal fyrirliðinn Helga Einarsdóttir. Stjórn körfuknattleiksdeildar KR telur það þjóni hagsmunum liðsins betur að þær ungu stelpur sem eftir standa spili í 1. deildinni en ekki í Dominos-deildinni. Hjörtur spurði Helgu fyrstu um ástæðu þess að hún fór frá KR í sumar. „Þetta var í fyrsta lagi hrikalega erfið ákvörðun eins og hjá mörgum því það er erfitt að yfirgefa KR. Ég taldi þetta bara vera orðið gott eftir átta ár," segir Helga. „Það hafa orðið miklar mannabreytingar og þetta hefur verið erfitt síðustu ár. Ég fann það eftir sumarfríið að löngunin var ekki til staðar að vera í körfubolta á þessum forsendum," sagði Helga. En er Helga þá að tala um rótleysi og tíðar manna og þjálfarabreytingar? „Einbeitingin hefur ekki verið nógu mikið á körfubolta. Þetta hefur tekið á andlega. Mér fannst kominn tími á að breyta til," sagði Helga. Var enginn leið til að safna liði enn og aftur? „Ég tók þessa ákvörðun fyrir nokkrum vikum en mér finnst þetta vera sorgleg niðurstaða að draga liðið úr keppni. Vitandi um hvernig ástandið er þarna þá skil ég ákvörðun stjórnarinnar mjög vel," sagði Helga. „Miðað við hvernig staðan er þá er ég sammála þessari ákvörðun en það hefði getað heppnast ágætlega að sameina þetta við Val. Það varð ekki úr því og þá tel ég að þetta hafi verið besta niðurstaðan," sagði Helga. En á hverju strandaði það að Valur og KR yrðu með sameiginlegt lið? „Ég veit það ekki en ég hef heyrt sögur af því. Það er ekki mitt að fara með það sem ég heyrði," segir Helga. Kvennalið KR hefur verið eitt af stóru félögunum í kvennakörfunni og því kemur það mörgum á óvart hvernig komið er fyrir liðinu núna. „Það eru bara tvö ár síðan að kvennalið KR var í úrslitunum á móti Keflavík. Kannski hefur utanumhaldið ekki verið nógu gott eins og staðan sýnir í dag. Ég held að það sé ekkert hægt að fara í felur með það," sagði Helga. „Ég ætla alls ekki að kenna stjórninni um það. Það hefur verið erfitt að fá fólk til að starfa í kringum þetta og þá sérstaklega í kringum okkur stelpurnar. Það vantaði kannski metnaðinn hjá KR-ingum öllum að koma kvennastarfinu á toppinn, bæði í körfunni og í fótboltanum," sagði Helga. Það gengur mjög vel hjá karlaliðum KR í bæði fótbolta og körfubolta sem eru bæði að berjast um gullið í öllum keppnum ár eftir ár. Kvennafótboltinn og kvennakörfuboltinn sitja hinsvegar á hakanum. Er það ekki dæmigert fyrir það sem er að gerast í íþróttum á Íslandi í dag. „Mér finnst þetta bara sorglegt en það þarf að horfa raunsætt á stöðuna. Ég varð Íslandsmeistari í 2. flokki með Stjörnunni í fótbolta 2006 og þar var tekin sú ákvörðun að liðið yrði Íslandsmeistari í meistaraflokki eftir fimm ár. Ég held að það þurfi bara einhver slík vinna að fara gang í Vesturbænum, að byggja liðið upp og gera það markvisst," sagði Helga. Það er hægt að hlusta á allt viðtalið hér fyrir ofan.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Sjá meira