Tækni Google kaupir Motorola Tæknirisinn Google hefur tilkynnt að hann muni kaupa Motorola Mobility, sem er farsímahluti Motorola. Þessum kaupum fylgja allir símar sem Motorola framleiðir, sem og spjaldtölvur. Motorola Solutions, sem sér um fjarskiptalausnir fyrirtækisins, er ekki inni í kaupum Google og mun starfa áfram sjálfstætt. Þetta þykja mikil tíðindi í tækniheiminum þar sem Google mun nú sitja beggja vegna borðsiðns, sem eigandi og framleiðandi Android-stýrikerfisins, og svo nú sem einn stærsti framleiðandi snjallsíma sem keyra Android. Samkvæmt upplýsingum á bloggsíðu sem Google heldur úti mun Motorola starfa sem sér deild innan Google, til að byrja með hið minnsta. Tilkynnt var um kaupin fyrr í dag en Google hefur skuldbundið sig til að kaupa hvern hlut í Motorola á genginu 40 dali. Þetta er um 63 prósentum hærra en gengi á mörkuðum. Heildarvirði kaupanna er um 1500 milljarðar króna. Þetta eru stærstu einstöku kaup Google frá því fyrirtækið var stofnað fyrir fimmtán árum. Viðskipti erlent 15.8.2011 16:45 Starfsfólkið hélt að það ynni í alvöru Apple-búð Alls tuttugu og tvær Apple verslanir í kínversku borginni Kunming hafa verið afhjúpaðar sem gerviverslanir en verslanirnar voru innréttaðar sem ekta Apple búðir og starfsfólkið, sem var allt í sérstökum Apple einkennisfatnaði, hélt það væri að vinna í ósviknum Apple búðum. Viðskipti erlent 14.8.2011 10:46 Apple framleiðir alls ekki iPhone Það kann að koma sumum á óvart en Apple fyrirtækið framleiðir alls ekki iPhone. Hlutirnir sem síminn samanstendur af eru ekki framleiddir af Apple verksmiðjunum, né heldur er hlutunum raðað saman í heildstæðan síma í Apple verksmiðjum. Um þetta er fjallað ítarlega í tímaritinu The Economist. Viðskipti erlent 10.8.2011 23:59 Nýr iPhone kynntur í september? Apple-aðdáendur bíða margir hverjir gríðarlegar spenntir eftir fimmtu útgáfunni iPhone símanum. Nú hafa netverjar fullyrt að nýi síminn verður kynntur til leiks í september. Áður var því haldið fram að hann kæmi í byrjun ágúst. Talið er víst að í símanum verði ný uppfærsla á stýrikerfinu, iOS 5, en iPhone 4 er iOS 4 stýrikerfið. Viðskipti erlent 20.7.2011 16:03 Skerst í odda milli Facebook og Google í netstríðinu mikla Tæknifyrirtækin Google og Facebook hafa undanfarið háð hljóðlátt stríð sín á milli um yfirráð í netheimum. Átökin fara nú harðnandi með tilkomu Google+, nýs tengslavefs Google, sem beint er gegn Facebook. Viðskipti erlent 17.7.2011 22:31 Mark Zuckerberg vinsælastur á Google+ Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, státar af töluvert fleiri "fylgjendum" á Google+ en báðir stofendur Google, en Google+ er nýr samskiptavefur sem fyrirtækið opnaði þann 28. júní síðastliðinn. Viðskipti erlent 5.7.2011 17:41 Múm fyrst á Gogoyoko Nýjasta plata hljómsveitarinnar múm, Sing Along to Songs You Don't Know, verður fáanleg á síðunni Gogoyoko.com frá og með mánudeginum 17. ágúst. Þetta þýðir að platan verður fyrst fáanleg í heiminum á síðunni. Platan kemur formlega út í Evrópu 24. ágúst hjá Morr Music og sama dag hjá Euphoni í Norður-Ameríku. Tónlist 14.8.2009 21:02 GPS vinsælt á golfvellinum Farsímar með innbyggðu GPS hafa verið mjög vinsælir á golfvöllum í sumar en hægt er að hlaða niður forriti með mörgum golfvöllum Íslands í símann. Golf 22.7.2009 22:26 Google blandar sér í símaslaginn Nýr sími sem notar alfarið hugbúnað frá leitarvélarisanum Google er kominn á markað í Bretlandi og er settur til höfuðs flaggskipunum iPhone og Blackberry. Viðskipti erlent 31.10.2008 07:19 Ný tækifæri með tilkomu tölvuskýja Microsoft svipti í gær hulunni af Windows Azure, netstýrikerfi sem verður grunnurinn að aukinni áherslu fyrirtækisins á veflausnir. Slíkar lausnir byggja á því sem kallað er „cloud computing“, sem þýða má sem „tölvuský“. Viðskipti erlent 28.10.2008 13:41 Faðir Netsins boðar nýtt IP-tölukerfi Maðurinn sem nefndur hefur verið faðir Netsins varar nú við því að svokallaðar IP-tölur séu farnar að verða af skornum skammti og taka þurfi upp nýtt kerfi. Viðskipti erlent 25.9.2008 08:19 Vélknúinn höfrungur til sölu -myndband Höfrungurinn heitir fley sem er einhverskonar sambland af hraðbáti, kafbáti og höfrungi. Hann getur náð sjötíu kílómetra hraða. Viðskipti erlent 5.9.2008 14:42 Internet Explorer fær einkamálatakka Microsoft hefur í hyggju að búa til eins konar einkamálatakka af nýjustu uppfærslu sinni af Internet Explorer. Með því að ýta á einn taka verður þá hægt að takmarka hve miklar upplýsingar aðrir geta orðið sér úti um veraldarvefsnotkun manns. Viðskipti erlent 21.8.2008 12:10 Átján ára tölvuþrjótur sýknaður Nýsjálenskur unglingur sem játaði að hafa tekið þátt í alþjóðlegum tölvuglæp hefur verið sleppt eftir að ákæra á hendur á honum var látin niður falla. Lögreglan segir að hópurinn hafi „hakkað“ sig inn á yfir milljón tölvur og tekið þaðan a.m.k 20,4 milljónir dollara af bankareikningum fólks. Viðskipti erlent 16.7.2008 11:40 Farsímar svipta hulunni af venjum mannanna Ferðir meira en 100 þúsund farsímanotenda hafa verið kortlagðar í tilraun til að búa til heildræna mynd af hreyfingum manna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að manneskjur eru venjubundnar í eðli sínu og heimsækja að mestu leyti sömu örfáu staðina aftur og aftur. Viðskipti erlent 5.6.2008 11:09 Ruslpóstur á 30 ára afmæli í dag Hryllingur hvers tölvunetfangs, ruslpósturinn, á 30 ára afmæli í dag. Fyrsti ruslpóstur sem vitað er um í sögunni var sendur þann 3. maí 1978 til 400 manns frá DEC, tölvuframleiðenda sem löngu hefur hætt starfsemi. Viðskipti erlent 3.5.2008 13:37 Toshiba gefst upp á HD DVD Japanska tæknifyrirtækið Toshiba hyggst gefast upp á HD DVD háskerputækninni. Tilkynningar þess efnis er að vænta á næstu dögum, hefur fréttastofa Reuters eftir heimildarmanni innan fyrirtækisins. Viðskipti erlent 16.2.2008 21:56 Stærsti flatskjár í heimi er 150 tommur Panasonic kynnti stærsta flatskjá heimsins á tæknimessunni CES í Las Vegas í vikunni. Skjár þess er 150 tommur að stærð og getur því dekkað að mestu meðalstórann stofuvegg. Viðskipti erlent 17.1.2008 10:42 Tölvur á 25 þúsund krónur seldust upp á 20 mínútum Tölvuframleiðandinn Asus hefur sett á markaðinn fyrstu örtölvu sína, Eee pc., og er eftirspurnin gríðarleg. Tölvan kostar aðeins 25 þúsund krónur og fyrstu 200 eintökin seldust upp á 20 mínútum í einni versluninni. Viðskipti erlent 11.1.2008 10:41 Google í samkeppni við Wikipedia Internetrisinn Google ætlar sér í samkeppni við hina vinsælu alfræðisíðu Wikipedia á netinu. Ætlunin er að virkja notendur í að miðla upplýsingum um efni sem þeir þekkja líkt og Wikipedia gerir. Viðskipti erlent 16.12.2007 15:46 Facebook dregur í land með kaupupplýsingar Stjórnendur Facebook vefsins hafa látið undan þrýstingin notenda og leyft þeim að stýra betur hvort upplýsingar um kauphegðan þeirra eru birtar öllum sem nota vefinn. Viðskipti erlent 1.12.2007 12:17 Fyrsta þráðlausa tölvubókin á markað Bókavefrisinn Amazon hefur sett á markað tölvubók sem gengur undir nafninu Kindle. Tölvan er á stærð við pappírskilju og kostar tæplega 25 þúsund íslenskar krónur. Í minni hennar rúmast 200 bækur. Viðskipti erlent 20.11.2007 10:12 YouTube gegn einelti Fyrsta stöðin gegn einelti á netinu hefur verið tekin í gagnið á YouTube. Henni er ætlað að hvetja ungt fólk til að fordæma einelti meðal annars með því að setja eigin myndbrot og skilaboð á síðuna. Viðskipti erlent 19.11.2007 13:05 Bítlarnir brátt aðgengilegir á netinu Tónlist Bítlanna ætti að verða aðgengileg á netinu á næsta ári eftir því sem Paul McCartney segir bandaríska tónlistarvefnum Billboard.com. Verk hljómsveitarinnar eru ein fárra sem hafa haldið tónlist sinni frá vefverslunum eins og iTunes og Napster. Viðskipti erlent 16.11.2007 12:21 Indland í hópi ofurtölvuframleiðenda Tölvukerfi sem framleitt er á Indlandi hefur komist á lista yfir tíu hröðustu ofurtölvur í heimi. Tölvurisinn IBM trónar enn á toppi listans sem er endurskoðaður tvisvar á ári – með 232 af 500 ofurtölfum í heiminum. Viðskipti erlent 13.11.2007 16:45 Auðvelt að stela upplýsingum á netinu Fjórðungur þeirra 11 milljón Breta sem nota félagssamfélög á netinu eins og MySpace of Facebook gætu orðið fórnarlömb persónuleikastuldar. Herferð á vegum bresku ríkisstjórnarinnar varar við því að persónulegar upplýsingar séu settar á netið. Viðskipti erlent 13.11.2007 12:45 Yfirráð Google á vefnum yfirfærast ekki á farsíma Yfirráð Google yfir vefnum munu ekki yfirfærast á farsímamarkaðinn. Þetta segir John Forsyth forstöðumaður Symbian, sem hannaði það stýrikerfi sem knýr flesta farsíma í heiminum. Google skorti reynslu. Viðskipti erlent 8.11.2007 17:10 Google býður netið fyrir farsíma Netleitarrisinn Google hefur afhjúpað nýtt forrit sem hann vonar að muni knýja fjölda farsíma í framtíðinni og auka notkun netsins í farsímum til mikilla muna. Forritið gæti leitt til að ódýrari farsímar verði framleiddir þar sem það er hannað til að hraða ferli netsins í gsm símum. Viðskipti erlent 6.11.2007 14:55 Bretar senda 4 þúsund sms á sekúndu Bretar senda nú meira en milljarð sms skilaboða í hverri viku samkvæmt nýjustu tölum bresku fjarskiptastofnunarinnar. Fjöldinn er sá sami og öll sms fyrir árið 1999 og samsvarar því að fjögur þúsund sms séu send á hverri sekúndu. Viðskipti erlent 5.11.2007 15:33 Forrit gegn auglýsingum sniðnum að nethegðun Bandarískir málsvarar einkalífs og neytendasamtök vestanhafs leita nú eftir hönnun forrits eða stofnun listar sem leyfir internetnotendum að ráða hvort auglýsendur nái til þeirra. Forritið myndi hamla fyrirtækjum að sníða auglýsingar að nethegðun einstaklinga. Viðskipti erlent 5.11.2007 11:50 « ‹ 64 65 66 67 68 69 70 71 72 … 84 ›
Google kaupir Motorola Tæknirisinn Google hefur tilkynnt að hann muni kaupa Motorola Mobility, sem er farsímahluti Motorola. Þessum kaupum fylgja allir símar sem Motorola framleiðir, sem og spjaldtölvur. Motorola Solutions, sem sér um fjarskiptalausnir fyrirtækisins, er ekki inni í kaupum Google og mun starfa áfram sjálfstætt. Þetta þykja mikil tíðindi í tækniheiminum þar sem Google mun nú sitja beggja vegna borðsiðns, sem eigandi og framleiðandi Android-stýrikerfisins, og svo nú sem einn stærsti framleiðandi snjallsíma sem keyra Android. Samkvæmt upplýsingum á bloggsíðu sem Google heldur úti mun Motorola starfa sem sér deild innan Google, til að byrja með hið minnsta. Tilkynnt var um kaupin fyrr í dag en Google hefur skuldbundið sig til að kaupa hvern hlut í Motorola á genginu 40 dali. Þetta er um 63 prósentum hærra en gengi á mörkuðum. Heildarvirði kaupanna er um 1500 milljarðar króna. Þetta eru stærstu einstöku kaup Google frá því fyrirtækið var stofnað fyrir fimmtán árum. Viðskipti erlent 15.8.2011 16:45
Starfsfólkið hélt að það ynni í alvöru Apple-búð Alls tuttugu og tvær Apple verslanir í kínversku borginni Kunming hafa verið afhjúpaðar sem gerviverslanir en verslanirnar voru innréttaðar sem ekta Apple búðir og starfsfólkið, sem var allt í sérstökum Apple einkennisfatnaði, hélt það væri að vinna í ósviknum Apple búðum. Viðskipti erlent 14.8.2011 10:46
Apple framleiðir alls ekki iPhone Það kann að koma sumum á óvart en Apple fyrirtækið framleiðir alls ekki iPhone. Hlutirnir sem síminn samanstendur af eru ekki framleiddir af Apple verksmiðjunum, né heldur er hlutunum raðað saman í heildstæðan síma í Apple verksmiðjum. Um þetta er fjallað ítarlega í tímaritinu The Economist. Viðskipti erlent 10.8.2011 23:59
Nýr iPhone kynntur í september? Apple-aðdáendur bíða margir hverjir gríðarlegar spenntir eftir fimmtu útgáfunni iPhone símanum. Nú hafa netverjar fullyrt að nýi síminn verður kynntur til leiks í september. Áður var því haldið fram að hann kæmi í byrjun ágúst. Talið er víst að í símanum verði ný uppfærsla á stýrikerfinu, iOS 5, en iPhone 4 er iOS 4 stýrikerfið. Viðskipti erlent 20.7.2011 16:03
Skerst í odda milli Facebook og Google í netstríðinu mikla Tæknifyrirtækin Google og Facebook hafa undanfarið háð hljóðlátt stríð sín á milli um yfirráð í netheimum. Átökin fara nú harðnandi með tilkomu Google+, nýs tengslavefs Google, sem beint er gegn Facebook. Viðskipti erlent 17.7.2011 22:31
Mark Zuckerberg vinsælastur á Google+ Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, státar af töluvert fleiri "fylgjendum" á Google+ en báðir stofendur Google, en Google+ er nýr samskiptavefur sem fyrirtækið opnaði þann 28. júní síðastliðinn. Viðskipti erlent 5.7.2011 17:41
Múm fyrst á Gogoyoko Nýjasta plata hljómsveitarinnar múm, Sing Along to Songs You Don't Know, verður fáanleg á síðunni Gogoyoko.com frá og með mánudeginum 17. ágúst. Þetta þýðir að platan verður fyrst fáanleg í heiminum á síðunni. Platan kemur formlega út í Evrópu 24. ágúst hjá Morr Music og sama dag hjá Euphoni í Norður-Ameríku. Tónlist 14.8.2009 21:02
GPS vinsælt á golfvellinum Farsímar með innbyggðu GPS hafa verið mjög vinsælir á golfvöllum í sumar en hægt er að hlaða niður forriti með mörgum golfvöllum Íslands í símann. Golf 22.7.2009 22:26
Google blandar sér í símaslaginn Nýr sími sem notar alfarið hugbúnað frá leitarvélarisanum Google er kominn á markað í Bretlandi og er settur til höfuðs flaggskipunum iPhone og Blackberry. Viðskipti erlent 31.10.2008 07:19
Ný tækifæri með tilkomu tölvuskýja Microsoft svipti í gær hulunni af Windows Azure, netstýrikerfi sem verður grunnurinn að aukinni áherslu fyrirtækisins á veflausnir. Slíkar lausnir byggja á því sem kallað er „cloud computing“, sem þýða má sem „tölvuský“. Viðskipti erlent 28.10.2008 13:41
Faðir Netsins boðar nýtt IP-tölukerfi Maðurinn sem nefndur hefur verið faðir Netsins varar nú við því að svokallaðar IP-tölur séu farnar að verða af skornum skammti og taka þurfi upp nýtt kerfi. Viðskipti erlent 25.9.2008 08:19
Vélknúinn höfrungur til sölu -myndband Höfrungurinn heitir fley sem er einhverskonar sambland af hraðbáti, kafbáti og höfrungi. Hann getur náð sjötíu kílómetra hraða. Viðskipti erlent 5.9.2008 14:42
Internet Explorer fær einkamálatakka Microsoft hefur í hyggju að búa til eins konar einkamálatakka af nýjustu uppfærslu sinni af Internet Explorer. Með því að ýta á einn taka verður þá hægt að takmarka hve miklar upplýsingar aðrir geta orðið sér úti um veraldarvefsnotkun manns. Viðskipti erlent 21.8.2008 12:10
Átján ára tölvuþrjótur sýknaður Nýsjálenskur unglingur sem játaði að hafa tekið þátt í alþjóðlegum tölvuglæp hefur verið sleppt eftir að ákæra á hendur á honum var látin niður falla. Lögreglan segir að hópurinn hafi „hakkað“ sig inn á yfir milljón tölvur og tekið þaðan a.m.k 20,4 milljónir dollara af bankareikningum fólks. Viðskipti erlent 16.7.2008 11:40
Farsímar svipta hulunni af venjum mannanna Ferðir meira en 100 þúsund farsímanotenda hafa verið kortlagðar í tilraun til að búa til heildræna mynd af hreyfingum manna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að manneskjur eru venjubundnar í eðli sínu og heimsækja að mestu leyti sömu örfáu staðina aftur og aftur. Viðskipti erlent 5.6.2008 11:09
Ruslpóstur á 30 ára afmæli í dag Hryllingur hvers tölvunetfangs, ruslpósturinn, á 30 ára afmæli í dag. Fyrsti ruslpóstur sem vitað er um í sögunni var sendur þann 3. maí 1978 til 400 manns frá DEC, tölvuframleiðenda sem löngu hefur hætt starfsemi. Viðskipti erlent 3.5.2008 13:37
Toshiba gefst upp á HD DVD Japanska tæknifyrirtækið Toshiba hyggst gefast upp á HD DVD háskerputækninni. Tilkynningar þess efnis er að vænta á næstu dögum, hefur fréttastofa Reuters eftir heimildarmanni innan fyrirtækisins. Viðskipti erlent 16.2.2008 21:56
Stærsti flatskjár í heimi er 150 tommur Panasonic kynnti stærsta flatskjá heimsins á tæknimessunni CES í Las Vegas í vikunni. Skjár þess er 150 tommur að stærð og getur því dekkað að mestu meðalstórann stofuvegg. Viðskipti erlent 17.1.2008 10:42
Tölvur á 25 þúsund krónur seldust upp á 20 mínútum Tölvuframleiðandinn Asus hefur sett á markaðinn fyrstu örtölvu sína, Eee pc., og er eftirspurnin gríðarleg. Tölvan kostar aðeins 25 þúsund krónur og fyrstu 200 eintökin seldust upp á 20 mínútum í einni versluninni. Viðskipti erlent 11.1.2008 10:41
Google í samkeppni við Wikipedia Internetrisinn Google ætlar sér í samkeppni við hina vinsælu alfræðisíðu Wikipedia á netinu. Ætlunin er að virkja notendur í að miðla upplýsingum um efni sem þeir þekkja líkt og Wikipedia gerir. Viðskipti erlent 16.12.2007 15:46
Facebook dregur í land með kaupupplýsingar Stjórnendur Facebook vefsins hafa látið undan þrýstingin notenda og leyft þeim að stýra betur hvort upplýsingar um kauphegðan þeirra eru birtar öllum sem nota vefinn. Viðskipti erlent 1.12.2007 12:17
Fyrsta þráðlausa tölvubókin á markað Bókavefrisinn Amazon hefur sett á markað tölvubók sem gengur undir nafninu Kindle. Tölvan er á stærð við pappírskilju og kostar tæplega 25 þúsund íslenskar krónur. Í minni hennar rúmast 200 bækur. Viðskipti erlent 20.11.2007 10:12
YouTube gegn einelti Fyrsta stöðin gegn einelti á netinu hefur verið tekin í gagnið á YouTube. Henni er ætlað að hvetja ungt fólk til að fordæma einelti meðal annars með því að setja eigin myndbrot og skilaboð á síðuna. Viðskipti erlent 19.11.2007 13:05
Bítlarnir brátt aðgengilegir á netinu Tónlist Bítlanna ætti að verða aðgengileg á netinu á næsta ári eftir því sem Paul McCartney segir bandaríska tónlistarvefnum Billboard.com. Verk hljómsveitarinnar eru ein fárra sem hafa haldið tónlist sinni frá vefverslunum eins og iTunes og Napster. Viðskipti erlent 16.11.2007 12:21
Indland í hópi ofurtölvuframleiðenda Tölvukerfi sem framleitt er á Indlandi hefur komist á lista yfir tíu hröðustu ofurtölvur í heimi. Tölvurisinn IBM trónar enn á toppi listans sem er endurskoðaður tvisvar á ári – með 232 af 500 ofurtölfum í heiminum. Viðskipti erlent 13.11.2007 16:45
Auðvelt að stela upplýsingum á netinu Fjórðungur þeirra 11 milljón Breta sem nota félagssamfélög á netinu eins og MySpace of Facebook gætu orðið fórnarlömb persónuleikastuldar. Herferð á vegum bresku ríkisstjórnarinnar varar við því að persónulegar upplýsingar séu settar á netið. Viðskipti erlent 13.11.2007 12:45
Yfirráð Google á vefnum yfirfærast ekki á farsíma Yfirráð Google yfir vefnum munu ekki yfirfærast á farsímamarkaðinn. Þetta segir John Forsyth forstöðumaður Symbian, sem hannaði það stýrikerfi sem knýr flesta farsíma í heiminum. Google skorti reynslu. Viðskipti erlent 8.11.2007 17:10
Google býður netið fyrir farsíma Netleitarrisinn Google hefur afhjúpað nýtt forrit sem hann vonar að muni knýja fjölda farsíma í framtíðinni og auka notkun netsins í farsímum til mikilla muna. Forritið gæti leitt til að ódýrari farsímar verði framleiddir þar sem það er hannað til að hraða ferli netsins í gsm símum. Viðskipti erlent 6.11.2007 14:55
Bretar senda 4 þúsund sms á sekúndu Bretar senda nú meira en milljarð sms skilaboða í hverri viku samkvæmt nýjustu tölum bresku fjarskiptastofnunarinnar. Fjöldinn er sá sami og öll sms fyrir árið 1999 og samsvarar því að fjögur þúsund sms séu send á hverri sekúndu. Viðskipti erlent 5.11.2007 15:33
Forrit gegn auglýsingum sniðnum að nethegðun Bandarískir málsvarar einkalífs og neytendasamtök vestanhafs leita nú eftir hönnun forrits eða stofnun listar sem leyfir internetnotendum að ráða hvort auglýsendur nái til þeirra. Forritið myndi hamla fyrirtækjum að sníða auglýsingar að nethegðun einstaklinga. Viðskipti erlent 5.11.2007 11:50