Úkraína Biðja Abramovich um hjálp í friðarviðræðum við Pútín Úkraínsk yfirvöld hafa leitað til rússneska milljarðarmæringsins Roman Abramovich, sem er eigandi fótboltaliðsins Chelsea, og óskað eftir aðstoð hans í yfirstandandi friðarviðræðum Úkraínumanna við Rússa, að sögn talsmanns Abramovich. Erlent 28.2.2022 14:00 Á flótta úr borginni þegar hermaður skaut flugskeyti í veg fyrir bílinn Íslenskur maður búsettur í Kænugarði segir það hafa verið tilfinningaþrungna stund að komast loks yfir landamærin til Ungverjalands í gærkvöldi eftir sextíu klukkustunda ferðalag. Fjölskyldan þurfti ítrekað að skipta alveg um stefnu á leið sinni, í eitt skiptið eftir að flugskeyti var skotið í veg fyrir bíl þeirra. Erlent 28.2.2022 13:41 Bandaríkin loka sendiráðinu í Hvíta-Rússlandi Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að loka sendiráði sínu í Hvíta-Rússlandi vegna ólgunnar eftir innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 28.2.2022 13:30 Ingólfur Bjarni ekki stríðsfréttaritari Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks hafa sent út tilkynningar sama efnis þar sem þau lýsa miklum létti, að fréttamaðurinn Ingólfur Bjarni Sigfússon og Ingvar Haukur Guðmundsson tökumaður, séu komnir yfir landamæri Úkraínu og Póllands. En þeir héldu til Úkraínu á miðvikudag til að greina stöðu mála. Innlent 28.2.2022 13:22 Rúmlega hálf milljón Úkraínumanna á flótta Sameinuðu þjóðirnar áætla nú að rúmlega hálf milljón manna hafi flúið heimili sín vegna stríðsátakanna í Úkraínu eftir innrás Rússa. Hörð átök eru enn víða í landinu, en Rússar hafa meðal annars ráðist á stórborgir á borð við Kænugarð. Kharkív og Tsjernihív. Erlent 28.2.2022 13:00 Vel yfir 14 milljónir safnast í neyðarsöfnun fyrir Úkraínubúa Vel yfir 14 milljónir hafa safnast á fáeinum dögum í neyðarsöfnun Rauða krossins vegna átakanna í Úkraínu. Ákall er eftir sendifulltrúum til starfa á átakasvæðinu og þar í kring. Innlent 28.2.2022 12:21 Falleg stund þegar Roman Yaremchuk fékk fyrirliðaband Benfica Úkraínski framherjinn Roman Yaremchuk spilaði seinasta hálftíma leiksins er Benfica vann 3-0 sigur gegn Vitoria de Guimaraes í portúgölsku deildinni í fótbolta í gær og fékk vægast sagt mikinn stuðning áhorfenda og liðsfélaga sinna þegar hann kom inn af varamannabekknum. Fótbolti 28.2.2022 09:01 Rúblan hríðfellur og bann á sölu á eignum í Rússlandi Rússneski seðlabankinn bannaði í morgun sölu erlendra aðila á hlutabréfum og eignum í Rússlandi. Erlent 28.2.2022 08:42 Klitschko boxbræðurnir báðir í stríðið gegn Rússum: „Ég verð að berjast“ Tvær af stærstu íþróttastjörnum Úkraínumanna í sögunni eru meðal þeirra sem hafa haldið kyrru fyrir í landinu til að berjast gegn innrás rússneska hersins. Sport 28.2.2022 08:30 Vaktin: Forsetinn kallar eftir flugbanni yfir Úkraínu Sókn rússnesks herliðs að úkraínsku höfuðborginni Kænugarði hélt áfram í nótt og í morgun, þó hún hafi verið umfangsminni en áður. Forseti Úkraínu hefur kallað eftir því að flugbanni verði komið á yfir landinu. Erlent 28.2.2022 06:13 „Ég á engin orð til þess að lýsa tilfinningum mínum“ Mörghundruð manns sýndu Úkraínumönnum samstöðu og mótmæltu stríðinu í miðbæ Reykjavíkur í dag. Mótmælendur kröfðust þess að rússneski sendiherrann yrði sendur heim og fordæmdu Rússlandsforseta. Innlent 27.2.2022 23:01 Úkraína í herkví: Afturgöngur sögunnar Má rekja neyðarástandið sem umlykur Úkraínu til sögulegra mistaka leiðtoga Vesturveldanna, þegar samið var við Gorbachev um endalok Kalda stríðsins á árunum um og upp úr 1990? Skoðun 27.2.2022 21:30 Fjögurra daga stríð en átta ára stríðsástand Ágreining Rússa og Úkraínumanna má rekja allt aftur til falls Sovétríkjanna árið 1991 þegar Úkraína lýsti yfir sjálfstæði. Erlent 27.2.2022 21:01 Telur nýjasta útspil Pútíns sýna leikaraskap og örvæntingu Friðrik Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, telur að nýjasta útspil Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, að skipa kjarnorkusveitum sínum að vera í viðbragðsstöðu, endurspegla leikaraskap og örvæntingu af hálfu Pútíns. Erlent 27.2.2022 19:03 Vildi ferðast og eignast hund en dreymir nú um sprengjubyrgi til að verja fjölskylduna 23 ára úkraínskur kennari sem flúið hefur Kænugarð segir að Rússar hafi skotið níu ára stelpu og foreldra hennar til bana á götum borgarinnar í gær. Maria Huresh segir að átökin hafi lagt líf Úkraínumanna í rúst og hún þrái nú fátt heitar en að eignast heimili með stóru sprengjubyrgi til að tryggja öryggi fjölskyldu sinnar. Erlent 27.2.2022 17:32 Flugáhugamenn uggandi um stærstu flugvél heims Flugáhugamenn um heim allan hafa síðustu sólarhringa beðið áhyggjufullir fregna af örlögum stærstu flugvélar heims, hinnar úkraínsku Antonov An 225. Eitt af fyrstu skotmörkum rússneska hersins í innrásinni í Úkraínu var nefnilega Antonov-flugvöllurinn við bæinn Hostomel, sem er heimaflugvöllur risaþotunnar. Utanríkisráðherra Úkraínu lýsti því yfir síðdegis að Rússar hefðu eyðilagt flugvélina en hún var eitt helsta stolt Úkraínumanna. Erlent 27.2.2022 14:14 Rússar og Úkraínumenn hittast til friðarviðræðna Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur samþykkt að senda nefnd til landamæra Hvíta-Rússlands til friðarviðræðna við rússneska sendinefnd sem kom til landsins í dag. Erlent 27.2.2022 14:12 Pútín virkjar hersveitir sem sjá um fælingarvopn Rússa Þær hersveitir sem halda utan um fælingarvopn Rússa hafa verið settar í viðbragðsstöðu af Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann segir þetta gert vegna „óvinsamlegra“ aðgerða vesturveldanna gegn Rússlandi. Erlent 27.2.2022 13:53 Í biðröð til að komast til Póllands: „Það er eins og það sé heimsendir“ Úkraínsk kona, sem fréttastofa hefur verið í sambandi við, hefur verið föst í bílaröð við landamærin að Póllandi frá því á aðfaranótt föstudags. Enn er fjöldi fólks á undan henni í röðinni og hún ekki örugg. Rússneski herinn sprengdi upp húsnæði úkraínska hersins í nágrenninu í nótt. Erlent 27.2.2022 12:16 Ísland lokar fyrir flugumferð Rússa og vegabréfaáritun ekki í boði fyrir diplómata Ísland hefur lokað fyrir flugumferð Rússa í loftrými Íslands. Þá fá rússneskir diplómatar og viðskiptamenn ekki að koma til landsins en búið er að loka fyrir vegabréfsáritanir þeirra. Innlent 27.2.2022 10:19 Boða til mótmæla um allt land í dag Boðað hefur verið til mótmæla- og samstöðufunda í Reykjavík, á Akureyri og Reyðarfirði í dag vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Innlent 27.2.2022 10:17 Götubardagar og sprengingar í Kænugarði í alla nótt en nú dauðaþögn Enn ein erfið nótt er liðin í Úkraínu og var hart barist í öllum stærstu borgum landsins. Útgöngubann er í gildi í Kænugarði og verður í gildi þar til klukkan átta í fyrramálið. Íbúi í Kænugarði segir hörðustu bardagana háða í skjóli nætur. Innlent 27.2.2022 08:37 Úkraínuvaktin: Úkraínuforseti ræðir við leiðtoga vesturlanda og ýjar að ESB-aðild Nýjar gervihnattamyndir sýna nokkurra kílómetra langa bílalest, sem inniheldur meðal annars skriðdreka, stefna í átt að Kænugarði. Erlent 27.2.2022 07:31 Frysta eigur Seðlabanka Rússlands og aftengja vissa banka frá SWIFT Ríki Evrópusambandsins, Bandaríkin, Bretland og Kanada hafa komist að samkomulagi um að loka aðgangi tiltekinna rússneskra banka að SWIFT, greiðslukerfi sem notað er við miðlun fjármuna milli alþjóðlegra banka. Erlent 26.2.2022 22:37 Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá SWIFT Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá greiðslukerfi sem notað er til að miðla fjármunum milli alþjóðlegra banka en rússneskir hermenn hafa nú tekið að beina sprengjuárásum að spítölum og skólum í Úkraínu. Erlent 26.2.2022 20:01 „Enn þá meiri uggur í mér“ Íslendingur sem býr í Kænugarði segist lítið hafa sofið í nótt fyrir sprengingum. Útgöngubann tók gildi þar klukkan þrjú í dag og stendur til átta í fyrramálið. Hann segir óþægilegt að hafa fylgst með starfsfólk Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu flýja úr borginni í morgun. Innlent 26.2.2022 18:30 „Erfitt að sjá fólk sem í ofsareiði og af óskiljanlegum ástæðum vill tortíma okkur“ Sendiherra Úkraínu í Finnlandi og Íslandi kallar eftir því að íslensk stjórnvöld slíti stjórnmálasambandi við Rússland og vísi rússneska sendiherranum úr landi. Hann voni að rússneskur almenningur geri uppreisn annars verði skömmin og blóð Úkraínumanna á þeirra höndum næstu aldirnar. Innlent 26.2.2022 16:01 Búast við rússneskum netárásum á Ísland Aðstoðarforstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að viðbúnaður hér á landi vegna yfirvofandi netárása Rússa hafi aukist, sem og í öðrum ríkjum Atlantshafsbandalagsins. Alþjóðlegur hópur hakkara hefur ráðist á Rússa með góðum árangri, en búast má við því að Rússar ráðist á netinnviði NATO-ríkja. Innlent 26.2.2022 14:18 „Ég vaknaði nokkrum sinnum við sprengingar og byssuhvelli“ Miklir bardagar voru í Kænugarði í nótt og heyra mátti sprengingar og byssuhvelli. Borgarstjóri Kænugarðs sagði í tilkynningu í morgun að 35 almennir borgarar hafi særst í átökunum í nótt, þar af tvö börn. Innlent 26.2.2022 09:30 Útilokar ekki að slíta stjórnmálasambandi við Rússa Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að íslensk stjórnvöld muni slíta stjórnmálasamstarfi við Rússa. Minni þolinmæði sé fyrir rússneskum kafbátum og herþotum sem reglulega rjúfi lofthelgi Íslands en algjört slit stjórnmálasambands yrði þó líklega síðasta úrræði sem stjórnvöld gripu til. Innlent 26.2.2022 09:19 « ‹ 52 53 54 55 56 57 58 59 60 … 78 ›
Biðja Abramovich um hjálp í friðarviðræðum við Pútín Úkraínsk yfirvöld hafa leitað til rússneska milljarðarmæringsins Roman Abramovich, sem er eigandi fótboltaliðsins Chelsea, og óskað eftir aðstoð hans í yfirstandandi friðarviðræðum Úkraínumanna við Rússa, að sögn talsmanns Abramovich. Erlent 28.2.2022 14:00
Á flótta úr borginni þegar hermaður skaut flugskeyti í veg fyrir bílinn Íslenskur maður búsettur í Kænugarði segir það hafa verið tilfinningaþrungna stund að komast loks yfir landamærin til Ungverjalands í gærkvöldi eftir sextíu klukkustunda ferðalag. Fjölskyldan þurfti ítrekað að skipta alveg um stefnu á leið sinni, í eitt skiptið eftir að flugskeyti var skotið í veg fyrir bíl þeirra. Erlent 28.2.2022 13:41
Bandaríkin loka sendiráðinu í Hvíta-Rússlandi Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að loka sendiráði sínu í Hvíta-Rússlandi vegna ólgunnar eftir innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 28.2.2022 13:30
Ingólfur Bjarni ekki stríðsfréttaritari Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks hafa sent út tilkynningar sama efnis þar sem þau lýsa miklum létti, að fréttamaðurinn Ingólfur Bjarni Sigfússon og Ingvar Haukur Guðmundsson tökumaður, séu komnir yfir landamæri Úkraínu og Póllands. En þeir héldu til Úkraínu á miðvikudag til að greina stöðu mála. Innlent 28.2.2022 13:22
Rúmlega hálf milljón Úkraínumanna á flótta Sameinuðu þjóðirnar áætla nú að rúmlega hálf milljón manna hafi flúið heimili sín vegna stríðsátakanna í Úkraínu eftir innrás Rússa. Hörð átök eru enn víða í landinu, en Rússar hafa meðal annars ráðist á stórborgir á borð við Kænugarð. Kharkív og Tsjernihív. Erlent 28.2.2022 13:00
Vel yfir 14 milljónir safnast í neyðarsöfnun fyrir Úkraínubúa Vel yfir 14 milljónir hafa safnast á fáeinum dögum í neyðarsöfnun Rauða krossins vegna átakanna í Úkraínu. Ákall er eftir sendifulltrúum til starfa á átakasvæðinu og þar í kring. Innlent 28.2.2022 12:21
Falleg stund þegar Roman Yaremchuk fékk fyrirliðaband Benfica Úkraínski framherjinn Roman Yaremchuk spilaði seinasta hálftíma leiksins er Benfica vann 3-0 sigur gegn Vitoria de Guimaraes í portúgölsku deildinni í fótbolta í gær og fékk vægast sagt mikinn stuðning áhorfenda og liðsfélaga sinna þegar hann kom inn af varamannabekknum. Fótbolti 28.2.2022 09:01
Rúblan hríðfellur og bann á sölu á eignum í Rússlandi Rússneski seðlabankinn bannaði í morgun sölu erlendra aðila á hlutabréfum og eignum í Rússlandi. Erlent 28.2.2022 08:42
Klitschko boxbræðurnir báðir í stríðið gegn Rússum: „Ég verð að berjast“ Tvær af stærstu íþróttastjörnum Úkraínumanna í sögunni eru meðal þeirra sem hafa haldið kyrru fyrir í landinu til að berjast gegn innrás rússneska hersins. Sport 28.2.2022 08:30
Vaktin: Forsetinn kallar eftir flugbanni yfir Úkraínu Sókn rússnesks herliðs að úkraínsku höfuðborginni Kænugarði hélt áfram í nótt og í morgun, þó hún hafi verið umfangsminni en áður. Forseti Úkraínu hefur kallað eftir því að flugbanni verði komið á yfir landinu. Erlent 28.2.2022 06:13
„Ég á engin orð til þess að lýsa tilfinningum mínum“ Mörghundruð manns sýndu Úkraínumönnum samstöðu og mótmæltu stríðinu í miðbæ Reykjavíkur í dag. Mótmælendur kröfðust þess að rússneski sendiherrann yrði sendur heim og fordæmdu Rússlandsforseta. Innlent 27.2.2022 23:01
Úkraína í herkví: Afturgöngur sögunnar Má rekja neyðarástandið sem umlykur Úkraínu til sögulegra mistaka leiðtoga Vesturveldanna, þegar samið var við Gorbachev um endalok Kalda stríðsins á árunum um og upp úr 1990? Skoðun 27.2.2022 21:30
Fjögurra daga stríð en átta ára stríðsástand Ágreining Rússa og Úkraínumanna má rekja allt aftur til falls Sovétríkjanna árið 1991 þegar Úkraína lýsti yfir sjálfstæði. Erlent 27.2.2022 21:01
Telur nýjasta útspil Pútíns sýna leikaraskap og örvæntingu Friðrik Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, telur að nýjasta útspil Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, að skipa kjarnorkusveitum sínum að vera í viðbragðsstöðu, endurspegla leikaraskap og örvæntingu af hálfu Pútíns. Erlent 27.2.2022 19:03
Vildi ferðast og eignast hund en dreymir nú um sprengjubyrgi til að verja fjölskylduna 23 ára úkraínskur kennari sem flúið hefur Kænugarð segir að Rússar hafi skotið níu ára stelpu og foreldra hennar til bana á götum borgarinnar í gær. Maria Huresh segir að átökin hafi lagt líf Úkraínumanna í rúst og hún þrái nú fátt heitar en að eignast heimili með stóru sprengjubyrgi til að tryggja öryggi fjölskyldu sinnar. Erlent 27.2.2022 17:32
Flugáhugamenn uggandi um stærstu flugvél heims Flugáhugamenn um heim allan hafa síðustu sólarhringa beðið áhyggjufullir fregna af örlögum stærstu flugvélar heims, hinnar úkraínsku Antonov An 225. Eitt af fyrstu skotmörkum rússneska hersins í innrásinni í Úkraínu var nefnilega Antonov-flugvöllurinn við bæinn Hostomel, sem er heimaflugvöllur risaþotunnar. Utanríkisráðherra Úkraínu lýsti því yfir síðdegis að Rússar hefðu eyðilagt flugvélina en hún var eitt helsta stolt Úkraínumanna. Erlent 27.2.2022 14:14
Rússar og Úkraínumenn hittast til friðarviðræðna Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur samþykkt að senda nefnd til landamæra Hvíta-Rússlands til friðarviðræðna við rússneska sendinefnd sem kom til landsins í dag. Erlent 27.2.2022 14:12
Pútín virkjar hersveitir sem sjá um fælingarvopn Rússa Þær hersveitir sem halda utan um fælingarvopn Rússa hafa verið settar í viðbragðsstöðu af Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann segir þetta gert vegna „óvinsamlegra“ aðgerða vesturveldanna gegn Rússlandi. Erlent 27.2.2022 13:53
Í biðröð til að komast til Póllands: „Það er eins og það sé heimsendir“ Úkraínsk kona, sem fréttastofa hefur verið í sambandi við, hefur verið föst í bílaröð við landamærin að Póllandi frá því á aðfaranótt föstudags. Enn er fjöldi fólks á undan henni í röðinni og hún ekki örugg. Rússneski herinn sprengdi upp húsnæði úkraínska hersins í nágrenninu í nótt. Erlent 27.2.2022 12:16
Ísland lokar fyrir flugumferð Rússa og vegabréfaáritun ekki í boði fyrir diplómata Ísland hefur lokað fyrir flugumferð Rússa í loftrými Íslands. Þá fá rússneskir diplómatar og viðskiptamenn ekki að koma til landsins en búið er að loka fyrir vegabréfsáritanir þeirra. Innlent 27.2.2022 10:19
Boða til mótmæla um allt land í dag Boðað hefur verið til mótmæla- og samstöðufunda í Reykjavík, á Akureyri og Reyðarfirði í dag vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Innlent 27.2.2022 10:17
Götubardagar og sprengingar í Kænugarði í alla nótt en nú dauðaþögn Enn ein erfið nótt er liðin í Úkraínu og var hart barist í öllum stærstu borgum landsins. Útgöngubann er í gildi í Kænugarði og verður í gildi þar til klukkan átta í fyrramálið. Íbúi í Kænugarði segir hörðustu bardagana háða í skjóli nætur. Innlent 27.2.2022 08:37
Úkraínuvaktin: Úkraínuforseti ræðir við leiðtoga vesturlanda og ýjar að ESB-aðild Nýjar gervihnattamyndir sýna nokkurra kílómetra langa bílalest, sem inniheldur meðal annars skriðdreka, stefna í átt að Kænugarði. Erlent 27.2.2022 07:31
Frysta eigur Seðlabanka Rússlands og aftengja vissa banka frá SWIFT Ríki Evrópusambandsins, Bandaríkin, Bretland og Kanada hafa komist að samkomulagi um að loka aðgangi tiltekinna rússneskra banka að SWIFT, greiðslukerfi sem notað er við miðlun fjármuna milli alþjóðlegra banka. Erlent 26.2.2022 22:37
Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá SWIFT Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá greiðslukerfi sem notað er til að miðla fjármunum milli alþjóðlegra banka en rússneskir hermenn hafa nú tekið að beina sprengjuárásum að spítölum og skólum í Úkraínu. Erlent 26.2.2022 20:01
„Enn þá meiri uggur í mér“ Íslendingur sem býr í Kænugarði segist lítið hafa sofið í nótt fyrir sprengingum. Útgöngubann tók gildi þar klukkan þrjú í dag og stendur til átta í fyrramálið. Hann segir óþægilegt að hafa fylgst með starfsfólk Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu flýja úr borginni í morgun. Innlent 26.2.2022 18:30
„Erfitt að sjá fólk sem í ofsareiði og af óskiljanlegum ástæðum vill tortíma okkur“ Sendiherra Úkraínu í Finnlandi og Íslandi kallar eftir því að íslensk stjórnvöld slíti stjórnmálasambandi við Rússland og vísi rússneska sendiherranum úr landi. Hann voni að rússneskur almenningur geri uppreisn annars verði skömmin og blóð Úkraínumanna á þeirra höndum næstu aldirnar. Innlent 26.2.2022 16:01
Búast við rússneskum netárásum á Ísland Aðstoðarforstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að viðbúnaður hér á landi vegna yfirvofandi netárása Rússa hafi aukist, sem og í öðrum ríkjum Atlantshafsbandalagsins. Alþjóðlegur hópur hakkara hefur ráðist á Rússa með góðum árangri, en búast má við því að Rússar ráðist á netinnviði NATO-ríkja. Innlent 26.2.2022 14:18
„Ég vaknaði nokkrum sinnum við sprengingar og byssuhvelli“ Miklir bardagar voru í Kænugarði í nótt og heyra mátti sprengingar og byssuhvelli. Borgarstjóri Kænugarðs sagði í tilkynningu í morgun að 35 almennir borgarar hafi særst í átökunum í nótt, þar af tvö börn. Innlent 26.2.2022 09:30
Útilokar ekki að slíta stjórnmálasambandi við Rússa Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að íslensk stjórnvöld muni slíta stjórnmálasamstarfi við Rússa. Minni þolinmæði sé fyrir rússneskum kafbátum og herþotum sem reglulega rjúfi lofthelgi Íslands en algjört slit stjórnmálasambands yrði þó líklega síðasta úrræði sem stjórnvöld gripu til. Innlent 26.2.2022 09:19