Varð bikarmeistari með glerbrot í hælnum Tómas Þór Þóraðrson skrifar 25. febrúar 2015 14:35 Tómas Þórður Hilmarsson lét taka risastórt stykki úr hælnum tveimur vikum fyrir bikarúrslitaleikinn en það var meira eftir. vísir/þórdís/aðsend „Maður lifir á þessu eitthvað út vikuna,“ segir Tómas Þórður Hilmarsson, framherji Stjörnunnar, sem varð bikarmeistari með Garðabæjarliðinu eftir ótrúlegan sigur á KR síðastliðinn laugardag. Tómas Þórður átti flotta innkomu í leikinn, en hann spilaði tólf mínútur, skoraði fimm stig, tók þrjú fráköst og varði tvö skot. Hann nýtti eina skotið sitt í teignum og eina skotið sitt fyrir utan þriggja stiga línuna. Frammistaða Tómasar er áhugaverð í ljósi þess að hann spilaði með nokkur glerbrot föst í hælnum og hafði lítið æft í aðdraganda leiksins. „Tveimur vikum fyrir leikinn var ég í afmæli hjá Jóhanni Laxdal [Leikmanni karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta, innsk.blm] þar sem ég steig á flöskubotn,“ segir Tómas Þórður í samtali við Vísi. „Það brotnaði flaska og ég steig aftur fyrir mig og fæ glerbrot í gegnum skóinn og upp í hælinn. Ég fór beint á slysó þar sem stærsta stykkið var tekið úr mér, en ég æfði ekkert í heila viku eftir það. Þegar ég spilaði Fjölnisleikinn á mánudaginn í síðustu viku var það í fyrsta sinn í viku sem ég hreyfði mig.“Tómas Þórður (11) horfir á Justin Shouse kyssa bikarinn.vísir/þórdísÞessi tvítugi 201cm framherji sem er að skora 4,8 stig og taka 3,8 fráköst að meðaltali í leik í Dominos-deildinni var staðráðinn í að missa ekki af bikarúrslitaleiknum. „Ég keypti mér deyfikrem og bar það á mig auk þess sem ég tók verkjalyf. Ég hætti bara að væla í viku,“ segir hann léttur. Á mánudaginn eftir bikarúrslitaleikinn var hann hættur að geta stigið í hælinn og var augljóst að eitthvað meira væri að. „Ég fór aftur upp á slysó þar sem tekin var mynd og þá kom í ljós að það voru enn glerbrot í hælnum. Læknarnir opnuðu þetta aftur og tóku vonandi restina úr hælnum að þessu sinni,“ segir Tómas Þórður, en næsti leikur Stjörnunnar er á föstudaginn gegn Þór í Þorlákshöfn. „Ég veit ekki hvort ég verði klár. Læknirinn sagði mér að hlusta á hælinn. Ég mun örugglega prófa en frekar vil ég missa af einum leik en vera að drepast langt fram í úrslitakeppnina.“Glerbrotið sem tekið var úr hæl Tómasar eftir veisluna.mynd/aðsendTómas Þórður segist hafa verið verkjalaus í leiknum sjálfum: „Þegar maður er komin inn á finnur maður ekkert fyrir þessu, en kvöldið var óþægilegt. Ég get ekki stigið í hælinn í dag þannig ég er bara á tánum.“ Sigur Stjörnunnar var ótrúlegur, en hvernig upplifði Tómas Þórður spennuna og dramatíkina undir lokin? „Ég trúði ekki að Helgi Már klúðraði tveimur galopnum skotum. Ég minntist bara undanúrslitanna í fyrra þegar hann kláraði okkur með svipuðu skoti. Ég sá boltann ofan í en þegar þeta var í höfn missti maður sig alveg,“ segir Tómas Þórður Hilmarsson. Íslenski körfuboltinn Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Stjarnan 83-85 | Stjarnan endurtók leikinn gegn KR Stjarnan er bikarmeistari karla í körfubolta eftir ótrúlegan sigur á KR. 21. febrúar 2015 00:01 Stjarnan bikarmeistari 2015 | Myndaveisla Stjarnan varð bikarmeistari í þriðja sinn þegar Garðbæingar lögðu KR að velli í ótrúlegum úrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag. 21. febrúar 2015 22:15 Bikar-Shouse sá aftur um KR í úrslitaleiknum Stjarnan endurtók leikinn frá 2009 og vann firnasterkt lið KR í úrsiltum Powerade-bikars karla í körfubolta. Justin Shouse leiddi sína menn til sigurs og var kjörinn besti leikmaðurinn í úrslitaleiknum. 23. febrúar 2015 07:00 Mest lesið Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum Fótbolti Hringir og hringir en fær alltaf nei Fótbolti Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Enski boltinn Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Enski boltinn Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Körfubolti Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Handbolti 27 þúsund miðar seldir á leikinn á morgun Fótbolti „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport San Marínó vann aftur og komst upp Fótbolti Fleiri fréttir Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið „Gaman að vera ekki aumingi“ Uppgjörið: Aþena - Valur 70-64 | Leikmenn Aþenu nýttu glósubók Brynjars Karls vel „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Tryggvi öflugur í tapi Bilbao „Leikmennirnir fyllast smá skömm“ Skoraði 109 stig á tveimur dögum Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti Sjá meira
„Maður lifir á þessu eitthvað út vikuna,“ segir Tómas Þórður Hilmarsson, framherji Stjörnunnar, sem varð bikarmeistari með Garðabæjarliðinu eftir ótrúlegan sigur á KR síðastliðinn laugardag. Tómas Þórður átti flotta innkomu í leikinn, en hann spilaði tólf mínútur, skoraði fimm stig, tók þrjú fráköst og varði tvö skot. Hann nýtti eina skotið sitt í teignum og eina skotið sitt fyrir utan þriggja stiga línuna. Frammistaða Tómasar er áhugaverð í ljósi þess að hann spilaði með nokkur glerbrot föst í hælnum og hafði lítið æft í aðdraganda leiksins. „Tveimur vikum fyrir leikinn var ég í afmæli hjá Jóhanni Laxdal [Leikmanni karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta, innsk.blm] þar sem ég steig á flöskubotn,“ segir Tómas Þórður í samtali við Vísi. „Það brotnaði flaska og ég steig aftur fyrir mig og fæ glerbrot í gegnum skóinn og upp í hælinn. Ég fór beint á slysó þar sem stærsta stykkið var tekið úr mér, en ég æfði ekkert í heila viku eftir það. Þegar ég spilaði Fjölnisleikinn á mánudaginn í síðustu viku var það í fyrsta sinn í viku sem ég hreyfði mig.“Tómas Þórður (11) horfir á Justin Shouse kyssa bikarinn.vísir/þórdísÞessi tvítugi 201cm framherji sem er að skora 4,8 stig og taka 3,8 fráköst að meðaltali í leik í Dominos-deildinni var staðráðinn í að missa ekki af bikarúrslitaleiknum. „Ég keypti mér deyfikrem og bar það á mig auk þess sem ég tók verkjalyf. Ég hætti bara að væla í viku,“ segir hann léttur. Á mánudaginn eftir bikarúrslitaleikinn var hann hættur að geta stigið í hælinn og var augljóst að eitthvað meira væri að. „Ég fór aftur upp á slysó þar sem tekin var mynd og þá kom í ljós að það voru enn glerbrot í hælnum. Læknarnir opnuðu þetta aftur og tóku vonandi restina úr hælnum að þessu sinni,“ segir Tómas Þórður, en næsti leikur Stjörnunnar er á föstudaginn gegn Þór í Þorlákshöfn. „Ég veit ekki hvort ég verði klár. Læknirinn sagði mér að hlusta á hælinn. Ég mun örugglega prófa en frekar vil ég missa af einum leik en vera að drepast langt fram í úrslitakeppnina.“Glerbrotið sem tekið var úr hæl Tómasar eftir veisluna.mynd/aðsendTómas Þórður segist hafa verið verkjalaus í leiknum sjálfum: „Þegar maður er komin inn á finnur maður ekkert fyrir þessu, en kvöldið var óþægilegt. Ég get ekki stigið í hælinn í dag þannig ég er bara á tánum.“ Sigur Stjörnunnar var ótrúlegur, en hvernig upplifði Tómas Þórður spennuna og dramatíkina undir lokin? „Ég trúði ekki að Helgi Már klúðraði tveimur galopnum skotum. Ég minntist bara undanúrslitanna í fyrra þegar hann kláraði okkur með svipuðu skoti. Ég sá boltann ofan í en þegar þeta var í höfn missti maður sig alveg,“ segir Tómas Þórður Hilmarsson.
Íslenski körfuboltinn Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Stjarnan 83-85 | Stjarnan endurtók leikinn gegn KR Stjarnan er bikarmeistari karla í körfubolta eftir ótrúlegan sigur á KR. 21. febrúar 2015 00:01 Stjarnan bikarmeistari 2015 | Myndaveisla Stjarnan varð bikarmeistari í þriðja sinn þegar Garðbæingar lögðu KR að velli í ótrúlegum úrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag. 21. febrúar 2015 22:15 Bikar-Shouse sá aftur um KR í úrslitaleiknum Stjarnan endurtók leikinn frá 2009 og vann firnasterkt lið KR í úrsiltum Powerade-bikars karla í körfubolta. Justin Shouse leiddi sína menn til sigurs og var kjörinn besti leikmaðurinn í úrslitaleiknum. 23. febrúar 2015 07:00 Mest lesið Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum Fótbolti Hringir og hringir en fær alltaf nei Fótbolti Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Enski boltinn Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Enski boltinn Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Körfubolti Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Handbolti 27 þúsund miðar seldir á leikinn á morgun Fótbolti „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport San Marínó vann aftur og komst upp Fótbolti Fleiri fréttir Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið „Gaman að vera ekki aumingi“ Uppgjörið: Aþena - Valur 70-64 | Leikmenn Aþenu nýttu glósubók Brynjars Karls vel „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Tryggvi öflugur í tapi Bilbao „Leikmennirnir fyllast smá skömm“ Skoraði 109 stig á tveimur dögum Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 57-68 | Stólarnir sóttu sigur í Smárann Suðurnesjaliðin með góða sigra Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 77-89 | Njarðvík hafði betur í Umhyggjuhöllinni LeBron ekki sáttur en náði náði þrennu fjórða leikinn í röð „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjörið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 87-80 | Stjörnumenn aftur á toppinn Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Stjarnan 83-85 | Stjarnan endurtók leikinn gegn KR Stjarnan er bikarmeistari karla í körfubolta eftir ótrúlegan sigur á KR. 21. febrúar 2015 00:01
Stjarnan bikarmeistari 2015 | Myndaveisla Stjarnan varð bikarmeistari í þriðja sinn þegar Garðbæingar lögðu KR að velli í ótrúlegum úrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag. 21. febrúar 2015 22:15
Bikar-Shouse sá aftur um KR í úrslitaleiknum Stjarnan endurtók leikinn frá 2009 og vann firnasterkt lið KR í úrsiltum Powerade-bikars karla í körfubolta. Justin Shouse leiddi sína menn til sigurs og var kjörinn besti leikmaðurinn í úrslitaleiknum. 23. febrúar 2015 07:00