Annar sigur Íslands í Eistlandi Anton Ingi Leifsson skrifar 22. ágúst 2015 16:15 Hörður Axel var stigahæstur í íslenska liðinu. vísir/daníel Ísland vann tíu stiga sigur, 86-76, á Filipseyjum á æfingarmóti í Eistlandi í dag, en þetta var annar sigur Íslands af þremur á mótinu. Ísland tapaði einungis fyrir heimamönnum á mótinu og lenda að öllum líkindum í öðru sæti á mótinu. Ísland byrjaði vel og leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhlutann, 22-16. Í öðrum leikhlutanum var svipað uppá teningnum. Ísland hélt góðri forystu og komst mest fimmtán stigum yfir, 46-31, en staðan í hálfleik var 46-38 Íslandi í vil. Í þriðja leikhluta voru Filipseyingar sterkari. Þeir söxuðu hægt og rólega á forskot Íslands og komust meðal annars yfir 49-48 þegar þrjár mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta. Íslenska liðið átti í vandræðum, en náði þó góðum sprett og leiddi eftir þriðja leikhlutann með sex stigum, 62-56. Í fjórða leikhlutanum reyndist þetta formsatriði fyrir Ísland sem vann að lokum tíu stiga sigur, 86-76. Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur með nítján stig í íslenska liðinu, en næstir komu Martin Hermansson með fimmtán og Helgi Magnússon með ellefu. Logi Gunnarsson gerði tíu, Jakob Sigurðarson níu, Brynjar Þór Björnsson átta, Pavel Ermolinskij sex sem og Hlynur Bæringsson og Ægir Steinarsson skoraði tvö stig. Andray Blatch var stigahæstur hjá Filipseyingum með 22 stig, en næstur kom Terrence Romeo með ellefu stig. Holland og Eistland spila síðar í dag og þá kemur í ljós í hvaða sæti Ísland lendir í á mótinu. Mótið er liður í undirbúningi Íslands fyrir Eurobasket, en riðill Íslands fer fram í Berlín í september. EM 2015 í Berlín Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Sjá meira
Ísland vann tíu stiga sigur, 86-76, á Filipseyjum á æfingarmóti í Eistlandi í dag, en þetta var annar sigur Íslands af þremur á mótinu. Ísland tapaði einungis fyrir heimamönnum á mótinu og lenda að öllum líkindum í öðru sæti á mótinu. Ísland byrjaði vel og leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhlutann, 22-16. Í öðrum leikhlutanum var svipað uppá teningnum. Ísland hélt góðri forystu og komst mest fimmtán stigum yfir, 46-31, en staðan í hálfleik var 46-38 Íslandi í vil. Í þriðja leikhluta voru Filipseyingar sterkari. Þeir söxuðu hægt og rólega á forskot Íslands og komust meðal annars yfir 49-48 þegar þrjár mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta. Íslenska liðið átti í vandræðum, en náði þó góðum sprett og leiddi eftir þriðja leikhlutann með sex stigum, 62-56. Í fjórða leikhlutanum reyndist þetta formsatriði fyrir Ísland sem vann að lokum tíu stiga sigur, 86-76. Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur með nítján stig í íslenska liðinu, en næstir komu Martin Hermansson með fimmtán og Helgi Magnússon með ellefu. Logi Gunnarsson gerði tíu, Jakob Sigurðarson níu, Brynjar Þór Björnsson átta, Pavel Ermolinskij sex sem og Hlynur Bæringsson og Ægir Steinarsson skoraði tvö stig. Andray Blatch var stigahæstur hjá Filipseyingum með 22 stig, en næstur kom Terrence Romeo með ellefu stig. Holland og Eistland spila síðar í dag og þá kemur í ljós í hvaða sæti Ísland lendir í á mótinu. Mótið er liður í undirbúningi Íslands fyrir Eurobasket, en riðill Íslands fer fram í Berlín í september.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Sjá meira