Stj.mál Vilja gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu og sjúkraþjálfun Vinstri grænir vilja að sálfræðiþjónusta og sjúkraþjálfun verði gjaldfrjáls. Þetta kemur fram í ályktun flokksins um heilbrigðsmál sem samþykkt var á landsfundi Vinstri grænna í gær. Flokkurinn hafnar einkavæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar og segist ætla að beita sér af alefli gegn áformum stjórnvalda um frekari einkavæðingu innan heilbrigðisþjónustunnar. Innlent 24.10.2005 15:09 VG ekki fyrsti kvenfrelsisflokkurinn Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs misskilur kvenfrelsið ef hann telur flokk sinn geta slegið eignarrétti á hugtakið segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Innlent 24.10.2005 11:44 Vill hækka skatt á fjármagnstekjur Fjármagnstekjuskatt ber að hækka segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir hækkun fjármagnstekjuskatts og lægri skatta á lægstu laun nauðsynleg til að draga úr ójöfnuði og bæta kjör elli- og örorkulífeyrisþega. Innlent 24.10.2005 08:46 Borgin fær hálfan milljarð Reykjavíkurborg fær allt að 488 milljónir króna fyrir byggingarétt á lóðum undir atvinnuhúsnæði í Norðlingaholti. Tilboð í lóðirnar voru opnuð fyrir helgi. Innlent 24.10.2005 08:38 Vilja ókeypis skólagöngu frá vöggu til grafar Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill leggja af samræmdar námskrár og er andvíg styttingu náms til stúdentsprófs. Skólagangan á að vera ókeypis frá vöggu til grafar. Þetta er meðal þess sem hreyfingin samþykkti á landsfundi sem lauk í dag. Innlent 23.10.2005 22:34 Þorgerður Katrín ekki hrifin af VG Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir stefnu Vinstri grænna sem og hinna stjórnarandstöðuflokkana arfavitlausa. Það sé stefna stjórnarflokkanna hins vegar ekki og það sjái hver sem vilji. Innlent 23.10.2005 17:51 Engin breyting á forystu VG Engin breyting varð á forystusveit Vinstri hreyfingarinnar-græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Sjálfkjörið var í helstu embætti. Innlent 23.10.2005 17:51 Jafnréttissjóður settur á fót Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að setja á fót rannsóknasjóð sem á að fjármagna kynjarannsóknir. Sjóðurinn nefnist Jafnréttissjóður og verður settur á fót á kvennafrídaginn næsta mánudag. Innlent 23.10.2005 17:51 Hnífjafnt í Póllandi Fylgi frambjóðendanna tveggja í forsetakosningunum í Póllandi er nánast hnífjafnt aðeins tveimur dögum fyrir síðari umferð kosninganna. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum er fylgi Donalds Tusks 48,8 prósent en fylgi Lechs Kaczynskis 50,2 prósent. Stjórnmálaskýrendur segja útilokað að spá fyrir um hvor stendur uppi sem sigurvegari. Erlent 23.10.2005 17:51 Segir þingmönnum sagt rangt til Alþingismönnum hefur verið sagt rangt til um stöðu varnarviðræðna, segir Össur Skarphéðinsson, skuggaráðherra utanríkismála hjá Samfylkingunni. Geir H. Haarde utanríkisráðherra vill ekki ræða málið. </font /> Innlent 23.10.2005 17:51 Vill mynda velferðarstjórn Steingrímur J. Sigfússon ítrekaði tilboð sitt til Samfylkingar um myndun velferðarstjórnar við upphaf landsfundar Vinstri-grænna sem hófst nú síðdegis. Á fjórða hundrað fulltrúar eiga rétt til setu á landsfundinum sem er stærsti landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs til þessa. Innlent 23.10.2005 17:51 Flokksþing VG hefst í dag Í drögum að stjórnmálaályktun Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs, sem fjallað verður um á flokksþinginu í dag, er þess krafist að þegar í stað verði hafist handa við aðgerðir til að styrkja stöðu útflutningsgreinanna. Innlent 23.10.2005 17:51 Björn segist ekki vanhæfur Dómsmálaráðherra telur sig ekki vanhæfan til að skipa nýjan saksóknara í Baugsmálinu. Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði dómsmálaráðherra á þingi hvort ekki væri óheppilegt að hann viki ekki sæti þegar kæmi að því að skipa nýjan saksóknara í ljósi yfirlýsinga hans og annarra forystumanna í Sjálfstæðisflokknum um Baugsmálið. Innlent 23.10.2005 17:51 Heitur vetur framundan „Núna þarf að breyta" er yfirskrift landsfundar Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs sem hefst á Grand hóteli í dag. Nýjar áherslur eru á kvenfrelsi í tillögum sem fyrir fundinum liggja. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, segir flokkinn betur undir það búinn en nokkru sinni fyrr að fara í ríkisstjórn. Innlent 23.10.2005 17:57 Ágreiningur um varnarsamninginn Utanríkisráðherra segir Íslendinga og Bandaríkjamenn greina á um grundvöll viðræðna um varnarsamninginn. Formaður Vinstri grænna segir stjórnvöld biðja Bandaríkjamenn um tilgangslaus hernaðarumsvif peninganna vegna. Innlent 23.10.2005 17:57 Full ástæða til að safnast saman Hjól atvinnulífsins hægja verulega á sér upp úr hádegi á mánudag næstkomandi, þegar konur ganga út af vinnustöðum sínum og þramma niður á Ingólfstorg. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti, segir fulla ástæðu fyrir konur til að safnast saman og berjast fyrir rétti sínum. Innlent 23.10.2005 17:51 Vonsvikinn með hvernig miðar Utanríkisráðherrra var krafinn svara á Alþingi í dag um ástæður þess að slitnaði upp úr viðræðum um varnarsamninginn við Bandaríkjamenn og fullyrðingar þess efnis að formlegar viðræður væru ekki hafnar. Hann sagði vonbrigði að ekki hefði miðað meira áfram í viðræðum. Innlent 23.10.2005 17:51 Davíð byrjaður í Seðlabankanum Davíð Oddsson hóf störf sem seðlabankastjóri í dag. Honum var vel tekið af öðrum stjórnendum bankans en helsti fjandvinur hans úr pólitíkinni, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, notaði daginn til að hætta í bankaráði Seðlabankans. Innlent 23.10.2005 17:51 Skólastefnu og kvenfrelsi ber hæst Endurskoðun stjórnmálaályktunar þar sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð er skilgreind sem flokkur kvenfrelsis og viðamikil menntastefna eru meðal þess sem ber hæst á flokksþingi Vinstri-grænna sem hefst í dag að mati, Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins. Innlent 23.10.2005 17:51 63 prósent vilja Vilhjálm Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, nýtur mun meira fylgis en Gísli Marteinn Baldursson, mótframbjóðandi hans í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. Innlent 23.10.2005 17:51 Segja hátt gengi ekki skila sér Forsætisráðherra og þingmenn úr nær öllum flokkum gagnrýndu að hátt gengi íslensku krónunnar hefði ekki haft áhrif til lækkunar á matarverði. Þingmaður Samfylkingarinnar spurði hvort það væri almenn skoðun alþingismanna að íslenskir verslunareigendur væru hyski. Innlent 23.10.2005 17:51 Mótmæla frestun þingfundar Forseti Alþingis hefur ákveðið að fresta þingfundi Alþingis sem vera átti á kvennafrídaginn næstkomandi mánudag. Þingkonur Samfylkingarinnar mótmæltu og telja að með þessu sé vegið að kvennafrídeginum. Innlent 23.10.2005 17:50 Mótsögn í tilmælum borgarstjóra Leikskólastarfsmenn eru ósáttir við tilmæli Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra um að stjórnendur á vinnustöðum borgarinnar bregðist jákvætt við óskum kvenna um að leggja niður störf á mánudag vegna kvennafrídagsins án þess að skerða nauðsynlega þjónustu. Þeir segja slíkt ómögulegt. Innlent 23.10.2005 17:50 Hætt í Seðlabankaráði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að verða leyst undan setu í bankaráði Seðlabankans. Hún hefur ritað forseta Alþingis bréf þessa efnis sem lagt verður fyrir á fundi Alþingis í dag. Innlent 23.10.2005 17:57 Gengu af fundi um varnarliðið Viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna um framtíð varnarsamstarfsins eru í uppnámi eftir að samningamenn Íslands gengu af fundi í gær. Þeim líkaði ekki nýjustu tillögur Bandaríkjamanna. Innlent 23.10.2005 17:50 Skoða ný lög um sölu ríkiseigna Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur að endurskoða þurfi verklagsreglur um einkavæðingu og hugsanlega setja lög um sölu ríkiseigna. Hann hyggst nú skipa starfshóp sem í samráði við framkvæmdanefnd um einkavæðingu á að gera á tillögur um hvort rétt sé að endurskoða verklagsreglurnar. Tillaga Halldórs var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í gær. Innlent 23.10.2005 17:57 Á rétt á tæpum 2 milljónum Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra, hefur störf sem seðlabankastjóri í dag. Samkvæmt nýju eftirlaunalögunum hefur Davíð rétt á töku eftirlauna fyrir ráðherratíma sinn auk þess að þiggja laun sem seðlabankastjóri. Innlent 23.10.2005 17:57 Varðveitum sátt fjölmiðlanefndar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, spurði forsætisráðherra í upphafi þingfundar í gær hvort til stæði að rjúfa þá sátt sem hún teldi liggja fyrir í fjölmiðlamálinu og lagður hefði verið grunnur að í fjölmiðlanefnd sem skilaði niðurstöðum sínum síðastliðið vor. Innlent 23.10.2005 17:57 Fundað um varnarsamninginn í dag Fulltrúar íslenskra stjórnvalda funda með fulltrúum Bandaríkjastjórnar um framtíð varnarsamningsins í Washington í dag. Að sögn aðstoðarmanns Geirs H. Haarde utanríkisráðherra sér ekki fyrir endann á viðræðunum á næstunni en aðalágreiningsefnið er skipting kostnaðar við rekstur herstöðvarinnar. Innlent 23.10.2005 17:50 Samkomulag í Kópavogi Starfsmannafélag Kópavogs og launanefnd sveitarfélaga náðu nú á fjórða tímanum samkomulagi vegna nýrra kjarasamninga bæjarstarfsmanna Kópavogs. Innlent 23.10.2005 17:50 « ‹ 59 60 61 62 63 64 65 66 67 … 187 ›
Vilja gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu og sjúkraþjálfun Vinstri grænir vilja að sálfræðiþjónusta og sjúkraþjálfun verði gjaldfrjáls. Þetta kemur fram í ályktun flokksins um heilbrigðsmál sem samþykkt var á landsfundi Vinstri grænna í gær. Flokkurinn hafnar einkavæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar og segist ætla að beita sér af alefli gegn áformum stjórnvalda um frekari einkavæðingu innan heilbrigðisþjónustunnar. Innlent 24.10.2005 15:09
VG ekki fyrsti kvenfrelsisflokkurinn Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs misskilur kvenfrelsið ef hann telur flokk sinn geta slegið eignarrétti á hugtakið segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Innlent 24.10.2005 11:44
Vill hækka skatt á fjármagnstekjur Fjármagnstekjuskatt ber að hækka segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir hækkun fjármagnstekjuskatts og lægri skatta á lægstu laun nauðsynleg til að draga úr ójöfnuði og bæta kjör elli- og örorkulífeyrisþega. Innlent 24.10.2005 08:46
Borgin fær hálfan milljarð Reykjavíkurborg fær allt að 488 milljónir króna fyrir byggingarétt á lóðum undir atvinnuhúsnæði í Norðlingaholti. Tilboð í lóðirnar voru opnuð fyrir helgi. Innlent 24.10.2005 08:38
Vilja ókeypis skólagöngu frá vöggu til grafar Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill leggja af samræmdar námskrár og er andvíg styttingu náms til stúdentsprófs. Skólagangan á að vera ókeypis frá vöggu til grafar. Þetta er meðal þess sem hreyfingin samþykkti á landsfundi sem lauk í dag. Innlent 23.10.2005 22:34
Þorgerður Katrín ekki hrifin af VG Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir stefnu Vinstri grænna sem og hinna stjórnarandstöðuflokkana arfavitlausa. Það sé stefna stjórnarflokkanna hins vegar ekki og það sjái hver sem vilji. Innlent 23.10.2005 17:51
Engin breyting á forystu VG Engin breyting varð á forystusveit Vinstri hreyfingarinnar-græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Sjálfkjörið var í helstu embætti. Innlent 23.10.2005 17:51
Jafnréttissjóður settur á fót Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að setja á fót rannsóknasjóð sem á að fjármagna kynjarannsóknir. Sjóðurinn nefnist Jafnréttissjóður og verður settur á fót á kvennafrídaginn næsta mánudag. Innlent 23.10.2005 17:51
Hnífjafnt í Póllandi Fylgi frambjóðendanna tveggja í forsetakosningunum í Póllandi er nánast hnífjafnt aðeins tveimur dögum fyrir síðari umferð kosninganna. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum er fylgi Donalds Tusks 48,8 prósent en fylgi Lechs Kaczynskis 50,2 prósent. Stjórnmálaskýrendur segja útilokað að spá fyrir um hvor stendur uppi sem sigurvegari. Erlent 23.10.2005 17:51
Segir þingmönnum sagt rangt til Alþingismönnum hefur verið sagt rangt til um stöðu varnarviðræðna, segir Össur Skarphéðinsson, skuggaráðherra utanríkismála hjá Samfylkingunni. Geir H. Haarde utanríkisráðherra vill ekki ræða málið. </font /> Innlent 23.10.2005 17:51
Vill mynda velferðarstjórn Steingrímur J. Sigfússon ítrekaði tilboð sitt til Samfylkingar um myndun velferðarstjórnar við upphaf landsfundar Vinstri-grænna sem hófst nú síðdegis. Á fjórða hundrað fulltrúar eiga rétt til setu á landsfundinum sem er stærsti landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs til þessa. Innlent 23.10.2005 17:51
Flokksþing VG hefst í dag Í drögum að stjórnmálaályktun Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs, sem fjallað verður um á flokksþinginu í dag, er þess krafist að þegar í stað verði hafist handa við aðgerðir til að styrkja stöðu útflutningsgreinanna. Innlent 23.10.2005 17:51
Björn segist ekki vanhæfur Dómsmálaráðherra telur sig ekki vanhæfan til að skipa nýjan saksóknara í Baugsmálinu. Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði dómsmálaráðherra á þingi hvort ekki væri óheppilegt að hann viki ekki sæti þegar kæmi að því að skipa nýjan saksóknara í ljósi yfirlýsinga hans og annarra forystumanna í Sjálfstæðisflokknum um Baugsmálið. Innlent 23.10.2005 17:51
Heitur vetur framundan „Núna þarf að breyta" er yfirskrift landsfundar Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs sem hefst á Grand hóteli í dag. Nýjar áherslur eru á kvenfrelsi í tillögum sem fyrir fundinum liggja. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, segir flokkinn betur undir það búinn en nokkru sinni fyrr að fara í ríkisstjórn. Innlent 23.10.2005 17:57
Ágreiningur um varnarsamninginn Utanríkisráðherra segir Íslendinga og Bandaríkjamenn greina á um grundvöll viðræðna um varnarsamninginn. Formaður Vinstri grænna segir stjórnvöld biðja Bandaríkjamenn um tilgangslaus hernaðarumsvif peninganna vegna. Innlent 23.10.2005 17:57
Full ástæða til að safnast saman Hjól atvinnulífsins hægja verulega á sér upp úr hádegi á mánudag næstkomandi, þegar konur ganga út af vinnustöðum sínum og þramma niður á Ingólfstorg. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti, segir fulla ástæðu fyrir konur til að safnast saman og berjast fyrir rétti sínum. Innlent 23.10.2005 17:51
Vonsvikinn með hvernig miðar Utanríkisráðherrra var krafinn svara á Alþingi í dag um ástæður þess að slitnaði upp úr viðræðum um varnarsamninginn við Bandaríkjamenn og fullyrðingar þess efnis að formlegar viðræður væru ekki hafnar. Hann sagði vonbrigði að ekki hefði miðað meira áfram í viðræðum. Innlent 23.10.2005 17:51
Davíð byrjaður í Seðlabankanum Davíð Oddsson hóf störf sem seðlabankastjóri í dag. Honum var vel tekið af öðrum stjórnendum bankans en helsti fjandvinur hans úr pólitíkinni, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, notaði daginn til að hætta í bankaráði Seðlabankans. Innlent 23.10.2005 17:51
Skólastefnu og kvenfrelsi ber hæst Endurskoðun stjórnmálaályktunar þar sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð er skilgreind sem flokkur kvenfrelsis og viðamikil menntastefna eru meðal þess sem ber hæst á flokksþingi Vinstri-grænna sem hefst í dag að mati, Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins. Innlent 23.10.2005 17:51
63 prósent vilja Vilhjálm Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, nýtur mun meira fylgis en Gísli Marteinn Baldursson, mótframbjóðandi hans í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. Innlent 23.10.2005 17:51
Segja hátt gengi ekki skila sér Forsætisráðherra og þingmenn úr nær öllum flokkum gagnrýndu að hátt gengi íslensku krónunnar hefði ekki haft áhrif til lækkunar á matarverði. Þingmaður Samfylkingarinnar spurði hvort það væri almenn skoðun alþingismanna að íslenskir verslunareigendur væru hyski. Innlent 23.10.2005 17:51
Mótmæla frestun þingfundar Forseti Alþingis hefur ákveðið að fresta þingfundi Alþingis sem vera átti á kvennafrídaginn næstkomandi mánudag. Þingkonur Samfylkingarinnar mótmæltu og telja að með þessu sé vegið að kvennafrídeginum. Innlent 23.10.2005 17:50
Mótsögn í tilmælum borgarstjóra Leikskólastarfsmenn eru ósáttir við tilmæli Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra um að stjórnendur á vinnustöðum borgarinnar bregðist jákvætt við óskum kvenna um að leggja niður störf á mánudag vegna kvennafrídagsins án þess að skerða nauðsynlega þjónustu. Þeir segja slíkt ómögulegt. Innlent 23.10.2005 17:50
Hætt í Seðlabankaráði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að verða leyst undan setu í bankaráði Seðlabankans. Hún hefur ritað forseta Alþingis bréf þessa efnis sem lagt verður fyrir á fundi Alþingis í dag. Innlent 23.10.2005 17:57
Gengu af fundi um varnarliðið Viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna um framtíð varnarsamstarfsins eru í uppnámi eftir að samningamenn Íslands gengu af fundi í gær. Þeim líkaði ekki nýjustu tillögur Bandaríkjamanna. Innlent 23.10.2005 17:50
Skoða ný lög um sölu ríkiseigna Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur að endurskoða þurfi verklagsreglur um einkavæðingu og hugsanlega setja lög um sölu ríkiseigna. Hann hyggst nú skipa starfshóp sem í samráði við framkvæmdanefnd um einkavæðingu á að gera á tillögur um hvort rétt sé að endurskoða verklagsreglurnar. Tillaga Halldórs var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í gær. Innlent 23.10.2005 17:57
Á rétt á tæpum 2 milljónum Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra, hefur störf sem seðlabankastjóri í dag. Samkvæmt nýju eftirlaunalögunum hefur Davíð rétt á töku eftirlauna fyrir ráðherratíma sinn auk þess að þiggja laun sem seðlabankastjóri. Innlent 23.10.2005 17:57
Varðveitum sátt fjölmiðlanefndar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, spurði forsætisráðherra í upphafi þingfundar í gær hvort til stæði að rjúfa þá sátt sem hún teldi liggja fyrir í fjölmiðlamálinu og lagður hefði verið grunnur að í fjölmiðlanefnd sem skilaði niðurstöðum sínum síðastliðið vor. Innlent 23.10.2005 17:57
Fundað um varnarsamninginn í dag Fulltrúar íslenskra stjórnvalda funda með fulltrúum Bandaríkjastjórnar um framtíð varnarsamningsins í Washington í dag. Að sögn aðstoðarmanns Geirs H. Haarde utanríkisráðherra sér ekki fyrir endann á viðræðunum á næstunni en aðalágreiningsefnið er skipting kostnaðar við rekstur herstöðvarinnar. Innlent 23.10.2005 17:50
Samkomulag í Kópavogi Starfsmannafélag Kópavogs og launanefnd sveitarfélaga náðu nú á fjórða tímanum samkomulagi vegna nýrra kjarasamninga bæjarstarfsmanna Kópavogs. Innlent 23.10.2005 17:50