Lög og regla Tveir teknir á ofsahraða Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á 167 kílómetra hraða á Garðvegi í gærkvöldi þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Ökumaðurinn missir skírteinið og fær sekt. Þá var annar ökumaður tekinn á 142 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi, sá er grunaður um ölvun. Innlent 13.10.2005 19:18 Dæmdur fyrir brot í starfi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjón í sex mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til tvegggja ára, fyrir að hafa notað bíl í eigu lögreglunnar í eigin þágu og fyrir að hafa ráðstafað öðrum lögreglubíl til sambýliskonu sinnar án þess að borga nokkuð fyrir hann. Innlent 13.10.2005 19:18 Yfirheyrðir vegna auðgunarbrota Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur yfirheyrt sakborninga og vitni í Baugsmálinu svokallaða að undanförnu að því er fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:18 Fjölmörg tré skemmdust í sinubruna Hátt í hundrað tré skemmdust í sinubruna í hólma í Elliðaá á móts við gömlu rafstöðina fyrir stundu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir frekar sjaldgæft að þeir þurfi að fást við sinabruna á þessum tíma sumars. Hann segir þurrt veður að undanförnu gera aðstæður ákjósanlegar fyrir brennuvarga en víst er talið að um íkveikju hafi verið að ræða. Innlent 13.10.2005 19:18 Öryggismál í ólestri Barbara Björnsdóttir, skrifstofustjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, segir öryggisgæslu óviðunandi í húsi héraðsdóms sem stendur. Sérstaklega verði að gera breytingar þar sem umgangur almennings í húsið, þar sem það stendur í alfaraleið í miðbænum, sé töluverður. Innlent 13.10.2005 19:18 Úrskurðar að vænta innan 2 vikna Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur ákveður innan tveggja vikna hvort höfundarréttarmáli gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni verði vísað frá dómi eða ekki. Málið höfðaði Auður Sveinsdóttir, ekkja Halldórs Laxness og handhafi höfundarréttar bóka hans. Hún hefur stefnt Hannesi Hólmsteini fyrir ritstuld og krefst sjö og hálfrar milljónar króna í bætur. Hannes krefst þess að málinu verði vísað frá dómi. Innlent 13.10.2005 19:17 Lögregla greip inn málið of seint Lögmenn sakborninga í Dettifossmálinu gagnrýndu vinnubrögð lögreglunnar harðlega þegar málið var tekið til aðalmeðferðar í gær, og sögðu hana hafa sýnt dómgreindarleysi með því að grípa ekki inn í atburðarásina fyrr. Innlent 13.10.2005 19:18 Krafinn um 8 milljónir Fjölskylda Halldórs Laxness fer fram á að Hannes Hólmsteinn Gissurarson verði dæmdur fyrir brot á höfundarlögum í 120 tilvikum. Lögmaður Hannesar telur óeðlilegt að fara fram á bætur þar sem ekki hafi verið sýnt fram á ávinning Hannesar af bókinni. Innlent 13.10.2005 19:18 Lögregla lýsir eftir manni Lögregla í Reykjavík lýsir eftir Bjarna Jónssyni, 29 ára. Bjarni er 194 sm á hæð, er grannvaxinn með ljósskolleitt stutt hár, klæddur dökkum gallabuxum, bláum jakka, dökkri peysu og er í dökkum skóm. Bíll Bjarna fannst seinni partinn í gær í Melasveit við Skarðsheiði. Talið er að til hans hafi sést við bílinn síðastliðið mánudagskvöld, en þá var Bjarni klæddur bláum Kraftgalla. Innlent 13.10.2005 19:18 Á 150 km hraða á Reykjanesbraut Lögreglan í Kópavogi stöðvaði ökumann á rúmlega 150 kílómetra hraða á Reykjanesbraut um miðnætti. Ökumaðurinn gaf þær skýringar einar að hann hefði verið að flýta sér. Sá flýtir á þó eftir að kosta hann ökuskírteinið og einhverja tugi þúsunda í sekt. Innlent 13.10.2005 19:17 Reyndi að ná sáttum "Ég hef enga trú á því að hægt sé að sakfella mig fyrir þetta," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson og er ánægður með hvernig málflutningurinn fór í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:18 Aðeins mál eins starfsmanns Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og fyrrverandi starfsmanns. Hann var í hópi fimm lykilstarfsmanna Iceland Seafood sem hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Missagt var í fréttum Bylgjunnar í morgun að mál allra starfsmannanna hafi verið á borði Hæstaréttar í gær. Innlent 13.10.2005 19:17 Aðalmeðferð lýkur í dag Málflutningi í Dettifossmálinu, sem er umfangsmesta fíkniefnasmyglmál sem komið hefur upp hér á landi, lýkur í dag Innlent 13.10.2005 19:17 Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og nokkurra fyrrverandi starfsmanna þess. Nokkrir lykilstarfsmenn Iceland Seafood hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Innlent 13.10.2005 19:17 Segir DV á gráu svæði Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður segir <em>DV</em> á gráu svæði með að hafa birt nafn og myndir af Íslendingi sem liggur þungt haldinn á spítala vegna hermannaveiki. Með hliðsjón af persónuvernd sé hugsanlegt að <em>DV</em> hafi brotið lög. Landlæknir telur blaðið hafa farið yfir velsæmismörk. Innlent 13.10.2005 19:17 Gæsluþyrlan leitar manns Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöld til að svipast um eftir manni sem saknað var á svæðinu í kringum Hafnarfjall. Rólegt var í lögregluumdæmum landsins að öðru leyti í gærkvöld. Innlent 13.10.2005 19:17 Undrast sakfellingu án nýrra gagna Verjandi Jóns Árna Rúnarssonar, fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans, undrast að héraðsdómari, sem áður sýknaði Jón Árna af fjárdrætti, skuli sakfella hann nú án nýrra gagna. Innlent 13.10.2005 19:17 Lagabreytingu þarf til Héraðsdómari segir að breyta verði lögum til að losna við vonda nágranna. Fokið sé í flest skjól hjá þeim sem sæta brotum á húsfriði. Lögmaður Húseigandafélagsins segir löngu tímabært að taka á slíkum málum. Innlent 13.10.2005 19:17 Erfitt að losna við vonda nágranna Héraðsdómari segir í úrskurði að breytinga sé þörf á sönnunarfærslu vegna brota á húsfriði. Erfitt er að losna við vonda nágranna þar sem lögregluskýrslur fást ekki afhentar. Innlent 13.10.2005 19:17 Kærulausir ökumenn í Keflavík Lögreglan í Keflavík hafði afskipti af nokkrum kærulausum ökumönnum í gærkvöldi og í nótt. Þeir höfðu ýmist sleppt því að setja sumardekkin undir bíla sína, sleppt því að nota öryggisbelti eða voru að tala í gsm-síma án þess að nota handfrjálsan búnað. Innlent 13.10.2005 19:17 Sparkað í vitni Sparkað var í Reyni Traustason, fyrrverandi ritstjóra DV, þegar hann kom í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær til þess að bera vitni í máli sem höfðað er gegn Jóni Trausta Lútherssyni, fyrir ógnanir og líkamsmeiðingar sem áttu sér stað í höfuðstöðvum DV í Skaftahlíð í fyrra. Innlent 13.10.2005 19:17 Eldur í íbúðarhúsi í Breiðholti Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu þegar eldur kom upp í íbúðarhúsi að Rangárseli 20 í Breiðholti. Húsið er tveggja hæða parhús og að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu logaði mikill eldur út úr húsinu. Innlent 13.10.2005 19:17 Telur framhjá sér gengið Tekið var fyrir í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem séra Sigríður Guðmarsdóttir höfðar gegn Biskupsstofu. Hún telur hafa verið framhjá sér gengið þegar ráðið var í stöðu sendiráðsprests í London. Innlent 13.10.2005 19:17 Bíður dóms fyrir sælgætissmygl Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur stefnt Árna Emanúelssyni til greiðslu sjö þúsund og fimm hundruð króna sektar vegna brota á tollalögum þegar hann hafði með sér um 25 kíló af sælgæti og gosdrykkjum við komu Norrænu til Seyðisfjarðar síðla árs 2004. Telst slíkt brot á tollalögum og var Árna boðið að ljúka málinu með sátt hjá Tollstjóranum á Seyðisfirði sem hann hafnaði. Innlent 13.10.2005 19:17 Skólastjórinn í 2 ára fangelsi Jón Árni Rúnarsson, fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt og skjalafals á árunum 1994 til 2001 í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jón Árni var ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpar 29 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:17 Kona og ungabarn björguðust "Það var fyrir mestu að enginn slasaðist og tjónasérfræðingar eru bjartsýnir að bjarga megi töluverðu af innanstokksmunum," segir Stefán Pálsson, safnvörður og dómari í Gettu betur, en kona hans og barn björguðust þegar kviknaði í íbúð þeirra að Mánagötu um eftirmiðsdagsbil í gær. Innlent 13.10.2005 19:17 Sýknaður af tilraun til manndráps Rúmlega fertugur maður var í Héraðsdómi í dag sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps en dæmdur til öryggisvistar á réttargeðdeildinni að Sogni. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa stungið mann þrisvar sinnum með hnífi á heimili sínu í nóvember í fyrra. Innlent 13.10.2005 19:17 Eldur í húsi að Mánagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Mánagötu í Reykjavík á fjórða tímanum vegna elds í húsi við götuna. Kona með ungabarn var á heimilinu en þau komust bæði út heil á húfi. Innlent 13.10.2005 19:17 Heyrði kvalafullt öskur Nágranni Sæunnar Pálsdóttur segist hafa heyrt skelfingaröskur og vein í konu á þeim tíma sem morðið á henni á að hafa átt sér stað. Óhljóðin hafi síðan hætt skyndilega eftir þungan dynk. Þetta kom fram í vitnisburði nágrannans við aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. Innlent 13.10.2005 19:17 Fékk tveggja ára fangelsi Jón Árni Rúnarsson, fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir stórfelldan fjárdrátt á tímabilinu 1994 til 2001. Innlent 13.10.2005 19:17 « ‹ 59 60 61 62 63 64 65 66 67 … 120 ›
Tveir teknir á ofsahraða Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á 167 kílómetra hraða á Garðvegi í gærkvöldi þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Ökumaðurinn missir skírteinið og fær sekt. Þá var annar ökumaður tekinn á 142 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi, sá er grunaður um ölvun. Innlent 13.10.2005 19:18
Dæmdur fyrir brot í starfi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjón í sex mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til tvegggja ára, fyrir að hafa notað bíl í eigu lögreglunnar í eigin þágu og fyrir að hafa ráðstafað öðrum lögreglubíl til sambýliskonu sinnar án þess að borga nokkuð fyrir hann. Innlent 13.10.2005 19:18
Yfirheyrðir vegna auðgunarbrota Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur yfirheyrt sakborninga og vitni í Baugsmálinu svokallaða að undanförnu að því er fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:18
Fjölmörg tré skemmdust í sinubruna Hátt í hundrað tré skemmdust í sinubruna í hólma í Elliðaá á móts við gömlu rafstöðina fyrir stundu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir frekar sjaldgæft að þeir þurfi að fást við sinabruna á þessum tíma sumars. Hann segir þurrt veður að undanförnu gera aðstæður ákjósanlegar fyrir brennuvarga en víst er talið að um íkveikju hafi verið að ræða. Innlent 13.10.2005 19:18
Öryggismál í ólestri Barbara Björnsdóttir, skrifstofustjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, segir öryggisgæslu óviðunandi í húsi héraðsdóms sem stendur. Sérstaklega verði að gera breytingar þar sem umgangur almennings í húsið, þar sem það stendur í alfaraleið í miðbænum, sé töluverður. Innlent 13.10.2005 19:18
Úrskurðar að vænta innan 2 vikna Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur ákveður innan tveggja vikna hvort höfundarréttarmáli gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni verði vísað frá dómi eða ekki. Málið höfðaði Auður Sveinsdóttir, ekkja Halldórs Laxness og handhafi höfundarréttar bóka hans. Hún hefur stefnt Hannesi Hólmsteini fyrir ritstuld og krefst sjö og hálfrar milljónar króna í bætur. Hannes krefst þess að málinu verði vísað frá dómi. Innlent 13.10.2005 19:17
Lögregla greip inn málið of seint Lögmenn sakborninga í Dettifossmálinu gagnrýndu vinnubrögð lögreglunnar harðlega þegar málið var tekið til aðalmeðferðar í gær, og sögðu hana hafa sýnt dómgreindarleysi með því að grípa ekki inn í atburðarásina fyrr. Innlent 13.10.2005 19:18
Krafinn um 8 milljónir Fjölskylda Halldórs Laxness fer fram á að Hannes Hólmsteinn Gissurarson verði dæmdur fyrir brot á höfundarlögum í 120 tilvikum. Lögmaður Hannesar telur óeðlilegt að fara fram á bætur þar sem ekki hafi verið sýnt fram á ávinning Hannesar af bókinni. Innlent 13.10.2005 19:18
Lögregla lýsir eftir manni Lögregla í Reykjavík lýsir eftir Bjarna Jónssyni, 29 ára. Bjarni er 194 sm á hæð, er grannvaxinn með ljósskolleitt stutt hár, klæddur dökkum gallabuxum, bláum jakka, dökkri peysu og er í dökkum skóm. Bíll Bjarna fannst seinni partinn í gær í Melasveit við Skarðsheiði. Talið er að til hans hafi sést við bílinn síðastliðið mánudagskvöld, en þá var Bjarni klæddur bláum Kraftgalla. Innlent 13.10.2005 19:18
Á 150 km hraða á Reykjanesbraut Lögreglan í Kópavogi stöðvaði ökumann á rúmlega 150 kílómetra hraða á Reykjanesbraut um miðnætti. Ökumaðurinn gaf þær skýringar einar að hann hefði verið að flýta sér. Sá flýtir á þó eftir að kosta hann ökuskírteinið og einhverja tugi þúsunda í sekt. Innlent 13.10.2005 19:17
Reyndi að ná sáttum "Ég hef enga trú á því að hægt sé að sakfella mig fyrir þetta," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson og er ánægður með hvernig málflutningurinn fór í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:18
Aðeins mál eins starfsmanns Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og fyrrverandi starfsmanns. Hann var í hópi fimm lykilstarfsmanna Iceland Seafood sem hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Missagt var í fréttum Bylgjunnar í morgun að mál allra starfsmannanna hafi verið á borði Hæstaréttar í gær. Innlent 13.10.2005 19:17
Aðalmeðferð lýkur í dag Málflutningi í Dettifossmálinu, sem er umfangsmesta fíkniefnasmyglmál sem komið hefur upp hér á landi, lýkur í dag Innlent 13.10.2005 19:17
Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og nokkurra fyrrverandi starfsmanna þess. Nokkrir lykilstarfsmenn Iceland Seafood hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Innlent 13.10.2005 19:17
Segir DV á gráu svæði Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður segir <em>DV</em> á gráu svæði með að hafa birt nafn og myndir af Íslendingi sem liggur þungt haldinn á spítala vegna hermannaveiki. Með hliðsjón af persónuvernd sé hugsanlegt að <em>DV</em> hafi brotið lög. Landlæknir telur blaðið hafa farið yfir velsæmismörk. Innlent 13.10.2005 19:17
Gæsluþyrlan leitar manns Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöld til að svipast um eftir manni sem saknað var á svæðinu í kringum Hafnarfjall. Rólegt var í lögregluumdæmum landsins að öðru leyti í gærkvöld. Innlent 13.10.2005 19:17
Undrast sakfellingu án nýrra gagna Verjandi Jóns Árna Rúnarssonar, fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans, undrast að héraðsdómari, sem áður sýknaði Jón Árna af fjárdrætti, skuli sakfella hann nú án nýrra gagna. Innlent 13.10.2005 19:17
Lagabreytingu þarf til Héraðsdómari segir að breyta verði lögum til að losna við vonda nágranna. Fokið sé í flest skjól hjá þeim sem sæta brotum á húsfriði. Lögmaður Húseigandafélagsins segir löngu tímabært að taka á slíkum málum. Innlent 13.10.2005 19:17
Erfitt að losna við vonda nágranna Héraðsdómari segir í úrskurði að breytinga sé þörf á sönnunarfærslu vegna brota á húsfriði. Erfitt er að losna við vonda nágranna þar sem lögregluskýrslur fást ekki afhentar. Innlent 13.10.2005 19:17
Kærulausir ökumenn í Keflavík Lögreglan í Keflavík hafði afskipti af nokkrum kærulausum ökumönnum í gærkvöldi og í nótt. Þeir höfðu ýmist sleppt því að setja sumardekkin undir bíla sína, sleppt því að nota öryggisbelti eða voru að tala í gsm-síma án þess að nota handfrjálsan búnað. Innlent 13.10.2005 19:17
Sparkað í vitni Sparkað var í Reyni Traustason, fyrrverandi ritstjóra DV, þegar hann kom í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær til þess að bera vitni í máli sem höfðað er gegn Jóni Trausta Lútherssyni, fyrir ógnanir og líkamsmeiðingar sem áttu sér stað í höfuðstöðvum DV í Skaftahlíð í fyrra. Innlent 13.10.2005 19:17
Eldur í íbúðarhúsi í Breiðholti Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu þegar eldur kom upp í íbúðarhúsi að Rangárseli 20 í Breiðholti. Húsið er tveggja hæða parhús og að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu logaði mikill eldur út úr húsinu. Innlent 13.10.2005 19:17
Telur framhjá sér gengið Tekið var fyrir í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem séra Sigríður Guðmarsdóttir höfðar gegn Biskupsstofu. Hún telur hafa verið framhjá sér gengið þegar ráðið var í stöðu sendiráðsprests í London. Innlent 13.10.2005 19:17
Bíður dóms fyrir sælgætissmygl Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur stefnt Árna Emanúelssyni til greiðslu sjö þúsund og fimm hundruð króna sektar vegna brota á tollalögum þegar hann hafði með sér um 25 kíló af sælgæti og gosdrykkjum við komu Norrænu til Seyðisfjarðar síðla árs 2004. Telst slíkt brot á tollalögum og var Árna boðið að ljúka málinu með sátt hjá Tollstjóranum á Seyðisfirði sem hann hafnaði. Innlent 13.10.2005 19:17
Skólastjórinn í 2 ára fangelsi Jón Árni Rúnarsson, fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt og skjalafals á árunum 1994 til 2001 í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jón Árni var ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpar 29 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:17
Kona og ungabarn björguðust "Það var fyrir mestu að enginn slasaðist og tjónasérfræðingar eru bjartsýnir að bjarga megi töluverðu af innanstokksmunum," segir Stefán Pálsson, safnvörður og dómari í Gettu betur, en kona hans og barn björguðust þegar kviknaði í íbúð þeirra að Mánagötu um eftirmiðsdagsbil í gær. Innlent 13.10.2005 19:17
Sýknaður af tilraun til manndráps Rúmlega fertugur maður var í Héraðsdómi í dag sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps en dæmdur til öryggisvistar á réttargeðdeildinni að Sogni. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa stungið mann þrisvar sinnum með hnífi á heimili sínu í nóvember í fyrra. Innlent 13.10.2005 19:17
Eldur í húsi að Mánagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Mánagötu í Reykjavík á fjórða tímanum vegna elds í húsi við götuna. Kona með ungabarn var á heimilinu en þau komust bæði út heil á húfi. Innlent 13.10.2005 19:17
Heyrði kvalafullt öskur Nágranni Sæunnar Pálsdóttur segist hafa heyrt skelfingaröskur og vein í konu á þeim tíma sem morðið á henni á að hafa átt sér stað. Óhljóðin hafi síðan hætt skyndilega eftir þungan dynk. Þetta kom fram í vitnisburði nágrannans við aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. Innlent 13.10.2005 19:17
Fékk tveggja ára fangelsi Jón Árni Rúnarsson, fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir stórfelldan fjárdrátt á tímabilinu 1994 til 2001. Innlent 13.10.2005 19:17