Ísland í 23. sæti á styrkleikalista FIFA | Aldrei verið ofar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júlí 2015 08:21 Sigurinn á Tékklandi skilar íslensku strákunum upp um 14 sæti á styrkleikalistanum. vísir/ernir Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í 23. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, sem var gefinn út í morgun. Ísland er í 16. sæti af Evrópuþjóðum á listanum. Sigurinn á Tékklandi 12. júní síðastliðinn var gríðarlega mikilvægur upp á stöðu Íslands á listanum að gera en íslenska liðið hækkar sig um 14 sæti frá síðasta lista og hefur aldrei verið ofar í sögunni. Þessi styrkleikalisti er sérlega mikilvægur því hann ræður í hvaða styrkleikaflokki liðin verða þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni HM 2018 í Rússlandi. Nú er ljóst að íslenska liðið verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í undanriðlana 25. júlí næstkomandi. Ísland hefur aldrei verið í jafn háum styrkleikaflokki þegar kemur að drætti í undanriðla stórmóts. Ísland er aðeins fimm stigum á eftir Frakklandi sem er í 22. sæti listans en á meðal þekktra fótboltaþjóða sem eru á eftir íslenska liðinu má nefna Úkraínu (27.), Rússland (28.), Bandaríkin (34.), Mexíkó (40.), Kamerún (42.), Serbíu (43.), Tyrkland (48.) og Japan (50.). Argentína vermir toppsæti styrkleikalistans en Þýskaland dettur niður í 2. sætið. Belgía fellur einnig niður um eitt sæti og í það þriðja en Kólumbía stendur í stað í 4. sætinu. Þá má geta þess að Wales er komið alla leið upp í 10. sæti listans, aðeins tveimur stigum og einu sæti á eftir Englandi sem er í 9. sætinu og hækkar sig um sex sæti frá síðasta lista. Suður-Ameríkumeistarar Chile eru í 11. sæti og Spánn kemur þar á eftir í 12. sæti.Efstu 25 löndin á listanum: 1. Argentína 2. Þýskaland 3. Belgía 4. Kolumbía 5. Holland 6. Brasilía 7. Portúgal 8. Rúmenía 9. England 10. Wales 11. Chile 12. Spánn 13. Úrúgvæ 14. Króatía 15. Slóvakía 15. Austurríki 17. Ítalía 18. Sviss 19. Alsír 20. Tékkland 21. Fílabeinsströndin 22. Frakkland 23. Ísland 24. Danmörk 25. GhanaListann í heild sinni má sjá með því að smella hér. EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Sjá meira
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í 23. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, sem var gefinn út í morgun. Ísland er í 16. sæti af Evrópuþjóðum á listanum. Sigurinn á Tékklandi 12. júní síðastliðinn var gríðarlega mikilvægur upp á stöðu Íslands á listanum að gera en íslenska liðið hækkar sig um 14 sæti frá síðasta lista og hefur aldrei verið ofar í sögunni. Þessi styrkleikalisti er sérlega mikilvægur því hann ræður í hvaða styrkleikaflokki liðin verða þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni HM 2018 í Rússlandi. Nú er ljóst að íslenska liðið verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í undanriðlana 25. júlí næstkomandi. Ísland hefur aldrei verið í jafn háum styrkleikaflokki þegar kemur að drætti í undanriðla stórmóts. Ísland er aðeins fimm stigum á eftir Frakklandi sem er í 22. sæti listans en á meðal þekktra fótboltaþjóða sem eru á eftir íslenska liðinu má nefna Úkraínu (27.), Rússland (28.), Bandaríkin (34.), Mexíkó (40.), Kamerún (42.), Serbíu (43.), Tyrkland (48.) og Japan (50.). Argentína vermir toppsæti styrkleikalistans en Þýskaland dettur niður í 2. sætið. Belgía fellur einnig niður um eitt sæti og í það þriðja en Kólumbía stendur í stað í 4. sætinu. Þá má geta þess að Wales er komið alla leið upp í 10. sæti listans, aðeins tveimur stigum og einu sæti á eftir Englandi sem er í 9. sætinu og hækkar sig um sex sæti frá síðasta lista. Suður-Ameríkumeistarar Chile eru í 11. sæti og Spánn kemur þar á eftir í 12. sæti.Efstu 25 löndin á listanum: 1. Argentína 2. Þýskaland 3. Belgía 4. Kolumbía 5. Holland 6. Brasilía 7. Portúgal 8. Rúmenía 9. England 10. Wales 11. Chile 12. Spánn 13. Úrúgvæ 14. Króatía 15. Slóvakía 15. Austurríki 17. Ítalía 18. Sviss 19. Alsír 20. Tékkland 21. Fílabeinsströndin 22. Frakkland 23. Ísland 24. Danmörk 25. GhanaListann í heild sinni má sjá með því að smella hér.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Sjá meira