Eldgos og jarðhræringar Hafa ekki keypt notaða bíla vegna eldgossins Bílaleigur hafa lítið sem ekkert keypt af notuðum bílum í vor eins og vonir stóðu til eftir að lög voru samþykkt sem heimiluðu þeim að fá virðisaukaskattinn endurheimtan við kaup á notuðum bílum. Ástæðan er samdráttur í bókunum sem rakin er til eldgossins í Eyjafjallajökli. Innlent 12.5.2010 12:52 Heybanki stofnaður fyrir bændur Öskufall í Skaftártungum suðaustur af Eyjafjallajökli var hið mesta í nótt frá upphafi gossins í Eyjafjallajökli. Heybanki verður stofnaður til að tryggja bændum á öskufallssvæðunum fóður fyrir skepnur þeirra í vetur. Innlent 12.5.2010 11:49 Heimsækja bæi á öskufallssvæðinu Skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli upp úr klukkan sex í morgun en skjálftarnir voru allir vægir, eða innan við tvo á Richter. Gosið hélt ámóta styrk í nótt og var í gærdag en vindur er hægur á slóðum gossins þannig að öskufall er mest í næsta nágrenni eldstöðvarinnar. Innlent 11.5.2010 10:37 Aska lokar flugvöllum á Spáni Sjö flugvöllum hefur verið lokað á Spáni í morgun vegna ösku sem borist hefur úr Eyjafjallajökli til Vestur-Evrópu. Um er að ræða þrjá flugvelli í suðurhluta meginlandsins og fjóra á Kanarí. Því er ljóst að eldgosið á Eyjafjallajökli mun áfram hafa áhrif á ferðalög þúsundir manna. Um nýliðna helgi þurfti að loka 19 flugvöllum á Spáni líkt og víða annars staðar í Evrópu. Erlent 11.5.2010 08:53 Eyjafjallajökull ógnar Kvikmyndahátíðinni í Cannes Öskufallið frá Eyjafjallajökli gæti haft áhrif á Kvikmyndahátíðina í Cannes, sem gert er ráð fyrir að hefjist á miðvikudaginn. Um 20 flugferðum til flugvallarins í Nice, sem er næstur Cannes, var aflýst í gær og fleiri flugferðum var frestað. Erlent 10.5.2010 21:34 Skjálftahrina undir Eyjafjallajökli skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli um klukkan ellefu í morgun, en virðist vera að hjaðna á ný. Nokkrir skjálftar mældust rúmlega tveir á Richter. Innlent 10.5.2010 11:55 Eyjafjallajökull: Flugfarþegum fækkaði um 23% í Bretlandi Félagið BAA, sem rekur tvo af stærstu flugvöllum Bretlands, Heathrow og Stansted, segir að flugfarþegum um þessa velli hefði fækkað um tæp 23% í apríl miðað við sama mánuði í fyrra. Ástæðan er askan frá gosinu í Eyjafjallajökli. Viðskipti erlent 10.5.2010 10:35 Eldgosið í Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á ferð undir Eyjafjöllum um helgina og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. Í safninu má meðal annars smá sjá myndir af dýrum, mönnum, bílum og Eyjafjallajökli. Innlent 10.5.2010 10:29 Flogið frá Keflavík og Reykjavík Keflavíkurflugvöllur verður opnaður eftir rúma klukkustund og innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll hefst um og upp úr klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í háloftunum. Fjöldi flugfarþega er á leið til Akureyrar og þangað eru einhverjar vélar komnar eða a leiðinni þangað. Ekki liggur fyrir hvort þeim verði snúið til Keflavíkur. Innlent 10.5.2010 08:56 Reiknað með töluverðri umferð um Akureyri Millilandaflugvélar komu og fóru frá Akureyrarflugvelli fram á nótt, en hlé varð undir morgun. Umferðin er aftur að fara í fullan gang og er reiknað með töluverðri umferð um völlinn í dag. Verulegt álag hefur verið á starfsliði vallarins og aukaliði frá Reykjavík og Keflavík, en engin alvarleg vandamál hafa komið upp, að sögn starfsmanna í morgun. Nánari upplýsingar um flugið er á heimasíðum flugfélaganna. Innlent 10.5.2010 08:19 Áfram flogið um Akureyri Flugsamgöngur víðs vegar um Evrópu komust í uppnám vegna eldgossins í Eyjafjallajökli um helgina. Flugvöllum var meðal annars lokað um tíma í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Írlandi í gær. Um 24.500 flug fóru um Evrópu í gær, en það er 500 færri flug en venja er. Þá urðu talsverðar seinkanir þar sem fljúga þurfti lengri leiðir til að forðast öskuský. Innlent 9.5.2010 22:40 Eyjafjallajökull: Öllu flugi aflýst í Keflavík - Lokanir í Evrópu Öllum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Þá er truflun á öllu innanlandsflugi og er athugun klukkan 11:15. Nokkrar vélar fóru af stað frá Keflavíkurflugvelli í morgun en nú hefur brottför fimm véla í dag og komu níu véla síðdegis og í kvöld verið aflýst. Innlent 8.5.2010 09:51 Keflavíkurflugvöllur lokast á morgun Loftrými umhverfis Keflavíkurflugvöll fyrir blindflugsumferð lokast eftir hádegi á morgun. Spár gera ráð fyrir að öskuský vegna eldgossins í Eyjafjallajökli verð komið að vesturströnd Íslands um hádegi á morgun. Iceland Express hefur ákveðið að flýta flugi sem átti að fara síðdegis á morgun til Alicante. Fyrr í dag aflýsti Icelandair tveimur flugferðum sem fara átti á morgun. Innlent 7.5.2010 19:30 Ekkert bendir til að gosinu sé að ljúka Töluverðar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli á síðustu dögum. Hraunrennsli hefur minnkað verulega og sprengivirkni aukist til muna. Svartur gosmökkur steig upp beint frá gosstöðvunum í gær. Innlent 6.5.2010 23:11 Minna rennsli frá Gígjökli Sérfræðingar telja að Eyjafjallajökull muni halda áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga. Órói í dag var svipaður og í gærdag. Innlent 5.5.2010 19:34 Eyjafjallajökull: Nýtt kvikuskot í jöklinum Eyjafjallajökull heldur áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga að því er sérfræðingar segja en ný kvika virðist vera að þrýsta sér upp neðst í kvikurásinni. Á heimasíðu Veðurstofunnar er bent á að aukin jarðskálftavirkni hafi verið undir jöklinum frá því á mánudag. Nákvæm staðsetning skjálftanna sýnir að þeir fyrstu verða djúpt í jörðu, á um 23 km dýpi, en færast síðan upp. Innlent 5.5.2010 13:02 Eyjafjallajökull: Drunurnar heyrast víða um land Veðurskyrðin sem verið hafa á landinu undanfarna daga og rakinn í loftinu virðast hafa gert það að verkum að drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa borist mun víðar en áður. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að fólk hafi haft samband frá Vesturlandi, Suðurlandi og frá Mýrum og sagt frá drununum. Innlent 5.5.2010 11:26 Eyjafjallajökull: Ferðamönnum fækkaði um tæp 17% í apríl Erlendir ferðamenn voru 16,9% færri nú í apríl en í apríl á síðasta ári. Þannig fóru rúmlega 23 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í mánuðinum samanborið við tæp 28 þúsund á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 5.5.2010 10:21 Eyjafjallajökull: Enn sprengivirkni í gosinu Litlar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli frá því í gær, samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Veðurstofu Íslands í morgun. Gosmökkurinn sást vel í gær en hann var töluvert dekkri en áður. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var greint frá því að ástæðuna mætti rekja til aukinnar sprengivirkni í gosinu. Búast mætti við töluverðu öskufalli næstu daga. Innlent 5.5.2010 08:50 Eyjafjallajökull: Flugvellir á Írlandi og Skotlandi áfram lokaðir vegna eldgossins Flugvellir á Írlandi og í Skotlandi eru lokaðir áfram í dag vegna öskunnar frá gosinu í Eyjafjallajökli. Samkvæmt frétt um málið á BBC er líklegt að Erlent 5.5.2010 07:12 Landgræðslustjóri ræðir við heimamenn Sérfræðingar miðla upplýsingum til íbúa á áhrifasvæði Eyjafjallajökuls þessa dagana. Fundirnir með sérfræðingum fara fram í hádeginu í þjónustumiðstöðinni í Heimalandi. Innlent 4.5.2010 22:10 Hætta á gusthlaupum niður Gígjökul Almannavarnir vöruðu í dag við hættu á lífshættulegum gusthlaupum sem gætu farið hratt niður með Gígjökli og náð niður á Markarfljótsaura. Slík eiturský geta orðið 300 stiga heit og drepa allt kvikt sem í vegi þeirra verða. Innlent 4.5.2010 19:05 Eldgosið ógnar heilli atvinnugrein Eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar heilli atvinnugrein. Þetta kom fram í ræðu iðnaðar- og ferðamálaráðherra, á Ferðamálaþingi í dag en þar var kynnt stærsta kynningarátak fyrir ferðaþjónustuna sem ráðist hefur verið í sögu þjóðarinnar. Innlent 4.5.2010 18:57 Átökin í Gígjökli - myndir Mikil átök hafa verið við Gígjökul síðastliðinn sólarhring, eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2. Glóandi hrauneðjan er við það að steypast undir snarbrattan skriðjökul. Ís og eldur takast á með feiknarlegum fljóðbylgjum. Egill Aðalsteinsson, kvikmyndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, kynnti sér aðstæður í dag og tók þær myndir sem fylgja þessari frétt. Innlent 3.5.2010 21:16 Eyjafjallajökull lagði sænskt flugfélag Eyjafjallajökull hefur nú lagt fyrsta flugfélagið að velli. Það er lítið sænskt flugfélag Flyglinjen sem stofnað var í febrúar. Erlent 3.5.2010 11:38 Aukin sprengivirkni Rennsli í Markarfljót vegna eldgossins í Eyjafjallajökli jókst tímabundið síðdegis í gær og varð þá svipað og í fyrri flóðum þann 30. apríl. Um klukkan hálfátta í gærkvöldi sýni vefmyndavél síðan gufuský við jaðar Gígjökul sem gefa til kynna heitt bræðsluvatn. Innlent 3.5.2010 08:48 Öskuframleiðslan aðeins brot af því sem hún var Kvikustreymi og gosmökkur á Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Sprengivirknin og öskuframleiðsla er aðeins brot af því sem hún var í byrjun gossins en engin merki sjást um að gosi sé að ljúka. Innlent 30.4.2010 20:35 Kvikuflæðið allt að 50 tonn á sekúndu Talið er að kvikuflæðið upp úr gosrásinni í Eyjafjallajökli, sé allt að 50 tonn á sekúndu, sem er meira en haldið hefur verið, en minna en við upphaf gossins. Þetta flæði jafngildir þyngd fimmtíu lítilla fólksbíla á sekúndu. Innlent 30.4.2010 12:22 Engin merki um að gosi sé að ljúka Vatnsrennsli undan Gígjökli í Eyjafjallajökli jókst nokkuð undir morgun og er að berast út í Markarfljót. Þetta er þó ekki neitt stórhlaup og tala vísindamenn frekar um gusu. Annars hélt gosið ámóta krafti í nótt og verið hefur síðasta sólarhringinn. Engin merki er um að gosinu sé að ljúka. Innlent 30.4.2010 08:34 Allt flug með eðlilegum hætti Allir alþjóðaflugvellir á landinu hafa verið opnir síðan í gærkvöldi og millilandaflugið fer nú um Keflavíkurflugvöll. Allt bendir til að innanlandsflug verði samkvæmt áætlun í dag eftir tveggja daga röskun. Fyrstu innanlandsvélarnar fóru frá Reykjavík í gærkvöldi til Akureyrar og Egilsstaða. Innlent 29.4.2010 08:08 « ‹ 115 116 117 118 119 120 121 122 123 … 131 ›
Hafa ekki keypt notaða bíla vegna eldgossins Bílaleigur hafa lítið sem ekkert keypt af notuðum bílum í vor eins og vonir stóðu til eftir að lög voru samþykkt sem heimiluðu þeim að fá virðisaukaskattinn endurheimtan við kaup á notuðum bílum. Ástæðan er samdráttur í bókunum sem rakin er til eldgossins í Eyjafjallajökli. Innlent 12.5.2010 12:52
Heybanki stofnaður fyrir bændur Öskufall í Skaftártungum suðaustur af Eyjafjallajökli var hið mesta í nótt frá upphafi gossins í Eyjafjallajökli. Heybanki verður stofnaður til að tryggja bændum á öskufallssvæðunum fóður fyrir skepnur þeirra í vetur. Innlent 12.5.2010 11:49
Heimsækja bæi á öskufallssvæðinu Skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli upp úr klukkan sex í morgun en skjálftarnir voru allir vægir, eða innan við tvo á Richter. Gosið hélt ámóta styrk í nótt og var í gærdag en vindur er hægur á slóðum gossins þannig að öskufall er mest í næsta nágrenni eldstöðvarinnar. Innlent 11.5.2010 10:37
Aska lokar flugvöllum á Spáni Sjö flugvöllum hefur verið lokað á Spáni í morgun vegna ösku sem borist hefur úr Eyjafjallajökli til Vestur-Evrópu. Um er að ræða þrjá flugvelli í suðurhluta meginlandsins og fjóra á Kanarí. Því er ljóst að eldgosið á Eyjafjallajökli mun áfram hafa áhrif á ferðalög þúsundir manna. Um nýliðna helgi þurfti að loka 19 flugvöllum á Spáni líkt og víða annars staðar í Evrópu. Erlent 11.5.2010 08:53
Eyjafjallajökull ógnar Kvikmyndahátíðinni í Cannes Öskufallið frá Eyjafjallajökli gæti haft áhrif á Kvikmyndahátíðina í Cannes, sem gert er ráð fyrir að hefjist á miðvikudaginn. Um 20 flugferðum til flugvallarins í Nice, sem er næstur Cannes, var aflýst í gær og fleiri flugferðum var frestað. Erlent 10.5.2010 21:34
Skjálftahrina undir Eyjafjallajökli skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli um klukkan ellefu í morgun, en virðist vera að hjaðna á ný. Nokkrir skjálftar mældust rúmlega tveir á Richter. Innlent 10.5.2010 11:55
Eyjafjallajökull: Flugfarþegum fækkaði um 23% í Bretlandi Félagið BAA, sem rekur tvo af stærstu flugvöllum Bretlands, Heathrow og Stansted, segir að flugfarþegum um þessa velli hefði fækkað um tæp 23% í apríl miðað við sama mánuði í fyrra. Ástæðan er askan frá gosinu í Eyjafjallajökli. Viðskipti erlent 10.5.2010 10:35
Eldgosið í Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á ferð undir Eyjafjöllum um helgina og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. Í safninu má meðal annars smá sjá myndir af dýrum, mönnum, bílum og Eyjafjallajökli. Innlent 10.5.2010 10:29
Flogið frá Keflavík og Reykjavík Keflavíkurflugvöllur verður opnaður eftir rúma klukkustund og innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll hefst um og upp úr klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í háloftunum. Fjöldi flugfarþega er á leið til Akureyrar og þangað eru einhverjar vélar komnar eða a leiðinni þangað. Ekki liggur fyrir hvort þeim verði snúið til Keflavíkur. Innlent 10.5.2010 08:56
Reiknað með töluverðri umferð um Akureyri Millilandaflugvélar komu og fóru frá Akureyrarflugvelli fram á nótt, en hlé varð undir morgun. Umferðin er aftur að fara í fullan gang og er reiknað með töluverðri umferð um völlinn í dag. Verulegt álag hefur verið á starfsliði vallarins og aukaliði frá Reykjavík og Keflavík, en engin alvarleg vandamál hafa komið upp, að sögn starfsmanna í morgun. Nánari upplýsingar um flugið er á heimasíðum flugfélaganna. Innlent 10.5.2010 08:19
Áfram flogið um Akureyri Flugsamgöngur víðs vegar um Evrópu komust í uppnám vegna eldgossins í Eyjafjallajökli um helgina. Flugvöllum var meðal annars lokað um tíma í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Írlandi í gær. Um 24.500 flug fóru um Evrópu í gær, en það er 500 færri flug en venja er. Þá urðu talsverðar seinkanir þar sem fljúga þurfti lengri leiðir til að forðast öskuský. Innlent 9.5.2010 22:40
Eyjafjallajökull: Öllu flugi aflýst í Keflavík - Lokanir í Evrópu Öllum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Þá er truflun á öllu innanlandsflugi og er athugun klukkan 11:15. Nokkrar vélar fóru af stað frá Keflavíkurflugvelli í morgun en nú hefur brottför fimm véla í dag og komu níu véla síðdegis og í kvöld verið aflýst. Innlent 8.5.2010 09:51
Keflavíkurflugvöllur lokast á morgun Loftrými umhverfis Keflavíkurflugvöll fyrir blindflugsumferð lokast eftir hádegi á morgun. Spár gera ráð fyrir að öskuský vegna eldgossins í Eyjafjallajökli verð komið að vesturströnd Íslands um hádegi á morgun. Iceland Express hefur ákveðið að flýta flugi sem átti að fara síðdegis á morgun til Alicante. Fyrr í dag aflýsti Icelandair tveimur flugferðum sem fara átti á morgun. Innlent 7.5.2010 19:30
Ekkert bendir til að gosinu sé að ljúka Töluverðar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli á síðustu dögum. Hraunrennsli hefur minnkað verulega og sprengivirkni aukist til muna. Svartur gosmökkur steig upp beint frá gosstöðvunum í gær. Innlent 6.5.2010 23:11
Minna rennsli frá Gígjökli Sérfræðingar telja að Eyjafjallajökull muni halda áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga. Órói í dag var svipaður og í gærdag. Innlent 5.5.2010 19:34
Eyjafjallajökull: Nýtt kvikuskot í jöklinum Eyjafjallajökull heldur áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga að því er sérfræðingar segja en ný kvika virðist vera að þrýsta sér upp neðst í kvikurásinni. Á heimasíðu Veðurstofunnar er bent á að aukin jarðskálftavirkni hafi verið undir jöklinum frá því á mánudag. Nákvæm staðsetning skjálftanna sýnir að þeir fyrstu verða djúpt í jörðu, á um 23 km dýpi, en færast síðan upp. Innlent 5.5.2010 13:02
Eyjafjallajökull: Drunurnar heyrast víða um land Veðurskyrðin sem verið hafa á landinu undanfarna daga og rakinn í loftinu virðast hafa gert það að verkum að drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa borist mun víðar en áður. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að fólk hafi haft samband frá Vesturlandi, Suðurlandi og frá Mýrum og sagt frá drununum. Innlent 5.5.2010 11:26
Eyjafjallajökull: Ferðamönnum fækkaði um tæp 17% í apríl Erlendir ferðamenn voru 16,9% færri nú í apríl en í apríl á síðasta ári. Þannig fóru rúmlega 23 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í mánuðinum samanborið við tæp 28 þúsund á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 5.5.2010 10:21
Eyjafjallajökull: Enn sprengivirkni í gosinu Litlar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli frá því í gær, samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Veðurstofu Íslands í morgun. Gosmökkurinn sást vel í gær en hann var töluvert dekkri en áður. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var greint frá því að ástæðuna mætti rekja til aukinnar sprengivirkni í gosinu. Búast mætti við töluverðu öskufalli næstu daga. Innlent 5.5.2010 08:50
Eyjafjallajökull: Flugvellir á Írlandi og Skotlandi áfram lokaðir vegna eldgossins Flugvellir á Írlandi og í Skotlandi eru lokaðir áfram í dag vegna öskunnar frá gosinu í Eyjafjallajökli. Samkvæmt frétt um málið á BBC er líklegt að Erlent 5.5.2010 07:12
Landgræðslustjóri ræðir við heimamenn Sérfræðingar miðla upplýsingum til íbúa á áhrifasvæði Eyjafjallajökuls þessa dagana. Fundirnir með sérfræðingum fara fram í hádeginu í þjónustumiðstöðinni í Heimalandi. Innlent 4.5.2010 22:10
Hætta á gusthlaupum niður Gígjökul Almannavarnir vöruðu í dag við hættu á lífshættulegum gusthlaupum sem gætu farið hratt niður með Gígjökli og náð niður á Markarfljótsaura. Slík eiturský geta orðið 300 stiga heit og drepa allt kvikt sem í vegi þeirra verða. Innlent 4.5.2010 19:05
Eldgosið ógnar heilli atvinnugrein Eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar heilli atvinnugrein. Þetta kom fram í ræðu iðnaðar- og ferðamálaráðherra, á Ferðamálaþingi í dag en þar var kynnt stærsta kynningarátak fyrir ferðaþjónustuna sem ráðist hefur verið í sögu þjóðarinnar. Innlent 4.5.2010 18:57
Átökin í Gígjökli - myndir Mikil átök hafa verið við Gígjökul síðastliðinn sólarhring, eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2. Glóandi hrauneðjan er við það að steypast undir snarbrattan skriðjökul. Ís og eldur takast á með feiknarlegum fljóðbylgjum. Egill Aðalsteinsson, kvikmyndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, kynnti sér aðstæður í dag og tók þær myndir sem fylgja þessari frétt. Innlent 3.5.2010 21:16
Eyjafjallajökull lagði sænskt flugfélag Eyjafjallajökull hefur nú lagt fyrsta flugfélagið að velli. Það er lítið sænskt flugfélag Flyglinjen sem stofnað var í febrúar. Erlent 3.5.2010 11:38
Aukin sprengivirkni Rennsli í Markarfljót vegna eldgossins í Eyjafjallajökli jókst tímabundið síðdegis í gær og varð þá svipað og í fyrri flóðum þann 30. apríl. Um klukkan hálfátta í gærkvöldi sýni vefmyndavél síðan gufuský við jaðar Gígjökul sem gefa til kynna heitt bræðsluvatn. Innlent 3.5.2010 08:48
Öskuframleiðslan aðeins brot af því sem hún var Kvikustreymi og gosmökkur á Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Sprengivirknin og öskuframleiðsla er aðeins brot af því sem hún var í byrjun gossins en engin merki sjást um að gosi sé að ljúka. Innlent 30.4.2010 20:35
Kvikuflæðið allt að 50 tonn á sekúndu Talið er að kvikuflæðið upp úr gosrásinni í Eyjafjallajökli, sé allt að 50 tonn á sekúndu, sem er meira en haldið hefur verið, en minna en við upphaf gossins. Þetta flæði jafngildir þyngd fimmtíu lítilla fólksbíla á sekúndu. Innlent 30.4.2010 12:22
Engin merki um að gosi sé að ljúka Vatnsrennsli undan Gígjökli í Eyjafjallajökli jókst nokkuð undir morgun og er að berast út í Markarfljót. Þetta er þó ekki neitt stórhlaup og tala vísindamenn frekar um gusu. Annars hélt gosið ámóta krafti í nótt og verið hefur síðasta sólarhringinn. Engin merki er um að gosinu sé að ljúka. Innlent 30.4.2010 08:34
Allt flug með eðlilegum hætti Allir alþjóðaflugvellir á landinu hafa verið opnir síðan í gærkvöldi og millilandaflugið fer nú um Keflavíkurflugvöll. Allt bendir til að innanlandsflug verði samkvæmt áætlun í dag eftir tveggja daga röskun. Fyrstu innanlandsvélarnar fóru frá Reykjavík í gærkvöldi til Akureyrar og Egilsstaða. Innlent 29.4.2010 08:08