Lög og regla Gæsluvarðhaldið framlengt Gæsluvarðhald yfir fylgdarmanni fjögurra kínverskra ungmenna sem komu hingað á leið til Bandaríkjanna á dögunum hefur verið framlengt um viku. Maðurinn er grunaður um skipulagt mansal. Innlent 13.10.2005 19:16 Banaslys í Hvalfirði 24 ára karlmaður beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í morgun. Slysið varð á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman skammt hjá Meðalfellsafleggjara í Hvalfirði, sunnan megin, og var flutningabíllinn á leið inn fjörðinn en fólksbíllinn út. Ökumennirnir voru einir í bílunum og var áreksturinn mjög harður og lést ökumaður fólksbílsins. Innlent 13.10.2005 19:16 Tveggja bíla árekstur í Hvalfirði Sjúkraflutningamenn og lögregla eru enn á slysstað í Hvalfirði þar sem varð alvarlegt umferðarslys laust fyrir klukkan níu í morgun, vestan við Fell í Hvalfirði. Upplýsingar af slysinu eru af skornum skammti en þó er vitað að tveir bílar lentu þar í árekstri. Vegfarendur komast þó um fjörðinn með því að fara Eyrarfellsveg. Innlent 13.10.2005 19:16 Beið bana í Hvalfirði Karlmaður á þrítugsaldri beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í gærmorgun. Slysið átti sér stað á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman. Hinn látni var ökumaður fólksbílsins. Innlent 13.10.2005 19:16 Fær 20 ára fangelsi í Indónesíu Indónesískur dómstóll hefur dæmt hina áströlsku Schapelle Corby í tuttugu ára fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum. Corby, sem er 27 ára, var handtekin á flugvellinum í Bali með fjögur kíló af marijúana í október. Hún kveðst saklaus og telur að flugvallarstarfsmenn hafi staðið á bak við smyglið. Innlent 13.10.2005 19:16 Játaði að hafa banað hermanni Scott Ramsey játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að hafa orðið 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í héraðsdómi í dag. Innlent 13.10.2005 19:16 Vinnulyfta hrundi af þriðju hæð Vinnulyfta með tveimur mönnum hrundi niður af þriðju hæð á fjölbýlishúsi við Hátún í Reykjavík á tólfta tímanum í dag. Annar mannann náði að halda sér og skríða inn á svalir en hinn féll með lyftunni niður. Hann var fluttur á slysadeild. Ekki er ljóst hversu alvarlega hann er slasaður en þó vitað að hann er beinbrotinn. Innlent 13.10.2005 19:16 Ákærður fyrir að rassskella konu Sævar Óli Helgason er ákærður fyrir að veitast að konu sem lagði fyrir innkeyrsluna hans í fyrrahaust. Hann segir leikskólakennarann hafa vegið að sér kynferðislega og reynt að sparka í punginn á sér, hann hafi því rassskellt hana.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:16 Mál á hendur Ramsey þingfest Þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag ákæra á hendur Scott Ramsey sem varð 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Sló Ramsey manninn í hálsinn hægra megin með þeim afleiðingum að rifa kom á slagæð sem leiddi til mikilla blæðinga milli heila og heilahimnu af völdum höggsins sem leiddi til dauða hans. Innlent 13.10.2005 19:16 Dæmdir fyrir vopnaburð Þrír menn á þrítugsaldri voru dæmdir til að greiða 30 þúsund krónur hver, fyrir að bera ólögleg bitvopn á almannafæri í miðborg Reykjavíkur þann 12. apríl síðastliðinn. Innlent 13.10.2005 19:16 Leikfélagið sýknað Leikfélag Akureyrar hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi leikara félagsins um vangoldin laun vegna ólögmætrar uppsagnar. Innlent 13.10.2005 19:16 Ætlaði að selja efnin Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem tekinn var með 300 grömm af amfetamíni á heimili sínu í ársbyrjun 2004. Innlent 13.10.2005 19:16 Þrjú ár fyrir tæp þrjú kíló Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær yfir fjórum sakborningum í einum anga Dettifossmálsins. Sá angi snýr að innflutningi á um 2,7 kílóum af amfetamíni og um 600 grömmum af kókaíni. Dettifossmálið svokallaða er þó mun stærra í heild sinni. Innlent 13.10.2005 19:16 Kynferðisbrotsdómur staðfestur Rúmlega tvítugur maður var í Hæstarétti dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa haft kynmök við tólf ára gamla stúlku á heimili sínu á Akureyri árið 2002. Innlent 13.10.2005 19:16 Eldur í Ingunnarskóla í morgun Eldur kviknaði í Ingunnarskóla í Grafarholti í morgun. Tilkynnt var um eldinn klukkan hálffimm. Að sögn lögreglu var kveikt í fiskikörum við skólann með þeim afleiðingum að eldur barst í þakskegg skólans og hlaust töluvert tjón af. Innlent 13.10.2005 19:16 Nýr dagur slapp við sekt Héraðsdómur Norðurlands eystra ógilti fjárnám Bílastæðasjóðs Akureyrar í bíl fyrirtækisins Nýr dagur sem gert var vegna þess að fyrirtækið neitaði að borga stöðumælasekt. Innlent 13.10.2005 19:16 Enginn verið handtekinn í Keflavík Enginn hefur enn verið handtekinn vegna gruns um að hafa ætlað að tæla ungan dreng upp í bíl sinn við skóla í Reykjanesbæ. Lögreglan er nú að kanna þær vísbendingar sem borist hafa. Innlent 13.10.2005 19:16 Múgæsing í Keflavík Múgæsing hefur, að mati lögreglunnar, gripið um sig í Keflavík vegna tilrauna manns til að lokka börn upp í bíl til sín. Lögreglan mun hugsanlega standa vakt fyrir utan grunnskóla í Reykjanesbæ næstu daga. Innlent 13.10.2005 19:16 Fyrrum starfsmenn sýknaðir Fjórir fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood International í Hafnarfirði voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af kröfum félagsins sem vildi að þeim yrði bannað að ráða sig í þjónustu keppinautarins, Seafood Union, til júníloka á þessu ári. Innlent 13.10.2005 19:16 Tveir af þremur sýknaðir Dómur féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra yfir þremur mönnum sem gert var að sök að hafa lamið þann fjórða það illa á Húsavík í fyrrasumar að hann hlaut sýnilega áverka á höfði. Innlent 13.10.2005 19:16 Fyrirtækið virti ekki samninga Fjórir menn voru í gær sýknaðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu fyrrverandi vinnuveitanda þeirra, Iceland Seafood International, sem fór fram á dómurinn staðfesti lögbann á að mennirnir hæfu störf hjá samkeppnisaðila í samræmi við upprunalegan ráðningarsamning mannanna. Innlent 13.10.2005 19:16 Mæðgin á flæðiskeri stödd Björgunarfélag Akraness fékk tilkynningu seinni part þriðjudags um að mæðgin væru í sjálfheldu rétt utan við Langasand á Akranesi. Innlent 13.10.2005 19:15 156 milljónir í girðingar Langt er nú liðið á sauðburð í sveitum landsins og ökumenn hafa nokkuð orðið varir við sauðfé á vegum landsins síðustu daga. Á síðustu fimm árum hefur að meðaltali verið tilkynnt um 225 slys vegna sauðfjár til lögreglu og þau eru 17% af öllum slysum verða í dreifbýli. Búast má við að óhöppin séu fleiri en ekki sé tilkynnt um þau öll. Innlent 13.10.2005 19:15 Tvö innbrot í nótt Brotist var inn í tölvuverslun HP við Brautarholt í Reykjavík í nótt og þaðan stolið tveimur fartölvum, samtals að verðmæti um hálf milljón króna. Þá rannsakar lögreglan innbrot í íbúð við Eyjabakka í Breiðholti í nótt. Innlent 13.10.2005 19:15 Kröfurnar kynntar Frestur sem gefinn var til að setja fram kröfur um eignarréttindi vegna meðferðar þjóðlendumála á Norðausturlandi er runninn út. Kynning á kröfum fjármálaráðherra sem og annarra sem gert hafa kröfur eða gagnkröfur um eignarréttindi er hafin á vegum óbyggðanefndar hjá sýslumanninum á Seyðisfirði og Húsavík. Innlent 13.10.2005 19:15 Löglega staðið að uppsögn Leikfélag Akureyrar var í gær sýknað af kröfum Aðalsteins Bergdal, leikara, sem gert hafði kröfur um skaðabætur vegna uppsagnar sinnar en honum var sagt upp störfum eftir að hafa neitað samvisku sinnar vegna að taka þátt í uppsetningu leikrits. Innlent 13.10.2005 19:15 Skattsvikamál fyrir héraðsdómi Ríkislögreglustjóri hefur krafist refsingar til handa fyrrum eigendum og forsvarsmönnum Allrahanda - Ísferða vegna brota á lögum um virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Innlent 13.10.2005 19:15 Reynir að lokka börn í bíl sinn Karlmaður í Reykjanesbæ hefur sést utan við grunnskóla í bænum þar sem hann hefur reynt að lokka börn í bílinn til sín með sælgæti. Lögreglan í Keflavík beinir því til foreldra að þau brýni fyrir börnum sínum að þau fari ekki upp í bifreið hjá ókunnugu fólki. Innlent 13.10.2005 19:15 Fisi lent við Litlu kaffistofuna Lögreglunni á Selfossi barst í gærkvöld tilkynning um að svonefndu fisi, vélknúinni svifflugvél, hefði verið lent við Litlu kaffistofuna. Að sögn lögreglu mátti gera ráð fyrir að vélinni hefði verið lent þarna í neyð, en þegar lögregla kom á staðinn var vélin á bak og burt.Virtist sem flugmaðurinn hefði lent til að taka bensín. Innlent 13.10.2005 19:15 Annir vegna hraðaksturs Lögreglan í Hafnarfirði hafði í nógu að snúast vegna hraðaksturs í gærkvöldi og nótt, en ellefu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 139 kílómetra hraða en hinir óku litlu hægar. Annars var nóttin róleg hjá lögreglu víðast hvar um landið, reyndar svo róleg að lögreglan í Reykjavík hafði varla fengið símtal í alla nótt. Innlent 13.10.2005 19:15 « ‹ 61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 120 ›
Gæsluvarðhaldið framlengt Gæsluvarðhald yfir fylgdarmanni fjögurra kínverskra ungmenna sem komu hingað á leið til Bandaríkjanna á dögunum hefur verið framlengt um viku. Maðurinn er grunaður um skipulagt mansal. Innlent 13.10.2005 19:16
Banaslys í Hvalfirði 24 ára karlmaður beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í morgun. Slysið varð á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman skammt hjá Meðalfellsafleggjara í Hvalfirði, sunnan megin, og var flutningabíllinn á leið inn fjörðinn en fólksbíllinn út. Ökumennirnir voru einir í bílunum og var áreksturinn mjög harður og lést ökumaður fólksbílsins. Innlent 13.10.2005 19:16
Tveggja bíla árekstur í Hvalfirði Sjúkraflutningamenn og lögregla eru enn á slysstað í Hvalfirði þar sem varð alvarlegt umferðarslys laust fyrir klukkan níu í morgun, vestan við Fell í Hvalfirði. Upplýsingar af slysinu eru af skornum skammti en þó er vitað að tveir bílar lentu þar í árekstri. Vegfarendur komast þó um fjörðinn með því að fara Eyrarfellsveg. Innlent 13.10.2005 19:16
Beið bana í Hvalfirði Karlmaður á þrítugsaldri beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í gærmorgun. Slysið átti sér stað á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman. Hinn látni var ökumaður fólksbílsins. Innlent 13.10.2005 19:16
Fær 20 ára fangelsi í Indónesíu Indónesískur dómstóll hefur dæmt hina áströlsku Schapelle Corby í tuttugu ára fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum. Corby, sem er 27 ára, var handtekin á flugvellinum í Bali með fjögur kíló af marijúana í október. Hún kveðst saklaus og telur að flugvallarstarfsmenn hafi staðið á bak við smyglið. Innlent 13.10.2005 19:16
Játaði að hafa banað hermanni Scott Ramsey játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að hafa orðið 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í héraðsdómi í dag. Innlent 13.10.2005 19:16
Vinnulyfta hrundi af þriðju hæð Vinnulyfta með tveimur mönnum hrundi niður af þriðju hæð á fjölbýlishúsi við Hátún í Reykjavík á tólfta tímanum í dag. Annar mannann náði að halda sér og skríða inn á svalir en hinn féll með lyftunni niður. Hann var fluttur á slysadeild. Ekki er ljóst hversu alvarlega hann er slasaður en þó vitað að hann er beinbrotinn. Innlent 13.10.2005 19:16
Ákærður fyrir að rassskella konu Sævar Óli Helgason er ákærður fyrir að veitast að konu sem lagði fyrir innkeyrsluna hans í fyrrahaust. Hann segir leikskólakennarann hafa vegið að sér kynferðislega og reynt að sparka í punginn á sér, hann hafi því rassskellt hana.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:16
Mál á hendur Ramsey þingfest Þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag ákæra á hendur Scott Ramsey sem varð 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Sló Ramsey manninn í hálsinn hægra megin með þeim afleiðingum að rifa kom á slagæð sem leiddi til mikilla blæðinga milli heila og heilahimnu af völdum höggsins sem leiddi til dauða hans. Innlent 13.10.2005 19:16
Dæmdir fyrir vopnaburð Þrír menn á þrítugsaldri voru dæmdir til að greiða 30 þúsund krónur hver, fyrir að bera ólögleg bitvopn á almannafæri í miðborg Reykjavíkur þann 12. apríl síðastliðinn. Innlent 13.10.2005 19:16
Leikfélagið sýknað Leikfélag Akureyrar hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi leikara félagsins um vangoldin laun vegna ólögmætrar uppsagnar. Innlent 13.10.2005 19:16
Ætlaði að selja efnin Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem tekinn var með 300 grömm af amfetamíni á heimili sínu í ársbyrjun 2004. Innlent 13.10.2005 19:16
Þrjú ár fyrir tæp þrjú kíló Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær yfir fjórum sakborningum í einum anga Dettifossmálsins. Sá angi snýr að innflutningi á um 2,7 kílóum af amfetamíni og um 600 grömmum af kókaíni. Dettifossmálið svokallaða er þó mun stærra í heild sinni. Innlent 13.10.2005 19:16
Kynferðisbrotsdómur staðfestur Rúmlega tvítugur maður var í Hæstarétti dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa haft kynmök við tólf ára gamla stúlku á heimili sínu á Akureyri árið 2002. Innlent 13.10.2005 19:16
Eldur í Ingunnarskóla í morgun Eldur kviknaði í Ingunnarskóla í Grafarholti í morgun. Tilkynnt var um eldinn klukkan hálffimm. Að sögn lögreglu var kveikt í fiskikörum við skólann með þeim afleiðingum að eldur barst í þakskegg skólans og hlaust töluvert tjón af. Innlent 13.10.2005 19:16
Nýr dagur slapp við sekt Héraðsdómur Norðurlands eystra ógilti fjárnám Bílastæðasjóðs Akureyrar í bíl fyrirtækisins Nýr dagur sem gert var vegna þess að fyrirtækið neitaði að borga stöðumælasekt. Innlent 13.10.2005 19:16
Enginn verið handtekinn í Keflavík Enginn hefur enn verið handtekinn vegna gruns um að hafa ætlað að tæla ungan dreng upp í bíl sinn við skóla í Reykjanesbæ. Lögreglan er nú að kanna þær vísbendingar sem borist hafa. Innlent 13.10.2005 19:16
Múgæsing í Keflavík Múgæsing hefur, að mati lögreglunnar, gripið um sig í Keflavík vegna tilrauna manns til að lokka börn upp í bíl til sín. Lögreglan mun hugsanlega standa vakt fyrir utan grunnskóla í Reykjanesbæ næstu daga. Innlent 13.10.2005 19:16
Fyrrum starfsmenn sýknaðir Fjórir fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood International í Hafnarfirði voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af kröfum félagsins sem vildi að þeim yrði bannað að ráða sig í þjónustu keppinautarins, Seafood Union, til júníloka á þessu ári. Innlent 13.10.2005 19:16
Tveir af þremur sýknaðir Dómur féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra yfir þremur mönnum sem gert var að sök að hafa lamið þann fjórða það illa á Húsavík í fyrrasumar að hann hlaut sýnilega áverka á höfði. Innlent 13.10.2005 19:16
Fyrirtækið virti ekki samninga Fjórir menn voru í gær sýknaðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu fyrrverandi vinnuveitanda þeirra, Iceland Seafood International, sem fór fram á dómurinn staðfesti lögbann á að mennirnir hæfu störf hjá samkeppnisaðila í samræmi við upprunalegan ráðningarsamning mannanna. Innlent 13.10.2005 19:16
Mæðgin á flæðiskeri stödd Björgunarfélag Akraness fékk tilkynningu seinni part þriðjudags um að mæðgin væru í sjálfheldu rétt utan við Langasand á Akranesi. Innlent 13.10.2005 19:15
156 milljónir í girðingar Langt er nú liðið á sauðburð í sveitum landsins og ökumenn hafa nokkuð orðið varir við sauðfé á vegum landsins síðustu daga. Á síðustu fimm árum hefur að meðaltali verið tilkynnt um 225 slys vegna sauðfjár til lögreglu og þau eru 17% af öllum slysum verða í dreifbýli. Búast má við að óhöppin séu fleiri en ekki sé tilkynnt um þau öll. Innlent 13.10.2005 19:15
Tvö innbrot í nótt Brotist var inn í tölvuverslun HP við Brautarholt í Reykjavík í nótt og þaðan stolið tveimur fartölvum, samtals að verðmæti um hálf milljón króna. Þá rannsakar lögreglan innbrot í íbúð við Eyjabakka í Breiðholti í nótt. Innlent 13.10.2005 19:15
Kröfurnar kynntar Frestur sem gefinn var til að setja fram kröfur um eignarréttindi vegna meðferðar þjóðlendumála á Norðausturlandi er runninn út. Kynning á kröfum fjármálaráðherra sem og annarra sem gert hafa kröfur eða gagnkröfur um eignarréttindi er hafin á vegum óbyggðanefndar hjá sýslumanninum á Seyðisfirði og Húsavík. Innlent 13.10.2005 19:15
Löglega staðið að uppsögn Leikfélag Akureyrar var í gær sýknað af kröfum Aðalsteins Bergdal, leikara, sem gert hafði kröfur um skaðabætur vegna uppsagnar sinnar en honum var sagt upp störfum eftir að hafa neitað samvisku sinnar vegna að taka þátt í uppsetningu leikrits. Innlent 13.10.2005 19:15
Skattsvikamál fyrir héraðsdómi Ríkislögreglustjóri hefur krafist refsingar til handa fyrrum eigendum og forsvarsmönnum Allrahanda - Ísferða vegna brota á lögum um virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Innlent 13.10.2005 19:15
Reynir að lokka börn í bíl sinn Karlmaður í Reykjanesbæ hefur sést utan við grunnskóla í bænum þar sem hann hefur reynt að lokka börn í bílinn til sín með sælgæti. Lögreglan í Keflavík beinir því til foreldra að þau brýni fyrir börnum sínum að þau fari ekki upp í bifreið hjá ókunnugu fólki. Innlent 13.10.2005 19:15
Fisi lent við Litlu kaffistofuna Lögreglunni á Selfossi barst í gærkvöld tilkynning um að svonefndu fisi, vélknúinni svifflugvél, hefði verið lent við Litlu kaffistofuna. Að sögn lögreglu mátti gera ráð fyrir að vélinni hefði verið lent þarna í neyð, en þegar lögregla kom á staðinn var vélin á bak og burt.Virtist sem flugmaðurinn hefði lent til að taka bensín. Innlent 13.10.2005 19:15
Annir vegna hraðaksturs Lögreglan í Hafnarfirði hafði í nógu að snúast vegna hraðaksturs í gærkvöldi og nótt, en ellefu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 139 kílómetra hraða en hinir óku litlu hægar. Annars var nóttin róleg hjá lögreglu víðast hvar um landið, reyndar svo róleg að lögreglan í Reykjavík hafði varla fengið símtal í alla nótt. Innlent 13.10.2005 19:15