Lög og regla Dómur í líkfundarmáli óbreyttur Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári. Innlent 13.10.2005 19:08 Eldur í Framheimilinu Unnið er að slökkvistarfi í Framheimilinu í Safamýri en nú fyrir skömmu logaði eldur í útvegg og í hluta af þaki hússins. Mikill viðbúnaður er á staðnum en ekki er talið að fólk sé í hættu vegna þessa. Innlent 13.10.2005 19:07 Önnur alvarleg líkamsárás Lögreglan á Akureyri hefur lokið rannsókn á líkamsárás þar sem sautján ára piltur var lokkaður upp í bíl og lokaður í farangursgeymslu þar sem ráðist var á hann með ofbeldi. Árásarmennirnir óku með piltinn út út Akureyrarbæ og hann sleginn þar sem hann lá í myrkri farangursgeymslunni, auk þess sem honum var ógnað með kúbeini. Innlent 13.10.2005 19:07 Börðu mann við Gesthús Héraðsdómur sektaði fimm menn um tvítugt um 75 þúsund krónur hvern fyrir að ráðast á og berja mann við Gesthús á Selfossi haustið 2003. Mennirnir eru frá Selfossi og Árborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:08 Handrukkari fær þrjú ár Hæstiréttur þyngdi í gær fyrri dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni um hálft ár, en fyrri dómur hljóðaði upp á tveggja og hálfs árs fangelsi. Staðfestur var tveggja ára dóm yfir Ólafi Valtý Rögnvaldssyni. Innlent 13.10.2005 19:08 Braust inn um glugga Brotist var inn í blokkaríbúð á Kleppsvegi aðfaranótt fimmtudags og þaðan stolið farsíma, skartgripum og lítilræði af peningum. Þjófurinn braust inn um glugga en hvarf á brott þegar húsráðendur urðu hans varir. Innlent 13.10.2005 19:08 Dómur í stórum málum Nú klukkan fjögur mun Hæstiréttur kveða upp dóma í tveimur af helstu málum undanfarinna missera hér á landi: annars vegar Landssímamálinu svokallaða og hins vegar Líkfundarmálinu. Innlent 13.10.2005 19:08 Handtekinn á miðri flugbraut Lögreglan í Reykjavík handtók mann inni á miðri flugbraut á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi, enda var flugumferð enn í gangi og hefði flugvélum geta stafað hætta af manninum. Hann reyndist mjög ölvaður og vissi vart hvar hann var, hvað þá heldur hvert hann væri að fara. Innlent 13.10.2005 19:07 Tók bílinn ófrjálsri hendi Konan sem lést í bílslysi í gærkvöldi tók bílinn ófrjálsri hendi. Engin skilríki voru á konunni og voru ekki borin kennsl á hana fyrr en í morgun. Innlent 13.10.2005 19:07 Líkfundur við Skúlagötu Lík fannst við Skúlagötu í kvöld og stendur rannsókn lögreglunnar í Reykjavík yfir. Innlent 13.10.2005 19:07 Kæra Reynis tekin fyrir Jón Trausti Lúthersson hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á Reyni Traustason, fyrrverandi fréttastjóra DV, á skrifstofu blaðsins í október síðastliðnum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 13.10.2005 19:07 Fyrningamál verði unnin í samhengi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vill að litið verði á afnám fyrningar kynferðisbrota gegn börnum í samhengi, en í ráðuneyti hans liggja fyrir tillögur í þeim efnum. Hann segist munu taka því vel ákveði allsherjarnefnd að vísa frumvarpi sama efnis til ráðuneytisins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:07 Kærður fyrir kverkatak Þingfest var fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær mál Lögreglustjórans í Reykjavík á hendur Jóni Trausta Lútherssyni fyrir líkamsárás. Innlent 13.10.2005 19:07 Úrræði vegna skilorðs endurskoðuð Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að úrræði vegna afbrotamanna á skilorði verði skoðuð þegar lög um meðferð opinberra mála verða endurskoðuð í haust. Innlent 13.10.2005 19:07 Umferðarslys við Verslunarskólann Sex manns slösuðust í árekstri strætisvagns og fólksbíls á gatnamótum við Verslunarskólann um klukkan hálfellefu í morgun. Þrír voru í fólksbílnum og slösuðust þeir töluvert en farþegar strætisvagnsins slösuðust lítillega. Svo virðist sem fólksbílnum hafi verið ekið út af lóð Verslunarskólans í veg fyrir strætisvagninn með þeim afleiðingum að strætisvagninn lenti á hlið bílsins. Innlent 13.10.2005 19:07 Skákað í skjóli IP-tölu Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar á mánudag þurfa IP-fjarskipti ekki að láta af hendi til lögreglu upplýsingar um ákveðna IP-tölu sem tengist innbroti á heimasíðu tölvuverslunarinnar Task 9. febrúar síðastliðinn. Innlent 13.10.2005 19:07 Á 170 km hraða í Kópavogi Kópavogslögreglan stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut til móts við Fífuhvamm í gærkvöldi eftir að hann hafði mælst á rétt tæplega 170 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á um það bil hundrað kílómetra hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Hann verður sviptur ökuréttindum og á yfir höfði sér geysiháa sekt. Innlent 13.10.2005 19:07 Braut glas á dyraverði Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði í gær mann af ákæru um að hafa brotið bjórglas á höfði dyravarðar og rispað hann með því á hægri kinn. Dyravörðurinn krafðist rúmlega 360 þúsund króna í bætur. Innlent 13.10.2005 19:07 Ársfangelsi og byssa upptæk Maður frá Ólafsfirði hlaut í síðustu viku árfangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir aðild að innbrotum, fyrir að hafa átt óskráða loftskammbyssu og fyrir handrukkun á hálfri milljón fyrir þriðja aðila. Innlent 13.10.2005 19:07 Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem réðst á lækni fyrir utan heimili hans á föstudagskvöld. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til 20. maí og að hann skyldi gangast undir geðrannsókn. Innlent 13.10.2005 19:07 Þrír fluttir á slysadeild Þrír voru lagðir inn á sjúkrahús til skoðunar og frekara eftirlits eftir árekstur fólksbíls og strætisvagns við Listabraut í Reykjavík í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:07 Eldur í húsi í Hafnarfirði Eldur kom upp í litlu yfirgefnu húsi við Herjólfsbraut í Hafnarfirði nú undir kvöld. Slökkvilið lét húsið brenna til grunna með leyfi bæjaryfirvalda en eldur hafði kviknað þar í gær líka. Nú er unnið að því að slökkva í glæðum. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 var tekist á um það í Hafnarfirði hvort vernda ætti þetta hús eða ekki. Innlent 13.10.2005 19:07 Fyrningafrumvarp fær ekki stuðning Formaður allsherjarnefndar segir einsýnt að ekki sé hægt að styðja frumvarp í óbreyttri mynd um afnám fyrningar kynferðisbrota gegn börnum. Hann telur koma til álita að vísa því til dómsmálaráðuneytisins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:07 Angi af miklu stærra máli "Menn verða að spyrja sig hvers konar fjármálaumhverfi á að ríkja hér í næstu framtíð," segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, vegna gagnrýni Indriða H. Þorlákssonar, ríkisskattstjóra, um tregðu bankastofnanna að veita skattayfirvöldum upplýsingar um viðskiptavini sína. Innlent 13.10.2005 19:07 Fær ekki nafn tölvunotanda Hæstiréttur hefur hafnað kröfu lögreglunnar um að fá uppgefið nafn á tölvunotanda sem setti klámmynd inn á heimasíðu íslensks tölvufyrirtækis. Innlent 13.10.2005 19:07 Líðan stúlkna eftir atvikum góð Líðan þriggja stúlkna sem fluttar voru á sjúkrahús eftir árekstur fólksbíls sem þær voru í við strætisvagn við Verslunarskólann í morgun er eftir atvikum góð. Svo virðist sem bílnum hafi verið ekið út af bílastæði Verslunarskólans og í veg fyrir vagninn. Þrír farþegar í strætisvagninum slösuðust lítillega en klippa þurfti stúlkurnar þrjár úr bifreiðinni. Innlent 13.10.2005 19:07 Lithái dæmdur í farbann Hæstiréttur dæmdi í dag Litháa í farbann til 18. maí. Maðurinn kom hingað til lands með Norrænu í byrjun mars en hann er eftirlýstur af þýsku lögreglunni og talinn tengjast skipulagðri glæpastarfsemi í Þýskalandi og Litháen. Í lok mars barst framsalsbeiðni frá þýskum dómsmálayfirvöldum en maðurinn er sakaður um að hafa flutt fíkniefni og falsaða peninga til Þýskalands auk innbrota og þjófnaða. Innlent 13.10.2005 19:07 Skaðabótamál Vatnsbera tekið fyrir Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag skaðabótamál sem Þórhallur Ölver Gunnlaugsson, betur þekktur sem Vatnsberinn, höfðaði meðal annars á hendur Fangelsismálastofnun og íslenska ríkinu vegna árásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni árið 2002. Innlent 13.10.2005 19:07 Breytingar ná ekki til skotmanna Breytingar á almennum hegningarlögum sem gerðar voru í fyrra og áttu að tryggja skjótvirkari og skilvirkari úrræði gagnvart afbrotamönnum sem brjóta af sér í reynslulausn ná ekki til ofbeldismannanna sem skutu mörgum sinnum á ungan mann á Akureyri nýverið. Innlent 13.10.2005 19:06 Líkfundarmál fyrir Hæstarétti Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast allir sýknu af ákæru um að hafa ekki komið Vaidasi Juciviciusi til aðstoðar í neyð og fyrir að fara illa með líkið af honum. Tomas Malakauskas viðurkennir hlut sinn í smygli á fíkniefnunum sem Jucivicius var með innvortis. Aðalmeðferð þessa máls hófst fyrir Hæstarétti í morgun. Innlent 13.10.2005 19:06 « ‹ 70 71 72 73 74 75 76 77 78 … 120 ›
Dómur í líkfundarmáli óbreyttur Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári. Innlent 13.10.2005 19:08
Eldur í Framheimilinu Unnið er að slökkvistarfi í Framheimilinu í Safamýri en nú fyrir skömmu logaði eldur í útvegg og í hluta af þaki hússins. Mikill viðbúnaður er á staðnum en ekki er talið að fólk sé í hættu vegna þessa. Innlent 13.10.2005 19:07
Önnur alvarleg líkamsárás Lögreglan á Akureyri hefur lokið rannsókn á líkamsárás þar sem sautján ára piltur var lokkaður upp í bíl og lokaður í farangursgeymslu þar sem ráðist var á hann með ofbeldi. Árásarmennirnir óku með piltinn út út Akureyrarbæ og hann sleginn þar sem hann lá í myrkri farangursgeymslunni, auk þess sem honum var ógnað með kúbeini. Innlent 13.10.2005 19:07
Börðu mann við Gesthús Héraðsdómur sektaði fimm menn um tvítugt um 75 þúsund krónur hvern fyrir að ráðast á og berja mann við Gesthús á Selfossi haustið 2003. Mennirnir eru frá Selfossi og Árborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:08
Handrukkari fær þrjú ár Hæstiréttur þyngdi í gær fyrri dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni um hálft ár, en fyrri dómur hljóðaði upp á tveggja og hálfs árs fangelsi. Staðfestur var tveggja ára dóm yfir Ólafi Valtý Rögnvaldssyni. Innlent 13.10.2005 19:08
Braust inn um glugga Brotist var inn í blokkaríbúð á Kleppsvegi aðfaranótt fimmtudags og þaðan stolið farsíma, skartgripum og lítilræði af peningum. Þjófurinn braust inn um glugga en hvarf á brott þegar húsráðendur urðu hans varir. Innlent 13.10.2005 19:08
Dómur í stórum málum Nú klukkan fjögur mun Hæstiréttur kveða upp dóma í tveimur af helstu málum undanfarinna missera hér á landi: annars vegar Landssímamálinu svokallaða og hins vegar Líkfundarmálinu. Innlent 13.10.2005 19:08
Handtekinn á miðri flugbraut Lögreglan í Reykjavík handtók mann inni á miðri flugbraut á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi, enda var flugumferð enn í gangi og hefði flugvélum geta stafað hætta af manninum. Hann reyndist mjög ölvaður og vissi vart hvar hann var, hvað þá heldur hvert hann væri að fara. Innlent 13.10.2005 19:07
Tók bílinn ófrjálsri hendi Konan sem lést í bílslysi í gærkvöldi tók bílinn ófrjálsri hendi. Engin skilríki voru á konunni og voru ekki borin kennsl á hana fyrr en í morgun. Innlent 13.10.2005 19:07
Líkfundur við Skúlagötu Lík fannst við Skúlagötu í kvöld og stendur rannsókn lögreglunnar í Reykjavík yfir. Innlent 13.10.2005 19:07
Kæra Reynis tekin fyrir Jón Trausti Lúthersson hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á Reyni Traustason, fyrrverandi fréttastjóra DV, á skrifstofu blaðsins í október síðastliðnum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 13.10.2005 19:07
Fyrningamál verði unnin í samhengi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vill að litið verði á afnám fyrningar kynferðisbrota gegn börnum í samhengi, en í ráðuneyti hans liggja fyrir tillögur í þeim efnum. Hann segist munu taka því vel ákveði allsherjarnefnd að vísa frumvarpi sama efnis til ráðuneytisins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:07
Kærður fyrir kverkatak Þingfest var fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær mál Lögreglustjórans í Reykjavík á hendur Jóni Trausta Lútherssyni fyrir líkamsárás. Innlent 13.10.2005 19:07
Úrræði vegna skilorðs endurskoðuð Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að úrræði vegna afbrotamanna á skilorði verði skoðuð þegar lög um meðferð opinberra mála verða endurskoðuð í haust. Innlent 13.10.2005 19:07
Umferðarslys við Verslunarskólann Sex manns slösuðust í árekstri strætisvagns og fólksbíls á gatnamótum við Verslunarskólann um klukkan hálfellefu í morgun. Þrír voru í fólksbílnum og slösuðust þeir töluvert en farþegar strætisvagnsins slösuðust lítillega. Svo virðist sem fólksbílnum hafi verið ekið út af lóð Verslunarskólans í veg fyrir strætisvagninn með þeim afleiðingum að strætisvagninn lenti á hlið bílsins. Innlent 13.10.2005 19:07
Skákað í skjóli IP-tölu Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar á mánudag þurfa IP-fjarskipti ekki að láta af hendi til lögreglu upplýsingar um ákveðna IP-tölu sem tengist innbroti á heimasíðu tölvuverslunarinnar Task 9. febrúar síðastliðinn. Innlent 13.10.2005 19:07
Á 170 km hraða í Kópavogi Kópavogslögreglan stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut til móts við Fífuhvamm í gærkvöldi eftir að hann hafði mælst á rétt tæplega 170 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á um það bil hundrað kílómetra hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Hann verður sviptur ökuréttindum og á yfir höfði sér geysiháa sekt. Innlent 13.10.2005 19:07
Braut glas á dyraverði Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði í gær mann af ákæru um að hafa brotið bjórglas á höfði dyravarðar og rispað hann með því á hægri kinn. Dyravörðurinn krafðist rúmlega 360 þúsund króna í bætur. Innlent 13.10.2005 19:07
Ársfangelsi og byssa upptæk Maður frá Ólafsfirði hlaut í síðustu viku árfangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir aðild að innbrotum, fyrir að hafa átt óskráða loftskammbyssu og fyrir handrukkun á hálfri milljón fyrir þriðja aðila. Innlent 13.10.2005 19:07
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem réðst á lækni fyrir utan heimili hans á föstudagskvöld. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til 20. maí og að hann skyldi gangast undir geðrannsókn. Innlent 13.10.2005 19:07
Þrír fluttir á slysadeild Þrír voru lagðir inn á sjúkrahús til skoðunar og frekara eftirlits eftir árekstur fólksbíls og strætisvagns við Listabraut í Reykjavík í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:07
Eldur í húsi í Hafnarfirði Eldur kom upp í litlu yfirgefnu húsi við Herjólfsbraut í Hafnarfirði nú undir kvöld. Slökkvilið lét húsið brenna til grunna með leyfi bæjaryfirvalda en eldur hafði kviknað þar í gær líka. Nú er unnið að því að slökkva í glæðum. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 var tekist á um það í Hafnarfirði hvort vernda ætti þetta hús eða ekki. Innlent 13.10.2005 19:07
Fyrningafrumvarp fær ekki stuðning Formaður allsherjarnefndar segir einsýnt að ekki sé hægt að styðja frumvarp í óbreyttri mynd um afnám fyrningar kynferðisbrota gegn börnum. Hann telur koma til álita að vísa því til dómsmálaráðuneytisins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:07
Angi af miklu stærra máli "Menn verða að spyrja sig hvers konar fjármálaumhverfi á að ríkja hér í næstu framtíð," segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, vegna gagnrýni Indriða H. Þorlákssonar, ríkisskattstjóra, um tregðu bankastofnanna að veita skattayfirvöldum upplýsingar um viðskiptavini sína. Innlent 13.10.2005 19:07
Fær ekki nafn tölvunotanda Hæstiréttur hefur hafnað kröfu lögreglunnar um að fá uppgefið nafn á tölvunotanda sem setti klámmynd inn á heimasíðu íslensks tölvufyrirtækis. Innlent 13.10.2005 19:07
Líðan stúlkna eftir atvikum góð Líðan þriggja stúlkna sem fluttar voru á sjúkrahús eftir árekstur fólksbíls sem þær voru í við strætisvagn við Verslunarskólann í morgun er eftir atvikum góð. Svo virðist sem bílnum hafi verið ekið út af bílastæði Verslunarskólans og í veg fyrir vagninn. Þrír farþegar í strætisvagninum slösuðust lítillega en klippa þurfti stúlkurnar þrjár úr bifreiðinni. Innlent 13.10.2005 19:07
Lithái dæmdur í farbann Hæstiréttur dæmdi í dag Litháa í farbann til 18. maí. Maðurinn kom hingað til lands með Norrænu í byrjun mars en hann er eftirlýstur af þýsku lögreglunni og talinn tengjast skipulagðri glæpastarfsemi í Þýskalandi og Litháen. Í lok mars barst framsalsbeiðni frá þýskum dómsmálayfirvöldum en maðurinn er sakaður um að hafa flutt fíkniefni og falsaða peninga til Þýskalands auk innbrota og þjófnaða. Innlent 13.10.2005 19:07
Skaðabótamál Vatnsbera tekið fyrir Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag skaðabótamál sem Þórhallur Ölver Gunnlaugsson, betur þekktur sem Vatnsberinn, höfðaði meðal annars á hendur Fangelsismálastofnun og íslenska ríkinu vegna árásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni árið 2002. Innlent 13.10.2005 19:07
Breytingar ná ekki til skotmanna Breytingar á almennum hegningarlögum sem gerðar voru í fyrra og áttu að tryggja skjótvirkari og skilvirkari úrræði gagnvart afbrotamönnum sem brjóta af sér í reynslulausn ná ekki til ofbeldismannanna sem skutu mörgum sinnum á ungan mann á Akureyri nýverið. Innlent 13.10.2005 19:06
Líkfundarmál fyrir Hæstarétti Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast allir sýknu af ákæru um að hafa ekki komið Vaidasi Juciviciusi til aðstoðar í neyð og fyrir að fara illa með líkið af honum. Tomas Malakauskas viðurkennir hlut sinn í smygli á fíkniefnunum sem Jucivicius var með innvortis. Aðalmeðferð þessa máls hófst fyrir Hæstarétti í morgun. Innlent 13.10.2005 19:06