Orkumál Eins og að kynda upp stóran hluta Ísafjarðar Á næsta ári munu smærri skemmtiferðaskip að öllum líkindum geta landtengt sig á Ísafirði. Hafnarstjóri segir að sterkari flutningsgetu þurfi á höfnina fyrir stærri skip. Orkustjóri Orkubús Vestfjarða segir nauðsynlegt að virkja meira á Vestfjörðum. Innlent 26.7.2023 21:01 Ekki upplifun ON að erfitt sé að komast um landið á rafmagnsbíl Guðjón Hugberg, tæknistjóri hleðsluþjónustu hjá Orku náttúrunnar, segir ekki upplifun fyrirtækisins að „rosalega“ erfitt sé að komast um landið á rafmagnsbíl vegna skorts á rafhleðslustöðvum. Innlent 24.7.2023 22:54 Hvetja fólk til að hlaða í 80 prósent Orka Náttúrunnar (ON) hvetur rafbílaeigendur til að hlaða bíla sína aðeins upp í 80 prósent eða nóg til að komast á næsta áfangastað. Það sé tillitssemi þegar aðrir séu að bíða eftir að komast að. Innlent 22.7.2023 07:46 Vilja færa höfuðstöðvar Landsvirkjunar til Hellu Byggðarráð Rangárþings ytra hefur sent áskorun á stjórn Landsvirkjunar, ráðherra og þingmenn að byggja nýjar höfuðstöðvar Landsvirkjunar á Hellu. Landsvirkjun flytur nú úr mygluðu húsnæði á Háaleitisbraut. Innlent 18.7.2023 12:35 Er metanvæðingin óttalegt prump? Undanfarin misseri hafa borist okkur vægast sagt misvísandi skilaboð af ástandi metan-mála á Íslandi. Sorpa hamast við að framleiða meira metan en áður og áformar aðgerðir til að mæta aukinni eftirspurn. Tölfræði um eldsneytissölu á metani á Akureyri sýnir einnig glöggt að salan hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, svo eftirspurn eftir metani sem eldsneyti á ökutæki virðist ekki vera vandamál. Skoðun 17.7.2023 13:00 Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. Innlent 16.7.2023 22:20 Ættum að marka stefnu um uppbyggingu gagnavera eins og hin Norðurlöndin Hin Norðurlöndin hafa gert markvissar áætlanir um hvernig megi byggja upp gagnaversiðnað enda skapar hann vel launuð störf, auknar gjaldeyristekjur og er góð leið til að fjölga eggjum í körfunni þegar kemur að orkusölu. Ísland ætti að gera slíkt hið sama. Spár gera ráð fyrir að þörf fyrir reikniafl og gagnageymslu í heiminum muni margfaldast á næstu árum, segir formaður Samtaka gagnavera í viðtali við Innherja. Innherji 15.7.2023 09:00 Framkvæmdir hafnar vegna nýrra vindmylla í Þykkvabæ Framkvæmdir eru hafnar í Þykkvabæ vegna tveggja vindmylla, sem fyrirhugað er að rísi í september á undirstöðum þeirra vindmylla sem þar stóðu áður. Ný viðhorfskönnun sýnir að sextíu prósent íbúa í Þykkvabæ eru andvígir nýjum vindmyllum. Innlent 5.7.2023 22:22 Meirihluti íbúa á móti vindmyllum í Þykkvabæ Aðeins rúmur þriðjungur íbúa í Þykkvabæ og nágrenni eru hlynntir því að nýjar vindmyllur verði reistar í stað annarra sem voru teknar niður í fyrra. Töluverður munur var á afstöðu íbúa eftir því hversu nálægt þeir búa við fyrirhugaðar vindrafstöðvar. Innlent 4.7.2023 11:20 Segir taka mánuði að skoða nýtt virkjunarleyfi í Þjórsá Orkustofnun og Umhverfisstofnun vinna núna að því að bæta úr þeim ágöllum sem urðu til þess að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í Þjórsá var fellt úr gildi. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir skipta miklu máli að vanda til verka. Innlent 3.7.2023 22:11 Kanna hvort kyndilborun geti flýtt gerð jarðganga á Íslandi Þetta gæti hljómað eins og í gömlu ævintýri að eldspúandi dreki bori göng í gegnum íslensk fjöll. Hugmyndin er samt ekki galnari en svo ríkisstjórnin eru búin að undirrita viljayfirlýsingu til að kanna hvort slík aðferð gæti stórlækkað kostnað og aukið afköst við gerð jarðganga hérlendis. Innlent 30.6.2023 21:10 Áralöngu ferli lokið með samkomulagi eftir nokkurra vikna viðræður Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 á næsta ári, en línan á að tryggja raforkuöryggi íbúa og atvinnulífs á Suðurnesjum og skapa tækifæri til uppbyggingar. Eftir áralangt þras hafa Vogar og Landsnet komist að samkomulagi um framkvæmdina, að loknum snörpum viðræðum. Innlent 30.6.2023 19:33 Suðurnesjalína 1 í jörð með langþráðu samkomulagi Landsnet og Sveitarfélagið Vogar undirrituðu í dag samkomulag um lagningu Suðurnesjalínu 2 og breytingar á Suðurnesjalínu 1. Deilt hefur verið um Suðurnesjalínu 2 í hátt í tvo áratugi en henni er ætlað að tryggja afhendingaröryggi rafmagns á Suðurnesjum. Innlent 30.6.2023 12:30 Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort á næstu árum ef ekki verður losað um þau virkjanaáform sem sitja föst í kerfinu. Hann skorar á sveitarfélög að blanda ekki lögbundinni skipulagsskyldu inn í ágreining við ríkið um tekjustofna. Innlent 29.6.2023 21:48 Segir að einfalt ætti að vera að fá heimild fyrir Hvammsvirkjun Forstjóri Landsvirkjunar segir að það ætti að vera tiltölulega einfalt mál að fá aftur virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun, aðeins hafi vantað samtal milli tveggja ríkisstofnana. Hann gagnrýnir úrskurðarnefnd fyrir að fella leyfið úr gildi og koma þannig í veg fyrir að mikilvægar framkvæmdir hefjist í sumar. Innlent 28.6.2023 21:30 Vilja reisa vindorkugarða við Hellisheiði Orkuveita Reykjavíkur (OR) er búin að leggja fram beiðni til Orkustofnunar vegna þriggja vindorkukosta, tveir í Ölfusi en einn við Lyklafell í Mosfellsbæ. Þegar er búið að kynna hlutðeigandi bæjar- og sveitarstjórum fyrir þeim kostum sem eru til skoðunar. Innlent 28.6.2023 10:56 Kanna hvort eldspúandi dreki geti brætt göt á íslensk fjöll Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa undirritað viljayfirlýsingu við fulltrúa bandaríska fyrirtækisins EarthGrid um möguleika á notkun svokallaðrar kyndilborunar, eða plasma-borunar, við gerð jarðganga á Íslandi. Jarðgöng fyrir umferð og lagnagöng fyrir vatnsveitur og rafveitur eru meðal þeirra verkefna sem talin eru upp í viljayfirlýsingunni. Innlent 27.6.2023 12:02 Isavia semur um uppbyggingu hleðslustöðva í Keflavík Fulltrúar Isavia og HS Orku hafa skrifað undir samning um uppsetningu á fjölda hleðslustöðva fyrir rafbíla á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að um langtíma verkefni sé að ræða. Viðskipti innlent 23.6.2023 13:17 Búrfellslundur settur í bið og óvissa um Hvammsvirkjun Uppbygging vindorkuvera hérlendis er í uppnámi eftir að Skeiða- og Gnúpverjahreppur setti Búrfellslund, sem Landsvirkjun áformar, í biðstöðu. Sveitarstjórnin hyggst með þessu knýja á um að sveitarfélög og nærsamfélög fái hærri tekjur af orkuverum. Innlent 23.6.2023 09:54 Raforkuþurrð eða léleg forgangsröðun? „Ísland getur orðið fyrsta landið í heiminum til að nota eingöngu græna, endurnýjanlega orku. Við notum um milljón tonn af olíu á ári og borgum 100 milljarða króna fyrir. Gætum við hætt því, fengið hreinna loft og bætt lífskjör á Íslandi í leiðinni?“ Skoðun 21.6.2023 13:00 Svandís með dóma á bakinu fyrir ólögmæta stjórnsýslu Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum. Innlent 21.6.2023 12:00 97.000.000.000.000 gígabæt Rúmlega fimm milljarðar manna eru virkir á netinu. Á hverjum degi bætist við gagnamagnið sem þarf að geyma og vinna úr fyrir framtíðina - hundruð milljóna tölvupósta, stöðuuppfærslna, tísta, mynda, myndbanda, skjala og skráa en einnig líkana fyrir veðurspár, heilbrigðisþjónustu, menntaþjónustu, framleiðslukerfi, samgöngukerfi, samskiptakerfi og fleira sem nútímasamfélag okkar byggir á. Skoðun 17.6.2023 08:00 Umhverfisráðherra segir Íslendinga ekki geta beðið eftir grænni orku Umhverfis- og orkumálaráðherra segir útilokað að bíða með öflun grænnar orku á Íslandi ef Íslendingar ætli að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum. Nú verði kannað hvað fór úrskeiðis við virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar og það megi ekki taka langan tíma. Laga þurfi umsóknarferli vegna virkjana án þess að gefa eftir í umhverfismálum. Innlent 16.6.2023 19:20 Markmið stjórnvalda og virkjana-framkvæmdir fylgjast ekki að Eini virkjanakosturinn sem Landsvirkjun var komin með á framkvæmdastig er í algerri óvissu eftir að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi í gær. Sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins segir stjórnvöld hafa brugðist í orkumálum. Allt of margar hindranir væru í kerfinu. Innlent 16.6.2023 11:44 Verndum vatnið okkar Það má segja að 16.júní sé afmælisdagur vatnsveitu í Reykjavík en þann dag árið 1909 var vatni fyrst hleypt á vatnsleiðsluna til Reykjavíkur. Lagning vatnsveitunnar var stærsta einstaka framkvæmd sem ráðist hafði verið í á þessum tíma en allt að 250 manns unnu við verkið haustið 1908 en þetta var fyrir almenna vélvæðingu. Skoðun 16.6.2023 10:31 Undirbúningur framkvæmda í uppnám Forstjóri Landsvirkjunar segir ljóst að undirbúningur framkvæmda við Hvammsvirkjun fari í uppnám eftir að virkjunarleyfi var fellt úr gildi. Til stóð að bjóða út fyrstu undirbúningsáfanga strax í næstu viku. Innlent 15.6.2023 22:55 Talsmaður laxaverndar fagnar og vonar að virkjunin sé úr sögunni Virkjunaráform í neðri Þjórsá eru í algerri óvissu eftir að úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála felldi virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi í dag, aðeins sólarhring eftir að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti framkvæmdaleyfi. Innlent 15.6.2023 20:20 Orkustofnun hafi átt að fara í mun nánari athugun Úskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag úr gildi virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Í ítarlegum úrskurði nefndarinnar kemur meðal annars fram að Orkustofnun hafi, í ljósi umfangs framkvæmdanna, átt að fara í mun nánari athugun á leyfinu með hliðsjón af vatnaáætlun. Innlent 15.6.2023 19:35 Vonbrigði og slæmar fréttir fyrir íslenskt samfélag Landsvirkjun segir úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þar sem virkjunarleyfi Hvammsvikjunar er fellt úr gildi, vonbrigði. Ákvörðunin komi á óvart. Innlent 15.6.2023 17:49 Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar fellt úr gildi Úrskurðarefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt virkjunarleyfi Orkustofnunar vegna Hvammsvirkjunar úr gildi á grundvelli vatnatilskipunar. Innlent 15.6.2023 16:10 « ‹ 16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 61 ›
Eins og að kynda upp stóran hluta Ísafjarðar Á næsta ári munu smærri skemmtiferðaskip að öllum líkindum geta landtengt sig á Ísafirði. Hafnarstjóri segir að sterkari flutningsgetu þurfi á höfnina fyrir stærri skip. Orkustjóri Orkubús Vestfjarða segir nauðsynlegt að virkja meira á Vestfjörðum. Innlent 26.7.2023 21:01
Ekki upplifun ON að erfitt sé að komast um landið á rafmagnsbíl Guðjón Hugberg, tæknistjóri hleðsluþjónustu hjá Orku náttúrunnar, segir ekki upplifun fyrirtækisins að „rosalega“ erfitt sé að komast um landið á rafmagnsbíl vegna skorts á rafhleðslustöðvum. Innlent 24.7.2023 22:54
Hvetja fólk til að hlaða í 80 prósent Orka Náttúrunnar (ON) hvetur rafbílaeigendur til að hlaða bíla sína aðeins upp í 80 prósent eða nóg til að komast á næsta áfangastað. Það sé tillitssemi þegar aðrir séu að bíða eftir að komast að. Innlent 22.7.2023 07:46
Vilja færa höfuðstöðvar Landsvirkjunar til Hellu Byggðarráð Rangárþings ytra hefur sent áskorun á stjórn Landsvirkjunar, ráðherra og þingmenn að byggja nýjar höfuðstöðvar Landsvirkjunar á Hellu. Landsvirkjun flytur nú úr mygluðu húsnæði á Háaleitisbraut. Innlent 18.7.2023 12:35
Er metanvæðingin óttalegt prump? Undanfarin misseri hafa borist okkur vægast sagt misvísandi skilaboð af ástandi metan-mála á Íslandi. Sorpa hamast við að framleiða meira metan en áður og áformar aðgerðir til að mæta aukinni eftirspurn. Tölfræði um eldsneytissölu á metani á Akureyri sýnir einnig glöggt að salan hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, svo eftirspurn eftir metani sem eldsneyti á ökutæki virðist ekki vera vandamál. Skoðun 17.7.2023 13:00
Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. Innlent 16.7.2023 22:20
Ættum að marka stefnu um uppbyggingu gagnavera eins og hin Norðurlöndin Hin Norðurlöndin hafa gert markvissar áætlanir um hvernig megi byggja upp gagnaversiðnað enda skapar hann vel launuð störf, auknar gjaldeyristekjur og er góð leið til að fjölga eggjum í körfunni þegar kemur að orkusölu. Ísland ætti að gera slíkt hið sama. Spár gera ráð fyrir að þörf fyrir reikniafl og gagnageymslu í heiminum muni margfaldast á næstu árum, segir formaður Samtaka gagnavera í viðtali við Innherja. Innherji 15.7.2023 09:00
Framkvæmdir hafnar vegna nýrra vindmylla í Þykkvabæ Framkvæmdir eru hafnar í Þykkvabæ vegna tveggja vindmylla, sem fyrirhugað er að rísi í september á undirstöðum þeirra vindmylla sem þar stóðu áður. Ný viðhorfskönnun sýnir að sextíu prósent íbúa í Þykkvabæ eru andvígir nýjum vindmyllum. Innlent 5.7.2023 22:22
Meirihluti íbúa á móti vindmyllum í Þykkvabæ Aðeins rúmur þriðjungur íbúa í Þykkvabæ og nágrenni eru hlynntir því að nýjar vindmyllur verði reistar í stað annarra sem voru teknar niður í fyrra. Töluverður munur var á afstöðu íbúa eftir því hversu nálægt þeir búa við fyrirhugaðar vindrafstöðvar. Innlent 4.7.2023 11:20
Segir taka mánuði að skoða nýtt virkjunarleyfi í Þjórsá Orkustofnun og Umhverfisstofnun vinna núna að því að bæta úr þeim ágöllum sem urðu til þess að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í Þjórsá var fellt úr gildi. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir skipta miklu máli að vanda til verka. Innlent 3.7.2023 22:11
Kanna hvort kyndilborun geti flýtt gerð jarðganga á Íslandi Þetta gæti hljómað eins og í gömlu ævintýri að eldspúandi dreki bori göng í gegnum íslensk fjöll. Hugmyndin er samt ekki galnari en svo ríkisstjórnin eru búin að undirrita viljayfirlýsingu til að kanna hvort slík aðferð gæti stórlækkað kostnað og aukið afköst við gerð jarðganga hérlendis. Innlent 30.6.2023 21:10
Áralöngu ferli lokið með samkomulagi eftir nokkurra vikna viðræður Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 á næsta ári, en línan á að tryggja raforkuöryggi íbúa og atvinnulífs á Suðurnesjum og skapa tækifæri til uppbyggingar. Eftir áralangt þras hafa Vogar og Landsnet komist að samkomulagi um framkvæmdina, að loknum snörpum viðræðum. Innlent 30.6.2023 19:33
Suðurnesjalína 1 í jörð með langþráðu samkomulagi Landsnet og Sveitarfélagið Vogar undirrituðu í dag samkomulag um lagningu Suðurnesjalínu 2 og breytingar á Suðurnesjalínu 1. Deilt hefur verið um Suðurnesjalínu 2 í hátt í tvo áratugi en henni er ætlað að tryggja afhendingaröryggi rafmagns á Suðurnesjum. Innlent 30.6.2023 12:30
Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort Forstjóri Landsvirkjunar segir stefna í erfiðan raforkuskort á næstu árum ef ekki verður losað um þau virkjanaáform sem sitja föst í kerfinu. Hann skorar á sveitarfélög að blanda ekki lögbundinni skipulagsskyldu inn í ágreining við ríkið um tekjustofna. Innlent 29.6.2023 21:48
Segir að einfalt ætti að vera að fá heimild fyrir Hvammsvirkjun Forstjóri Landsvirkjunar segir að það ætti að vera tiltölulega einfalt mál að fá aftur virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun, aðeins hafi vantað samtal milli tveggja ríkisstofnana. Hann gagnrýnir úrskurðarnefnd fyrir að fella leyfið úr gildi og koma þannig í veg fyrir að mikilvægar framkvæmdir hefjist í sumar. Innlent 28.6.2023 21:30
Vilja reisa vindorkugarða við Hellisheiði Orkuveita Reykjavíkur (OR) er búin að leggja fram beiðni til Orkustofnunar vegna þriggja vindorkukosta, tveir í Ölfusi en einn við Lyklafell í Mosfellsbæ. Þegar er búið að kynna hlutðeigandi bæjar- og sveitarstjórum fyrir þeim kostum sem eru til skoðunar. Innlent 28.6.2023 10:56
Kanna hvort eldspúandi dreki geti brætt göt á íslensk fjöll Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa undirritað viljayfirlýsingu við fulltrúa bandaríska fyrirtækisins EarthGrid um möguleika á notkun svokallaðrar kyndilborunar, eða plasma-borunar, við gerð jarðganga á Íslandi. Jarðgöng fyrir umferð og lagnagöng fyrir vatnsveitur og rafveitur eru meðal þeirra verkefna sem talin eru upp í viljayfirlýsingunni. Innlent 27.6.2023 12:02
Isavia semur um uppbyggingu hleðslustöðva í Keflavík Fulltrúar Isavia og HS Orku hafa skrifað undir samning um uppsetningu á fjölda hleðslustöðva fyrir rafbíla á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að um langtíma verkefni sé að ræða. Viðskipti innlent 23.6.2023 13:17
Búrfellslundur settur í bið og óvissa um Hvammsvirkjun Uppbygging vindorkuvera hérlendis er í uppnámi eftir að Skeiða- og Gnúpverjahreppur setti Búrfellslund, sem Landsvirkjun áformar, í biðstöðu. Sveitarstjórnin hyggst með þessu knýja á um að sveitarfélög og nærsamfélög fái hærri tekjur af orkuverum. Innlent 23.6.2023 09:54
Raforkuþurrð eða léleg forgangsröðun? „Ísland getur orðið fyrsta landið í heiminum til að nota eingöngu græna, endurnýjanlega orku. Við notum um milljón tonn af olíu á ári og borgum 100 milljarða króna fyrir. Gætum við hætt því, fengið hreinna loft og bætt lífskjör á Íslandi í leiðinni?“ Skoðun 21.6.2023 13:00
Svandís með dóma á bakinu fyrir ólögmæta stjórnsýslu Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum. Innlent 21.6.2023 12:00
97.000.000.000.000 gígabæt Rúmlega fimm milljarðar manna eru virkir á netinu. Á hverjum degi bætist við gagnamagnið sem þarf að geyma og vinna úr fyrir framtíðina - hundruð milljóna tölvupósta, stöðuuppfærslna, tísta, mynda, myndbanda, skjala og skráa en einnig líkana fyrir veðurspár, heilbrigðisþjónustu, menntaþjónustu, framleiðslukerfi, samgöngukerfi, samskiptakerfi og fleira sem nútímasamfélag okkar byggir á. Skoðun 17.6.2023 08:00
Umhverfisráðherra segir Íslendinga ekki geta beðið eftir grænni orku Umhverfis- og orkumálaráðherra segir útilokað að bíða með öflun grænnar orku á Íslandi ef Íslendingar ætli að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum. Nú verði kannað hvað fór úrskeiðis við virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar og það megi ekki taka langan tíma. Laga þurfi umsóknarferli vegna virkjana án þess að gefa eftir í umhverfismálum. Innlent 16.6.2023 19:20
Markmið stjórnvalda og virkjana-framkvæmdir fylgjast ekki að Eini virkjanakosturinn sem Landsvirkjun var komin með á framkvæmdastig er í algerri óvissu eftir að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi í gær. Sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins segir stjórnvöld hafa brugðist í orkumálum. Allt of margar hindranir væru í kerfinu. Innlent 16.6.2023 11:44
Verndum vatnið okkar Það má segja að 16.júní sé afmælisdagur vatnsveitu í Reykjavík en þann dag árið 1909 var vatni fyrst hleypt á vatnsleiðsluna til Reykjavíkur. Lagning vatnsveitunnar var stærsta einstaka framkvæmd sem ráðist hafði verið í á þessum tíma en allt að 250 manns unnu við verkið haustið 1908 en þetta var fyrir almenna vélvæðingu. Skoðun 16.6.2023 10:31
Undirbúningur framkvæmda í uppnám Forstjóri Landsvirkjunar segir ljóst að undirbúningur framkvæmda við Hvammsvirkjun fari í uppnám eftir að virkjunarleyfi var fellt úr gildi. Til stóð að bjóða út fyrstu undirbúningsáfanga strax í næstu viku. Innlent 15.6.2023 22:55
Talsmaður laxaverndar fagnar og vonar að virkjunin sé úr sögunni Virkjunaráform í neðri Þjórsá eru í algerri óvissu eftir að úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála felldi virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi í dag, aðeins sólarhring eftir að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti framkvæmdaleyfi. Innlent 15.6.2023 20:20
Orkustofnun hafi átt að fara í mun nánari athugun Úskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í dag úr gildi virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Í ítarlegum úrskurði nefndarinnar kemur meðal annars fram að Orkustofnun hafi, í ljósi umfangs framkvæmdanna, átt að fara í mun nánari athugun á leyfinu með hliðsjón af vatnaáætlun. Innlent 15.6.2023 19:35
Vonbrigði og slæmar fréttir fyrir íslenskt samfélag Landsvirkjun segir úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þar sem virkjunarleyfi Hvammsvikjunar er fellt úr gildi, vonbrigði. Ákvörðunin komi á óvart. Innlent 15.6.2023 17:49
Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar fellt úr gildi Úrskurðarefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt virkjunarleyfi Orkustofnunar vegna Hvammsvirkjunar úr gildi á grundvelli vatnatilskipunar. Innlent 15.6.2023 16:10