EM í hættu hjá Helga Má | Sin slitnaði í fætinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2015 20:32 Helgi Már Magnússon fagnar hér sætinu á EM síðasta haust. Vísir/Anton Íslenska körfuboltalandsliðið er mögulega að missa annan leikmann á stuttum tíma því KR-ingurinn Helgi Már Magnússon var fyrir því að slíta sin í fæti á æfingu í vikunni. Karfan.is segir frá þessu í kvöld og þar kemur fram að það óvissa um að Helgi Már geti spilað með landsliðinu á EM í september. Kristófer Acox hafði áður ákveðið að draga sig út úr landsliðskonum en það er nokkuð ljóst að íslenska landsliðið má ekki við frekar skakkaföllum nú þegar undirbúningurinn fyrir Evrópumótið er að hefjast fyrir alvöru. Helgi Már Magnússon meiddist á æfingu með landsliðinu á mánudaginn. „Þetta var bara einföld hreyfing og engin læti en þá heyri ég smell," sagði Helgi í viðtali við Karfan.is. Ómskoðun leiddi í ljós að sin í fætinum sem kallast peroneus longus hafi slitnað og það er því óvíst með framhaldið hjá Helga. „Þessi meiðsl eru afar sjaldgæf og vita þeir sjúkraþjálfarar sem Helgi hefur sett sig í samband við ekki til þess að þetta hafi gerst áður sem íþróttameiðsl og hvað þá að einhver hafi meðhöndlað þau áður sem slík. Þessi sin hefur það hlutverk að hafa ökklann stöðugan en allar líkur eru á að þessi meiðsl hafi verið að ágerast hjá Helga undanfarið ár eða svo og látið endanlega undan á mánudaginn," segir í fréttinni á karfan.is. Karfan.is hefur það ennfremur eftir Helga að það sé þrennt í stöðunni núna: að halda áfram að æfa og sjá hvernig fóturinn bregst við ákveðnum hreyfingum og álagi undir eftirliti sjúkraþjálfara, sérhæfð sjúkraþjálfun til þess að styrkja vöðvana í kring um sinina eða að lokum fara í aðgerð og sauma sinina við aðra sin sem kallast brevis því ekki er hægt að sauma hana saman aftur. „Þetta er ógeðslega svekkjandi. Búinn að spila um 15 ár í meistaraflokki og aldrei verið frá að neinu ráði vegna meiðsla. Held ég hafi verið frá í samtals 10 leiki í heildina," sagði Helgi í viðtalinu á karfan.is en það má finna í heild sinni með því að smella hér. Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Sjá meira
Íslenska körfuboltalandsliðið er mögulega að missa annan leikmann á stuttum tíma því KR-ingurinn Helgi Már Magnússon var fyrir því að slíta sin í fæti á æfingu í vikunni. Karfan.is segir frá þessu í kvöld og þar kemur fram að það óvissa um að Helgi Már geti spilað með landsliðinu á EM í september. Kristófer Acox hafði áður ákveðið að draga sig út úr landsliðskonum en það er nokkuð ljóst að íslenska landsliðið má ekki við frekar skakkaföllum nú þegar undirbúningurinn fyrir Evrópumótið er að hefjast fyrir alvöru. Helgi Már Magnússon meiddist á æfingu með landsliðinu á mánudaginn. „Þetta var bara einföld hreyfing og engin læti en þá heyri ég smell," sagði Helgi í viðtali við Karfan.is. Ómskoðun leiddi í ljós að sin í fætinum sem kallast peroneus longus hafi slitnað og það er því óvíst með framhaldið hjá Helga. „Þessi meiðsl eru afar sjaldgæf og vita þeir sjúkraþjálfarar sem Helgi hefur sett sig í samband við ekki til þess að þetta hafi gerst áður sem íþróttameiðsl og hvað þá að einhver hafi meðhöndlað þau áður sem slík. Þessi sin hefur það hlutverk að hafa ökklann stöðugan en allar líkur eru á að þessi meiðsl hafi verið að ágerast hjá Helga undanfarið ár eða svo og látið endanlega undan á mánudaginn," segir í fréttinni á karfan.is. Karfan.is hefur það ennfremur eftir Helga að það sé þrennt í stöðunni núna: að halda áfram að æfa og sjá hvernig fóturinn bregst við ákveðnum hreyfingum og álagi undir eftirliti sjúkraþjálfara, sérhæfð sjúkraþjálfun til þess að styrkja vöðvana í kring um sinina eða að lokum fara í aðgerð og sauma sinina við aðra sin sem kallast brevis því ekki er hægt að sauma hana saman aftur. „Þetta er ógeðslega svekkjandi. Búinn að spila um 15 ár í meistaraflokki og aldrei verið frá að neinu ráði vegna meiðsla. Held ég hafi verið frá í samtals 10 leiki í heildina," sagði Helgi í viðtalinu á karfan.is en það má finna í heild sinni með því að smella hér.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Hvernig koma liðin út úr hléinu? LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti „Við þurfum að fara að vinna leiki“ Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið Popovich fékk heilablóðfall Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977 Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Sjá meira