Pavel: Kem í besta falli inn í úrslitakeppnina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. febrúar 2015 13:54 Pavel fylgist með lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni. Vísir/Þórdís Inga „Það er engin nánari greining komin á meiðslunum. Ég er enn að bíða eftir því að komast í ómskoðun," segir KR-ingurinn Pavel Ermolinskij en meiðslin sem hann varð fyrir í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni um helgina hafa valdið heilabrotum.Sjá einnig: Stjarnan bikarmeistari 2015 Eins og áður hefur verið fjallað um rann Pavel til á lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni um helgina. Garðbæingar urðu svo bikarmeistarar eftir æsilegan lokasprett en Pavel neyddist til að fylgjast með öllu saman af hliðarlínunni. „Mín fyrstu viðbrögð eftir að þetta gerðist að þetta væri aftan í læri enda fann ég að það var eitthvað sem gaf sig,“ sagði hann við Vísi í dag.Hér er beðið um skiptingu fyrir Pavel.Vísir/Þórdís Inga„Hins vegar er ég með fullan styrk aftan í lærinu. Ég finn það alveg. En það eru svo vissar hreyfingar sem framkalla mikinn sársauka og get ég ekki sagt að þetta sé hefðbundin meiðsli aftan í læri.“ „Fyrsta mál á dagskrá er að komast að því hvers kyns meiðslin eru nákvæmlega og vonandi kemur það í ljós í ómskoðuninni. Þangað til er lítið hægt að gera. Það er líka afar einkennilegt að finna fyrir sársauka en geta ekki staðsett hann nákvæmlega.“Sjá einnig: Hannes: Vitum ekki hvort að dúkurinn var til vandræða KR getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri á botnliði Skallagríms á morgun ef Tindastóll tapar fyrir Grindavík á sama tíma. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni og má heyra á Pavel að hann er ekki bjartsýnn á að geta tekið þátt í þeim. „Ég er auðvitað ekki læknir sjálfur en það kæmi mér mjög á óvart. Ég hef reynslu af svona meiðslum og mig grunar að þetta verði einhver tími sem ég verð frá. Ég vona auðvitað að ég spili með í úrslitakeppninni en eins og staðan er nú lít ég á það sem allra besta raunhæfa kostinn í stöðunni.“ „Kannski að maður sé full neikvæður gagnvart öllu saman. Það er auðvitað betra að vera jákvæður en það er of snemmt að segja til um hvernig þetta þróast.“ Körfubolti Mest lesið Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum Fótbolti Hringir og hringir en fær alltaf nei Fótbolti Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Enski boltinn Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Enski boltinn Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Körfubolti Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Handbolti 27 þúsund miðar seldir á leikinn á morgun Fótbolti „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport San Marínó vann aftur og komst upp Fótbolti Fleiri fréttir Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið „Gaman að vera ekki aumingi“ Uppgjörið: Aþena - Valur 70-64 | Leikmenn Aþenu nýttu glósubók Brynjars Karls vel „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Tryggvi öflugur í tapi Bilbao „Leikmennirnir fyllast smá skömm“ Skoraði 109 stig á tveimur dögum Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti Sjá meira
„Það er engin nánari greining komin á meiðslunum. Ég er enn að bíða eftir því að komast í ómskoðun," segir KR-ingurinn Pavel Ermolinskij en meiðslin sem hann varð fyrir í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni um helgina hafa valdið heilabrotum.Sjá einnig: Stjarnan bikarmeistari 2015 Eins og áður hefur verið fjallað um rann Pavel til á lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni um helgina. Garðbæingar urðu svo bikarmeistarar eftir æsilegan lokasprett en Pavel neyddist til að fylgjast með öllu saman af hliðarlínunni. „Mín fyrstu viðbrögð eftir að þetta gerðist að þetta væri aftan í læri enda fann ég að það var eitthvað sem gaf sig,“ sagði hann við Vísi í dag.Hér er beðið um skiptingu fyrir Pavel.Vísir/Þórdís Inga„Hins vegar er ég með fullan styrk aftan í lærinu. Ég finn það alveg. En það eru svo vissar hreyfingar sem framkalla mikinn sársauka og get ég ekki sagt að þetta sé hefðbundin meiðsli aftan í læri.“ „Fyrsta mál á dagskrá er að komast að því hvers kyns meiðslin eru nákvæmlega og vonandi kemur það í ljós í ómskoðuninni. Þangað til er lítið hægt að gera. Það er líka afar einkennilegt að finna fyrir sársauka en geta ekki staðsett hann nákvæmlega.“Sjá einnig: Hannes: Vitum ekki hvort að dúkurinn var til vandræða KR getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri á botnliði Skallagríms á morgun ef Tindastóll tapar fyrir Grindavík á sama tíma. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni og má heyra á Pavel að hann er ekki bjartsýnn á að geta tekið þátt í þeim. „Ég er auðvitað ekki læknir sjálfur en það kæmi mér mjög á óvart. Ég hef reynslu af svona meiðslum og mig grunar að þetta verði einhver tími sem ég verð frá. Ég vona auðvitað að ég spili með í úrslitakeppninni en eins og staðan er nú lít ég á það sem allra besta raunhæfa kostinn í stöðunni.“ „Kannski að maður sé full neikvæður gagnvart öllu saman. Það er auðvitað betra að vera jákvæður en það er of snemmt að segja til um hvernig þetta þróast.“
Körfubolti Mest lesið Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum Fótbolti Hringir og hringir en fær alltaf nei Fótbolti Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Enski boltinn Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Enski boltinn Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Körfubolti Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Handbolti 27 þúsund miðar seldir á leikinn á morgun Fótbolti „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport San Marínó vann aftur og komst upp Fótbolti Fleiri fréttir Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið „Gaman að vera ekki aumingi“ Uppgjörið: Aþena - Valur 70-64 | Leikmenn Aþenu nýttu glósubók Brynjars Karls vel „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Tryggvi öflugur í tapi Bilbao „Leikmennirnir fyllast smá skömm“ Skoraði 109 stig á tveimur dögum Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti Sjá meira